Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 45
sinni eru margir hlutir í og við
vegi hættulegir mótorhjólafólki.
Er það þá ekki eðlilegt að við höf-
um áhyggjur af vegriðum með
óvarða staura innan við metra frá
aksturslínu okkar? Það er ekki
niðurrifsstarfsemi að benda á það
sem betur mætti fara.
Að lokum setur Stefán upp
geislabauginn með því að halda
því fram að sérstakt tillit hafi ver-
ið tekið til mótorhjólafólks við
uppsetningu víravegriðanna í
Svínahrauni. Hann má svo sem
trúa því ef hann vill en hver vír í
vegriði er strekktur upp í um það
bil 5 kN svo það þarf talsvert
sterka staura til að halda slíkum
vír á sínum stað, og mótorhjól eða
mótorhjólamaður hreyfir ekki
mikið við þeim ef hann lendir á
þeim. Hvort að það séu 2,7 eða 3,2
metrar á milli þeirra skiptir held-
ur ekki máli ef að staurarnir eru
áfram óvarðir. Gerðar hafa verið
rannsóknir með tölvulíkönum á
hvað gerist við árekstur mót-
orhjóla á mismunandi vegrið.
Tölvulíkanið kallast MADYMO og
var unnið af verkfræðistofu há-
skólans í Monash í Ástralíu. Mód-
elið sýnir hversu mikil hætta er á
meiðslum við dæmigerðan árekst-
ur við vegrið. Það sýnir líka svo
það verður ekki um villst að hætta
á alvarlegum meiðslum á höfði og
líkama mótorhjólamannsins marg-
faldast við árekstur á víravegrið.
Ennfremur sýnir það að hætta er
á að fætur ökumannsins og síðan
framhjól mótorhjólsins flækist í
vírunum með meiri hættu á
meiðslum þegar ökumaðurinn
losnar loksins við hjólið og kastast
yfir vegriðið. Eru menn þá eitt-
hvað hissa á því lengur að mót-
orhjólafólk skuli hafa áhyggjur af
öryggi sínu? Kannski ekki Stefán,
nema hann hafi kveikt á skilnings-
ljósinu.
Höfundur er ökukennari og bif-
hjólamaður og ritstýrir einnig tíma-
ritinu Bílar og sport.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 45
UMRÆÐAN
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
ÁLFKONUHVARF - GLÆSILEGT HÚS
Mjög vandað og fallegt 170 fm endaraðhús á einni hæð er skiptist í forstofu, hol,
stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og 3 herbergi auk innbyggðs bíl-
skúrs. Húsið er mjög stílhreint, allur viður er eik. Gólfefni er gegnheilt parket og flís-
ar. Innréttingar eru sérsmíðaðar. V. 47,9 m. 6259
SÓLTÚN 5 - SÉRLEGA VÖNDUÐ OG FALLEG
Sérlega vönduð og falleg 130 fm íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi ásamt bílastæði í
bílgeymslu. Íbúðin skiptist í þvottaherbergi, baðherbergi, eldhús með borðkróki,
óvenju stórar stofur, tvö svefnherbergi og geymslu innan íbúðar. Húsið er einangrað
og klætt að utan. Tvöföld gólf eru til aukinar hljóðvistar. Hönnun hefur verið verð-
launuð en húsið er teiknað af Ingimundi Sveinssyni. Afhending er í maí 2007. V. 41,5
m. 6129
LEIFSGATA - LAUS STRAX
Falleg og nýuppgerð 2ja herbergja íbúð á
1. hæð við Leifsgötu í Reykjavík. Eignin
skiptist í gang, stofu, baðherbergi, her-
bergi og eldhús. Sérgeymsla er í kjallara
og sameiginlegt þvottahús. M.þ. sem
hefur verið endurnýjað er eldhús, baðher-
bergi, gólfefni ásamt gleri og rafmagni að
hluta. V. 17,9 m. 6336
GRANDAVEGUR - LAUS STRAX
Falleg og björt 3ja herbergja 91 fm íbúð á
1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í
forstofu, hol eða sjónvarpshol, stofu, tvö
herbergi, eldhús, þvottahús og baðher-
bergi. Í kjallara er sérgeymsla og hjóla-
geymsla. V. 23,5 m. 6359
LÆKJASMÁRI - LYFTUHÚS
Glæsileg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í
lyftuhúsi við Lækjasmára í Kópavogi.
Íbúðin skiptist þannig: Stofa, eldhús, her-
bergi, baðherbergi, þvottahús og for-
stofa. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Sameig-
inleg hjóla- og vagnageymsla. V. 17,9 m.
6347
ÞINGHOLTSSTRÆTI - MIKIÐ UPPGERT
Mjög fallegt og mikið standsett 270 fm einbýlishús á frábærum stað í Þingholtunum.
Húsið skiptist þannig: 1. hæð: 3 stofur, eldhús, gestasnyrting og forstofa. Rishæð:
Gangur, 5 herbergi og baðherbergi. Kjallari: Hol, stórt sjónvarpsherbergi, þvottahús,
forstofa og stór nýleg sólstofa. Hér er um að ræða frábært hús sem mikið hefur ver-
ið gert fyrir síðustu árin. 6346
Laugarnesvegur - gullfalleg
Glæsileg 110 fm íbúð á 3. hæð ásamt
stæði í góðu bílskýli. Um er að ræða ný-
legt álklætt fjölbýlishús byggt af ÍAV. Sér-
inngangur. Íbúðin skiptist í stofu, borð-
stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðher-
bergi og sérþvottahús í íbúð. V. 37,0 m.
