Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
sunnudagur 31. 12. 2006
atvinna mbl.isatvinna
Gestir í vikunni 7.619 » Innlit 12.527 » Flettingar 82.814 » Heimild: Samræmd vefmæling
MAÐUR ATVINNULÍFSINS
RÓBERT WESSMAN, ER MAÐUR ÁRSINS Í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI
ÁRIÐ 2006 AÐ MATI DÓMNEFNDAR FRJÁLSRAR VERSLUNAR.
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 48
Veður 8 Myndasögur 62
Staksteinar 8 Dagbók 64/69
Menning 28, 52/61 Víkverji 64
Forystugrein 36 Staður og stund 64
Reykjavíkurbréf 36 Leikhús 60
Umræðan 44/45 Bíó 66/69
Minningar 46/48 Sjónvarp 52/70
* * *
Talsmenn íslenskra stjórn-
málaflokka hafa af því áhyggjur að
aftaka Saddams Husseins, fyrrum
einræðisherra í Írak, geti orðið til
þess að auka enn á átökin í Írak, að
minnsta kosti til skemmri tíma. Val-
gerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra segist ekki telja að stuðn-
ingur íslenskra stjórnvalda við
innrásina í Írak feli í sér að rík-
isstjórnin beri ábyrgð á aftöku
Saddams. Íslensk stjórnvöld séu
mótfallin dauðarefsingum og eigi að-
ild að alþjóðasamningum þar að lút-
andi. »6
Tilkynningar sem nú berast
smásölum um hækkanir á vörum hjá
innflutnings- og framleiðslufyr-
irtækjum, eru mun fleiri en und-
anfarin áramót, að sögn fram-
kvæmdastjóra Kaupáss, sem rekur
Krónuna, Nóatún og 11–11. Segir
hann að hækkanirnar nú séu afar
bagalegar vegna fyrirhugaðrar
lækkunar á virðisaukaskatti og nið-
urfellingar vörugjalda hinn 1. mars
næstkomandi.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu undanfarna daga hefur
fjöldi innflytjenda tilkynnt hækk-
anir, gjarnan á bilinu 3–5%, þótt
sumir hækki meira. »2
Ekki eru líkur á að önnur stór-
virkjun á borð við Kárahnjúkavirkj-
un rísi hér á landi næstu árin og
kannski aldrei, að mati Geirs H.
Haarde, forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins. Þetta
kemur fram í áramótagrein hans í
Morgunblaðinu í dag.
Geir segir þar m.a. að framkvæmd-
irnar við virkjunina og nýtt álver á
Reyðarfirði hafi haft mikil og já-
kvæð áhrif á mannlíf og atvinnu-
ástand á Austurlandi og muni gera
um langa framtíð. Þær hafi einnig
ýtt undir hagvöxt í landinu. Útflutn-
ingur frá álverinu muni skjótt vega
upp á móti þeim neikvæðu áhrifum á
viðskiptajöfnuði sem innflutningur
vegna framkvæmdanna hefur haft
síðustu ár. »72
Að sögn Lögreglunnar í Reykja-
vík er mál, þar sem tveir menn réð-
ust á tvo lögregluþjóna aðfaranótt
fimmtudags, litið mjög alvarlegum
augum. Þess má geta að háttsemi
fólks af þessu tagi varðar við almenn
hegningarlög þar sem allt að 6 ára
fangelsi liggur við brotum gegn
valdstjórninni. Það var á fimmtu-
dagsmorgun sem Lögreglan í
Reykjavík handtók tvo menn
í kjölfar árásar þeirra á tvo lög-
regluþjóna sem fengið höfðu það
verkefni að stöðva flugeldaspreng-
ingar mannanna í miðju íbúðarhverfi
um hánótt. »8
Ekkert lát virðist vera á hlýind-
um sem byrjuðu hérlendis fyrir ára-
tugi eða svo og var árið sem nú er að
líða með þeim hlýrri, bæði sunnan-
og austanlands, að því er kemur
fram í samantekt Veðurstofu Ís-
lands á veðurfari á árinu. Árið er í
hópi þeirra 15 hlýjustu frá upphafi
mælinga sé miðað við suðvestanvert
landið og í hópi 5–7 hlýjustu ára frá
upphafi mælinga á landinu aust-
anverðu. »8
Nítján manns særðust, þó ekki
alvarlega, þegar sprengja sprakk á
flugvelli í Madrid í gærmorgun.
