Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ KONUR Í ÍÞRÓTTUM Á sthildur Helgadóttir, fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu, heyrir til fámennum hópi ís- lenskra kvenna sem hafa at- vinnu af íþrótt sinni. Hún hefur und- anfarin ár leikið með sænska liðinu Malmö FF. Raunar er ekki víst með framhaldið hjá Ásthildi en hún er að hugsa sinn gang þessa dagana. „Ég átti mitt besta tímabil á ferlinum í fyrra, varð þriðja markahæst í sænsku deildinni sem er að mínu mati sú besta í heimi. Þannig að ég hef náð mjög langt. Ég er hins vegar orðin þrítug og þarf að velta því mjög alvarlega fyrir mér hvort tímabært sé að ég snúi mér að öðru. Fótboltinn hefur alltaf haft for- gang en nú stend ég frammi fyrir þeirri bláköldu staðreynd að ég fæ hærri laun sem verkfræðingur en sem atvinnumaður í knattspyrnu. Maður þarf að eiga fyrir salti í grautinn.“ Þessi orð segja allt sem segja þarf um veruleikann sem íslenskar knatt- spyrnukonur búa við. Þrjátíu ár eru ekki hár aldur í sparkheimi karlanna en á þeim aldri eru flestar konur bún- ar að leggja skóna á hilluna. Hér heima er Ásthildur síðasti móhík- aninn. „Minn árgangur, 1976, var mjög sterkur, bæði hjá Breiðabliki og á landinu öllu en nú eru allar hættar, nema ég. Fyrir því eru auðvitað ýms- ar ástæður en peningar spila þar stóra rullu. Eins barneignir.“ Fremstu sparkkarlar heims þéna vel og Ásthildur staðfestir að kon- urnar standi þeim langt að baki. „Við fáum ekki neinar sjö milljónir á viku,“ segir hún glottandi, „en það er hægt að lifa af þessu. Það er út af fyrir sig áfangasigur. Vinsældir kvennaknatt- spyrnu fara þó stöðugt vaxandi og hver veit hvernig staðan í launamál- unum verður eftir nokkur ár.“ Ásthildur hóf að æfa knattspyrnu hjá Breiðabliki tíu ára en óvíða er kvennastarf öflugra í knattspyrnunni. Hún fékk því góða hvatningu frá upp- hafi, bæði heima og hjá félaginu sínu. „Ég veit ekki hvort stuðningurinn hefði verið meiri hefði ég verið strák- ur en efast um það.“ Fyrsta fyrirmynd Ásthildar var þjálfarinn hennar, Erla Rafnsdóttir, en uppáhaldsleikmennirnir á þessum tíma voru karlar, Ásgeir Sigurvinsson og Michel Platini. „Þetta hefur breyst með auknum sýnileika kvennaknatt- spyrnu. Á síðustu árum höfum við í landsliðinu a.m.k. fundið fyrir því að við erum fyrirmyndir og í uppáhaldi hjá ungum stúlkum í fótboltanum.“ Ásthildur kveðst oft hafa heyrt þær raddir gegnum tíðina að ekki sé kven- legt að stunda knattspyrnu. „Bless- aður vertu. Það var líka útbreidd skoðun að allar knattspyrnukonur væru lesbíur,“ segir hún og hristir höfuðið yfir fáránleikanum. „Sem bet- ur fer hefur þetta breyst mikið enda getur umræða aldrei orðið vitræn á þessum nótum. Stelpur fara í fótbolta af því að þeim þykir það skemmtilegt. Alveg eins og strákar.“ Árangur kvennalandsliðsins hefur verið til eftirbreytni á umliðnum ár- um og Ásthildur finnur fyrir því að áhugi almennings hafi aukist. „Inn í það spilar líka auglýsingaherferð sem við stóðum fyrir á sínum tíma og vakti mikla athygli. Áður en við fórum út í hana var aðsókn að landsleikjum dræm, kannski 500 manns og það voru aðallega aðstandendur leik- manna. Maður þekkti nánast alla í stúkunni,“ rifjar Ásthildur upp hlæj- andi. „Þetta hefur breyst mikið. Áhorfendametið er að ég held í kring- um 3.000 manns. Í síðustu und- ankeppni slepptum við auglýsing- unum og þá dró aftur úr aðsókn en hún var samt meiri en áður en við fór- um út í herferðina.