Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heldur liðunum liðugum!
Í Lið-Aktín Extra eru 666 mg af Glúkósamíni sem tryggir
líkamanum upptöku á a.m.k. 500 mg.
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
LANGFLESTAR þeirra kvenna,
sem sækja mæðraeftirlit hjá Mið-
stöð mæðraverndar (MM) í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur, eru kon-
ur sem skilgreindar hafa verið með
áhættu af einhverju tagi á með-
göngu, hvort sem hún telst andleg,
líkamleg eða félagsleg. Einnig eru
einhverjar konur í skoðun hjá okk-
ur, sem af einhverri ástæðu hafa
ekki viljað sækja þjónustuna á sína
heilsugæslustöð.
Þetta segir Sigríður Sía Jóns-
dóttir, yfirljósmóðir á MM, sem
undanfarin ár hefur sérhæft sig í
eftirliti við þessa hópa þungaðra
kvenna. Í lok vikunnar mun starf-
semi miðstöðvarinnar flytjast úr
Heilsuverndarstöðinni í sérhannað
húsnæði fyrir miðstöðina í Mjódd-
inni, sem þó mun ekki verða nýtt
nema að hluta þar sem miðstöðin
hættir að sinna eftirliti með þung-
uðum konum í þessu nýja húsnæði,
en mun áfram sinna ráðgjöf og
fræðslu og vera stuðningsaðili fyrir
heilsugæsluna um mæðravernd.
Þær konur sem hafa leitað til MM
og teljast vera eðlilega meðgöngu
eða lítilli áhættu munu framvegis
sækja þjónustu á sinni heilsugæslu-
stöð, en konur í áhættumeðgöngu
munu sækja eftirlit á LSH.
Sigríður Sía og Arnar Hauksson,
dr. med. og yfirlæknir á MM, segj-
ast ekki telja að heilbrigðisyfirvöld
hafi kynnt sér til hlítar það starf
sem farið hefur fram á MM, áður
en ákvörðunin um að leggjast í um-
fangsmiklar skipulagsbreytingar á
henni var tekin. Mikil sér-
fræðiþekking hafi skapast þau sjö
ár sem miðstöðin hefur verið starf-
rækt og hún sinni þjónustu við við-
kvæman hóp þungaðra kvenna.
Sérhæfing gengið vel
Að sögn Sigríðar Síu er hætt við
að konur sem skilgreindar hafa
verið með áhættu á meðgöngu fái
styttri tíma í skoðunum á LSH en
þær hafa fengið á MM, eða tuttugu
mínútur í stað þrjátíu mínútna.
Hætt sé við að ekki gefist mikill
tími til fræðslu, verði tíminn stytt-
ur og þá liggi ekki fyrir hvort kon-
urnar fái ávallt að hitta sömu ljós-
móðurina á LSH.
Mæðravernd hefur verið rekin
við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
frá því stöðin var byggð. Kvenna-
deild LSH hafði jafnframt verið
meðgöngudeild fyrir konur sem
voru í áhættu á meðgöngu en upp
úr 1994 hafi verið ákveðið að sam-
eina deildirnar og samtímis byggja
upp og efla aðstöðu til mæðraeft-
irlits á heilsugæslustöðvum. Þann-
ig var, að sögn Arnars, stefnt að
því að MM væri sem mest deild fyr-
ir konur sem skilgreindar hefðu
verið með áhættuþætti á með-
göngu. Þegar deildirnar voru sam-
einaðar fékk MM aukið húsnæði á
jarðhæð Heilsuverndarstöðv-
arinnar. Sett var í gang endurnýj-
un á öllu húsnæðinu og það sér-
hannað með tilliti til þungaðra
kvenna.
Þau Sigríður Sía og Arnar telja
bæði að sérhæfing MM hafi gengið
vel og benda á að þar hafi verið
unnið öflugt þróunarstarf. Þar má
nefna bæklinga um ákveðin vanda-
mál í þungun, námsefnisgerð fyrir
verðandi foreldra, brjóstaráðgjöf,
ráðgjöf fyrir heilsugæsluna, auk
reglulegra fræðslufunda. Þá hefur
MM tekið þátt í gerð vinnureglna
um eftirlit þungaðra kvenna án
áhættu og haldið árlega fræðslu-
ráðstefnu.
Nýlega sagði LSH upp samningi
sínum við heilsugæslu um rekstur
MM, en LSH lagði til eina stöðu
sérfræðings í áhættumeðgöngu.
„Þegar sala heilsuverndarstöðv-
arinnar varð ljós með flutningi í
Mjódd vildi LSH segja upp þessum
samningi og að þær konur sem
teldust í „hreinni áhættu“ ættu að
sækja skoðanir á kvennadeild LSH.
Þar með var grunnur að því að
reka deild utan sjúkrahúss, Mjódd,
liðinn. Að hluta til er um mismun-
andi framtíðarsýn, en einnig veldur
mannekla á kvenndeild, sem taldi
sig þannig geta nýtt betur sérfræð-
inga sína,“ segir Arnar LSH bar
fyrir sig að flutningar MM í Mjódd-
ina réði ákvörðun þess og að LSH
gæti ekki varið það að senda starfs-
menn sína svo langt út í bæ. Þá
taldi heilsugæslan ekki hægt að
reka deild í Mjódd í samkeppni við
kvennadeild LSH. Sigríður Sía
kveðst telja það afskaplega sér-
stakt að yfirstjórn LSH geti tekið
ákvörðun um að rifta samningnum
sem gerður hafði verið við MM að
því er virðist án þess að hafa rætt
málið við heilbrigðisyfirvöld.
