Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.12.2006, Blaðsíða 23
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 23                       ! "#$%& '(  ' )*+%& ,-& ./ 0''  111!23+22!&  4 4 5 Umm … það er unaðslegt íamstri dagsins aðbregða sér einn eða meðsínum heittelskaða, vin- um eða vinnufélögum í fótabað og fá nudd á herðar, hendur, bak og höfuð á meðan. Og að því loknu fót- anudd. Sitja saman eða liggja út af, spjalla og jafnvel fá sér eitthvað í gogginn á meðan eða dreypa á góð- um veigum. „Fyrirmyndina að þessari þjón- ustu sækjum við til Kína en þar er mjög vinsælt hjá fólki að hittast á svona nuddstofum til að slaka á í hádeginu eða eftir vinnu. Jafnvel er hægt að nýta þessar 40 mínútur sem nuddið tekur til vinnufunda og slá þannig tvær flugur í einu höggi,“ segir Fjóla Rut Rúnars- dóttir nuddari sem rekur Dong Fang Saloon fótanuddstofu á Hótel Loftleiðum, sem er fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Bankað á bak að kínverskum sið „Það er svo skemmtilegt að sitja saman í fótabaði og nuddi og hafa félagsskap af þeim sem koma með. Þessi hópstemning er líka mjög skemmtileg fyrir okkur sem erum að nudda, við leggjum okkur fram um að vera samtaka og það skapast allt annað andrúmsloft heldur en þegar við erum með einn í einu í lokuðu herbergi. Eins er hægt að vera tvö eða tveir saman í heil- nuddinu, pörum og vinum finnst það mjög notalegt.“ Siao Ling Soon er faglegur ráð- gjafi við stofuna en hún er kínversk og rak fótanuddstofu í Belgíu í þrjú ár. „Hún kenndi okkur handtökin en austurlenskt nudd gengur mikið út á samræmingu hugar, líkama og sálar. Í kínversku nuddi er líka mikið gert af því að banka, sem er ólíkt því sem við erum vön hér.“ Þarf ekki að fækka fötum Ilmurinn af fótabaðsvatninu er allt um lykjandi en út í það er ýmist sett engifer, sítrónur eða rósir. „Í gamla daga var fólk mikið í fótabaði en það virðist hafa lagst af. Við erum að leggja okkar af mörkum til að endurheimta þann góða sið. Ótal taugaendar liggja niður í iljar og fólki finnst svo þægilegt að koma hingað í fót- anuddið af því það er ekkert rask, fólk þarf ekki einu sinni að fara úr neinum fötum, nema sokkunum. Þess vegna er hægt að skjótast í vinnutímanum og fá sér að borða í leiðinni. Hægt er að panta veit- ingar hér á hótelinu, samlokur, súshí eða aðra smárétti hjá JT- veitingum og einnig drykki og láta færa sér hingað á meðan fólk er í fótabaðinu og nuddinu. Hingað hafa komið þó nokkrir sauma- klúbbar, vinnuhópar og vinahópar til að njóta og við getum tekið á móti allt að níu manns í einu. Marg- ir hafa líka keypt fótanudd sem gjöf og þannig komið sínum nán- ustu á óvart.“ Fjóla er þeirrar skoðunar að nudd eigi að vera sjálfsagður hlut- ur af daglegu lífi, rétt eins og að láta klippa sig eða fara út að hlaupa. „Þetta snýst um að hugsa um heilsuna í heild sinni. Nudd er mjög góð forvörn gegn streitu og áreiti.“ Morgunblaðið/G. Rúnar Sæla Sara og Antonía njóta þess að bragða á veitingum á meðan Fjóla og Hilmar nudda fætur þeirra. Saman í fótabað Slökun Hluti af meðferðinni er slökun með jurtapúða yfir augunum. massage@icehotels.is s: 444-4085 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.