Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir
og afi,
MAGNÚS ÞÓR MAGNÚSSON
Dr. Ing. Rafmagnsverkfræðingur,
Barðaströnd 20,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu föstudaginn 29. desember.
Hrefna M. Proppé Gunnarsdóttir
Áslaug María Magnúsdóttir, Haukur Birgisson
Þorsteinn Ingi Magnússon, Jóhanna Guðrún Pálmadóttir
Katrín Lillý Magnúsdóttir, Gylfi Þór Þórisson
Margrét O. Magnúsdóttir, Stefán Hreiðarsson
Frú Guðbjörg, ég
vissi ekki að hún héti
að millinafni Sigríður
eins og móðir mín.
Hún var föðursystir mín. Alltaf er
ég hitti hana sagði hún mér hve vænt
henni hefði þótt um föður minn og
hve mikið hún hefði alltaf saknað
hans, hvað hann hefði verið góður
bróðir og hefði líka orðið mér góður
faðir.
Hann, Guðmundur Pálsson, alltaf
kallaður Gummi bróðir , fórst með
b.v. Sviða frá Hafnarfirði 2. des. 1941
Guðbjörg Sigríður Pálsdóttir
✝ Guðbjörg Sig-ríður Pálsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. júlí 1907. Hún
andaðist á líknar-
deild Landakots 4.
desember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Dómkirkjunni 14.
desember.
aðeins 31 árs að aldri,
þá var ég 15 mánaða.
Minni mitt nær til þess
sumars þegar ég var
fimm ára í sumardvöl
hjá föðursystrum mín-
um, frú Lilju á Akra-
nesi og frú Guðbjörgu
í Stafholti en báðar
voru þær prestsfrúr.
Báðar tvær voru
þær önnum kafnar
konur, kærleiksríkar,
umvefjandi allt og alla.
Í Stafholti voru synir
Gauju og Bergs,
Ragnar og Guðmundur góðir leik-
félagar. Uppi á hamri höfðu þeir
smíðað flugvél og fórum við þar í
margar ferðirnar.
Óljóst man ég að alltaf var margt
fólk í Stafholti, mikill gestagangur,
fólk að koma og fara, samt var Guð-
björg frænka mín alltaf góð, aldrei
pirruð, aldrei þreytt.
Svona er minni barnsins.
Næstum hálfri öld síðar fer ég í
læri hjá Kolbrúnu Karls. að mála á
postulín, í miðju spjalli um ættir og
uppruna hleypur hún frá og kemur
aftur með mynd af tveimur litlum
tátum, við tvær í Stafholti 1945 ! Við
Gauja mín deildum ekki ævinni sam-
an fyrr en hin síðari ár, hvað sem olli
því er farið með þeim sem látnir eru.
Það hefði orðið öðruvísi að njóta
hennar meira að kynnast henni bet-
ur, þeim systrum báðum. Ég sakna
þess. Gauju minni þakka ég þá elsku
er ég naut í þeim samverustundum,
sem við áttum saman.
Hin bláasta fjóla fyrr þú varst
í föður þíns laukagarði,
þá angan og fegurð í æsku barst,
sem óskelfd til himins starði.
Það yndi er fölnað, en yfir því rís
nú elskunnar minnisvarði.
(Hulda.)
Öllu hennar fólki sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hulda Guðmundsdóttir.
Ragna Efemía Guð-
mundsdóttir er látin, vinkona og
Stjörnuhópsfélagi á Heilbrigðis-
stofnun Sauðárkróks.
Hópurinn samanstóð af fimm ólík-
um einstaklingum, við nefndum hóp-
inn stjörnuhópinn því saman mynd-
uðum við fimm arma stjörnu. Nafnið
var því vel við hæfi að okkar mati.
Við reyndum að hittast reglulega og
Ragna var í hópi þeirra sem mættu
best. Veikindi Rögnu ágerðust smám
saman á þeim tíma, en hún lét það
Ragna Efemía
Guðmundsdóttir
✝ Ragna EfemíaGuðmundsdóttir
fæddist í Sölvanesi í
Lýtingsstaðahreppi
í Skagafirði 23. nóv-
ember 1938. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Sauðár-
króks aðfaranótt
15. desember síðast-
liðins og var jarð-
sungin frá Sauðár-
krókskirkju 28.
desember.
ekki aftra sér og naut
stundanna. Með okkur
þróaðist, traust, vin-
skapur og gagnkvæm
virðing og í hópnum
gátum við talað um allt
milli himins og jarðar
af gagnkvæmri virð-
ingu í þeirri vissu að
samræðurnar færu
ekki lengra. Við sett-
um okkur háleit mark-
mið, en þau voru að
efla okkur sjálf, víkka
sjóndeildarhringinn,
vera jákvæð og hrósa
hvert öðru. Við fórum í heimsóknir
hvert til annars, fórum á kaffihús og
heimsóttum meðal annars sjúkra-
þjálfun Heilbrigðisstofnunarinnar
og fengum kynningu á starfseminni.
