Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 49
FRÉTTIR
ÞESSIR bekkir heimsóttu Morgunblaðið í tengslum við verkefnið Dagblöð í skólum.
Dagblöð í skólum er samstarfsverkefni á vegum menntasviðs Reykjavíkur sem Morg-
unblaðið tekur þátt í á hverju ári.
Að lokinni verkefnaviku þar sem nemendur vinna með dagblöð á margvíslegan hátt í
skólanum koma þeir í kynnisheimsókn á Morgunblaðið og fylgjast með því hvernig nú-
tíma dagblað er búið til. Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Auður í netfangi aud-
ur@dagblod.is. Kærar þakkir fyrir komuna, krakkar! Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eyþór
3. SJ í Selásskóla.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
7. bekkur í Öskjuhlíðarskóla.
Morgunblaðið/Sigríður Óskarsdóttir
Bekkur 7 b í Fossvogsskóla.
Morgunblaðið/Sverrir
7. KT í Vogaskóla.
NÚ árið er næstum liðið og aldrei
það kemur til baka. Af því tilefni
býður Borg-
arskjalasafn
Reykjavíkur
öllum að
senda vinum
og ættingjum
nýárskveðju,
sér að kostn-
aðarlausu. Að þessu sinni eru nýár-
skortin gömul falleg kort úr stóru
póstkortasafni Borgarskjalasafns.
Kortin er að finna á vef Reykjavík-
urborgar www.reykjavik.is.
Fyrir jól bauð Borgarskjalasafn
eins og fyrri ár, upp á jólakort á
netinu og voru viðtökur vægast
sagt góður og mikill fjöldi fólks
sendi vinum og ættingjum hér
heima og erlendis jólakveðjur.
Hægt er að senda þær á yfir 25
tungumálum.
Nýárskveðjur
á netinu
NORDICA SPA hefur gefið félög-
um í Umhyggju, samtökum sem
vinna að bættum hag sjúkra barna
og fjölskyldna þeirra, 40 gjafakort í
heilsulindina á Nordica Spa þar
sem handhafi fær nuddmeðferð að
eigin vali. Gjafakortin renna til Ein-
stakra barna, sem er félag um
sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma,
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna, Neistans, félags barna með
hjartasjúkdóma, og foreldra barna
með gigtarsjúkdóma.
Hjá NordicaSpa geti foreldrarnir
slakað á og látið þreytu dagsins líða
úr sér í rólegu og þægilegu and-
rúmslofti þar sem áhersla er lögð á
andlega og líkamlega vellíðan.
Umhyggja vinnur að bættum hag
sjúkra barna og fjölskyldna þeirra.
Í félaginu starfa foreldrar lang-
veikra barna og fagfólk innan heil-
brigðiskerfisins. Einnig eru félög
og hópar foreldra langveikra barna
í félaginu.
Umhyggja fékk 40
gjafakort í heilsu-
lind og nudd