Morgunblaðið - 21.11.2006, Síða 40
Nýjasta Bítlaplatan, Love, kom út íBretlandi í gær. Platan sker sig fráendurútgáfum síðustu ára að þvíleyti að um er að ræða tilrauna-
kenndar endurhljóðblandanir tuttugu og sex
kunnra Bítlalaga í stað eiginlegrar safnplötu.
Þar að auki er maðurinn á bak við gripinn eng-
inn annar en George Martin, oft kallaður
„fimmti bítillinn“, og hefur hann tilkynnt að
Love sé sitt síðasta verk.
Verkefnið er harla óvenjulegt. Dagskipun
Martins var að klæða hin klassísku Bítlalög í
nýjan búning en þó einungis úr gömlu efni.
Hann mátti með öðrum orðum aðeins notast við
gamlar Bítlaupptökur. Að öðru leyti voru hend-
ur hans frjálsar og hafði hann ótakmarkað leyfi
til að nota hvert það hljóð sem Bítlarnir hafa
tekið upp í gegnum tíðina. Frá þessu stranga
skilyrði er aðeins einu sinni vikið á Love, en ný
strengjaútsetning Martins hljómar í laginu
„While My Guiter Gently Weeps“.
Til samstarfs við sig fékk George Martin svo
son sinn, Giles Martin, sem einnig er hljóð-
upptökumaður. Saman hófu þeir feðgar að setja
saman, hluta í sundur og endurgera lög hinna
fjóru fræknu. Efniviðurinn: upprunalegu upp-
tökurnar úr Abbey Road-hljóðverinu ásamt
nokkrum áður ónotuðum hljóðbútum.
Sgt. Pepper hittir Mr. Kite
Sem dæmi um starf þeirra feðga má nefna að
í hinu fallega lagi „Eleanor Rigby“ getur að
heyra gítarspil úr „Julia“; gítarspil í upphafi
„Blackbird“ leiðir óvænt inn í „Yesterday“;
söngur úr „Nowhere Man“ hljómar yfir hljóm-
borði og sellói úr „Blue Jay Way“ og „Straw-
berry Fileds Forever“ byrjar á órafmagnaðri
demóupptöku Lennons en hleður svo smám
saman utan á sig flókinni hljóðmynd sem sam-
anstendur m.a. af brotum úr lögunum „Hello
Goodbye“, „Baby You’re a Rich Man“, „Penny
Lane“ og „Piggies“. Þá má til gamans geta að
söngurinn í „Sun King“ er spilaður aftur á bak
og segir tónlistargagnrýnandi Chicago Tribune
það óneitanlega minna á tilbúið tungumál Sigur
Rósar.
Endurhljóðblandanir Martins-feðga á Love
eru gerðar fyrir samnefnda Las Vegas-sýningu
alþjóðlega nútímasirkussins Cirque du Soleil
(Sólarsirkussins). Forsaga verkefnisins teygir
sig til ársins 2000 þegar George Harrison heit-
inn og vinur hans Guy LaLibreté, einn af stofn-
endum Cirque du Soleil, fengu þá hugmynd að
búa til sýningu helgaða stemningu sjöunda ára-
tugarins og sögu Bítlanna. Verkefnið komst svo
á koppinn þremur árum seinna, eftir andlát
Harrisons, og naut frá upphafi stuðnings hinna
eftirlifandi Bítla, Ringo og Pauls, ásamt ekkj-
unum Yoko Ono og Oliviu Harrison. Þykir
hvoru tveggja heyra til tíðinda, að tekist hafi að
fá leyfi fyrir endurvinnslu af þessu tagi og eins
að það hafi verið samþykkt að lögin yrðu notuð í
Las Vegas-sýningu.
Um sextíu lista-
menn taka þátt í
umræddri sýningu
sem er einhvers
konar blanda af
dansi, loftfim-
leikum, áhættu-
atriðum og
gamanleik.
Ferli Bítlanna er
gróflega fylgt eftir, en á draumkenndan hátt,
þar sem skáldaðar persónur úr textum þeirra
skjóta upp kollinum. Sjálfur Pepper liðþjálfi er
þar í aðalhlutverki og verða á vegi hans t.d.
Lucy (á himninum), Eleanor Rigby, Lady Ma-
donna og að sjálfsögðu Mr. Kite, úr sirkuslaginu
„Being for the Benefit of Mr. Kite“.
Fengu frjálsar hendur
Eftir því sem Paul McCartney og Ringo Starr
segja var upprunalega hugmyndin einungis sú að
leyfa Cirque du Soleil að nota valin lög í venju-
bundnum útsetningum. Á seinni stigum málsins
hafi hins vegar sú hugmynd skotið upp kollinum
að gefa George Martin lausan tauminn til að
„hugsa þau upp á nýtt,“ eins og haft er eftir
Ringo í nýlegu viðtali. Um aðkomu sína og Pauls
segir hann að þeir hafi sáralítið skipt sér af verk-
efninu og nánast gefið George og Giles frjálsar
hendur eftir að hafa hrifist af fyrstu drögunum.
Sjálfir láta George og Giles vel að samstarfinu
við Paul, Ringo, Yoko og Oliviu og segja þau öll
hafa verið mjög áfram um verkefnið. Um leið og
hann ítrekaði að það hefði verið mikill heiður að
starfa fyrir Bítlana með þessum hætti sagði Giles
við fréttamann BBC í gær að fjórmenningarnir
hefðu hvatt þá feðga til dáða og eins til að ganga
sífellt lengra.
Platan mælist misvel fyrir hjá gagnrýn-
endum. Flestir virðist þeir þó sammála um að
það megi hafa gaman af uppátækinu og að út-
koman sé Martin-fegðum til sóma. Á hinn bóg-
inn þykir mörgum sem það hefði verið ólíkt
áræðnara hefðu utanaðkomandi listamenn verið
fengnir til að fikta í klassíkinni í stað hins inn-
vígða Martins.
Ný Bítlaplata
George Martin hefur notað gamalt efni til að
setja tuttugu og sex Bítlalög í nýjan búning
Feðgar George Martin og sonur hans Giles Martin hafa endurhljóðblandað kunn lög Bítlanna.
Sirkus Love var forsýnd í júní sl. og mættu
hinir eftirlifandi Bítlar ásamt Yoko Ono og
Oliviu Harrisons á sérstaka hátíðarsýningu.
Reuters
Bítlarnir Nýj-
asta Bítlaplat-
an, Love, var
gefin út í Bret-
landi í gær og
kemur út vest-
anhafs í dag.
40 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
staðurstund
Arnar Eggert Thoroddsen
fjallar um hljómsveitakeppnina
Global Battle of the Bands í
listapistli dagsins. » 43
af listum
Bond-myndin Casino Royale
skaust beint í efsta sæti ís-
lenska aðsóknarlistans eftir
sýningar helgarinnar. » 43
kvikmyndir
Fjallað er um þrjár upprennandi
hljómsveitir sem nú stíga fram
og gefa út sína fyrstu plötu
fyrir jólin. » 41
tónlist
Nýtt barna- og unglingaleikhús
Borgarbörn, frumsýnir annað
kvöld nýtt leikrit í Borgarleik-
húsinu. » 44
leiklist
Töframaðurinn David Blaine er
ekki af baki dottinn og kynnti í
gær nýjustu brellu sína sem er
af frumlegri gerðinni. » 49
fólk