Morgunblaðið - 21.11.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 9
FRÉTTIR
GRAFARVOGSKIRKJA var þétt-
setin á sunnudagsmorguninn þegar
Sigurbjörn Einarsson biskup pré-
dikaði þar við messu klukkan 11.
Prédikun Sigurbjörns fór fram að
lokinni sérstakri dagskrá, Degi
Orðsins, sem helguð var honum.
Biskup Íslands, Karl Sigur-
björnsson, séra Vigfús Þór Árnason,
séra Bjarni Þór Bjarnason, séra
Lena Rós Matthíasdóttir og séra
Sigurður Arnarson þjónuðu fyrir
altari.
Fjögur erindi voru flutt á dag-
skránni um morguninn. Dr. Sigurð-
ur Árni Þórðarson, prestur í Nes-
kirkju, fjallaði um „prestinn og
guðfræðinginn“; dr. Svanur Krist-
jánsson, prófessor í stjórnmálafræði
við HÍ, fjallaði um „pólitíkina“; dr.
Margrét Eggertsdóttir, rannsókna-
prófessor í íslenskum fræðum á
Stofnun Árna Magnússonar , fjallaði
um „sálmaskáldið“ og Guðrún
Helgadóttir, rithöfundur og fyrrver-
andi forseti Alþingis, flutti erindið
„Eins og ég sá/sé hann“.
Morgunblaðið/Kristinn
Predikaði 95 ára Sigurbjörn Einarsson prédikaði í Grafarvogskirkju á sunnudag, en Karl Sigurbjörnsson biskup
(t.h.), séra Lena Rós Matthíasdóttir og séra Bjarni Þór Bjarnason voru meðal þeirra sem þjónuðu fyrir altari.
Fjölmenni hlýddi á prédikun Sigurbjörns
Einarssonar biskups í Grafarvogskirkju
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
STJÓRN Sambands íslenskra sveit-
arfélaga þarf að taka upp viðræður
við fagstjórnir skólafólks um fram-
tíðarsýn skólanna og vinnulag innan
þeirra sem byggist á auknu sjálf-
stæði og sveigjanleika í starfi, segir
Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi
Samfylkingar, og telur að samstaða
verði að nást utan við hefðbundinn
vettvang kjaradeilna.
„Á fjármálaráðstefnu sveitarfé-
laganna beindi ég þeim orðum til
stjórnar sambandsins að hún taki
upp viðræður við kennara um hvern-
ig standa skuli að þessum málum og
einnig að hefja þurfi viðræður fljót-
lega, enda rennur kjarasamningur
við kennara út eftir rúmt ár,“ segir
Stefán og bætir því við að góður
rómur hafi verið gerður að orðum
hans á ráðstefnunni.
Stefán segist hafa farið að huga að
þessum málum eftir verkfall kenn-
ara árið 2004 og fékk þá óháðan hóp
til að fara ofan í forsögu og undir-
búning kjaradeilunnar. Meðal þess
sem kom fram var að framtíðarsýn
og vinnutilhögun blönduðust inn í
kjaradeiluna.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir að í raun
sé verið að svara kalli frá félaginu
um að breyta þurfi samskiptum milli
sveitarfélaganna og félagsins. „Á
rúmu ári er ég búinn að ræða við
mjög marga sveitarstjórnarmenn,
bæði einstaklinga í sveitarstjórnum
og forsvarsmenn sveitarstjórna, um
að það þurfi að gera eitthvað,“ segir
Ólafur sem fagnar því að menn vilji
setjast niður og ræða málin af fullri
alvöru, annars vegar skólamálin og
hins vegar kjaramálin.
Hann tekur undir orð Stefáns
Jóns um að lítill tími sé til stefnu og
telur að sátt verði að ná við kennara
til lengri tíma litið, svo hægt sé að
vinna af meiri festu, meiri heilindum
og reyna að hámarka það sem hægt
er að fá út úr annars ágætum grunn-
skóla.
Hefja þarf við-
ræður fljótlega
Í HNOTSKURN
» Stefán Jón hefur lagt tilað sveitarfélög leitist við
að ná samstöðu við fagstéttir
skólafólks um framtíðarsýn
skólanna, og vinnulag innan
þeirra.
» Orð hans hlutu góðanhljómgrunn hjá ráðstefnu-
gestum, m.a. Halldóri Hall-
dórssyni, formanni sambands-
ins og bæjarstjóra Ísafjarðar.
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Skyrtur
Mussur
St.38-56St.
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Ný sending af ROBEL buxum
svörtum og brúnum, 2-3 síddir
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Glæsilegur
silkináttfatnaður
til jólagjafa
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim.
silfurhudun@simnet.is, www.silfurhudun.is
- -
Jólin nálgast!
Silfurhúðum gamla muni
20% afsláttur af úlpum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík - S. 575 8500
Pálmi Almarsson,
löggiltur fasteignasali í 20 ár
Laugavegi 25, sími 533 5500
www.olsen.de
Úlpur
Stuttar frá kr. 9.800
Síðar frá kr. 12.900
Gjöfin
sem vermir
GÓÐ
HEILSA
GULLI
BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
H
á
g
æ
ð
a
fr
a
m
le
ið
sl
a
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
NNFA QUALITY
No. 1 í Ameríku
Laugavegi 63 • S. 551 4422
Peysuúrval
Kasmír, silki
Margir litir