Morgunblaðið - 21.11.2006, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
!" #" $% & '
!
( %!" #" %$
#
) %
*%
("
+
#,
-
.'#
#,
-
.'#
#,
-
.'#
/
/
/
/
/
!" #" %%
$%0 &
$
,!
- ! !
$!
$ "
1
$
! !
23
!
EINAR K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra hefur ákveðið að aft-
urkalla heimild til flottrollsveiða á
síld á grunnslóð úti af Snæfellsnesi.
Ástæðan er of mikill meðafli í afla
síldveiðiskipanna. Ákvörðunin tekur
til alls svæðisins sem opnað var og
tekur gildi um næstu helgi um leið og
skyndilokun hluta svæðisins fellur
úr gildi.
Einar rifar upp að ákvörðun hans
um að heimila þessar veiðar hafi
byggst á því að þarna gætu skipin
veitt stóra og verðmæta síld. Veið-
arnar hafi verið háðar ströngu eft-
irliti og með því skilyrði að ekki væri
um að ræða meðafla. Í þeim tilgangi
hafi veiðarnar aðeins mátt fara fram
á nóttunni.
Heimamenn mótmæltu
Fimm til sex skip stunduðu þessar
veiðar, þegar mest var. Vegna of
mikils meðafla var stórum hluta
svæðisins lokað fyrir rúmri viku með
svokallaðri skyndilokun. Einkum var
um að ræða ýsuseiði sem reyndust
langt umfram viðmiðunarmörk.
Skyndilokunin átti að falla úr gildi
um næstu helgi.
Mikil andstaða hefur verið við
undanþágu sjávarútvegsráðherra.
Þannig hafa félög smábátasjómanna
og útvegsmanna á Snæfellsnesi mót-
mælt henni harðlega, sömuleiðis
bæjarráð Grundarfjarðar og bæjar-
stjórn Stykkishólms.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra segist vissulega hafa
hlustað á sjónarmið heimamanna en
ákvörðun hans um að afturkalla und-
anþágu til flottrollsveiða á þessu
svæði byggðist á því að grundvöllur
hennar væri brostinn. Meðafli væri
einfaldlega of mikill.
Heimild til flottrollsveiða
á grunnslóð afturkölluð
Morgunblaðið/Þorkell
Ráðherra segir að
meðafli sé of mikill
ÚR VERINU
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði aðspurður á Alþingi í
gær að hann teldi að jafnræðisreglan
gilti fyrir íslenskum dómstólum.
„[Ég] hef ekki orðið var við annað en
að hún gildi þar,“ sagði ráðherra
m.a. í svari sínu við fyrispurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur, Samfylkingu.
Jóhanna gerði nýlega Morgun-
blaðsgrein Arnars Jenssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti
ríkislögreglustjóra, að umtalsefni í
fyrirspurnartíma. Jóhanna fór yfir
greinina og sagði: „Hér er í raun ver-
ið að halda því fram af háttvirtum yf-
irmanni lögreglunnar að jafnræðis-
regla réttarríkisins virki ekki og að
borgurum sé mismunað í réttar-
kerfinu sem eru mjög alvarlegar
ásakanir.“ Hún vísaði einnig til for-
ystugreinar Þorsteins Pálssonar, rit-
stjóra Fréttablaðsins, en þar segir
ritstjórinn m.a. að hafi Arnar rétt
fyrir sér, þurfi án tafar að leysa dóm-
ara sem komu að Baugsmálinu frá
störfum og endurreisa dómstólana
með nýrri löggjöf.
Jóhanna spurði ráðherra út í
gagnrýni Arnars og svaraði Björn
því til, eins og áður sagði, að hann
teldi að jafnræðisreglan gilti fyrir ís-
lenskum dómstólum. „Varðandi hins
vegar réttarfarið í landinu,“ sagði
ráðherra, „sérstaklega opinbera
réttarfarið, liggur fyrir og hefur ver-
ið til kynningar á vef dómsmálaráðu-
neytisins frumvarp til laga um með-
ferð sakamála.“ Frumvarpið yrði
lagt fram, vonandi á yfirstandandi
þingi, og þar hlytu álitamál af þess-
um toga að koma til skoðunar.
Jóhanna taldi að ráðherra væri að
skauta fram hjá spurningum hennar
og spurði hann aftur hvort hann
hefði, með orðum sínum, verið að
lýsa yfir trausti á dómstóla landsins
en um leið að brigsla háttsettum lög-
reglumanni um að fara með rangt
mál. Ráðherra svaraði því þá til að
það ríkti skoðanafrelsi í landinu og
að menn gætu látið skoðanir sínar í
ljós án þess að ráðherra þyrfti að tjá
sig um þær í þingsalnum. Ráðherra
vísaði síðan í ræðu sína á aðalfundi
Dómarafélags Íslands á dögunum,
þar sem hann hefði m.a. fjallað um
það hvort nauðsynlegt væri að koma
á laggirnar þriðja dómstiginu. Jó-
hanna taldi enn að ráðherra væri að
koma sér hjá að svara spurningum
hennar en því vísaði hann á bug.
