Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Stuðningur Moshe Katsav Ísraelsforseti ásamt eig-
inkonu sinni, Gilu. Hún stendur þétt við hlið eig-
inmannsins í þrengingum hans. Gila var áður banka-
starfsmaður en hefur á síðustu árum gefið sig að
félagslegu hjálparstarfi af ýmsum toga. Þau hjónin
eiga fimm börn, fjóra syni og dóttur.
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
F
orsætisráðherrann nýtur
hverfandi trausts og er
vændur um spillingu.
Forsetinn hefur fengið
tímabundið leyfi frá
störfum til að geta varist ásökunum
um að hann sé kynferðisglæpamaður
og valdníðingur. Forseti herráðsins
hefur sagt af sér vegna mislukkaðrar
herferðar gegn skæruliðum í Líb-
anon sem skekið hefur sjálfstraust
hers og þjóðar. Og þá er ekki allt upp
talið; það gengur á ýmsu í Ísrael nú
um stundir.
Ólga er að sönnu ekki óþekkt fyr-
irbrigði í ísraelskum stjórnmálum og
það er klofningur ekki heldur. Á hinn
bóginn bendir margt til þess að vandi
nokkurra helstu valdastofnana sam-
félagsins sé nú annar og djúpstæðari
en oftast áður. Og aðstæður eru nú
um flest óvenjulegar; þjóð sem
löngum hefur sameinast gegn utan-
aðkomandi ógn og óvinum glímir nú
við erfiða innri kreppu. Traust í garð
helstu ráðamanna fer ört minnkandi
og hæpið má telja að þeir haldi velli.
Á þriðjudag í liðinni viku greindi
Menachem Mazuz, ríkislögmaður
Ísraels, Moshe Katsav, forseta lands-
ins, frá því að lögð yrði fram kæra á
hendur honum. Formlega kæru
verður unnt að birta forsetanum þeg-
ar hann hefur verið kallaður fyrir og
honum gert kleift að taka til varna.
Forsetinn nýtur friðhelgi en unnt er
að leggja fram kæru á hendur honum
til embættismissis auk þess sem
hann má sækja til saka eftir að hann
hefur látið af embætti. Nú liggur fyr-
ir að hann hefur fengið tímabundið
leyfi frá störfum.
Efnisatriði ákærunnar eru þau al-
varlegustu sem ísraelskur leiðtogi
hefur staðið frammi fyrir. Forsetinn
er sakaður um að hafa nauðgað konu
sem starfaði í ráðuneyti ferðamála á
tíunda áratugnum þegar hann var
þar ráðherra. Hann er og vændur um
að hafa áreitt þrjár konur kynferð-
islega sem starfa í embættisbústað
forsetans. Þá er Katsav sakaður um
að hafa misnotað stöðu sína sem for-
seti með því að útdeila „gjöfum“ og
loks þykir ástæða til að ætla að hann
hafi freistað þess að hindra að rann-
sókn færi fram á þeim ávirðingum
sem hann stendur nú frammi fyrir.
Verði Katsav fundinn sekur kann
hann að eiga allt að 16 ára vist fyrir
höndum innan fangelsismúra.
Í tímabundið leyfi
Forsetinn heldur staðfastlega
fram sakleysi sínu, segir að ásakan-
irnar megi rekja til andstæðinga
sinna og nefnir einkum til sögu
vinstri sinnaða fréttamenn. Lögmað-
ur hans, David Libai, lýsti yfir því að
Katsav hygðist verjast ásökunum
þessum. „Forsetinn er sannfærður
um að hann sé fórnarlamb upplog-
inna ásakana og tilrauna til að hrekja
hann úr embætti. Hann mun því leit-
ast við að sanna sakleysi sitt,“ sagði
lögmaðurinn. Katsav hefur áður
vænt pólitíska andstæðinga sína um
„nornaveiðar“ og lýst því yfir að hann
sé fórnarlamb „viðurstyggilegrar
rógsherferðar“.
Forveri Katsavs í embætti, Ezer
Weizman, neyddist til að segja af sér
í júlímánuði árið 2000 eftir að dóms-
málaráðherra Ísraels hafði komist að
þeirri niðurstöðu að hann hefði þegið
óviðeigandi „gjafir“.