“ Ásthildur segir að það geri kannski ekki allir sér grein fyrir því en í ís- lenska kvennalandsliðinu séu leik- menn á heimsmælikvarða. „Við höfum verið nálægt því að tryggja okkur sæti í úrslitakeppni á stórmóti og von- umst til að ná því markmiði á næstu árum.“ Hún segir að það yrðu straumhvörf fyrir liðið. Þátttaka í stórmóti myndi örugglega ekki vekja minni áhuga hjá þjóðinni en þátttaka handboltalands- liðsins á heimsmeistaramótinu þessa dagana. „Kvennaknattspyrna er vin- sælli íþrótt en karlahandbolti í heim- inum og ég er ekki í vafa um að þjóðin myndi styðja dyggilega við bakið á okkur í slíkri keppni. Er það ekki eðli Íslendinga að sameinast þegar á þarf að halda?“ Ásthildur er bjartsýn fyrir hönd kvenna í íþróttum á Íslandi, ekki síst í knattspyrnunni. Iðkendum hefur fjölgað gríðarlega, aðstaðan batnað og getustigið hækkað jafnt og þétt. „Það er orðið sjálfsagður hlutur að vera stelpa í fótbolta og þannig á það að vera. Auðvitað má alltaf gera bet- ur. Ég vil m.a. sjá meiri umfjöllun í fjölmiðlum um konur í íþróttum. Kannski er þetta þó að koma, a.m.k. var í fyrsta sinn sjónvarpað frá útileik landsliðsins í fyrra.“ KONUR HÆTTA FYRR Morgunblaðið/Brynjar Gauti Á skotskónum Ásthildur Helgadóttir fagnar marki í landsleik. F áar íslenskar konur hafa náð lengra á íþróttasviðinu en Ragnheiður Runólfs- dóttir, sundkona frá Akranesi, en hún er ein þriggja kvenna sem kjörin hefur verið íþróttamaður ársins. Það gerðist árið 1991, ári áður en Ragnheiður hætti keppni. Því fer þó fjarri að hún hafi sagt skilið við sundið, því hún gegnir nú starfi yfirþjálfara hjá Sund- félagi Akraness. Ragnheiður lærði ung að synda og kveðst í fyrstu hafa litið á sundlaugina sem leiksvæði. „Ég átti heima rétt hjá sundlauginni og hinum megin við bakkann var fjaran. Ég var þarna öllum stundum,“ rifjar hún upp. „Það var svo Helgi Hannesson, Helgi sund, eins og hann er alltaf kallaður, sem veiddi mig upp úr lauginni og stakk upp á því að ég færi að keppa. Helgi er einstakur maður og er ennþá í góðu sam- bandi við okkur þótt hann sé hættur að vinna.“ Ragnheiður lagði stund á margar íþróttir í æsku, eins og algengt var á þeim tíma. Í dag er sérhæfingin yfirleitt meiri. „Allir vinirnir voru líka í íþróttum, af báðum kynjum. Í ein- staklingsíþróttunum, eins og sundinu, æfðu strákar og stelpur saman hér á Skaganum og gera enn. Það voru gerðar sömu kröfur til allra og ég upplifði aldrei neina mismunun. Það á jafnt við um sundið þá og í dag.“ Ragnheiður er yngst fimm systkina og var dyggilega hvött af fjölskyldunni allan sinn keppnisferil. „Pabbi er að vísu sjómaður og gat fyrir vikið ekki sótt mörg mót en mamma var mjög dugleg að ferðast með mér. Stuðning- urinn var ekki bara af andlegum toga heldur líka fjárhagslegum þegar leið á ferilinn en það er dýrt að vera keppnismaður í fremstu röð. Foreldrar mínir studdu mig með glöðu geði og fyrir þann stuðning fæ ég seint fullþakkað.“ Akranes er mikill íþróttabær og Ragnheiður segir mikla stemningu fyrir því að standa sig vel. „Fólk fylgdist alla tíð vel með mér og spurði mig spjörunum úr þegar það hitti mig úti í búð eða á götu. Ég fann líka að börnin litu upp til mín. Það var mikil hvatning.