Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 68
68 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KÖLD SLÓÐ kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 4:30 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 4:45 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára
NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i. 7 ára
BOSS OF IT ALL kl. 8 B.i. 7 ára
FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD
SANNKALLAÐ MEISTARAVERK SEM
KVIKMYNDAÐ VAR AÐ MESTUM
HLUTA Á ÍSLANDI
CLINT EASTWOOD HLAUT TILNEFNINGU TIL GOLDEN
GLOBE VERÐLAUNA FYRIR BESTU LEIKSTJÓRN
HAGATORGI • SÍMI 530 1919 • WWW.HASKOLABIO.IS
/ AKUREYRI
STRANGER THAN FICTION kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
ERAGON kl. 3 - 5:30 B.I. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3 - 5:30 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:15 B.I. 12 ára
SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR 1. JANÚAR
DENZEL WASHINGTON VAL KILMEReeee
KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL.
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA „CRIMSON TIDE“
eee
S.V. MBL.
eee
V.J.V. TOPP5.IS
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ
LEITA SANNLEIKANS
- ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN...
20% afsláttur fyrir alla
viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti
frá Kaupþingi
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
eeee
V.J.V. - Topp5.is
- Sýningartímar 1. jan. Ný
TEIKNIMYNDIR eru líklega eitt
sigursælasta afþreyingarform kvik-
myndaiðnaðarins í dag og er áhuga-
vert að fylgjast með þróun greinar-
innar, ekki síst vegna þess að engu
er til sparað við gerð þeirra. Þegar
saman koma hæfileikar teiknara,
tæknifólks, handritshöfunda og leik-
ara getur útkoman orðið afbragðs-
góð eins og reyndin er með teikni-
myndina Fráir fætur eða Happy
Feet eins og hún nefnist á frummál-
inu. Myndin hefur, líkt og margar
sambærilegar teiknimyndir, þá kosti
að hæfa bæði börnum og fullorðnum
en hér er skapaður heillandi ævin-
týraheimur í kringum vonir og vænt-
ingar keisaramörgæsa á Suður-
heimskautinu. Ljóst er að glæsilegur
sjónrænn heimur teiknimyndarinnar
sækir innblástur sinn sterklega til
frönsku skáldheimildarmyndarinnar
Ferðalag keisaramörgæsanna, en
handritshöfundar búa til skemmti-
legt ævintýri í kringum hina hörðu
lífsbaráttu og hegðunarmynstur
mörgæsanna. Í aðalhlutverki er
Muldri, en hann fæðist með þann
galla að geta ekki sungið, aðeins
dansað steppdans og verður þar með
hornreka í mörgæsaflokknum. Hann
fer því að kanna heiminn og leita að
ástæðunni fyrir því að allur fiskurinn
er að hverfa úr sjónum og lífskil-
yrðum dýranna á suðurheimskautinu
stefnt í hættu. Sagan af ævintýrum
Muldra er bráðskemmtileg en eins
og gjarnan vill verða með dýrar og
vinsældarvænar teiknimyndir er
tónlist, dans og söngur jafnframt í
forgrunni. Þessi atriði eru mörg vel
heppnuð, þó svo að áhrifin frá tón-
listarmyndböndum verði hvimleið á
köflum. En auk þessa hefur Fráir
fætur sterk skilaboð fram að færa
um mikilvægi þess að manneskjan
gangi ekki á vistkerfi jarðar, því hver
vill lifa í heimi án mörgæsa?
Fjörugar mörgæsir
KVIKMYNDIR
Háskólabíó og Sambíóin
Leikstjórn: George Miller. Enskar aðal-
raddir: Elijah Wood, Robin Williams,
Brittany Murphy, Nicole Kidman ofl. Ís-
lenskar leikraddir: Bergur Ingólfsson,
Björn Thorarensen, Vilhjálmur Hjálmars-
son, Rúnar Freyr Gíslason, Rafn Kumar
Bonifacius, Inga María Valdimarsdóttir,
ofl. Ástralía/Bandaríkin, 108 mín.
Fráir fætur (Happy Feet)
Heiða Jóhannsdóttir
Muldri „Myndin hefur, líkt og margar sambærilegar teiknimyndir, þá kosti
að hæfa bæði börnum og fullorðnum,“ segir m.a í dómnum.