Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 6

Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 6
6 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TVÆR þyrlur Landhelgisgæslunn- ar voru sendar eftir veikum skip- verja um borð í frystitogaranum Guðmundi í Nesi RE laust fyrir mið- nætti á föstudag og var maðurinn kominn inn á Landspítala – háskóla- sjúkrahús um þremur og hálfri klukkustund síðar. Um klukkan 22 á föstudagskvöld hafði skipstjóri frystitogarans Guð- mundar í Nesi RE samband við Landhelgisgæsluna vegna veiks skipverja. Talið var að maðurinn hefði fengið botnlangakast og um klukkan 23:30 var ákveðið að sækja hann. Togarinn var djúpt vestur af Látrabjargi og því voru tvær þyrlur sendar á staðinn, TF-LÍF sem sótti manninn og TF-OBX sem fór með til aðstoðar. Komið var með skipverj- ann til Reykjavíkur um þremur og hálfri klukkustund eftir að þyrlurnar lögðu af stað og hann fluttur á spít- ala. Þyrlur sóttu veik- an sjómann ÞAÐ tók slökkviliðið á höfuðborgar- svæðinu um þrjá tíma að reykræsta fiskimjölsverksmiðju HB Granda hf. á Norðurgarði í fyrrinótt en skemmdir urðu fyrst og fremst á ofninum og vegna reyks. Skömmu fyrir miðnætti á föstu- dag var tilkynnt um eld í fiskimjöls- verksmiðjunni og var allt tiltækt slökkvilið kallað út. Eldur logaði í mjölofni og breiddist reykur um allt hús en að sögn slökkviliðsins urðu ekki verulegar skemmdir nema á ofninum og svo vegna reyks. Elds- upptök eru ókunn. Reykur en lítið tjón Morgunblaðið/Ómar Bruni Talsverður reykur var frá fiskimjölsverksmiðjunni. FRAMSÓKNARFÉLAG Vest- mannaeyja segir í ályktun að farið verði að almennum leikreglum í flokknum við uppröðun á lista. Í til- kynningu frá félaginu segir að álykt- unin sé gerð í „kjölfar þeirrar um- ræðu sem orðið hefur í þessari viku um að einhverjir óþekktir aðilar inn- an Framsóknarflokksins hyggist hagræða úrslitum prófkjörs fram- sóknarmanna í Suðurkjördæmi“. Í ályktunni leggur félagið ríka áherslu á „að framboðslisti flokksins fyrir alþingiskosningarnar í vor verði skipaður því góða fólki sem lagði á sig mikla vinnu og mikinn kostnað við þátttöku í prófkjörinu. Framsóknarfélag Vestmannaeyja leggur ríka áherslu á að lýðræðisleg kosning verði látin ráða og ákveði frambjóðendur að taka ekki þau sæti sem þeim ber á listanum skuli þeir frambjóðendur sem á eftir koma færast upp listann. Það er mikilvægt að almennar leikreglur séu virtar svo flokkurinn þurfi ekki enn á ný að þola umræðu um spillingu, klíkuskap og reykfyllt bakherbergi“. Hafnar klíkuskap Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is NÝ OG VIÐAMIKIL bandarísk rannsókn bendir til að sterk tengsl séu á milli loftmengunar frá hrað- brautum og langtíma lungnaskaða í börnum. Engin sambærileg rann- sókn hefur farið fram hér á landi en Jónína Bjartmarz umhverfisráð- herra mun í næstu viku kynna nið- urstöður sérstakrar svifryksnefnd- ar, sem falið var að kanna leiðir til að draga úr loftmengun í þéttbýli. Fyrir liggur að Evrópusamband- ið, ESB, hyggst beita sér fyrir því að dregið verði úr svifryksmengun í borgum og gæti sú áhersla haft áhrif hér á Íslandi á næstu árum í gegnum ákvæði EES-samningsins. Rannsóknin vestra, sem Umhverf- isstofnun Bandaríkjanna, EPA, átti aðild að auk fleiri aðila, náði til yfir 3.600 barna, á aldrinum frá um 10 til 18 ára, sem eru búsett í mið- og suð- urhluta Kaliforníuríkis, og stóð yfir í 13 ár. Samkvæmt henni er lungna- skaðinn samfara því að búa innan við 457 metra frá hraðbraut talinn sá sami og af því að vera búsettur í þétt- býliskjörnum þar sem mengunin mælist hvað mest. Þá leiddi samanburður á börnum sem bjuggu innan þessara marka