Morgunblaðið/Sverrir
Umræður á Alþingi Þingmenn Frjálslyndra og Vinstri grænna fylgjast með umræðum á þingi.
Jafnræðisreglan gild-
ir fyrir dómstólum
Í HNOTSKURN
»Björn Bjarnason dóms-málaráðherra sagði á Al-
þingi í gær að hann teldi að
jafnræðisreglan gilti fyrir ís-
lenskum dómstólum.
»Björn svaraði þar fyr-irspurn um nýlega grein
Arnars Jenssonar yfirlög-
regluþjóns.
„ÉG hef ekki tekið ákvörðun um það
hvort ég fari í aðra flokka í framtíð-
inni eða ekki,“ segir Valdimar L.
Friðriksson, 9. þingmaður Suðvest-
urkjördæmis, en tilkynnt var í upp-
hafi þingfundar á Alþingi í gær að
hann hefði sagt sig úr þingflokki
Samfylkingarinnar. Jafnframt hefur
hann sagt sig úr Samfylkingunni.
Valdimar mun því starfa utan
flokka út kjörtímabilið, gangi hann
ekki til liðs við aðra þingflokka.
Hann mun heldur ekki starfa í fasta-
nefndum á vegum þingsins og var
upplýst í upphafi þingfundar í gær,
að Helgi Hjörvar og Einar Már Sig-
urðarson, Samfylkingu, myndu taka
sæti hans í félagsmálanefnd og land-
búnaðarnefnd.
Valdimar hafnaði í 14. sæti í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi á dögunum og var þar
með langt frá því að ná öruggu þing-
sæti. Hann kveðst ósáttur við próf-
kjör; þau séu í
raun ólýðræðis-
leg og ekki besta
leiðin til að velja
frambjóðendur.
Ungir jafnað-
armenn, ungliða-
hreyfing Sam-
fylkingarinnar,
sendu frá sér til-
kynningu í gær,
þar sem þeir
harma umrædda ákvörðun Valdi-
mars. Þeir beina því til rúmlega 70
einstaklinga sem gáfu kost á sér í
prófkjörum Samfylkingarinnar að
virða niðurstöður þeirra. „Kemur á
óvart að forystumaður í íþróttastarfi
skuli ekki kunna að taka tapi betur
en raun ber vitni og sjá ekki sóma
sinn í því að láta af þingmennsku
fyrst hann telji sig ekki eiga lengur
samleið með flokknum,“ segir m.a. í
tilkynningunni.
Óvíst hvort hann
fari í aðra flokka
Ungir jafnaðarmenn harma ákvörðun
Valdimars L. Friðrikssonar
Valdimar L.
Friðriksson
SAMTALS 518 Íslendingar féllu fyrir
eigin hendi á árunum 1990 til 2005.
Þar af voru karlmenn í miklum meiri-
hluta, þ.e. 409 karlmenn létust af
völdum sjálfsvígs á þessu tímabili en
109 konur.
Þessar upplýsingar koma fram í
skriflegu svari heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra við fyrirspurn
Valdimars L. Friðrikssonar, þing-
manns utan flokka. Upplýsingarnar
eru fengnar frá Landlæknisembætt-
inu.
Í svarinu er farið yfir fjölda þeirra
sem létust af völdum sjálfsvíga á ár-
unum 1990 til 2005. Fram kemur að á
þessu tímabili hafi á bilinu 25 til 50
manns; konur og karlar, fallið fyrir
eigin hendi á ári hverju. Alls 25 létust
af völdum sjálfsvígs á árinu 1994, svo
dæmi sé tekið; 21 karl og fjórar kon-
ur, og fimmtíu létust af völdum sjálfs-
vígs á árinu 2000; 42 karlar og átta
konur. Þar af var yngsti einstakling-
urinn á aldursbilinu tíu til fimmtán
ára, að því er fram kemur í svarinu.
Í svarinu kemur fram að alls 33 ein-
staklingar hafi fallið fyrir eigin hendi
á síðasta ári; 24 karlar og níu konur.
Þar af voru flestir á aldursbilinu 41 til
60 ára, eða alls 20. Yngstu einstak-
lingarnir voru á aldrinum 16 til 20 ára
og elsti einstaklingurinn var á aldurs-
bilinu 61 til sjötíu ára.
Mun fleiri karlar
en konur falla
fyrir eigin hendi