Morgunblaðið - 18.12.2006, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
- The Sunday Times
www.jpv.is
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
JÓLAKÚLUR, jólakerti, jólalög
jólasveinar, jólahvað? Stundum
gleymast einföldustu hlutir í jóla-
undirbúninginum og stressinu sem
stundum fylgir. Hópurinn sem gekk
í kringum einiberjarunn í jólaþorp-
inu í Hafnarfirði í gær lét þó ekki á
sig fá þótt gleymst hefði að vinda
þvottinn áður en hann var hengdur
upp. Verkið var þá bara unnið í öf-
ugri röð og göngunni í kringum jóla-
tréð haldið áfram undir traustum
forsöng þeirra Gunna og Felix.
Þetta er í fjórða sinn sem jólaþorp
er sett upp í Hafnarfirði. Þar eru
sölubásar með jólakerti, fisk og ull-
arpeysur svo fátt eitt sé nefnt auk
þess sem óvæntir gestir á borð við
fígúruna Sprota og einstaka jóla-
svein villast inn á svæðið og heilsa
upp á yngstu kynslóðina.
Fólk lét kuldabola ekki á sig fá á
þessum síðasta sunnudegi fyrir jól.
Kakóbollarnir ruku þó út eins og
heitar lummur enda fátt betra á
köldum degi en að brenna tunguna
örlítið og fá sykur í kroppinn.
Sigurður Örvar Arnarson Selfyss-
ingur seldi pólskar jólakúlur og
sagðist hæstánægður með þorpið.
„Þetta er tvímælalaust einn besti
staður í heimi. Fyrst þegar ég var
beðinn um að koma hingað þverneit-
aði ég og sagði það ekki koma til
greina að selja jólakúlur utandyra í
desember á Íslandi. En nú myndi ég
svo sannarlega ekki vilja missa af
þessu,“ sagði Sigurður sem var vel
klæddur og ornaði sér við rafmagns-
hitara.
Þorpið verður opið fram eftir
kvöldi á Þorláksmessu og fólk sem
vill forðast eril verslana getur keypt
síðustu jólagjafirnar utandyra.
Jólakúlur Í jólaþorpinu er fjöldi sölubása með ýmiss konar handverk og annan jólavarning. Áhugasamir kaup-
endur nálguðust pólskar jólakúlur og jólatrjátoppa af miklum áhuga en skrautið fæst í öllum regnbogans litum.
Gleymdu að vinda Jólatík Æsa var kannski dálítið hissa yfir öllu jólafjörinu en skellti sérsamt í jólafötin í tilefni dagsins og heilsaði upp á dýr og menn í jólaþorpinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólastemning Þórhildur og Bryn-
dís sögðust hlakka til jólanna og
nutu stemningarinnar í þorpinu.
Stemningin í
jólaþorpinu í
Hafnarfirði lætur
engan ósnortinn
SVÍNKURNAR slógu heldur betur í gegn í jólaþorp-
inu í gær og svo virðist sem þær Stella (hljómborð),
Jenný (gítar), Sunneva (trommur) og Birna (bassi)
stefni hraðbyri á frægð og frama. Stelpurnar eru all-
ar þrettán ára gamlar og hljómsveitin hefur leikið
saman í þrjú ár. Þær einbeita sér helst að frumsömdu
efni en æfa eitt og eitt lag sem hæfir tilefninu og
tóku því líka jólalag fyrir gesti jólaþorpsins í gær.
„Við eigum reyndar líka eitt jólalag sem við sömdum
sjálfar,“ segja þær glaðbeittar og stefna á útgáfu um
leið og þær verða uppgötvaðar.
Svínkurnar leika þó ekki aðeins á hljóðfæri heldur
spila þær líka fótbolta saman fyrir FH. Á meðan
knattspyrnuiðkendur annarra liða finna kannski til
smákvíða geta tónlistarunnendur farið að hlakka til
að heyra meira í þessari hafnfirsku hljómsveit.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svínkurnar tróðu upp í jólaþorpinu
„ÉG tel að stærsta vandamálið í
umferðarmenningu Íslendinga sé
skortur á aga og skortur á fyr-
irmyndum,“ segir Sigurður Helga-
son, sviðsstjóri hjá Umferðarstofu.
Það sem af er ári hafa 30 manns
látist í umferðinni, nú síðast lést 24
ára karlmaður í bílveltu á Álfta-
nesvegi, og eru það ellefu fleiri en í
fyrra. Sigurður segir þróunina
óásættanlega og kallar eftir vit-
undarvakningu á meðal ökumanna.
„Mér þykir umræðan hafa tekið
svolítið skrítinn sveig. Vandamálið
er að hluta til að vegirnir eru ekki
nægilega öruggir en stærsta
vandamálið liggur hjá ökumönnun-
um sjálfum. Það eru þeir sem
skapa gæfu og öryggi í umferð-
inni,“ segir Sigurður og bætir því
við að ökumenn þurfa að breyta
hegðun sinni og hugsun í akstr-
inum.
Varðandi tvöföldun stofnbrauta
til og frá Reykjavík segir Sigurður
meira máli skipta að sem flestir
njóti aukins umferðaröryggis og
það verði gert með 2+1 vegi. Hann
segir ekki mikinn mun á öryggi
2+1 vegar og tvöföldum, hins veg-
ar er hann mun ódýrari og því
gætu slíkar framkvæmdir nýst
fleirum. „Mér heyrist á stjórn-
málamönnum að það sé vilji til að
fara í aðgerðir og mín von er sú að
fyrst og fremst verði lögð áhersla
á að auka öryggi sem flestra. Það
gerum við með því að nýta fjár-
muni sem best.“
Mikið hefur verið rætt um hlut
ungra ökumanna í umferðinni og
hvort réttlætanlegt sé í ljósi slysa-
tíðni þess aldurshóps að hækka
ökuleyfisaldurinn. „Þetta er einn
af þeim hlutum sem þarf að skoða
og ræða. Mín skoðun er hins vegar
sú að mestu máli skiptir að bæta
kennsluna, undirbúninginn og jafn-
vel vinna í því að auka agann svo
börnin hafi betri fyrirmyndir þeg-
ar þau fara út í umferðina.“
Skortur á betri
fyrirmyndum