og þeim sem voru búsett um 1.370 metrum frá umferðargötunum í ljós, að þau sem tilheyrðu fyrri hópnum önduðu frá sér um 3% minna lofti og 7% hægar en börnin í seinni hópn- um. Var munurinn sagður óháður heildarmengun á svæðunum. Hefur áhrif allt æviskeiðið Greint var frá niðurstöðunum í breska læknaritinu Lancet á fimmtudag og hafa þær þegar vakið mikla athygli vestanhafs. „Sá sem þjáist af lungnaskaða af völdum mengunar sem barn mun líklega ekki hafa heilbrigð lungu það sem eftir lifir ævinnar,“ sagði W. James Gauderman, einn helsti höfundur rannsóknarinnar, í samtali við dag- blaðið Los Angeles Times. Skaðinn er einkum rakinn til ör- smárra agna sem berast frá út- blæstri bifreiða og hafa fyrri rann- sóknir bent til tengsla á milli fjölgunar asmatilfella og þess að búa við fjölfarnar umferðaræðar, tengsl sem reyndar eru umdeild. Að auki hafa sérfræðingar talið sig sjá fylgni á milli mengunar og lungnaþroska. Sigurður Þór Sigurðarson, lungnalæknir og sérfræðingur í áhrifum umhverfis á heilsufar, hefur veitt umhverfisráðuneytinu ráðgjöf í þessum málaflokki. Hann segir rannsóknina mjög athyglisverða. „Hún mælir áhrif mengunar á þroska lungnanna yfir langan tíma, sem er besta og fullkomnasta aðferð sem völ er á. Hún staðfestir það sem var vitað, að lungun þroskast síður í mengandi umhverfi. Agnirnar, sérstaklega kolefnis- agnir og brennisteins- og köfnunar- efnissambönd, hafa áhrif á börn sem hafa enga lungnasjúkdóma og það má segja að það fari að verða ábyrgðarhluti að ala upp ungmenni við hraðbrautir, þar sem þau anda að sér svifryki og rykögnum.“ Sigurður bendir þó á, að meiri hreyfing sé á loftinu hér á höfuð- borgarsvæðinu en í Kaliforníu. Vestra hafi loftið tilhneigingu til að setjast í kyrrstöðu. Á hinn bóginn sé talsverð loftmengun á höfuðborgar- svæðinu sem sé sambærileg við það sem gerist erlendis, mengun sem geti haft áhrif á heilsu ungmenna. „Ég sé ekkert sem mælir á móti því að hér verði framkvæmd rann- sókn af sama toga. Vegna þess að slík athugun hefur aldrei verið gerð getur maður hins vegar ekkert full- yrt um heilsufarsáhrifin á Íslandi. Nagladekkjamengun sem veldur grófara ryki og tjörumengun er heldur ekki jafn vel rannsökuð en ljóst er að hún berst niður í lungun.“ Stjórnvöld á varðbergi Ingimar Sigurðsson, skrifstofu- stjóri hjá umhverfisráðuneytinu, upplýsti í samtali við Morgunblaðið í gær að Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra myndi á næstunni kynna nýjar niðurstöður svifryksnefndar, sem hann hefur farið fyrir. „Það er talið að allt að 60 til 70 pró- sent svifryksmengunar megi rekja til umferðar,“ segir Ingimar. „Um sjö til átta prósent koma frá dísil- og vinnuvélum, auk lítils magns frá bremsuborðum. Afgangurinn á sér svo náttúrulegar orsakir, á borð við sjávarseltu sem kemur til okkar með norðanáttinni og frá loftögnum sem berast frá hálendinu.“ Hann segir að ætlunin sé að rann- saka þessa samsetningu frekar og í framhaldinu verði leitað leiða til að draga úr mengun á höfuðborgar- svæðinu. Hann segir til greina koma að grípa til aðgerða til að draga úr mengun en segir slík skref viðkvæm og vill ekki tjá sig frekar um þau á þessu stigi. Til að ná árangri sé þó ljóst að aðgerðirnar þurfi að beinast gegn umferðinni. ESB og WHO stefna að minni svifryksmengun í borgum Ingimar upplýsir einnig að vel sé fylgst með aðgerðum ESB í þá veru að draga úr loftmenguninni. „ESB hefur ákveðið að einbeita sér að ögnum sem eru af korna- stærðinni 2,5 míkrógrömm, í stað þeirra sem eru um fjórum sinnum stærri. Smærri agnirnar eru hættu- legastar fyrir mannfólkið, þær smjúga inn í smæstu loftvegi. Við þurfum að fylgja Evrópu- reglum samkvæmt EES-samningn- um, sem ný loftgæðatilskipan yrði hluti af. Þar sem um stórmál er að ræða er vel fylgst með þessari vinnu af hálfu íslenskra stjórnvalda. Aðildarríki sambandsins munu svo í framhaldinu setja sér áætlanir um með hvaða hætti sé hægt að draga úr þessari mengun. Hún er fyrst og fremst vandamál í borgun- um en þessi vinna hefur m.a. farið fram yfir tilstuðlan Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar, WHO, sem á aðild að stefnumótuninni.