“ Ragnheiður flutti til Keflavíkur til að æfa fyrir Ólympíuleikana í Seoul 1988 og æfði þá með fremsta sundmanni þjóðarinnar á þeim tíma, Eðvarð Þór Eðvarðssyni. Síðar bjó hún og æfði í Kanada og Bandaríkjunum, þar sem hún stundaði háskólanám. Á öllum þessum stöðum æfðu karlar og konur saman og hvöttu hvert annað til dáða. „Þjálfarinn minn síðustu árin í Bandaríkjunum, sem er frá Suður- Afríku, lagði mikla áherslu á jafnrétti, en ég velti þessum málum aldrei fyrir mér. Ég upp- lifði aldrei annað en ég hefði sömu möguleika á því að ná árangri og karlarnir sem voru að æfa með mér. Ég lærði snemma að gera miklar kröfur til mín og markmiðin voru skýr.“ Enginn skortur á konum Ragnheiður segir að verið sé að móta starfs- reglur fyrir Sundfélag Akraness og þar sé jafnrétti leitt til öndvegis. „Annars þurfum við ekki að kvarta undan skorti á konum hjá þessu félagi. Af sjö stjórnarmönnum eru sex konur og allir þjálfararnir eru konur. Ég held hins vegar að þetta sé frekar óvenjulegt. Hjá sund- félögunum í Reykjavík sjá karlar mestmegnis um þjálfunina.“ Ragnheiður kveðst ekki hafa einhlíta skýr- ingu á þessu kvennaveldi í sundinu á Akranesi en gerir ráð fyrir að mæður iðkenda sýni sund- inu meiri áhuga en feðurnir. „Eins og allir vita snýst lífið um knattspyrnu hérna á Skaganum og ég hygg að feðurnir séu duglegri að gefa kost á sér til starfa á þeim vettvangi. Þeir eru samt mjög duglegir að styðja við bakið á börn- um sínum í sundinu líka.“ Hvað sundið varðar segir Ragnheiður vinnutímann tvímælalaust fæla fólk frá þjálf- un. „Ég fer af stað klukkan fimm á morgnana og er með æfingu frá klukkan hálfsex til hálf- átta, áður en krakkarnir mæta í skólann. Síðan byrja ég aftur klukkan eitt og er fram á kvöld. Þetta er ekki fjölskylduvænt nema maður hafi börnin bara með sér.“ Ragnheiður segir að stúlknaliðið á Skag- anum hafi lengi verið sterkt en drengirnir séu jafnt og þétt að vinna á. Hún segir gaman að fylgjast með því hvað kynin vinni vel saman. „Það er alltaf einhver sem heldur uppi stemn- ingunni og dregur vagninn og það skiptir engu máli hvort það er strákur eða stelpa. Ég sé heldur ekki betur en jafnrétti sé í hávegum haft. Þannig fórum við í óvissuferð í sum- arbústað nýlega og það voru strákarnir sem þrifu bústaðinn – óumbeðnir.“ Aðspurð hvort árangur hennar og síðar Kol- brúnar Ýrar Kristjánsdóttur gæti hafa leitt til aukins sundáhuga meðal stúlkna á Akranesi kveðst hún aldrei hafa hugleitt það. „Mínar fyrirmyndir voru karlar, Ingi Þór Jónsson og Ingólfur Gissurarson sem drógu vagninn hérna og bjuggu til sterk lið. Líka Guðjón Guð- mundsson sem kjörinn var íþróttamaður árs- ins á sínum tíma. Þessir menn gerðu mikið fyr- ir sundíþróttina. Það má vel vera að árangur okkar Kolbrúnar Ýrar hafi hvatt stúlkur til dáða en um það er vont fyrir mig að dæma.“ Iðkendur hjá Sundfélagi Akraness eru um 150 á aldrinum 6 til 23 ára og skiptast þeir jafnt milli kynja. Ragnheiður starfrækir einnig sundskóla með um 100 börnum. Sjálf á Ragnheiður þrjú börn, 12, 5 og 3 ára. Það elsta fæddist tveimur árum eftir að hún hætti keppni enda segir hún erfitt fyrir konur í afreksíþróttum að gera hlé á ferli sínum vegna barneigna. „Það fer mikill tími í íþróttina og fólk þarf að halda sér í mjög góðri þjálfun. Fyrir vikið er sjaldgæft að konur eignist börn meðan á ferlinum stendur. Ég þekki þó dæmi þess.“ Ragnheiður kveðst heldur ekki í vafa um að barneignir geri það að verkum að konur hætti keppni yfirleitt fyrr en karlar. Björt framtíð Þegar horft er á heildarmyndina er Ragn- heiður þeirrar skoðunar að staða kvenna- íþrótta sé sterk á Íslandi um þessar mundir. „Hlutur kvenna í íþróttum er alltaf að aukast. Við stöndum vel að vígi í sundinu og svo hefur verið gaman að fylgjast með því hvað knatt- spyrnan er að eflast. Það er ekki síst landslið- inu að þakka en það hefur náð frábærum ár- angri á vellinum og verið duglegt að vekja á sér athygli, m.a. með alveg kostulegum auglýs- ingum. Ég er sannfærð um að þetta er jákvætt fyrir ímyndina. Nefna má fleiri öflugar grein- ar, s.s. handknattleik, frjálsar íþróttir og bad- minton, eins og við sáum um síðustu helgi. Loks virðist markvisst starf innan ÍSÍ vera að skila sér.