Moshe Katsav sætti vaxandi
þrýstingi í liðinni viku. Nokkur
helstu dagblöð Ísraels hvöttu hann til
að segja af sér og svo virtist sem
hann hygðist hundsa allar kröfur í þá
veru. Á miðvikudagskvöld varð á
hinn bóginn ljóst hvert stefndi er
Tzipi Livni utanríkisráðherra lýsti
yfir því að hún væri „sannfærð“ um
að forsetanum bæri að segja af sér. Í
ljósi ákærunnar færi betur á því að
Katsav tæki til varna „utan embætt-
isbústaðar forsetans“. Livni er einnig
starfandi dómsmálaráðherra eftir af-
sögn Haim Ramons í nóvembermán-
uði sem einnig var sakaður um kyn-
ferðislega áreitni.
Forsetinn greindi frá því á tilfinn-
ingaþrungnum blaðamannafundi á
miðvikudagskvöld að hann hefði
ákveðið að óska eftir tímabundu leyfi
frá störfum. Í máli hans kom jafn-
framt fram að hann myndi segja af
sér yrði hann formlega ákærður. Það
ferli allt kann að taka nokkrar vikur
þar eð lögmenn forsetans og ákæru-
valdsins þurfa að koma saman til sér-
staks réttarhalds þar sem Katsav
gefst tækifæri á að taka til varna.
Forsetinn var ómyrkur í máli og hét
því að hann myndi berjast allt til síð-
asta blóðdropa til að sýna fram á sak-
leysi sitt jafnvel þótt það kostaði
„heimsstyrjöld“. Kvaðst hann vera
fórnarlamb einhverrar óvægnustu
rógsherferðar í sögu Ísraelsríkis.
Á fimmtudag samþykkti þing-
nefnd naumlega beiðni hans um leyfi
en fjölmiðlar og margir stjórnmála-
menn gagnrýndu harðlega þá
ákvörðun hans að leita aðeins eftir
tímabundnu brotthvarfi úr starfi. Ef
marka má könnun dagsblaðsins Ye-
diot Aharonot sem birt var á fimmtu-
dag telja um 70% Ísraela að forset-
anum beri að segja af sér. Dalia
Yitzik þingforseti sinnir embættinu í
fjarveru Katsavs og er þannig forseti
Ísraels fyrst kvenna.
Traustið aldrei minna
Skoðanakannanir í Ísrael hafa að
undanförnu ítrekað leitt í ljós að
traust þjóðarinnar í garð leiðtoganna
fer ört minnkandi og trúlega stenst
sú fullyrðing skoðun að það hafi aldr-
ei verið minna. Í pólitísku tilliti
breytir vandi forsetans trúlega litlu
en það sama verður vart sagt um for-
sætisráðherrann, Ehud Olmert. Í
einni könnun kváðust aðeins 14%
þátttakenda ánægð með störf hans
sem er fáheyrt (í Bandaríkjunum
mælist stuðningur við George Bush
forseta um 30%). Stefna forsætisráð-
herrans um einhliða brottflutning
landtökumanna frá tilteknum hlutum
Vesturbakkans er hrunin til grunna
og kröfur magnast um að hann og
Amir Peretz varnarmálaráðherra
segi af sér í kjölfar „sumarstríðsins“ í
Líbanon sem þótti mikið áfall fyrir
herafla Ísraels og ríkisstjórn Ol-
merts.
Í Ísrael nýtur sú skoðun mikils
fylgis að herförin gegn Hizbollah-
skæruliðum í Líbanon hafi gjörsam-
Ísraelskir
ráðamenn
rúnir trausti
ERLENT»
Reuters
Tilfinningahiti Moshe Katsav hefur á stundum verið sagður heldur „litlaus“ maður en annað kom á daginn er
hann boðaði til fréttamannafundar á miðvikudag. Forsetinn fór hamförum og kvaðst ætla að sanna sakleysi sitt.
Hjálp Ehud Olmert kveikir á kerti með aðstoð rabbína. Olmert nýtur lítils
stuðnings meðal alþýðu manna en staða hans á þingi virðist nokkuð traust.
Í HNOTSKURN
»Moshe Katsav, forseti Ísr-aels, hefur fengið tíma-
bundið leyfi frá störfum í kjöl-
far ásakana um að hann hafi
gerst sekur um alvarlegan
kynferðisglæp og síðan reynt
að koma í veg fyrir að málið
yrði rannsakað.
