Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 47
Hvernig kveð ég
þig, afi minn, án þess
að gera lítið úr þeim
góðu áhrifum sem þú hefur haft á
mig í gegn um tíðina.
Minningarnar úr Lindarbrekk-
unni eru svo margar og góðar.
Hvort sem við sátum inni í eldhúsi
að spjalli eða vorum á fullu í að
þrífa af rófum þá gastu alltaf sagt
einhverja sögu, hvort sem það var
þjóðsaga eða bara saga úr firð-
inum. Alltaf hlustaði maður af
Gunnar Guðmundsson
✝ Gunnar Guð-mundsson fædd-
ist á Eyjólfsstöðum í
Beruneshreppi 13.
febrúar 1922. Hann
lést á sjúkrahúsinu
á Egilsstöðum 17.
desember síðastlið-
inn og var útför
hans gerð frá
Djúpavogskirkju
29. desember.
áhuga, jafnvel þó svo
að umfjöllunarefnið
hafi mér ekki alltaf
þótt áhugavert þá
náðir þú að segja
þannig frá að það var
ekki hægt annað en
að hlusta.
Man ég líka eftir
einu kvöldi þar sem
mig langaði út að
leika eftir sólsetur.
Spurðir þú mig hvort
ég vildi virkilega út í
myrkrið, og eftir smá
umhugsun komst ég
að þeirri niðurstöðu að það væri ef
til vill ekkert svo góð hugmynd.
Eftir þetta varð það að fara út í
myrkrið einkabrandari okkar á
milli.
Ég leit við í Lindarbrekkunni
tvisvar í sumar. Í fyrra skiptið
kom ég með fjölskyldunni og við
stoppuðum yfir helgi. Ég hafði
heyrt að heilsan væri ekki góð og
að þú ættir sennilegast ekki langt
eftir. Bjóst ég alveg eins við því að
sjá þig þreyttan, gamlan og von-
lausan. En í staðinn sá ég þig eins
og ég hafði alltaf þekkt þig, vinnu-
saman. Fór stór hluti af helginni í
að hjálpa þér við að gera við
grindverkið fyrir framan húsið.
Seinna skiptið leit ég við þegar ég
og vinir mínir vorum í hringferð
um landið. Kom ég þá að þar sem
þú varst að lakka grindverkið.
Slíkur dugnaður einkenndi þig alla
tíð.
Það er erfitt að kveðja góða
menn, en þegar ég heyrði að þú
værir farinn skaust strax upp í
huga minn þetta erindi úr Háva-
málum. Því kveð ég þig, afi minn,
með þessum orðum og vona að þér
líði vel hvar sem þú ert staddur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Bragi Guðlaugsson.
Ég kynntist Ást-
mari þegar hann tók
að sér byggingastjórn við viðbygg-
ingu sem ég var að ráðast í við húsið
mitt árið 2005. Hann mætti á staðinn
á stóra pikkuppnum sínum og út
steig stór persónuleiki, lífsglaður og
Ástmar Örn Arnarson
✝ Ástmar ÖrnArnarson húsa-
smíðameistari
fæddist í Reykjavík
29. október 1957.
Hann lést á líknar-
deild Landspítala –
háskólasjúkrahúss
9. desember síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Hall-
grímskirkju 18. des-
ember.
gamansamur. Ég
kannaðist við fasið en
kom því ekki fyrir mig
strax. Hann tók verkið
að sér með glöðu geði
og sagði að það þyrfti
að koma þessu upp
sem fyrst og að þetta
yrði nú lítið mál. Hann
kom mér af stað og
leiðbeindi mér með
verkið af mikilli festu.