6340
Safamýri - sérinngangur Góð 3ja-
4ra herbergja íbúð á jarðhæð (ekkert nið-
urgrafin) í þríbýlishúsi við Safamýri. Íbúðin
skiptist þannig: Stofa, þrjú herbergi, eld-
hús, baðherbergi og hol. Sérgeymsla fylg-
ir í sameign. Sameiginlegt þvottahús og
kyndiklefi. Sérinngangur. V. 25,0 m. 6341
SKRIFSTOFA/VERSLUN
Frábær eign við Vatnsstíg í Reykjavík. Á efri
hæðinni eru 110 fm skrifstofur og neðri hæð
er 100 fm rými og hentar sem vinnupláss og
lagerrými. Efri hæðin skiptist í fjórar góðar
skrifstofur, eldhúsaðstöðu, móttöku og
salerni. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Á neðri hæðinni er gott alrými. Snyrting.
Innkeyrsludyr. 6367
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
LENGI vel hafa menn haldið
því fram að heimurinn sé verri á
þeirra dögum en áður. Svosem
ekki að undra því með aldrinum
virðist sem flestir verði staðfastari
í eigin skoðunum. Af því leiðir að
menn eiga erfiðara með að sætta
sig við breytingar á
umhverfi sínu. Dæmi
um slíkt er sú skoðun
undirritaðs að á síð-
ustu fimmtán árum
eða svo hafi dóm-
greind Íslendinga
hrakað. Ekki svo að
skilja að undirritaður
telji sjálfan sig vera
betri en samlandar
hans, ónei – ég geri
fjölmörg mistök sem
oftast eru sprottin af
því sama: fljótfærni,
þ.e.a.s. skorti á fram-
sýni. En þetta, skort
á framsýni, á ég við
þegar ég tala um tap-
aða dómgreind.
Árið 1944 ákvað
kynslóðin sem fædd
var við upphaf 20.
aldar að stofna sjálf-
stætt ríki á Íslandi.
Ef ég skil sögubæk-
urnar rétt þá ólst
þessi kynslóð að jafn-
aði ekki upp við mikil
veraldleg þægindi. Af
bóklegri þekkingu og
spjalli við eldra fólk
dreg ég þá ályktun
að fyrrnefnd kynslóð hafi almennt
talið æskilegt að safna sér forða
til að eiga þegar illa áraði. Einnig
áætla ég að fólk þetta hafi haft
þann vana að gjörnýta allan efni-
við sem til var áður en það keypti
nýjan.
Nú á dögum virðist sem mörg-
um, af kynslóðunum sem fæddust
eftir stríð, séu orðin fyrirhyggja
og sparsemi merkingarlaus. Oftar
en ekki er fólk búið að eyða fé
sínu áður en það hefur eignast það
og sjaldnast er fyrirhyggjan önnur
en að „maður vinni þetta bara
upp“ eða að „þetta reddist ein-
hvern veginn“. Eflaust munu
margir telja mig vera að ala á nei-
kvæðu hugarfari og bölsýni með
þessum orðum. Þó er það ekki
ætlunin. Ætlun mín er að hvetja
fólk til jákvæðrar hugsunar og
bjartsýni og vissulega eigum við
að halda áfram að segja „þetta
reddast“. En hættum að segja
„...einhvern veginn“ því aug-
ljóslega þarf að leiða hugann að
því hvernig skuli redda hlutunum.
Það virðist nefnilega
orðinn nokkuð land-
lægur hugsunarháttur
að efnisleg gæði verði
til af engu. Hinn
dæmigerði Íslend-
ingur er skuldugur
upp fyrir haus. Ég hef
engar vísindalegar
sannanir fyrir því að
neysluhyggjan sé eina
ástæða skuldafensins
og ég veit að margir
afsaka skuldir lands-
manna með þeim rök-
um að svona verði
þetta bara að vera til
þess að fólk geti búið
við mannsæmandi
kjör. En heilbrigð
skynsemi mín tjáir
mér það að ef við
leyfðum okkur ekki
allan þennan munað
gætum við minnkað
skuldirnar og ef til vill
unnið styttri vinnu-
dag. Og innsæið segir
mér að núverandi góð-
æri vari ekki að eilífu.
En víst er það svo að
á meðan við völsum
um eyjuna okkar í
skammsýni og ánægju yfir eigin
ágætum heldur klukkan áfram að
tifa.
Ég tek fram að sjálfur er ég
sami kjáninn í peningamálum og
ég tel marga landa mína vera. En
upphaf allra bóta er bætt hugarfar
og vona ég að héðan í frá ráðstafi
ég fé mínu af meiri fyrirhyggju.
Til dæmis með því að kaupa ódýr-
an, notaðan bíl í stað þess að taka
lán fyrir bifreið af nýjustu gerð.
Ég óska landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári.
Nýárshugvekja
Einar Hjartarson skrifar nýárs-
hugvekju um neysluhyggju
Einar Hjartarson
» Það virðistnefnilega
orðinn nokkuð
landlægur hugs-
unarháttur að
efnisleg gæði
verði til af engu.
Hinn dæmigerði
Íslendingur er
skuldugur upp
fyrir haus.
Höfundur fæst við skriftir.
Fréttir á SMS