»Forsetinn kveðst vera sak-laust fórnarlamb við-
urstyggilegrar rógsherferðar
en stuðningur við hann hefur
farið ört minnkandi.
»Forsetinn nýtur friðhelgien fyrir liggur að hann
verður ákærður. Hann kveðst
ætla að segja af sér komi
ákæran fram en margt bendir
til þess að mál þetta kunni að
dragast á langinn.
Erlent | Ísraelska þjóðin, sem löngum hefur sameinast gegn utanaðkomandi ógn og óvinum, glímir nú við erfiða
innri kreppu. Trú |Vísindakirkjan er stundum kölluð kirkja þeirra frægu og ríku. Bækur | Fyrsta skáldsaga Norm-
ans Mailers í tíu ár, Kastalinn í skóginum, hefur verið lofuð fyrir siðferðilega hluttekningu og sögð fáránleg, en grípandi.
VIKUSPEGILL»
Forsetinn sakaður um kynferðisglæpi
og afsagnar helstu ráðherra krafist
Embætti forseta Ísraels er því sem næst valda-laust og minnir um margt á hið íslenska.Moshe Katsav er fyrsti hægri maðurinn á for-
setastóli í landinu. Hann vann óvæntan sigur á Shi-
mon Peres, fyrrum forsætisráðherra og frið-
arverðlaunahafa Nóbels, er þingheimur gekk til
atkvæða um eftirmann Ezer Weizmans 31. júlí árið
2000. Nú telja margir að dagar Katsavs í embætti séu
í raun taldir og þykir ekki óhugsandi að hinn 83 ára
gamli Peres taki við því þegar niðurstaða liggur fyrir.
Kjör Moshe Katsavs þótti um flest sögulegt. Íhalds-
maður hafði sem fyrr sagði aldrei gegnt þessu emb-
ætti og aldrei áður hafði maður sem fæddur er í ísl-
ömsku ríki hlotið viðlíka upphefð í Ísrael.
Katsav fæddist 5. desember 1945 í borginni Yazd í
Íran. Er hann var fimm ára gamall fluttist fjölskyldan
til Ísraels. Katsav talar persnesku reiprennandi. Í apr-
ílmánuði árið 2005 er forsetinn var viðstaddur útför
Jóhannesar Páls II páfa vakti athygli að hann gaf sig
á tal við Mohammad Khatami, þáverandi starfsbróður
sinn frá Íran. Þeir ræddu saman á persnesku en Kha-
tami er einnig fæddur í Yazd.
Hæfur stjórnandi en „litlaus“
Katsav lauk BA-námi í hagfræði og sögu og gekk
ungur til liðs við Likud-flokkinn. Aðeins 24 ára gamall
var hann kjörinn bæjarstjóri í þorpinu Qiryat
Mal’akhi og mun svo ungur maður aldrei áður hafa
haft með höndum sambærilegt embætti í sögu Ísraels.
Árið 1977 var hann kjörinn til setu á þingi Ísraels,
Knesset. Hann var ráðherra velferðarmála, ferðaþjón-
ustu og samgangna frá 1984 til 1992. Frá 1996 til
1999 var hann aðstoðarforsætisráðherra og ráðherra
ferðaþjónustu. Katsav þótti afar hæfur stjórnandi og
nokkuð herskár sem þingmaður en almennt er litið
svo á að hann hafi færst nær miðjunni í ísraelskum
stjórnmálum eftir að hann hlaut þá upphafningu að
vera kjörinn forseti. Viðtekið er það sjónarmið að
hann sé heldur „litlaus“. Kjörtímabili hans lýkur í júl-
ímánuði.
Forsetinn er kvæntur, fimm barna faðir. Eiginkona
hans, Gila, hefur á síðustu árum sinnt ýmsum fé-
lagsmálum og hefur m.a. látið til sín taka í baráttu
gegn heimilisofbeldi.
Forsetaembættið hefur löngum notið álits og virð-
ingar í Ísrael. Er ekki síst vísað til þessa þegar Katsav
er hvattur til að segja af sér sökum þeirra ásakana
sem hann stendur frammi fyrir. Forsetaembættið
megi ekki við því að grunur leiki á um að það skipi
kynferðisglæpamaður og valdníðingur. Málarekstur
tengdur viðlíka ávirðingum sé ekki fallinn til að auka
virðingu þess.
Fyrsti íhalds-
maðurinn á
forsetastóli
Reuters