Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF VIÐSKIPTI ÞETTA HELST ...                "#   "##$ %& '() (' 2% % 42% #" 5 "62% !" 5 "62% 7!0 5 "62% 4#!5 "62% .5 "62% 5#  8 2% )6& 8 2% . 8  2% - 2% -"4 2" 2% 9 # #49 # "  #  /7  $ $ % 8 2% : 2% * &+,-  ;<#2%  5 "62% =4  45 "62% >?2 2% @ A2% @ A   #0  2% B #0  2% . -  - / $# %3    !%  0 1 - =C;D 2-       "  #"  "#                                            E  / ! 6#    @8" '" F )6                           /   /             / /    / / / /                /                 / / B 6#' ,  @E G#2   # 0 ! 6#   /  /  / /  / / / / ' # !  ! EIGENDUR Olíufélagsins Esso, Bílanausts og dótturfélaga hafa ákveðið að sameina rekstur fé- laganna snemma á næsta ári. Þetta var tilkynnt á fundi með starfsmönnum beggja félaga í gær en hvort tveggja er í eigu eignarhaldsfélagsins BNT. Í tilkynningu frá BNT segir að sameinað félag verði tíunda stærsta fyrirtæki landsins með um 30 milljarða króna veltu á ári. Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri BNT, segir að Esso, Bílanaust og Ísdekk, dótt- urfélag Bílanausts, starfi á sama markaði og höfði til sama markhópsins, sem er bíleigendur. Félögin séu þó ekki ekki í samkeppni hvert við annað og þar af leiðandi geti þau lagt saman krafta sína til að sinna þessum markhópi bet- ur en nú sé gert með því að sameina krafta sína undir einni yfirstjórn. Síðan segir hann að sameining félaganna minnki flækjustigið á milli þeirra og hafi því mikla hagræðingu í för með sér. Allir halda störfum sínum „Sameiningin er ekki gerð með sparnað sem aðalmarkmið heldur fyrst og fremst til að auka sóknarþungann úti á markaðnum,“ segir Hermann. „Við teljum að við munum ná meiri árangri með sameiningu á kröftum félagnna en þau geta náð hvert í sínu lagi.“ Samtals starfa um 700 manns hjá þeim fyrir- tækjum BNT sem verða sameinuð eftir næstu ára- mót. Segir Hermann að allir starfsmennirnir muni halda störfum sínum. Benedikt Sveinsson og bróðir hans Einar Sveinsson, stjórnarformaður Glitnis banka, eiga rúmlega helmingshlut í eignarhaldsfélaginu BNT. Fjárfestingafélagið Máttur, sem er í eigu Sjóvár og Glitnis, á um 12% hlut og um 20 einstaklingar eiga afganginn, eða rúmlega 30%. Þar á meðal eru stjórnendur hjá fyrirtækjunum. Esso og Bílanaust sameinast Hermann Guðmundsson TEYMI hf., fyrrum fjarskipta- og upplýsingatæknihluti Dagsbrúnar hf., var skráð í Kauphöll Íslands í gær og var þá fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf félagsins. 365 hf., sem er fyrrum fjölmiðlahluti Dagsbrúnar hf., tók í gær jafnframt yfir skrán- ingu Dagsbrúnar í Kauphöllinni. Upphafsgengi Teymis og 365 í Kauphöllinni í gær var það sama og lokagengi Dagsbrúnar síðastliðinn fimmtudag. Lokað var fyrir viðskipti með bréf félagsins síðastliðinn föstu- dag en þá var haldinn hluthafafund- ur í félaginu þar sem samþykkt var tillaga stjórnar þess frá því í sept- embermánuði síðastliðnum um að skipta því upp í tvö félög. Ef miðað er við lokagengi Dags- brúnar síðastliðinn fimmtudag lækk- aði gengi hlutabréfa Teymis í gær um 0,7%. Gengi bréfa 365 lækkaði hins vegar um 7,5% í gær miðað við lokagengi bréfa Dagsbrúnar síðast- liðinn fimmtudag. Í sambandi við lækkun á gengi bréfa 365 er rétt að hafa í huga að dagurinn í gær var fyrsti viðskipta- dagurinn með bréf félagsins eftir að tilkynnt var um 1,5 milljarða króna varúðarfærslu vegna fyrirhugaðrar sölu 365 (áður Dagsbrúnar) á breska prent- og samskiptafélaginu Wynde- ham sem greint var frá síðastliðinn fimmtudag. Heildareignir hvors félags á fjórða tug millarða Fram kemur í Vegvísi greiningar- deildar Landsbanka Íslands að gert sé ráð fyrir að velta Teymis verði 21,0–22,5 milljarðar króna á árinu 2007 en 12,0–13,0 milljarðar hjá 365. Þá segir að heildareignir Teymis verði 37,0 milljarðar eftir eignasölu en heildareignir 365 eftir eignasölu verði 36,0 milljarðar. Einnig kemur fram að eigið fé Teymis verði 8,0 milljarðar en eigið fé 365 verði 9,0 milljarðar. Teymi hf. skráð í Kauphöll Íslands Gengi hlutabréfa 365 hf. lækkaði um 7,5% í gær en Teymis hf. um 0,7% ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu 24 milljörðum króna og þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 13,2 milljarða. Úrvals- vísitalan lækkaði um 1,1% og er lokagildi hennar 6.322 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf Kaupþings banka eða fyrir 12,4 milljarða og lækkaði gengi þeirra um 2,5%. Mest lækkun varð hins vegar á bréfum 365, eða 7,5%. Mest hækkun varð á bréfum Atorku, en þau hækkuðu um 0,3%. Lækkun í Kauphöllinni ● BAUGUR er ásamt fleirum orðaður við hugs- anleg kaup á 21 einkareknum spít- ala í Bretlandi. Á fréttavefnum Tim- esOnline segir að áætlað kaupverð spítalanna sé um 730 milljónir punda, eða um 98 milljarðar íslenskra króna. Í fréttinni segir að í væntanlegum fjárfestahópi séu auk Baugs at- hafnamaðurinn Tom Hunter, fjárfest- irinn Nick Leslau og HBOS-bankinn. Spítalarnir eru í eigu fjárfest- ingasjóðanna Apax Partners og Nord- ic Capital. Segir í frétt TimesOnline að spítalarnir séu meðal þekktustu einkareknu spítalanna á Bretlands- eyjum. Þá segir að sjóðirnir hafi í síð- asta mánuði keypt spítalana af sænska fyrirtækinu Capio, sem starfar á sviði heilbrigðismála. Baugur orðaður við spítalakaup EIGNARHALDSFÉLAGIÐ ehf. hefur keypt 98% hlutafjár í Verði Ís- landstryggingu hf. Að Eignarhalds- félaginu standa SP-Fjármögnun, sem á 49% hlut, Landsbanki Íslands, sem á 26%, og Sparisjóður vélstjóra með 25% hlut. Kaupin eru háð sam- þykki Fjármálaeftirlitsins. Í tilkynningu segir að Vörður Ís- landstrygging muni áfram starfa undir eigin vörumerki en áhersla verði lögð á að auka þjónustu félags- ins. Nýir eigendur hyggist byggja á þeim grunni sem fyrir sé en sjái meðal annars tækifæri til að efla fé- lagið með því að nýta þær dreifileiðir sem opnast með breyttu eignarhaldi. 80 ára félag Tryggingafélagið Vörður var stofnað árið 1926 og Íslandstrygging árið 2002. Baugur keypti helmings- hlut í Verði á árinu 2003 og eignaðist félagið að fullu árið eftir en seldi það fljótlega til tryggingaféalgsins VÍS. Vörður og Íslandstrygging voru sameinuð í upphafi árs 2005 og eign- aðist VÍS þá um 56% hlut í félaginu. Exista, eigandi VÍS, seldi sinn hlut í Verði Íslandstryggingu í síðasta mánuði. Kaupandi var félagið Klink ehf. sem er í eigu Ingimundar Helga- sonar, stjórnarmanns í Verði Ís- landstryggingu. Klink var næst- stærsti hluthafinn í Verði Íslandstryggingu fyrir viðskiptin. Guðmundur Jóh. Jónsson, for- stöðumaður útlánasviðs SP-Fjár- mögnunar, verður framkvæmda- stjóri Varðar Íslandstryggingar. Kaupa 98% í Verði Íslands- tryggingu D A G S K R Á 8:15 8:30 ver›ur haldinn 22. nóvember 2006 á Grand Hótel–Hvammi kl. 8:30 E in n t v e ir o g þ r ír 3 62 .0 16 Stórátak í vegamálum! Morgunver›arfundur SVfi í samvinnu vi› Vi›skiptará› Íslands fiátttökugjald er 1.500 kr. Skráning á svth@svth.is 8:40 9:00 9:15 9:30 Innskráning Áherslur atvinnulífsins í vegamálum Sigur›ur Jónsson, framkvæmdastjóri SVfi. fia› er flörf fyrir stórátak í vegamálum – samgönguáætlun endursko›u› Sturla Bö›varsson, samgöngurá›herra. N‡jar lausnir í vegamálum fiór Sigfússon, forstjóri Sjóvá. Hvernig virkar einkaframkvæmd í vega- málum? Halldór Benjamín fiorbergsson, framkvæmda- stjóri Su›urlandsvegar ehf. Pallbor›sumræ›ur me› flátttöku Hreins Haraldssonar framkvæmdastjóra flróunar- svi›s Vegager›arinnar auk frummælenda. Fundarstjóri: Kristján fiór Júlíusson, bæjar- stjóri Akureyrarbæjar. Sigur›ur Jónsson Sturla Bö›varsson fiór Sigfússon Halldór Benjamín fiorbergsson Kristján fiór Júlíusson >H I9   $" %" J J @; KL   $" $" J J CC  M-L#"2   $" $" J J M-L)20% >    " %" J J =C;L K"NO"    %" %" J J ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.