Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 55

Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 55 menning Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Kanarí í janúar Síðustu sætin frá kr. 29.990 Frábær janúartilboð - glæsileg gisting í boði Verð kr. 29.990 Flug, skattar og gisting, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, stökktu tilboð, 17. eða 24. jan., vikuferð. Netverð á mann. Verð kr. 34.990 Flug, skattar og gisting, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, á Roque Nublo, 17. eða 24. jan., vikuferð. Netverð á mann. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Hálft fæði - Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í herbergi á Hotel Rondo - hálft fæði, 17. eða 24. jan. (lækka), vikuferð. Netverð á mann. Verð kr. 69.990 Allt innifalið - Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í svítu á Hotel Eugenia Victoria - allt innifalið, 24. jan., vikuferð. Netverð á mann. GRÉTAR Reynisson hefur byggt box á stóra sviðið, lyftu. Bak er á henni; lyftudyrnar opnast og lokast á ólíka heima Sundralands- ins sem Lísa Jónsdóttir ferðast um eitt sinn þegar hún hættir sér inn í lyftuna. Hún reynist hafa tapað einni klukkustund úr lífi sínu og í leit að henni hrapar hún eins og Lísa í Undralandi niður í súrrealíska atburðarrás ævintýris þar sem allt snýr á haus; Í Sundralandi búa óöruggir óörygg- isverðir, kynlega dýrið blórabögg- ull, borgarstarfskona sem vill laga tölfræði ofbeldis með því að taka það allt á sjálfa sig og lætur því nauðga, berja og míga á sig í stað- inn fyrir Lísu, verður svo ofbeldis- full sjálf og þær skemmta sér við að fleygja saman sprengjum á annað fólk. Þar er líka deild fyrir óskilamuni sem sjálf er í óskilum og menn moka í sig yfir og allt um kring pulsum og aftur pulsum; þar er yndislegur ísbjörn og þar eru ógnvænlegar manneskjur og hræðilegi svarti hundurinn sem eltir Lísu líkt og Winston Churc- hill forðum. – Þetta og margt fleira gerist allt fyrir hlé í magn- þrunginni lita- og hljóðsinfóníu. Eftir hlé vöknum við upp með Lísu á geðdeild, inni í gráum ís- köldum raunveruleikanum, þar sem allt gengur eftir klukku. Form þessa verks Anthonys Neilsons er snjallt og sú aðferð hans að leiða áhorfandann fyrst inn í litríkan, heillandi og hræði- legan ævintýraheim maníunnar, síðan niður á kaldranalega jörðina í þeim tilgangi að auka skilning á því af hverju maníu-sjúklingar vilja ekki taka lyfin sín. Af einhverjum ástæðum varð höggið milli heimanna tveggja ekki eins mikið í sýningunni og verkið býður upp á. Kannski vegna hlésins þar sem allir voru svangir eftir að hafa séð svona mikið af þjóðarréttinum pulsum, kannski liggur það að hluta til hjá leikmyndinni, sem er sannarlega ótrúlega hugvitsamleg og skemmtileg, og tengir eðlilega saman heimana tvo, maníu- heiminn og sjúkrahúsið, en ramm- ar líka Lísu inn, lokar hana (Ilmi Kristjánsdóttur) nær allan tímann inni á ævintýralegri ferð sinni um Sundraland. Hún lendir í erfiðri stöðu til að sýna þau áhrif sem hún verður fyrir, manía hennar næstum fyrir utan hana sjálfa, og kannski var það líka ætlunin. Lyftudyrnar virka sem nokkurs konar klippitæki á milli atriða og leikstíllinn í Sundralandi er einnig eins og í kvikmynd eða sjónvarps- seríu, lágstemmdur leikur sem fjarlægir, nánast andleikhúsleikur og gerir atburði skemmtilega und- arlega en hann verður þess einnig valdandi að orð ná ekki fram. En það sem ég heyrði fannst mér oft snjallt og fyndið. Leikararnir, sem allir nema Ilmur leika mörg hlut- verk, eru vel samhæfðir í andleik- hússtílnum en tekst ekki alltaf jafnvel að komast í gegnum hann til að geisla nema Charlotte Bö- ving sem kemur hér í fyrsta skipti fram hjá LR. Raunsæja lokasenan á sjúkrahúsinu milli Lísu og Villa er ákaflega vel unnin, ljóðræn fal- in bón Ilmar – og Bergur Þór Ing- ólfsson, sem örþreyttur, umkomu- laus, nánast horfinn aðstandandi, sýnir þar enn á sér nýja hlið. Helga I. Stefánsdóttir, sem gerði aldeilis frábæra klassíska búninga fyrir Amadeus, gerir aftur góða hluti í ótrúlegum fjölda búninga og það gerir Sigríður Rósa Bjarnadóttir líka í gervunum. Ýmislegt í verkinu og hve text- inn berst illa mun áreiðanlega fæla frá eitthvað af eldra fólki en framandgerðu hugmyndaríku myndirnar, og húmorinn í þeim, rennandi fram líkt og í bíói sem Benedikt Erlingsson leggur áherslu á í leikstjórn sinni, ættu að laða að sér ungt fólk. Sömuleið- is einnig alla þá sem skáldið ávarpaði: „Ef þér finnst gaman að Lísu í Undralandi en finnst ekki nóg af kynlífi og ofbeldi í henni þá er Ófagra veröld leikritið fyrir þig“. Og að auki ætti sýningin að vera áhugaverð fyrir flesta í landi þar sem svo margir eiga við geð- ræn vandamál að stríða. Sýning fyrir ungt fólk og fleiri Leiklist Leikfélag Reykjavíkur Eftir Anthony Neilson í þýðingu Þórarins Eldjárns. Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Leikmynd: Grétar Reynisson. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Tónlist: Pétur Þór Benediktsson. Lýsing: Halldór Örn Ósk- arsson. Hljóðmynd: Ólafur Örn Thorodd- sen. Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Björn Ingi Hilmarsson, Charlotta Böving, Guðmundur Ólafsson, Ilmur Kristjáns- dóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Þór Tulinius og Þórhallur Sigurðsson (Laddi). Stóra svið Borgarleikhússins kl. 20.00, 29.desember 2006 Ófagra veröld Morgunblaðið/Sverrir Sundraland „Af einhverjum ástæðum varð höggið milli heimanna tveggja ekki eins mikið í sýningunni og verkið býður upp á,“ segir m.a í dómnum. María Kristjánsdóttir JÓLATÓNLEIKAR Hljómeykis í Seltjarnarneskirkju s.l. fimmtudags- kvöld nutu greinilega ekki sama óslökkvandi tónleikaþorsta og jafnan læsir sig um áheyrendur síðustu vik- ur fyrir jóladag. Lán var því í óláni að þunnskipað guðshúsið skilaði í stað- inn kjörheyrð fyrir kammerkórsöng. Dagskráin var annars aðsókn- arverð út af fyrir sig; metnaðarfull þótt jólatengd væri og laus við allar amerísku „Söntu“-lummurnar sem tröllríða aðventunni. Helzt saknaði maður pólýfónískrar tilbreytingar, því burtséð frá tveim stuttum kanon- innslögum var allt eldra efnið byggt á hómófónískri sálmalagshefð og hið yngra gerði meir út á klasaáferð og rytmísk tilþrif en sjálfstæða radd- færslu. Hafizt var handa með útgáfum Vulpiusar og Praetoriusar á Það aldin út er sprungið og útsetningu Anders Öhrwalls á Borið er oss barn í nótt, ásamt Hin fegursta rósin er fundin (Praetorius) og Jesú, mín morg- unstjarna er í úts. Jóns Þórarins- sonar myndaði tengilið við 20. öld. Hér sem lengi vel var sungið á kyrr- látum nótum, nærfellt sem í greg- orskum sléttsöng, er léði heildinni fágað og stundum dularfullt yf- irbragð. Mótetta Poulencs, O magnum ny- sterium, er ekki með auðveldari kór- stykkja í inntónun og það heyrðist á köflum, þó að mótunin væri að öðru leyti hin fegursta. Aftur á móti hélt verk hans Hodie Christus natus est – þrátt fyrir smá óhreinleika í einum kafla – að fullu sínum heillandi blæ af léttstígu sigurgöngulagi. Smásig í tenór kom né heldur í veg fyrir að út- setning Günthers Raphaels á Maria durch ein Dornwald ging kæmist klakklítið gegnum þyrniskóginn með skemmtilegum „spezzati“ inn- göngusöng tenórs og loks bassa með- fram kirkjuveggjum eftir upphaf sóprans og alts. „To the mothers in Brazil – Salve Regina“ eftir Lars Jansson og Gunnar Eriksson mynd- aði óvænt daggferskt uppbrot á gamlaheimshefðinni með seiðandi sölsóttum hemíóluskotnum Suður- ameríkustíl – dulítið á við Misa Cri- olla Ramirez en fágaðra – er Hljóm- eyki skilaði með smitandi glæsibrag. Síðustu númerin báru af. Eftir nosturstúlkun á franskri þjóð- lagsútsetningu Gabriels Wilcz- kowskys og sveigjanlega meðferð á hinu marglita Ave maris stella eftir Trond Kverno (þó vantaði herzlumun hreinleikans í karlröddum) kom hin ægifagra orþódoxa Bogoróditse dévo Rakhmaninoffs. Myndaði sú mótetta hápunkt kvöldsins undir markvisst þjálli stjórn Magnúsar Ragnarssonar ásamt söngglaðri útsetningu Hildi- gunnar Rúnarsdóttur á Ding dong merrily on high er læddi að lítils- háttar sveiflu en ávallt smekklega. Fékk þar sópraninn sannarlega að skína með þeim óskoraða glansi er gerir röddina að ókrýndri drottningu nær allra íslenzkra blandaðra kóra – a.m.k. meðan núverandi framboð og eftirspurn helzt í fullu gildi. Af samstilltri fágun TÓNLIST Seltjarnarneskirkja Jólatónlist frá 15.–16. og 20.–21. öld. Sönghópurinn Hljómeyki. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Fimmtudaginn 28. desember kl. 20. Kórtónleikar Morgunblaðið/Kristinn Jólatónlist Sönghópurinn Hljómeyki var með tónleika í Setjarnaneskirkju síðastliðið fimmtudagskvöld. Ríkarður Ö. Pálsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.