Miklar skipulagsbreytingar
hjá Miðstöð mæðraverndar
Morgunblaðið/ÞÖK
Flutningar Arnar Hauksson og Sigríður Sía Jónsdóttir, yfirlæknir og yfirljósmóðir á Miðstöð mæðraverndar.
Yfirvöld ekki
kynnt sér starfið
Í HNOTSKURN
»Mæðravernd hefur veriðrekin við Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur frá því
stöðin var byggð.
»Miðstöð mæðraverndarhefur verið rekin í Heilsu-
verndarstöðinni í sjö ár.
»Hún hefur sérhæft sig íeftirliti mæðra sem skil-
greindar hafa verið með
áhættu á meðgöngu.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UNICEF stendur fyrir dreifingu á
180.000 flugnanetum til varnar mal-
aríu í Gíneu-Bissá í Afríku um þessar
mundir og er um 80% átaksins greitt
af íslenskum fyrirtækjum.
Dreifingin hófst í tveimur héruð-
um landsins í síðustu viku. 25. nóv-
ember hefst síðan seinni hluti átaks-
ins og er gert ráð fyrir að búið verði
að dreifa netunum í öllum níu hér-
uðum landsins 9. desember. Samfara
dreifingunni fá öll börn A-vítamín
dropa og lyf gegn ormum.
Mikil áhrif
Flugnanetin eru hengd yfir rúm
og ætluð til að verja börn og barns-
hafandi konur. Stefán Ingi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Unicef Ís-
land, segir að undir hverju neti sofi
nokkur börn og óhætt sé að segja að
að minnsta kosti 300.000 börn komi
til með að sofa undir þessum netum.
„Þetta er gríðarlega stórt átak,“
segir hann og bætir við að malaría sé
helsti valdur barnadauða í landinu.
Mjög ánægjulegt sé að taka þátt í
þessu verkefni vegna þess að átakið
komi til með að hafa mjög mikil áhrif
til að lækka ungbarnadauða. Sam-
kvæmt opinberum tölum í landinu
deyi um 20% barna áður en þau ná
fimm ára aldri og því megi gera því
skóna að netin komi í veg fyrir dauða
um 4.000 barna vegna malaríu, eða
ámóta margra og fæðist árlega á Ís-
landi.
„Það er mjög magnað og ánægju-
leg upplifun að sjá þetta,“ segir Stef-
án um fyrstu viðbrögð heimamanna
við átakinu og bætir við að Baugur,
FL-Group og Fons séu helstu bak-
hjarlar verkefnisins.
Dreifa 180.000 flugna-
netum gegn malaríu
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Átak Stefán Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
gefur barni a-vítamín.
HVÖSS aust-
anátt varð til
þess að snjóinn
sem féll í Blá-
fjöllum um
helgina festi ekki
í brekkunum
heldur fauk út í
buskann. Ekki
var einu sinni til-
efni til að fara
með snjótroðara
um svæðið. Hið sama gerðist í
Skálafelli.
Aðspurður sagði Grétar Hallur
Þorsteinsson, forstöðumaður skíða-
svæðanna, að „með góðum“ vilja
gætu gönguskíðamenn rakið sig
eftir sköflum en færið væri þó mjög
tæpt. Hann vonast til þess að úr
snjóleysinu rætist á miðvikudag.
Þrjár skíðalyftur eru á höfuð-
borgarsvæðinu, ein í Breiðholti,
önnur í Grafarvogi og sú þriðja í
Ártúnsbrekku. Í gær voru lyfturnar
lokaðar vegna snjóleysis og
skemmdarverka.
Snjórinn fauk
úr Bláfjöllum
Bláfjöll eiga sína
góðu daga.
TVÖ fíkniefnamál komu upp á Litla
- Hrauni í síðustu viku. Fyrra málið
tengdist strokufanga sem gaf sig
fram fyrir helgi. Hann var sendur í
röntgenmyndatöku eftir komu í
fangelsið. Kom þá í ljós að í enda-
þarmi hans voru aðskotahlutir. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi reynd-
ust það vera um 40 grömm af am-
fetamíni og nokkuð magn af stera-
töflum.
Á föstudag var kona sem kom í
heimsókn í fangelsið færð til rönt-
genmyndatöku og reyndist hún
hafa nokkur grömm af amfetamíni
og eitthvað af læknalyfjum innvort-
is.
Strokufangi
með fíkniefni
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt karlmann í tveggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
hótanir í garð tveggja lögreglu-
manna í janúar sl. Maðurinn játaði
sök en ástæða handtökunnar var
slagsmál og heimilisófriður heima
hjá honum..
Maðurinn sagðist ekki hafa meint
neitt með hótun sinni en í dómi seg-
ir að hann hafi verið mjög æstur
þegar hann lét orðin falla og ekki
hafi verið ástæða til annars fyrir
lögreglumennina en að taka hót-
unina alvarlega. Ástríður Gríms-
dóttir héraðsdómari dæmdi málið.
Hótaði lög-
reglumönnum