Það var svo nokkrum
vikum seinna að pabbi
minn var í heimsókn
og af tilviljun var
stóra hestakerran hans Ástmars
lögð beint fyrir utan gluggan hjá
mér. Ég kallaði á pabba og sagði
honum að þetta væri nú bygginga-
stjórinn minn Ástmar Örn Arnars-
son. Pabbi leit á mig og sagði: „Er
ekki í lagi með þig? Þetta er ná-
frændi þinn!“, þá áttaði ég mig á
hvaðan ég kannaðist við fasið. Við
Ástmar vorum þremenningar, Rósa
amma hans og Gísli afi voru systkini.
Við urðum miklir mátar og áttum
sameiginlegt áhugamál, hestana.
Það var alltaf gaman að fá hann á
staðinn, þá var grínast og hlegið og
verkið rifið áfram.
Það var því mikið áfall að heyra
um veikindi hans og skömmu síðar
hversu langt þau voru komin. Þeir
menn sem hann fékk í verkið heima
hjá mér höfðu miklar mætur á hon-
um og mikið var rætt um hann af
umhyggju og alúð. Ég kveð þig
elsku frændi með söknuði og vildi
óska að við hefðum getað átt fleiri
stundir saman. Ég sendi fjölskyld-
unni allri samúðarkveðjur vegna
þessa mikla missis og vona að guð
líti til með ykkur.
Jóhann G. og fjölskylda.
Elsku mamma mín, þú varst alveg
einstök kona. Þegar ég hugsa til
baka um allar góðu stundirnar með
þér, það yljar. Ég var mjög ung þeg-
ar þú kenndir mér útsaum. Það hef-
ur gagnast mér rosalega vel í gegn-
um lífið. Við fórum ófáar ferðirnar til
Öggu Ingvars að skoða og kaupa
hannyrðir, þá fannst okkur ekki leið-
inlegt. Allt sem þú tókst þér fyrir
hendur var gert af svo mikilli hlýju
og alúð. Veraldlegur auður skipti þig
ekki miklu, kærleikurinn var ofar
öllu. Þú varst alltaf boðin og búin að
hjálpa og gefa andlegan styrk.
Elsku hjartans mamma mín, ljúf-
ust þú varst á allan hátt, varst alltaf
tilbúin að gefa gleði og mátt.
Elsku mamma, takk fyrir allt og
allt. Þín verður sárt saknað. Þín elsk-
andi dóttir
Ingibjörg Bjarnadóttir
og fjölskylda.
Rósa Hall-
grímsdóttir
✝ Rósa Hallgrímsdóttir fæddistá Sauðárkróki 4. september
1935. Hún lést á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands á Seyðisfirði
27. október síðastliðinn og var út-
för hennar gerð frá Hafnarkirkju
6. nóvember.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Ástkær móðir mín,
JAKOBÍNA OTTESEN BOESKOV,
Birkerød,
Danmörku,
lést miðvikudaginn 27. desember.
Jóhanna Boeskov og fjölskylda.
✝
Elskulegur bróðir okkar,
EMIL JAKOBSSON,
Hátúni 10a,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
27. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Þórlaug B. Jakobsdóttir,
Guðbjörg Jakobsdóttir,
Ágúst Jakobsson,
Hrönn Jakobsdóttir
og fjölskyldur.
Sími 567 9110 • 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Útfararþjónustan
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁRNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Grandavegi 47,
Reykjavík.
Högni Jónsson,
Jón V. Högnason, Þórunn E. Baldvinsdóttir,
Gunnar Högnason,
Sveinbjörn Högnason, Sigríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra nær og fjær sem heiðruðu
minningu
ÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
áður til heimilis í
Víðilundi 6H.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlíðar fyrir kærleiks-
ríka umönnun.
Gleðilegt nýtt ár.
Kolbrún Matthíasdóttir,
Guðný Matthíasdóttir, Jóhann Sigvaldason,
Jón Matthíasson, Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Halldór Matthíasson
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur faðir minn og afi okkar,
ÞÓRÐUR STEFÁNSSON,
Hamarsbraut 8,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 28. desember.
Ragnheiður Hulda Þórðardóttir,
Viktor Ingi Ólafsson,
Stefán Máni Ólafsson.