“ Um leið og Ragnheiður vill hlut kynsystra sinna í íþróttum sem mestan hnykkir hún á því að dæma verði fólk fyrst og síðast á eigin verð- leikum. „Það er nauðsynlegt að jöfn tækifæri séu fyrir hendi. Ég er samt alin þannig upp að mér hefur alltaf fundist ég eiga að komast áfram á eigin verðleikum en ekki bara vegna þess að ég er kona.“ ÖLL SUND OPIN Morgunblaiðð/RAX Á bakkanum Enda þótt Ragnheiður Runólfs- dóttir sé hætt keppni hefur hún ekki sagt skilið við sundíþróttina. Hún er nú þjálfari. H lutur kvenna í kjöri Sam- taka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins hefur verið rýr gegnum tíðina en í ríflega fimmtíu ára sögu kjörsins hafa aðeins þrjár konur hrósað sigri, Sigríður Sig- urðardóttir handknattleikskona (1964), Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona (1991) og Vala Flosa- dóttir stangarstökkvari (2000). Ólafur Rafnsson segir þetta umhugsunarefni. Hann bendir þó á að fjölmargar aðrar konur hafi náð framúrskarandi árangri í íþróttum gegnum árin og hefðu verið vel að þessum titli komnar. „Fyrirmyndirnar eru til staðar, glæsilegar íþróttakonur í fremstu röð.“ Ragnheiður Runólfsdóttir tek- ur undir að vissulega sé hlutfallið konum í óhag. „Það má hins veg- ar ekki gleyma því að það er lengri hefð fyrir því að karlar stundi flestar íþróttagreinar og séu í fremstu röð. Ef við lítum á það hverjir hafa verið að fara með sigur af hólmi í kjörinu undanfarin ár sjáum við að það eru menn sem allir hafa atvinnu af sinni íþrótt, Ólafur Stefánsson, Eiður Smári Guð- johnsen og Guðjón Valur Sigurðsson. Það eru ekki margar íslenskar konur atvinnumenn í íþróttum. Við þetta er erfitt að keppa.“ Ragnheiður kveðst fyrst hafa velt því fyrir sér að hún ætti mögu- leika á því að vera kjörin íþróttamaður ársins þegar kollegi hennar og æfingafélagi, Eðvarð Þór Eðvarðsson, hampaði titlinum árið 1986. „Þá hugsaði ég með mér, fyrst hann getur þetta hlýt ég að geta það líka ef ég legg mig alla fram.“ Ragnheiður vill ekki sjá kjörinu skipt í tvennt, íþróttakarl ársins og íþróttakonu ársins. „Það yrði stórt skref aftur á bak. Auðvitað eigum við að leggja sömu mælistikuna á alla íþróttamenn. Ef kon- urnar yrðu teknar út úr þessu og kjörnar sér værum við ekki að tala um jafnrétti, heldur sérréttindi. Það vilja konur ekki.“ Ásthildur Helgadóttir sér heldur ekki ástæðu til að aðgreina karla og konur í kjörinu. Hún vill sjá hlut kvenna meiri en á brattann sé að sækja. „Það eru fleiri karlar í fremstu röð en konur. Hlutur kvenna í tíu efstu sætum kjörsins hefur þó verið að vaxa. En það segir sig sjálft að það er erfitt að keppa við menn eins og Eið Smára Guðjohn- sen sem náð hefur mjög langt í vinsælustu íþrótt í heimi.“ Ásthildur sér þó vel fyrir sér að knattspyrnukona nái kjöri í nán- ustu framtíð. „Við eigum konur í fremstu röð í heiminum og það kæmi mér ekki á óvart ef knattspyrnukona hlyti titilinn í bráð.“ ÞRJÁR KONUR Á HÁLFRI ÖLD Best Ragnheiður Runólfsdóttir með viðurkenningu sína sem íþróttamaður ársins 1991. Morgunblaðið/RAX
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.