Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 57
menning
1. Draumalandið: Andri Snær Magnason –
Breytti þjóðarsálinni.
2. Sendiherrann: Bragi Ólafsson – Bragi í sínu besta formi.
3. Upp á sigurhæðir: Þórunn Erla Valdimarsdóttir –
Innblásin ævisaga.
4. Eineygði köturinn Kisi og hnakkarnir:
Hugleikur Dagsson – Frumkvöðull í íslenskri frásagnarlist.
5. Öðruvísi saga: Guðrún Helgadóttir –
Bókmenntaverk sem hefur allt til að bera.
6. Theresa: Francois Mauriac, þýð.: Kristján Árnason –
Til að kjamsa á.
7. Fyrir kvölddyrum: Hannes Pétursson –
Lífssýn þroskaðs manns.
8. Tryggðarpantur: Auður Jónsdóttir –
Sterk saga um siðferðisvanda
9. PS – Ísland: Páll Stefánsson –
Náttúruljósmyndari á heimsmælikvarða
10. Guðlausir menn – hugleiðingar um jökulvötn og ást:
Ingunn Snædal – Nýtt blóð í ljóðlistinni.
Áhugaverðasta
bókin
Áhrif Andra Snæs Magnasonar á þjóðarvitundina eru ómæld.
Morgunblaðið/Ásdís
Ævintýri Kabakov-hjónin unnu með ævintýraheim Andersens
á sýningunum á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsinu.
Áhugaverðasta
myndlistarsýningin
1. „Morgunn, kvöld, nótt … “ Framlag Ilya og Emiliu Kaba-
kov til sýningarinnar Lífheimur, Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstöðum. Sýningin bauð upp á huglægt og rým-
islegt ferðalag um ævintýralendur H.C. Andersens.
2. Frelsun litarins/Regard fauve, sýning á frönskum ex-
pressjónisma í upphafi 20. aldar. Listasafn Íslands. Hér
má kynna sér málaralist heimsþekktra listamanna og sjá
verk þeirra í samhengi við íslenska listasögu.
3. Yfirlitssýningar á verkum Birgis Andréssonar og Stein-
gríms Eyfjörð. Sýningin var einstakt tækifæri til að
glöggva sig á ferli þessara tveggja þjóðlegu og alþjóðlegu
listamanna.
4. Rúrí, Tileinkun. Gjörningur í og við Drekkingarhyl á
Þingvöllum. Myndlistarviðburður sem snerti þjóðina alla.
5. Hreinn Friðfinnsson í Suðsuðvestri: „Sögubrot og mynd-
ir“ Sýning sem lét lítið yfir sér en bjó yfir persónulegum
og margræðum menningarsögulegum skírskotunum.
6. Olga Bergmann, Innan garðs og utan, sýning í Listasafni
ASÍ. Sérstaklega metnaðarfull sýning og mætti kalla há-
punkt ferils Olgu hingað til.
7. Katrín Sigurðardóttir, Stig, Gallerí i8. Hér var unnið á
nótum rökhyggju og innsæis á eftirminnilegan máta þar
sem áhorfandinn tók lifandi þátt í verkinu.
8. Kees Visser, Ívar Valgarðsson og Þór Vigfússon, sam-
sýning í Nýlistasafni. Fegurð naumhyggju og ljóðrænnar
hugsunar, eftirminnilegt samspil þriggja listamanna.
9. Louisa Matthíasdóttir 1917–2000, yfirlitssýning á Lista-
safni Akureyrar. Hér komu meðal annars fram verk eftir
Louisu sem ekki hafa áður verið aðgengileg almenningi.
10. Uncertain States of America, samsýning bandarískra
listamanna. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús. Sjaldgæf-
ur kostur á að sjá nýja strauma í listum vestan hafs.
1. Mr. Skallagrímsson – Landnámssetrið í Borgarnesi.
2. Pétur Gautur – Þjóðleikhúsið
3.–4. Fagnaður– Þjóðleikhúsið
3.–4. Glæpur gegn diskóinu – Steypibaðsfélagið Stútur
5. Herra Kolbert – LA
6. Mindcamp – Sokkabandið
7. Umbreyting – Þjóðleikhúsið
8.–10. Bakkynjur – Þjóðleikhúsið
8.–10. Hundrað ára hús – Frú Emilía
8.–10. Best í heimi – Rauði þráðurinn.
Áhugaverður Benedikt Erlingsson þykir fara á kostum í ein-
leiknum Mr. Skallagrímsson sem er sýndur í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi. Sýningar hefjast aftur í vor.
Morgunblaðið/Eyþór
Áhugaverðasta
leiksýningin
1. Tónleikar Sigur Rósar á Klambratúni, 30. júlí.
2. Frumflutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Eddu I eftir Jón Leifs,
14. október.
3. Tónleikar Búlgarska kvennakórsins Angelite í Hallgrímskirkju 21. maí.
4. Afmælistónleikar Sykurmolanna í Laugardalshöll, 17. nóvember.
5. Megas í Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð 25. febrúar.
6. Flutningur Caput-hópsins á tónlist eftir Doina Rotaru á Skálholtshátíð
13. júlí.
7. The Tallis Scholars u. stj. Peters Philips í Langholtskirkju 7. janúar.
8. Skuggaleikur e. Karólínu Eiríksdóttur, Íslenska óperan, 17. nóvember.
9. Patrick Watson á Airwaves-hátíðinni í október.
10. Supergrass á Reykjavík Trópík-tónlistarhátíðinni, 6. júní.
Hljómleikar ársins
Morgunblaðið/Eggert
Stórtónleikar Rúmlega fimmtán þúsund manns nutu tónleika hljómsveit-
arinnar Sigur Rósar á Miklatúni/Klambratúni í sumar.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Tækjasjóður
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Stjórn Rannsóknasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Tækjasjóð
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2007
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum
og búnaði vegna rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af
úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma. Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins
hluta kostnaðar við fjárfestinguna.
Við úthlutun úr Tækjasjóði er öðru fremur tekið mið af eftirfarandi atriðum:
● Að tækin séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir
rannsóknir umsækjenda.
● Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi
nýja möguleika til rannsókna og/eða að tæki tengist verkefnum sem
Rannsóknasjóður styrkir.
● Að tækin séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
● Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli stofnana og
fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
● Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum séu raunhæfar.
Tækjasjóður starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr.
3/2003. Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs markar úthlutunarstefnu sjóðsins. Fimm
manna stjórn Rannsóknasjóðs sem skipuð er af menntamálaráðherra fer jafnframt með
stjórn Tækjasjóðs. Fagráð skipað formönnum fagráða Rannsóknasjóðs metur umsóknir í
Tækjasjóð áður en stjórn sjóðsins tekur þær til afgreiðslu. Ákvörðun stjórnar um úthlutun
er endanleg.
Nánari upplýsingar um Tækjasjóð og umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Rannís
www.rannis.is.