Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 39
Fyrirlestrar í Su›urhlí›arstofu, Su›urhlí› 36
21. – 24. nóvember (Íslam) 28. nóv. – 1.des. (Ísrael) n.k. kl. 20:00
Íslam og Ísrael eru flau tvö veldi sem eru áhrifamest í Austurlöndum nær, en jafnframt
eru flau keppinautar um sama jar›arskikann, sem er mest umdeildur í heiminum í
dag. Vi›bur›ir me›al beggja hafa gagnger áhrif á líf milljóna og eru í heimsfréttum
nær daglega. fiar a› auki telja milljónir a› vi›bur›ir me›al flessara trúarsamfélaga
muni rá›a mestu um framvindu heimsslitavi›bur›anna og stofnun d‡r›arríkis Gu›s.
A›gangur ókeypis. Nánari uppl‡singar í síma 588 7800 og 897 3625.
A›ventkirkjan í Reykjavík.
Atvinnuauglýsingar
Kranamaður
Óskum eftir vönum kranamanni á nýjan
Libherr H 112 til starfa hjá traustu bygging-
arfyrirtæki með næg verkefni framundan.
Góð laun í boði fyrir góðan mann.
Upplýsingar gefur Sigurbjörn í síma
896 3847.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjarnarbraut
2, Borgarnesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Grímsstaðir, fnr. 135-927, Borgarbyggð, þingl. eig. Guðni Haraldsson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Mýrasýslu, fimmtudaginn 23. nóvember
2006 kl. 10:00.
Hl. Bröttugötu 4, Borgarnesi, fnr. 211-1211, þingl. eig. Guðbrandur
Reynisson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 23. nóv-
ember 2006 kl. 10:00.
Kollslækur, fnr. 134-505, Borgarfjarðarsveit, þingl. eig. Guðmundur
Orri McKinstry og Þórður Andri McKinstry, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
skrifstofa, fimmtudaginn 23. nóvember 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
20. nóvember 2006.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Félagslíf
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 18711218
Kallanir*
EDDA 6006112119 III
FJÖLNIR 6006112119 I
HLÍN 6006112119 IV/V
I.O.O.F. Rb. 4 15511218-8½ I*
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar-
stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hafnarstræti 77, íb. 01-0301, Akureyri (214-6926), þingl. eig. Rolf Jonny
Ingvar Svard, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn
24. nóvember 2006 kl. 10:00.
Haukur EA-76, skipaskr.nr. 0236, þingl. eig. Stakkar ehf., gerðarbeið-
andi Tryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 24. nóvemb. 2006 kl. 10:00.
Múlasíða 6a, 04-0101, Akureyri (214-9226), þingl. eig. Hallgrímur H.
Hjálmarsson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., föstudaginn
24. nóvember 2006 kl. 10:00.
Oddagata 9, Akureyri (214-9640), þingl. eig. Jónatan Már Guðjónsson,
Eygló Hjaltalín og Guðjón Rúnar Guðjónsson, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 24. nóvember 2006 kl. 10:00.
Vestursíða 30E, 03-0301, Akureyri (215-1613), þingl. eig. Guðlaug
Hrönn Gunnarsdóttir og Garðar Hallgrímsson, gerðarbeiðendur Inn-
heimtustofnun sveitarfélaga, Kaupþing banki hf. og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., föstudaginn 24. nóvember 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
20. nóvember 2006.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
FYRIRLESTUR á vegum Fugla-
verndar verður haldinn í Bratta, sal
Kennaraháskóla Íslands, á morgun,
miðvikudag, kl. 20.30.
Fyrirlesari er Einar Ó. Þorleifsson
náttúrufræðingur. „Hann mun fjalla
um fuglana í garðinum, miðla af ára-
langri reynslu sinni af fuglafóðrun,
gerð fuglahúsa, fóðurbretta og fugla-
baða. Hann fjallar einnig um helstu
fuglategundir sem er að vænta í góð-
um fuglagarði og hvernig er hægt að
laða fugla að garðinum með vali og
gróðursetningu á fuglavænum trjám
og runnum; trjám sem skapa skjól og
hreiðurstaði eða fæðu handa fugl-
unum,“ segir í fréttatilkynningu.
Miklar breytingar hafa orðið á fuglafánu landsins á undanförnum áratug-
um vegna aukinnar ræktunar og verður getið um nýja landnema og tegundir
sem líklegt er að muni setjast hér að á komandi árum. Allir eru velkomnir og
er aðgangseyrir 200 kr. fyrir þá sem eru ekki félagar í Fuglavernd.
Fyrirlestur um garðfugla
Í TILEFNI aldarafmælis Aðvent-
safnaðarins í Reykjavík verður efnt
til fyrirlestra 21. nóvember til 1. des-
ember n.k. í Suðurhlíðarstofu, Suð-
urhlíð 36. Reykjavík. Fyrirlestrarnir
hefjast kl. 20 öll kvöldin og er að-
gangur ókeypis.
Fyrra efnið sem tekið verður fyrir
er íslam þar sem reynt verður að
svara spurningunni: Hvað er líkt og
hvað er ólíkt með kristindómi og ísl-
am (21.–24. nóv.) og mun dr. Börge
Schantz frá Danmörku fjalla um það
efni.
Síðara efnið er Ísrael undir yf-
irskriftinni: Er nútími Ísraels upp-
fylling spádóma Biblíunnar? (28.
nóv.–1. des.) og fyrirlesari þar verð-
ur dr. Guðmundur Ólafsson.
Dr. Börge Schantz hefur unnið
brautryðjendastarf meðal aðventista
er hann setti á stofn og rak í nær
áratug kennslu- og rannsókn-
arstofnun í íslömskum fræðum við
Newbold-skólann í Englandi og sem
trúboði starfaði hann í 14 ár meðal
múslíma í Vestur-Afríku og Mið-
Austurlöndum.
