Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 27. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
NORAH JONES
ERFITT AÐ HÖNDLA VINSÆLDIRNAR
VILL INNBLÁSTUR AUGNABLIKSINS >>34
SKÖPUNARGLEÐI
TÍSKUHEIMSINS
PARÍS
ÁHRIFIN JAPÖNSK >>22
HAFÍSINN var skammt undan Vestfjörð-
um í gærmorgun. Guðbjörn Sölvason, stýri-
maður á Einari Hálfdáns ÍS, var á siglingu í
mynni Ísafjarðardjúps og að koma austan
úr Húnaflóa. Hann sagði að ekki hefði verið
ís á leiðinni en þegar nær dró Bolungarvík
varð hann að sveigja fyrir ísspöng.
„Hún nær að sjá alveg frá Grjótleitinu
rétt utan við Bolungarvík og út að Deild-
arhorninu. Nær svona þrjár sjómílur frá
Deildinni út í Djúpið. Fyrir utan er ekki að
sjá nema rekís, bátur sem fór til Flateyrar
minntist ekki á tafir. Á leiðinni sem við
komum er að sjá meiri ís fyrir utan, hann er
ekki nema 7–8 mílur undan Kögri og
Straumnesi,“ sagði Guðbjörn.
Höskuldur Ástmundsson, sjómaður á
Suðureyri, sagði að hrafl væri í Súganda-
firði, þéttara norðanmegin og næði út undir
Göltinn. Jakabrot voru komin inn á Suður-
eyrarhöfn. Ísspöng, sem var landföst í Arn-
arfirði, hvarf hratt á haf út undir myrkur á
föstudagskvöld, að sögn Ólafs Gíslasonar,
bónda í Neðri-Bæ í Selárdal.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelg-
isgæslunni var ísflug ekki á dagskrá í gær.
Morgunblaðið/RAX
Hafísinn
nálægur
7–8 mílur í ís undan
Kögri og Straumnesi
EKKI hefur farið framhjá neinum að konur á Íslandi
eru ósáttar við sinn hlut þegar kemur að jafnréttismál-
um, launajöfnuði og ábyrgðarstörfum í samfélaginu.
Í úttekt blaðsins í dag á stöðu kvenna í íþróttum kem-
ur t.d. fram að af 27 sérsamböndum innan Íþrótta- og
ólympíusambandsins gegna konur aðeins formennsku í
þremur, Badminton-, Dans- og Skautasambandinu.
Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska kvennalands-
liðsins í knattspyrnu, á að baki sitt besta tímabil á ferl-
inum, í fyrra í sterkustu deild heims að hennar mati, og
hefur því náð mjög langt. Engu að síður stendur hún
frammi fyrir óvenjulegu vali sem líklega fæstir karl-
menn í sömu stöðu þyrftu að takast á við.
Ásthildur er orðin þrítug „og [ég] þarf að fara að velta
því mjög alvarlega fyrir mér hvort tímabært sé að ég
snúi mér að öðru. Fótboltinn hefur alltaf haft forgang
en nú stend ég frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd
að ég fæ hærri laun sem verkfræðingur en sem at-
vinnumaður í knattspyrnu.“
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, kemur
einnig inn á jafnréttismálin í samtali í blaðinu í dag og
telur meiri kröfur gerðar til kvenna en karla og að
þær séu harðar dæmdar af verkum sínum en þeir.
„Ég er ekki frá því að mér finnist viðhorf til kvenna í
stjórnunarstöðum oft vera óbilgjörn. Ýmislegt sem
þykir styrkur hjá karlstjórnanda þykir frekja og yf-
irgangur hjá konu í stjórnunarstöðu og líklegra að
konur séu kallaðar ýmsum nöfnum.“
Konur í íþróttum og stjórnun | 10 og 24
Framsæknar konur frekjur?
Ásthildur
Helgadóttir
Rannveig
Rist
»Mér sýnist oft á tíðumgerðar meiri kröfur til
kvenna en karla og þær harð-
ar dæmdar af verkum sínum
Ásthildur Helgadóttir hefur meira upp úr verkfræðinni en atvinnumennsku
Rannveig Rist segist telja að jafnréttismálin séu langt frá því að vera í lagi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
NÝ bandarísk rannsókn bendir til
að sterk tengsl séu á milli loftmeng-
unar frá hraðbrautum og langtíma
lungnaskaða í börnum. Sambærileg
rannsókn hefur ekki verið gerð hér
á landi. Jónína Bjartmarz umhverf-
isráðherra mun á næstu dögum
kynna niðurstöður sérstakrar svif-
ryksnefndar, en nefndinni var falið
að kanna leiðir til að draga úr loft-
mengun í þéttbýli.
