Morgunblaðið - 21.11.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 21.11.2006, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Þegar ég lít til baka finnst mér eins og það sé ekki svo langt síðan Jóhanna fæddist. Það var miðvikudagsnótt hinn 21. nóvember 1976 eða fyrir 30 árum í dag. Það var ólýsanleg gleði og hamingjutilfinning sem fyllti huga minn þegar ég leit á hana. Þegar hún var nokkurra vikna gömul lá hún einhverju sinni í rúminu við hlið mér. Það greip mig einkenni- leg hræðslutilfinning gagnvart varn- arleysi hennar þar sem ég hélt utan um þessa agnarlitlu mannveru með koparrauða hárið sitt. Sú heita ósk kviknaði í huga mér að ég gæti vernd- að hana frá öllu því sem gæti mögu- lega skaðað hana í lífinu. Því miður átti ég eftir að upplifa vanmátt minn í þeim efnum til hins ýtrasta. Hvorki ég né aðrir sem þykja vænt um hana fengu tækifæri til að njóta nærveru hennar lengur en til 29 ára aldurs hennar, því hún lést hinn 1. maí sl. En ég er þakklát Guði fyrir að hafa gefið mér þessa stóru gjöf og þessi ár sem hann leyfði mér að hafa hana hjá mér. Jóhanna greindist með krabba- mein í september 2004. Hún hringdi í mig og mér fannst heimurinn hrynja þegar hún sagði mér frá greiningunni og bað mig að koma. Jóhanna var strax staðföst í að „vinna þetta verk- efni“ eins og hún kallaði það. Hún gerði það og vann það svo sannarlega eins vel og hugsast gat, eins og önnur verkefni í lífinu sem hún tók sér fyrir hendur. Með sinni óþrjótandi bjart- sýni leitaðist hún við að njóta þeirra daga sem hún átti. Hún vakti aðdáun þeirra sem umgengust hana fyrir kraftinn sem geislaði af henni. Haustið 2005 var útlit fyrir að lækna- vísindin gætu ekki gert meira fyrir hana í baráttunni. Vopnin voru á þrotum. Um svipað leyti fæddist Matthild- ur litla systurdóttir hennar þremur mánuðum fyrir tímann. Matthildi litlu var bjargað fyrir tilstuðlan læknavísindanna og Jóhanna sagði að það væri ekki hægt að biðja um tvö kraftaverk í einu. Vonin yfirgaf hana samt aldrei. Hún kærði sig ekki um að velta sér mikið upp úr því hvernig komið var fyrir heilsu sinni og vildi heldur nota tímann til einhvers sem henni þótti skemmtilegt. Við mæðgurnar fórum tvær saman í ferðalag á Snæfellsnes um miðjan febrúar sl. Það var sá staður sem hana langaði mest til að skoða, því hún hafði aldrei komið þangað. Það var ógleymanleg ferð í sólskini, roki og snjókomu. Á leiðinni töluðum við í einlægni um allt milli himins og jarð- ar sem hjarta okkar stóð næst, jafn- hliða því að njóta þess að horfa á þessa stórbrotnu náttúrufegurð sem blasti við. Hún naut þess greinilega að horfa á brimið og jökulinn og sagð- ist skynja orkuna í þessum náttúru- fyrirbærum. Ég fékk sem betur fer tækifæri til að eiga með henni marg- ar stundir síðustu mánuðina. Hún var ekki eingöngu dóttir mín, heldur var líka djúp vinátta og skilningur sem ríkti milli okkar. Þegar Jóhanna var barn kom fljótt í ljós hversu íhugul hún var og næm fyrir umhverfi sínu. Hún var að öllu jöfnu fremur hæglát í fasi, fróðleiks- fús og varð snemma læs. Bækur voru hennar líf og yndi. Ósjaldan kom ég að henni, með vasaljós undir sæng- inni seint að kvöldi þar sem hún var að lesa eftir að hún átti að vera sofn- uð. Hún las sig í gegn um heilu bóka- söfnin og bjó yfir undraverðum lestr- arhraða. Það voru margs konar bækur sem heilluðu hana, fræðibæk- Jóhanna Helga Hafsteinsdóttir ✝ Jóhanna HelgaHafsteinsdóttir fæddist í Reykjavík hinn 21. nóvember 1976. Hún lést af völdum krabba- meins á heimili sínu, Birkihlíð 42 í Reykjavík, hinn 1. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Dómkirkj- unni 8. maí. ur jafnt sem ævintýra- bækur. Pollýönnubæk- urnar trónuðu með þeim efstu á vinsælda- listanum. Jóhanna sjálf tileinkaði sér aðferðir Pollýönnu og leitaðist ávallt við að finna björtu hliðarnar á mál- unum, hversu erfið sem þau annars virtust og lék þannig Pollý- önnuleikinn. Hún lagði alla sína krafta í að berjast fyrir hverjum einasta degi sem hún fékk. Jóhanna hóf sína skólagöngu í barnaskólanum í Hveragerði. Síðan var hún einn vetur í Ölduselsskóla og tvo vetur í Melaskóla. Þá fluttum við til Akureyrar, þaðan sem hún lauk grunnskólaprófi úr Síðuskóla. Leið hennar lá í Menntaskólann á Akur- eyri. Hún lauk stúdentsprófi þaðan með sóma vorið 1997. Hún flutti til Reykjavíkur og stundaði nám í ferðamálafræðum og íslensku við Háskóla Íslands. Þar kynntist hún Gustav Péturssyni og þau eignuðust saman hana Katrínu litlu hinn 17. apríl 2003. Þau giftu sig síðan hinn 12. október 2005. Móður- hlutverkinu sinnti hún af alúð og naut þess innilega. Hana langaði einfald- lega mest til að nýta tímann sinn heima með Gústa og Katrínu og lifa eins eðlilegu lífi og unnt var. Jóhanna ákvað að skrá sig aftur í Háskólann sl. áramót eftir hlé vegna veikind- anna. Með þeirri ákvörðun var bar- áttuanda hennar og bjartsýni best lýst. Á afmælisdegi hennar fyrir ári langaði hana svo mikið til að bjóða vinum sínum í heimsókn og halda upp á daginn með þeim. Veikindin komu þó í veg fyrir það. Við sem stöndum henni næst munum halda upp á af- mælisdaginn hennar í dag í huganum og rifja upp allar góðu og skemmti- legu minningarnar sem hún bjó til með okkur. Og hver veit nema hún fylgist með. Ég á auðvelt með að sjá kankvísa brosið hennar fyrir mér við tilhugsunina. Í sumar fannst mér áleitin spurn- ingin um hvers vegna Guð hafi gefið Jóhönnu alla þá hæfileika sem hún bar, fyrst hann gaf henni ekki lengri tíma til að njóta þeirra en raun bar vitni. Ég vil trúa því að það sé æðri tilgangur með lífi hennar. Minningin um Jóhönnu er mér dýrmæt minning um einstaka, hæfi- leikaríka og víðsýna dóttur sem elsk- aði lífið svo heitt og barðist af öllum mætti fyrir hverjum degi af hug- rekki, bjartsýni og þrautseigju. Ég er og verð alltaf stolt af henni. Guð varð- veiti elsku Jóhönnu mína og blessi minninguna um hana. Salvör Jóhannesdóttir. Þrítugsafmælið hennar Jóhönnu er runnið upp. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Mér finnst oft eins og við höfum verið tvítugar í hitteðfyrra. Okkur fannst það báðum og við töl- uðum stundum um það í gríni hvað við værum orðnar settlegar, hálf- gerðar kerlingar eins og okkur fund- ust svo glataðar fyrir nokkrum árum, ja kannski fyrir um áratug ef betur er að gáð. Þá var lífið rétt að byrja. Menntaskólaárunum fyrir norðan að ljúka og endalausir möguleikar fram- undan. Það er svolítið skondið hvað við völdum oft að fara svipaðar leiðir og hvernig hlutirnir æxluðust oft á svip- aðan hátt hjá okkur. Við fluttum báð- ar suður með skömmu millibili og þegar kom að því að velja háskóla- nám leit um tíma út fyrir að við myndum báðar fara í sama nám en á endanum valdi Jóhanna íslenskuna og ég bókmenntafræðina. Dæturnar komu svo í heiminn með tæplega árs millibili og aðeins einn dagur var á milli brúðkaupsdaganna okkar. Svona var þetta með margt, stórt og smátt, við virtumst fylgjast að með ótrúlegustu hluti þó við værum á margan hátt ólíkar og með ólíkan smekk. Við vorum einhvern veginn á sömu bylgjulengd og ég held við höf- um fundið það strax við fyrstu kynni. Það var ekki margt sem við vorum ósammála um. Í fljótu bragði er það eina sem kemur upp í hugann mis- jafnar skoðanir á ágæti hvíts súkku- laðis, sem Jóhönnu fannst gott en mér vont. Kannski er ástæðan fyrir því að ég man ekki eftir fleiru sú að við bárum virðingu fyrir skoðunum hvor annarrar. Það er eitt af því sem gerði Jóhönnu að þeirri sterku og einstöku persónu sem hún var. Hún bar virðingu fyrir skoðunum annarra þó hún væri ekki endilega sammála þeim og hún fór heldur ekkert í felur með það ef hún var ekki sammála. Sumir áttu e.t.v. erfitt með að meta hreinskilni hennar og gáfu til rök- ræðna en það var eitt af því sem mér fannst svo frábært í fari hennar. Maður gat ætíð gengið að því vísu að fá hreinskilin svör og ráð frá henni og þó þau væru kannski ekki alltaf þau sem mann langaði að heyra þá voru þau allavega oftast það sem maður þurfti að heyra. Þau voru ófá sam- tölin og símtölin sem fóru okkar á milli þar sem við spurðum hvor aðra ráða eða álits og þau samtöl áttu til að verða löng því við gátum látið móðan mása um allt og ekkert. Það var sama um hvað var talað, yfirleitt enduðu samtölin með hlátri því umræðan var komin út í einkabullhúmor sem var ekki fyrir hvern sem er enda dálítið svartur og kaldhæðinn. Við gerðum stundum grín að því hvað við værum orðnar heimakærar, að spennandi laugardagskvöld fælust nú í einhverju góðu að borða, góðri mynd eða spilastund og umræðurnar snerust í seinni tíð oftar en ekki um einkadæturnar, Katrínu og Auði, og framtíðarplön, vonir og væntingar varðandi þær og fjölskyldurnar tvær. Það var svo margt sem okkur langaði að gera saman með stelpunum; baka kökur, leika saman, fara í útilegur, sumarfrí til útlanda og alls kyns æv- intýraferðir nær og fjær. Múmíndal- inn í Finnlandi átti að m.a. að heim- sækja. Ég veit samt ekki hvort það var meira fyrir okkur eða stelpurnar. Ég man að löngu áður en Jóhanna veiktist barst tal okkar nokkrum sinnum að minningargreinum og að sjálfsögðu hafði hún skoðanir á þeim. Háfleygar lofræður og harmakvein voru henni ekki að skapi né einka- bréfastíll. Ég vona að ég geri henni ekki stóran grikk þó ég minnist nokkrum orðum á mannkosti hennar, ég veit mér verður fyrirgefið ef ég verð ekki of háfleyg. Jóhanna hafði þann hæfileika að koma auga á það jákvæða, jafnvel í hinum erfiðustu aðstæðum, sem kom henni vel í veikindum sínum. Hún smitaði jákvæðni og bjartsýni útfrá sér og missti aldrei vonina eða beitt- an húmorinn þó á móti blési. Það var ekki síður hún sem stappaði stálinu í fjölskyldu sína og vini en þeir í hana. Hún var jafn raungóð og hún var ráðagóð og alltaf til í að gera manni greiða ef hún mögulega gat. Hún var svo sannarlega manneskja sem gaf af sér. Jóhanna var líka eldklár og ein- staklega góður penni, hún gat leikið sér að tungumálinu og átti oft hnyttin tilsvör. Hún átti auðvelt með að koma auga á skemmtilegar hliðar á mönn- um og málefnum og fékk mann oft til að líta á hlutina frá nýju sjónarhorni. Síðast en ekki síst hafði hún góða nærveru, það var einfaldlega þægi- legt að vera í návist hennar. Þegar svona stórbrotinn persónu- leiki og góð vinkona kveður langt fyr- ir aldur fram situr maður uppi með spurningar sem engin svör fást við og nú er enginn Jóhanna til að hringja í og spyrja ráða. En það er hægt að taka hana sér til fyrirmyndar og ein- beita sér að því jákvæða og leyfa tím- anum að græða sárin. Ég rakst á kveðju sem hún hafði skrifað í gesta- bók á heimasíðu þar sem velgengni hafði verið til umræðu; „Velgengni er í mínum huga það að fara að sofa á kvöldin sáttur við það hvernig maður upplifði daginn í dag og hvernig mað- ur tókst á við vandamálin og hvort maður tók eftir öllum tilefnunum til þess að gleðjast.“ Í tilefni afmælis Jó- hönnu ætla ég að fara að ráðum henn- ar og gleðjast og sendi hjartans kveðjur til fjölskyldu hennar. Una Björk. Vegna mistaka slengdust þessar tvær greinar um Guðmund Inga saman í Morgunblaðinu laugardaginn 18. nóvember. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessu. Það var mikil harmafregn þegar okkur var sagt að hann Guðmundur hans Óla bróður lægi óvænt milli heims og helju og mundi líklega eiga skammt eftir. Þetta var svo ótrúlegt að það hlaut að vera einhver mis- skilningur. Ungir og hraustir strákar eins og hann deyja ekki. Þeir eiga allt lífið framundan. En svo var þetta staðfest – og skömmu síðar var hann dáinn. Það var eins og dimmdi snögg- lega. Baráttan var stutt en hetjuleg. Þetta var allt svo óvænt og hratt. Guðmundur var glæsilegur ungur maður. Nýorðinn 17 ára og búinn að eignast fyrsta bílinn. Dugnaður hans lýsti sér kannski best í því að hann var búinn að eiga 3 vélhjól sem hann borgaði sjálfur og bílinn sem hann átti svo góða daga á síðustu vikurnar borgaði hann líka sjálfur. Með dugn- aði lét hann drauma sína rætast. Há- vaxinn, myndarlegur, með augu eins og stjörnur og seiðandi bros, hvers manns hugljúfi. „Sæti frændinn“ kölluðu frænkurnar hann. Það fyrsta sem ókunnugir sáu var hve hæglátur hann var og hlýr piltur. Draumason- ur hverra foreldra. Guðmundur var góður vinur og víst er að þeir sem áttu vináttu hans eiga nú um sárt að binda. Skarðið sem hann skilur eftir í hópnum verður ekki fyllt en vinirnir eiga eftir dásamlegar minningar um samveru sína með honum. Þær eru gjöf hans til okkar sem eftir lifum. Guðmundur Ingi Ólafsson ✝ GuðmundurIngi Ólafsson fæddist á Akureyri 21. október 1989. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Fossvogi 8. nóvember síðast- liðinn og var jarð- sunginn frá Hóla- neskirkju á Skagaströnd 18. nóvember. Við þökkum fyrir þær. Dauðinn kvaddi dyra með miklum ofsa og öll heimsins tæki og tól voru notuð til að reyna að bjarga lífi Guð- mundar en maðurinn með ljáinn hafði sigur að þessu sinni. En við eigum minn- ingarnar og myndin af Guðmundi leikur ljós- lifandi í hugskoti okk- ar. Feimnislegt og góðlátlegt brosið lýsa af þeirri mynd og hana geymum við í hjarta okkar. Sorgin er ekki bara dimm og sár. Hún er hin hliðin á björtum dögum og gleði sem ég fékk að njóta. Hún segir mér að sárið hafi orðið til vegna gleði og ástar sem ég syrgi og sakna. Guð kemur til mín gegnum sárið. (Jóna Lísa Þorsteinsdóttir) Hrönn, Óli, Árný Guðrún, Re- bekka og Brynjar Max hafa misst meira en nokkur getur gert sér í hug- arlund en þau voru líka gæfusöm að eiga son og bróður eins og Guðmund. Meðan hann lifði gaf hann þeim gjöf sem enginn annar gat gefið. Sjálfan sig. Þau eru góð fjölskylda og víst er að þau hafa líka gefið honum gott veganesti. Við erum viss um að það nýtist honum vel á nýjum slóðum. Jóhann, Árni, Kristmundur, Sigríður, Hlíf og fjölskyldur. Drottinn Guð, þú hefur tekið að þér yndislegan dreng, Guðmund Inga, góðan og traustan son, bróður, frænda og vin. Verndaðu hann, lýstu honum veginn að himnaríki svo þið getið saman verndað og vakað yfir fjölskyldu hans og ástvinum. Elsku litli frændi og vinur, Guð- mundur Ingi, þú fórst frá okkur allt of fljótt en nú ertu í góðum faðmi ömmu þinnar og afa og systur. Elsku Hrönn, Óli, Árný, Rebekka og Brynjar Max, megi Guð og allir hans englar hjálpa ykkur að horfa fram á veginn. Kveðja Ólína, Andrés og Andrea Kristín. Það er komið að því að kveðja merkilegan mann fyrir margra hluta sakir. Við nutum báðir þeirrar gæfu að fá að búa hjá afa og ömmu í Rauðu á menntaskóla- árunum. Sú vist var mikill skóli. Það var ógleymanlegt að koma heim síðla nætur og finna afa í eldhúsinu þar sem hann mundaði vasahnífinn góða og skar sér væna flís af súrmeti. Hann var þá kominn á fætur enda vissi hann að hann yrði varla lang- lífur í þessum heimi og ætlaði sann- arlega ekki að eyða tímanum í svefn. En hann varð harla langlífur, sér- staklega ef tekið er tillit til hins óeir- andi og lamandi sjúkdóms sem herj- aði á hann hátt á annan áratug. Seigla var hans aðalsmerki alla tíð. Stirður og ellimóður rauk hann út á stétt að moka snjó eða raka lauf ef á þurfti að halda og það varð litlu tauti við hann komið er hann klifraði skjálfandi upp á þak með skófluna yf- ir öxlinni til að moka snjóinn af þak- inu. Anton Kristinn Jónsson ✝ Anton KristinnJónsson fæddist í Bolungarvík 8. september 1924. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 23. októ- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrar- kirkju 30. október. Rauðamýrin (og síð- ar Mýrarvegurinn) var góður staður að búa á. Það voru íbúarnir sem gerðu staðinn góðan. Þar var afi sívakandi yfir áhugamálum okk- ar („Hvernig er það strákur, á ekki að fara að ná sér í stelpu?“), mataræði („Ég sé að það er kattaláfujafn- ingur í kvöldmatinn hjá þér og drulluspað í eftirmat“) og umkvört- unum („Koma niður úr stiganum? Heldurðu að ég geti ekki mokað þakið á húsinu mínu sjálfur!“). Hjá afa lærðum við margt. Hann kenndi okkur að smíða hamra og nota hamrana til að smíða báta og bæi. Hann kenndi okkur að grafa tjörn og nota hana síðan til að vinna sér inn tíkall fyrir að liggja í ísköldu vatni í eina mínútu. Hann kenndi okkur að taka í nefið og láta það síðan eiga sig það sem eftir er. Hann kenndi okkur að horfa á Tomma og Jenna til að komast í rétta hugar- ástandið til að horfa á fréttir. Hann kenndi okkur að lifa og hann kenndi okkur að deyja. Það síðasta sem afi kenndi okkur var þetta: Ef þú liggur banaleguna og læknirinn segir að þú munir örugglega deyja um helgina, ekki láta þér detta í hug að deyja fyrr en á mánudegi. Ragnar Þór og Ólafur Sindri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.