Dr. Guðmundur Ólafsson varði
doktorsritgerð sína í Gamla testa-
mentisfræðum við Andrews háskól-
ann 1993 og hefur starfað við
kennslu á háskólastigi innan þess
sviðs í um tvo áratugi bæði við New-
bold-skólann í Englandi og einnig
við háskóla í Bandaríkjunum. Hann
hefur einnig veitt forstöðu menntun
prestsnema í baltnesku löndunum og
öðrum löndum fyrrum Sovétríkj-
anna um árabil.
Fyrirlestrar
á afmælisári
Aðventsafn-
aðarins
SÓL í Straumi, hópur áhugafólks í
Hafnarfirði, heldur fund í Gúttó í
kvöld kl. 20.
„Á nýju ári þurfa Hafnfirðingar
að gera upp hug sinn um það
hvort þeir vilji að leyfð verði
stækkun álbræðslunnar í Straums-
vík eins og Alcan, eigandi fyr-
irtækisins, vinnur að. Búið er að
selja Alcan lóð undir stækkaða
starfsemi og kynna deiliskipulag
sem miðað er við stækkun. Önnur
yfirvöld eru búin að gefa grænt
ljós m.a. á umhverfismat og starfs-
leyfi. Alcan er nú að semja við
birgja um aðföng fyrir stækkaða
verksmiðju. Geta Hafnfirðingar í
raun og veru komið í veg fyrir að
fyrirtækið stækki?“ segir í fund-
arboði.
Fyrirlesari fundarins verður Þór
Tómasson, sérfræðingur Umhverf-
isstofnunar sem gaf út starfsleyfi
fyrir stækkaða verksmiðju.
Rætt um
stækkun í
Straumsvík
HÁDEGISFUNDUR Sagnfræðinga-
félags Íslands verður haldinn í Þjóð-
minjasafninu, í dag, þriðjudag, kl.
12.05–12.55. Aðgangur ókeypis og
öllum heimill. Fyrirlesari verður Guð-
mundur Jónsson prófessor í sagn-
fræði við Háskóla Íslands. Í erindinu
verða reifaðar hugmyndir sagnfræð-
inga um hlutlægnishugtakið og
spurt hvort því sé viðbjargandi á
okkar póstmódernísku tímum, segir í
fundarboði.
Rætt um
hlutlægni
UMFERÐARÞING verður haldið
dagana 23. og 24. nóvember næst-
komandi á Hótel Loftleiðum í
Reykjavík. Þetta er sjöunda um-
ferðarþingið síðan það var fyrst
haldið árið 1990.
Karl Ragnars, forstjóri Umferð-
arstofu, setur þingið og Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra flyt-
ur ávarp við setninguna og afhend-
ir Umferðarljósið, verðlaun Um-
ferðarráðs, sem veitt eru fyrir
eftirtektarvert og/eða árangursríkt
starf á sviði umferðarmála.
Að umferðarþingi, sem haldið er
á tveggja ára fresti, standa sam-
gönguráðuneytið, Umferðarráð og
Umferðarstofa og munu íslenskir
og erlendir fyrirlesarar í þetta sinn
flytja 18 erindi.
Tveir erlendir fyrirlesarar verða
á þinginu. Bernd Wolgang Wink,
stjórnarmaður í European Union
Road Federation, mun fjalla um
nýjungar í vegriðum og örygg-
isbúnaði vega í Evrópu og Günter
Breyer, aðstoðarvegamálastjóri
Austurríkis, ræðir um umferðarör-
yggi í Evrópu í dag, stöðuna og
leiðir til úrbóta.
Hægt er að skrá sig á þingið
með því að fara inn á heimasíðu
Umferarðstofu www.us.is.
Umferðar-
þing hefst á
fimmtudag
LANDSAMTÖKIN Þroskahjálp
fagna um þessar mundir 30 ára
afmæli sínu. Við þessi tímamót
blása þau til fagnaðar sem hald-
inn verður á Grand Hótel að
kvöldi laugardagsins 25. nóv-
ember nk.
Dagskráin hefst kl. 19 með for-
drykk og söng Vox Femine. Síðan
er hátíðarkvöldverður undir
stjórn Margrétar Sverrisdóttur.
Ræðumaður verður Össur Skarp-
héðinsson og Halldór Gunnarsson
stjórnar fjöldasöng.
Hljómsveitirnar Plútó og Hrað-
akstur bannaður munu síðan hita
upp fyrir hina einu sönnu Stuð-
menn sem leika fyrir dansi fram
eftir nóttu.
„Allir eru hjartanlega velkomn-
ir til að fagna þessum tímamótum
með samtökunum og þeir sem
komast ekki í kvöldverðinn geta
meðan húsrúm leyfir keypt sig
inn á dansleikinn sem hefst kl.
23,“ segir í fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar og miða-
pantanir eru veittar í síma 588
9390 og á netfanginu asta@t-
hroskahjalp.is
Þeir sem ætla að taka þátt í
kvöldverðinum vinsamlegast haf-
ið samband eigi síðar en miðviku-
daginn 22. nóvember.
Stuðmenn á
afmælisfagn-
aði Þroska-
hjálpar
FRÉTTIR
Nýskráningar
Framsóknar
Í FRÉTT blaðsins á sunnudag var
haft eftir Sigurði Árnasyni, formanni
kjördæmisráðs Framsóknarflokks-
ins, að flestar nýskráningar í flokk-
inn fyrir prófkjörið hefðu borist úr
Skagafirði. Hið rétta er að flestar ný-
skráningar bárust úr Skagafirði og af
norðanverðum Vestfjörðum. Beðist
er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT