Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Á fimmtu-daginn réðust
her-sveitir
bráðabirgða-stjórnar Sómalíu
og eþíópískir her-menn inn í
Mogadishu, höfuð-borg
landsins. Þær mættu engri
mót-spyrnu.
Hreyfing íslamista vill
stofna íslamskt ríki í
Sómalíu. Hún lýsti yfir stríði í
landinu í síðustu viku og náði
höfuð-borginni á sitt vald.
Hreyfingin hörfaði á
fimmtu-daginn frá borginni og
segist ætla að halda áfram
bar-áttunni gegn
bráðabirgða-stjórninni í
sunnan-verðu landinu.
Bráðabirgða-stjórnin hefur
rætt við leið-toga ætt-flokka
um sam-starf til að komast til
valda í höfuð-borginni án
blóðs-úthellinga og munu
þeir lík-lega ráða úr-slitum
þar um.
Forsætis-ráðherra Eþíópíu,
Meles Zenawi, lofaði sigri á
hreyfingu íslamistanna og
sagðist vona að átökunum
lyki á næstu dögum eða
vikum. „Við ætlum ekki að
láta Mogadishu brenna,“
sagði hann.
Stjórnin komin til Mogadishu
REUTERS
Her-menn bráðabirgðar-stjórnar í Sómalíu.
AUÐLESIÐ EFNI
Banda-ríski
tónlistar-maðurinn James
Brown, sem kallaður var
guð-faðir sálar-tónlistarinnar,
lést úr
lungna-bólgu á
jóla-dag, 73
ára að aldri.
Hann hóf
tónlistar-feril
sinn árið 1953
en vin-sældir
hans náðu
há-marki á
síðari hluta sjöunda
ára-tugarins.
Brown var mikil-væg
fyrir-mynd heillar kyn-slóðar
banda-rískra blökku-manna
og gætir áhrifa hans enn í
dag í tónlistar-heiminum.
Mannréttinda-frömuðurinn
Jesse Jackson sagði um
Brown að hann hefði verið
menningar-legt, pólitískt og
félags-legt afl.
James
Brown
látinn
James
Brown
Gerald Ford látinn
Gerald Ford, fyrr-verandi
for-seti Banda-ríkjanna, lést í
vikunni. Hann var eini
Bandaríkja-maðurinn sem
hefur sest á forseta-stól án
þess að hafa fengið um-boð
kjósenda. Hann var
vara-forseti og tók við þegar
Richard Nixon for-seti sagði
af sér em-bætti.
Styrktar-tónleikar
Styrktar-félagi
krabbameins-sjúkra barna
voru afhentar 2.476.500
krónur á styrktar-tónleikum
sem voru haldnir 8. árið í röð
á fimmtu-dagskvöld.
Allir sem komu að
tón-leikunum gáfu vinnu sína,
auk þess sem Háskóla-bíó
lagði frítt til hús-næðið.
Biðjast af-sökunar
Pitsu-fyrirtækið Dominos
hefur beðist af-sökunar á því
að senda 80 þúsund
viðskipta-vinum
sms-skilaboð með
jóla-kveðju. Ástæðan er sú
að kveðjan var send út
snemma aðfanga-dags en
barst ekki fyrr en um kvöldið
þegar fólk var að snæða
jólakvöldverðinn.
Skattur lækkar en gjöld
hækka
Um næstu ára-mót mun
tekju-skatturinn lækka um
1% og persónu-afslátturinn
hækkar. Hins vegar hækka
þjónustu-gjöld opin-berra
aðila og því er ekki víst að
mikið sitji eftir í vasa
neytenda.
StuttÁ þriðju-daginn fórust 260
manns þegar eldur blossaði
upp í bensín-leiðslu í
fátækra-hverfi í Lagos,
stærstu borg Nígeríu. Hópur
þjófa hafði borað gat á
leiðsluna til að stela bensíni
og hundruð íbúa hverfisins
komu til að verða sér úti um
elds-neyti þegar eldurinn
gaus upp.
Nígería er mesti
olíu-framleiðandi Afríku og
hefur spilling og óstjórn
orðið til þess að
bensín-stöðvar verða
uppi-skroppa með
elds-neyti. Verðið á einum
brúsa af bensíni á svörtum
markaði getur þá jafn-gilt um
2 vikna launum fá-tæks
Nígeríu-manns.
Alls 260
létu lífið
Á fimmtu-daginn var lokið við að dæla olíu úr
tönkum flutninga-skipsins Wilson Muuga en
það strandaði við Hvalnes 19. desember.
Alls var um 95 tonnum af olíu dælt í land og
unnið var stans-laust í 30 klukku-stundir.
Umhverfis-stofnun segir að allt að 60–70
tonn af olíu hafi farið í sjóinn þegar skipið
strandaði. Óveður og mikill sjó-gangur var
fyrstu sólar-hringana eftir strandið, og það
varð til þess að koma olíunni á haf út og
brjóta hana niður. Lítil um-merki hafa fundist
um olíu-mengun í fjörum í ná-grenni við
strand-staðinn, en að lang-mestu leyti hefur
tekist að koma í veg fyrir frekari olíu-leka frá
skipinu á strand-stað.
Í skipinu er eftir olíu-blandaður sjór í
lestar-rými og er talið að magn þeirrar olíu
sem þar er eftir sé 10–15 tonn. Segir
Umhverfis-stofnun að hreinsun þeirrar olíu
geti tekið nokkra daga en ekki sé lengur bráð
hætta af henni.
Olíu-dælingu
lokið
Morgunblaðið/ÞÖK
Olíu dælt úr Wilson Muuga.
Íslenska kvik-myndin Köld
slóð var frum-sýnd í
Smára-bíói á
föstudags-kvöldið, við góðar
undir-tektir við-staddra. Köld
slóð er sakamála-saga um
blaða-manninn Baldur sem
heldur upp á há-lendið til að
rann-saka dular-fullt and-lát
öryggis-varðar í virkjun en
hinn látni er faðir hans.
Leik-stjóri myndarinnar er
Björn Brynjúlfur Björnsson og
með-höfundur hans er
Kristinn Þórðarson. Með
helstu hlut-verk fara Þröstur
Leó Gunnarsson, Anita
Briem, Helgi Björnsson og
Elva Ósk Ólafsdóttir.
Köld slóð
frum-sýnd
Morgunblaðið/ÞÖK
Krisinn og Þröstur Leó eru
ánægðir með Kalda slóð.
Guðjón Valur Sigurðsson,
handknattleiks-maður með
þýska liðinu Gummersbach,
var á fimmtu-daginn
út-nefndur íþrótta-maður
ársins af Sam-tökum
íþrótta-fréttamanna. Guðjón
Valur hlaut 405 stig í fyrsta
sætið en mest var hægt að fá
460 stig. Eiður Smári
Guðjohnsen,
knattspyrnu-maður og
handknattleiks-maðurinn
Ólafur Stefánsson urðu í 2.
og 3. sæti, en þeir hafa verið
hand-hafar titilsins seinustu
ár. „Það er í fyrsta lagi mikill
heiður að fá að til-heyra
svona hópi frábærra
íþrótta-manna og í öðru lagi
að fá svona viður-kenningu,
þó að ekki sé nema einu
sinni á lífs-leiðinni, er ekkert
annað en frábært,“ sagði
Guðjón Valur.
Íþrótta-maður
ársins út-nefndur
Morgunblaðið/Arnaldur
Guðjón Valur Sigurðsson
íþrótta-maður ársins.
Netfang: auefni@mbl.is