Bandaríska rannsóknin hefur
staðið yfir í 13 ár. Hún náði til 3.600
barna á aldrinum 10–18 ára sem bú-
sett eru í mið- og suðurhluta Kali-
forníuríkis. Könnunin leiddi í ljós að
börn sem bjuggu innan við 457
metra frá hraðbraut önduðu frá sér
3% minna lofti og 7% hægar en
börn sem bjuggu fjær.
Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri
hjá umhverfissviði Reykjavíkur-
borgar, segir að í fyrra hafi mæl-
ingar sýnt að mengun í Reykjavík
hafi í samtals 29 daga farið yfir
heilsuverndarmörk. Magn svifryks
við mælingastöðina við Grensásveg
í Reykjavík hefur farið í 700 míkró-
grömm á rúmmetra, í nóvember
2005, en heilsuverndarmörkin eru
50 míkrógrömm. Lúðvík segir
þessa niðurstöðu „algerlega óviðun-
andi“.
„Sá sem þjáist af lungnaskaða af
völdum mengunar sem barn mun
líklega ekki hafa heilbrigð lungu
það sem eftir lifir ævinnar,“ sagði
W. James Gauderman, einn helsti
höfundur rannsóknarinnar. | 6
Svifrykið
skemmir
lungu barna
Ný umfangsmikil rannsókn á áhrif-
um mengunar frá bílaumferð
Í HNOTSKURN
»Greint er frá niðurstöðubandarísku rannsókn-
arinnar í læknatímaritinu
Lancet.
»Umhverfisráðherra muná næstu dögum kynna
niðurstöður sérstakrar svif-
ryksnefndar, en nefndinni
var falið að kanna leiðir til
að draga úr loftmengun í
þéttbýli
STEFÁN Jörgen Ágústsson er sjálfmenntaður sér-
fræðingur í förðunarbrellum og leikbrúðugerð og
hefur hannað ótal gervi og brúður fyrir kvikmynd-
ir, sjónvarp og leikhús. Meðal þess sem hann hefur
gert eru áverkar á leikurum í kvikmynd Clints
Eastwoods, Flags of our Fathers.
„Ég fékk hálfgert menningarsjokk því ég hafði
aldrei tekið þátt í svona stóru verkefni. Ég vann
undir stjórn förðunarfræðinga en ég og einn annar útlendingur vorum
mest látnir sjá um þá sem áttu að vera dauðir,“ segir Stefán. | 60
Hannar gervi og brúður
Morgunblaðið/Ásdís
Fuglalíf Slæm afkoma fugla við Tjörnina lætur engan ósnortinn og
þessi hugsandi maður hefur líklega ákveðið að leggja sitt af mörkum.
BANDARÍKIN hafa
bannað útflutning á
ýmsum munaðarvörum,
eins og t.d. iPod-
spilurum, eðalvínum og
sportbílum, til Norður-
Kóreu vegna kjarn-
orkutilrauna stjórn-
valda landsins á liðnu ári.
Eftir tilraunir Norður-Kóreu með
kjarnorkuvopn 9. október sl. samþykkti
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun
um að Norður-Kórea yrði beitt við-
skiptaþvingunum varðandi munaðarvörur
en lét aðildarríkjunum eftir að skilgreina
vörurnar. Richard Mills, talsmaður við-
skiptaskrifstofu Bandaríkjanna, segir að
aðgerðum Bandaríkjamanna sé sér-
staklega beint gegn valdastéttinni í Norð-
ur-Kóreu og hafi ekki áhrif á fátækan al-
menninginn, enda nái útflutningsbannið
ekki til t.d. matvara og lyfja.
Á bannlistanum eru t.d. koníak, vatna-
skíði, skartgripir og tískuföt, en samfara
útflutningsbanninu gera Bandaríkjamenn
sér vonir um að viðræður við Norður-
Kóreumenn vegna viðskiptaþvingana
verði teknar upp að nýju á næstunni.
Viðskiptabann
á valdastétt
♦♦♦