ETA, herská samtök aðskiln-
aðarsinnaðra Baska, sögðust hafa
sprengt sprengjuna, sem komið var
fyrir í bíl á bílastæði. ETA hefur
ekki staðið fyrir sprengjutilræðum á
Spáni frá því samtökin lýstu yfir
vopnahléi í mars.
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
TYLKYNNINGAR sem nú berast
smásölunni um hækkanir á vörum
hjá innflutnings- og framleiðslufyr-
irtækjum, eru mun fleiri en undan-
farin áramót, segir Eysteinn Helga-
son, framkvæmdastjóri Kaupáss,
sem rekur m.a. Krónuna, Nóatún og
11–11-verslanirnar. Hann segir að
hækkanir nú séu afar bagalegar
vegna fyrirhugaðrar lækkunar á
virðisaukaskatti og niðurfellingar
vörugjalda hinn 1. mars nk.
„Þetta er mjög mikið, nánast á
alla línuna. Hækkanirnar eru svip-
aðar hjá öllum og svipuð rök fyrir
þeim. Við erum að spyrna við fótum
og bendum mönnum á ábyrgð sína,
að þeir leiti frekar hagræðingar hjá
sjálfum sér,“ segir Eysteinn.
Hann segir verslanir Kaupáss
eiga afar erfitt með að taka á sig
hækkanir, líklega verði nauðsynlegt
að velta þeim að einhverju leyti út í
verðlagið. Þó sé erfitt að segja til um
hvenær verð út úr búð muni hækka
og hversu mikið, enda hörð sam-
keppni á matvörumarkaðinum.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að vel
sé athugað hvort eðlilegar skýring-
ar séu á hækkunum, t.d. breytingar
á hráefnisverði. „Þetta eru hækk-
anir sem koma okkur ekki á óvart en
auðvitað er þetta slæmt. Auðvitað
hefði maður viljað að menn reyndu
eins og þeir gætu að halda í sér og
hagræða eins og mögulegt er.“
Hann segir að matvörumarkaður-
inn almennt hafi lítið svigrúm til að
taka hækkanir birgja á sig þótt auð-
vitað verði reynt til þrautar að
fresta eða komast hjá því að hækka.
Hann bendir einnig á að þær vörur
sem Bónus flytur inn séu einnig að
hækka, þess vegna komi ekki á
óvart að innlendir heildsalar hækki
verð. Þó sé sumt óskiljanlegt, t.d.
enn ein hækkunin á nautakjöti sem
kynnt var nýverið.
Allt að 17% hækkun
Eins og fjallað hefur verið um í
Morgunblaðinu undanfarna daga
hafa fjölmargir innflytjendur og
framleiðendur tilkynnt hækkanir,
gjarnan á bilinu 3–5%, þótt sumir
hækki meira. Sem dæmi má nefna
heildsöluverslunina Globus sem
flytur m.a. inn vörur frá Gillette,
Johnson & Johnson, L’Oréal o.fl., en
hún hefur kynnt hækkanir á bilinu
3–8%, mismunandi eftir vörumerkj-
um.
Þá hefur Ó. Johnson og Kaaber,
sem selur m.a. kaffi, ákveðið að
hækka verð um 3–6% frá og með 5.
janúar.
Nói Síríus hefur einnig tilkynnt
hækkanir á verði, bæði á innlendri
framleiðslu og innfluttri vöru. Allar
framleiðsluvörur hækka um 5%
hinn 15. janúar nk. nema kex sem
mun hækka um 9%.
Innfluttar vörur hjá Nóa Síríusi
hækka mismikið eftir tegundum en
vörur frá Kellogs munu hækka um
5–17%, m.a. vegna hækkana á
verðskrá Kellogs erlendis.