Framan af fylgdum við ekki alveg
markmiðum okkar, vorum kannski
fullafslöppuð, en lýðræðis gætti í
hópnum og ef hópurinn væri sáttur
var það það eina sem skipti máli. En
á einum af fundum okkar fórum við
sem oftar yfir markmiðin og flestir
töldu að þetta væri nú bara fínt, það
sem við værum að gera. En þá var
það Ragna Efemía, sem á þeim tíma
átti orðið erfitt með mál, sem spark-
aði hressilega í restina af hópnum,
en hún taldi að við þyrftum að
skerpa okkur í því að halda mark-
miðum sem lagt var upp með í upp-
hafi. Þetta atvik varð okkur vinum
og félögum hennar mjög minnis-
stætt. Það lýsti Rögnu mjög vel og
sýndi okkur hennar sterku persónu
á svo skýran máta. Það þurfti ekki
alltaf orð eða talað mál til þess að
skilja hvert annað í þessum hóp.
Þögnin og næmið fyrir gildi þagn-
arinnar var til staðar. Við náðum að
eiga djúp og þroskandi samskipti og
við nutum okkar öll í þessum hóp.
Við sjáum nú á eftir stórmerkilegri
konu sem tókst á við veikindi sín af
æðruleysi. Hún hló mikið með okkur,
fylgdist vel með og hafði skoðanir,
ákveðnar skoðanir sem hún náði að
koma á framfæri innan hópsins. Eft-
ir stöndum við fjögur af hópnum og
sjáum á eftir Rögnu með söknuði en
þó með þeirri vissu að hún hafi öðlast
hvíld frá erfiðum veikindum.
Aðstandendum hennar sendum
við samúðarkveðjur og ósk um að
ljós og friður fylgi þeim.
Anna
Pálína, Berglind, Kristján
og Sigurður.
Elsku Valli.
Nú þú sefur, minn væri vin,
vaki ég hljóð við mánaskin.
Fegursta stjarnan sem á himni rís
ert þú á leið í paradís.
Nú legg ég á leiði þitt rauða rós,
logar á kerti lífsins ljós.
Ég sakna þín hjarta ljúfurinn minn,
nú signi ég og kyssi krossinn þinn.
Elsku Steina, Valur, Hafrún og
Haukur, innilegar samúðarkveðj-
ur.
Ingibjörg og Aron Örn.
Valtýr Guð-
mundsson
✝ Valtýr Guðmundsson fæddistí Stykkishólmi 21. júlí 1984.
Hann lést af slysförum 8. desem-
ber síðastliðinn og var útför hans
gerð frá Stykkishólmskirkju 16.
desember.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
✝
Ástkær dóttir mín, eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGRÚN ARADÓTTIR,
Arnartanga 16,
Mosfellsbæ,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 23. desember, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.00.
Salvör Veturliðadóttir,
Sveinn Árnason,
Brynhildur Sveinsdóttir, Hörður Guðjónsson,
Íris Sveinsdóttir, Jón Guðmundsson,
Eva Björg Harðardóttir,
Sigrún Harðardóttir,
Daði Sigursveinn Harðarson,
Natalie Kristín Írisardóttir,
Helena Írisardóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HILDUR EMILÍA PÁLSSON,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Stigahlíð 4,
Reykjavík,
verður jarðsungin í Dómkirkjunni miðvikudaginn
3. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er vinsamlega
bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, sími
588 7555.
Stefanía Stefánsdóttir, Björn Valgeirsson,
Anna Guðnadóttir,
Stefán H. Stefánsson, Jórunn Magnúsdóttir,
Kittý Stefánsdóttir, Ólafur Ólafsson,
Hrafnhildur Stefánsdóttir, Valur S. Ásgeirsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Móðir mín, amma og langamma,
KRISTJANA RAGNHEIÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Búðardal,
sem andaðist á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
laugardaginn 23. desember, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju þriðjudaginn 2. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabet Magnúsdóttir, Íris Hrund Grettisdóttir,
Magnús Þór Guðmundsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA SIGMUNDSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að
morgni laugardagsins 23. desember.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
3. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Ásgeir J. Guðmundsson,
Sigmundur Ásgeirsson, Kristín Ottesen,
Guðmundur Ásgeirsson, Helga Ólafsdóttir,
Þóra Ásgeirsdóttir, Þorvaldur Gíslason,
Ásgeir J. Ásgeirsson, Berglind Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.