“ Aðspurður um hvort íslensk stjórnvöld hyggist rannsaka áhrif slíkra agna á heilsufar almennings segir Ingimar það vera til athugun- ar. Fyrst þurfi þó að rannsaka upp- sprettur mengunarinnar betur. Mengun frá bílaumferð skemmir lungu barna Morgunblaðið/RAX Mengun Stjórnvöld eru nú með til skoðunar aðgerðir sem gætu dregið úr mengun frá bílum. Ástæðan er sú hætta sem talin er stafa frá svifryki.  Viðamikil bandarísk rannsókn markar tímamót  Enginn sambærileg rann- sókn gerð á Íslandi  Til athugunar að grípa til aðgerða til að draga úr mengun Skaðvaldur Svifryk er sambland rykagna og lofttegunda. Það myndast einkum frá bílaumferð, sem fer sífellt vaxandi á höfuðborgarsvæðinu. Á mynd- unum má sjá svifryk sem smogið hefur inna í allra smæstu loftvegi í lungunum. Það inniheldur óæskileg efnasambönd sem hafa skaðleg áhrif á líkamann, svo sem niturdíoxíð, NO2, og brennisteinsdíoxíð, SO2, og Ósón. Þá virðast rykagnirnar sjálfar hafa óæskileg áhrif í smæstu loftvegum, vegna smæðar og ertandi eiginleika, að sögn Sigurðar Þórs Sigurðarsonar lungnalæknis. LÚÐVÍK Gústafsson, deild- arstjóri hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar, segir magn svifryks við mæling- arstöðina við Grensásveg í Reykjavík hafa farið í 700 míkrógrömm á rúmmetra í lok nóvember 2005, sem sé „al- gjörlega óviðunandi“. Vind- strengur frá Hvalfirði hafi síð- an blásið menguninni á brott, sem hafi verið ein sú mesta síðustu ár, og magnið minnkað verulega. „Þarna var um að ræða hæstu mældu gildi á til- tekna tímaeiningu við Grensásveg,“ segir Lúðvík. „Í fyrra voru 29 dagar þar sem mengunin fór yfir heilsuverndarmörk við stöðina. Hún er samt hlut- fallslega miklu minni en í Suður-Evrópu, svo ekki sé talað um Kína. Samkvæmt reglugerð umhverfisráðuneytisins, sem er samhljóma reglum Evrópusambandsins, hefur verið ákveðið að heilsuverndarmörk svif- ryks fyrir árið 2010 verði 20 míkrógrömm, eða það magn sem ekki er talið skaðlegt. Þetta er þó til endurskoðunar, enda efasemdir um hvort þetta sé nóg. Verður að grípa til aðgerða Það sem upp úr stendur er að heilsufarsáhrifin af svifryksmengun hafa verið vanmetin. Nú er jafnvel rætt um að reyna að uppræta svifryk af kornastærðinni einn míkrómetri sem talið er jafn skaðlegt og asbest.“ Asmasjúklingum hefur á undanförnum átum verið ráðlagt að halda sig innandyra þegar meng- unin hefur verið hvað mest á höfuðborgarsvæð- inu. Lúðvík segir Norðmenn hafa lagt skatta á notendur nagladekkja til að draga úr mengun í Ósló og Svía hafa innleitt vegatolla í Stokkhólmi til að draga úr umferðinni. Hann er þeirrar hyggju að sveitarstjórnir og ríkisstjórnin verði að fara að ákvæðum reglugerða um loftgæði, annað væri lögbrot. Lúðvík bætir því við að þótt svifryksmengunin á höfuðborgarsvæðinu hafi náð hámarki fyrir aldamótin 2000 – en síðan dalað vegna aukinnar úrkomu – sé engu að síður talið fullvíst að hún muni fara upp fyrir heilsufarsmörk árið 2010, jafnvel fyrr. Því verði að grípa til aðgerða, ekki muni fækka í bílaflotanum á næstunni og notkun nagladekkja sé enn veruleg í höfuðborginni. Mengunin „algjörlega óviðunandi“ Lúðvík Gústafsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.