Meiri hækkanir en
undanfarin áramót
Flestar hækkanir á bilinu 3–5% en sumar meiri
Guðmundur
Marteinsson
Eysteinn
Helgason
Í HNOTSKURN
» Að undanförnu hafa birgj-ar tilkynnt smásölum að
verð frá þeim muni hækka eft-
ir áramót, mismikið eftir vöru-
flokkum en oft á bilinu 3–5%,
stundum meira.
» Talsmenn smásöluversl-ananna segja að þessar
hækkanir séu óþægilegar,
ekki síst vegna þess að neyt-
endur hafi vænst nokkurs af
lækkun virðisaukaskatts og
vörugjalda 1. mars næstkom-
andi.
VEITINGAMENN hafa verið önnum kafnir und-
anfarna daga við að birgja sig upp af veigum fyrir ár-
legan fagnað á gamlárskvöld. Má reikna með að ófáar
ferðir hafi verið farnar með bjórdunka og annað áfengi
á bari og skemmtistaði og rétt að minna landsmenn á
að ganga hægt um gleðinnar dyr.
Morgunblaðið/Ómar
Veigar fyrir áramótagleðina ferjaðar
ÞRJÁTÍU og þrír Íslendingar hafa
náð 100 til 104 ára aldri og eru á
lífi nú í árslok, að því er fram
kemur á vef Jónasar Ragn-
arssonar, ritstjóra Heilbrigðismála,
um langlífi (www.jr.is/langlifi).
Þetta er með meira móti, en fyrir
tveimur árum var fjöldinn þó 38.
Fremur lítil nýliðun
verður á næsta ári
Elst kvenna nú er Kristín Guð-
mundsdóttir í Hafnarfirði, 104 ára,
en Freysteinn Jónsson í Mývatns-
sveit er elstur karla, 103 ára. Næst
í röðinni kemur Þuríður Sam-
úelsdóttir í Reykjavík, 103 ára.
Óvenjulega lítil nýliðun verður í
þessum hópi á næsta ári því að
einungis 15 eru á lífi sem eru 99
ára. Hins vegar hafa aldrei verið
fleiri 98 ára Íslendingar á lífi eða
44.
Líkurnar á því að ná 100 ára
aldri hafa margfaldast í áranna
rás. Aðeins um 0,1% þeirra sem
fæddust fyrir 150 árum náðu 100
ára aldri en um 0,6% þeirra sem
fæddust fyrir rúmri öld hafa náð
100 ára aldri. Líkurnar hafa því
sexfaldast á hálfri öld og eru enn
að aukast. Fyrir aldarfjórðungi
voru þrettán Íslendingar á lífi sem
höfðu náð hundrað ára aldri. Fyrir
hálfri öld voru þeir fimm.
33 Íslendingar eru
nú 100 ára og eldri
Elst kvenna er Kristín Guðmunds-
dóttir, 104 ára, en elstur karla er
Freysteinn Jónsson, 103 ára
ÍSLAND komst á heldur óvenjuleg-
an lista hjá breska íhaldsflokknum á
föstudag, þegar flokkurinn tók sam-
an lista yfir annars vegar „umhverf-
ishetjur“ en hins vegar umhverfis-
skussa ársins 2006.
Einn talsmanna flokksins sagði að
þeir sem ratað hefðu á listana hefðu
annaðhvort tekið þátt í að móta
lausnir í umhverfismálum eða væru
hluti af umhverfisvandanum.
Ísland var á síðarnefnda listanum,
eða öllu heldur íslenska ríkisstjórn-
in. Ástæðan er ákvörðun stjórnvalda
frá því í sumar um að hefja á ný hval-
veiðar í atvinnuskyni.
Aðrir umhverfisskussar á lista
íhaldsmanna eru m.a. Exxon-olíufé-
lagið, yfirmaður Ryanair og breski
samgönguráðherrann.
Þeir sem íhaldsmenn flokkuðu
sem „umhverfishetjur“ voru m.a. Al
Gore, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, David Attenborough
kvikmyndagerðamaður og Arnold
Schwarzenegger, ríkisstjóri Kali-
forníu í Bandaríkjunum.
Ríkisstjórnin umhverfisskussi