Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 19

Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 19 » Eftir því sem gremjan ermeiri verða framboðin fleiri. Reynir Ingibjartsson, formaður Aðstand- endafélags aldraðra, en tvær fylkingar aldraðra og öryrkja hyggjast bjóða fram í alþingiskosningunum í vor. » Við erum eins og íslenskaveðrið; snarklikkaðir. Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, eftir átta marka sigur á Frökkum á heimsmeist- aramótinu í Þýskalandi. » Hann virðist hafa kunnaðsvör við flestum þeim spurn- ingum sem beint var til hans. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, um dæmdan kynferðis- afbrotamann sem gert var kleift að ljúka afplánun á áfangaheimilinu Vernd en stað- inn var að því í sjónvarpsþætti að leita eftir fundum við börn í kynferðislegum tilgangi. » Hér er ekki um meðvitaðamismunun að ræða, miklu fremur gáleysi. Eggert Magnússon, fráfarandi formaður KSÍ, um þá ákvörðun að hækka dagpen- ingagreiðslur kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu til jafns við þær sem tíðkast hjá körlunum. » Okkur finnst að öll berum viðákveðna samfélagslega ábyrgð. Ingibjörg Kristjánsdóttir landslags- arkitekt sem ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni Sam- skipa, hefur stofnað velgjörðarsjóð og lagt honum til einn milljarð króna í stofn- framlag. » Í jólafríinu fór ég að skoðastefnu Frjálslynda flokksins og það er nú margt þar sem mér hugnast. Valdimar Leó Friðriksson, sem gekk úr Samfylkingunni í nóvembermánuði og er nú orðinn þingmaður Frjálslynda flokks- ins. » Ég er búinn að vera tólf ár áþingi, glæsileg ár og skemmtileg ár og ég fer saddur og glaður. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsókn- arflokksins, sem ákveðið hefur að taka ekki sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi eftir að hafa hafnað í þriðja sæti í próf- kjöri. » Ég vissi að þessi ákvörðunHjálmars að bjóða sig fram gegn varaformanni flokksins og ráðherra kjördæmisins væri áhætta fyrir hann. Guðni Ágútsson, varaformaður Framsókn- arflokksins, sem varð efstur í prófkjörinu. Ummæli vikunnar Fyrirliði Ólafur Stefánsson segir landsliðið líkjast íslenskri veðráttu. lega mistekist. Ráðamenn hafi með röngum ákvörðunum grafið undan þeirri fælingarstefnu sem Ísraelar hafa fylgt á undanliðnum áratugum með ágætum árangri. Hinn 17. þessa mánaðar sagði Dan Halutz af sér embætti forseta ísraelska herráðsins og var sú ákvörðun hans rakin til herfararinnar gegn líbönsku skæru- liðunum í sumar. Ákvörðun Halutz líktu sumir fjölmiðlar í Ísrael við „landskjálfta“ og urðu margir til þess að spá því að þeir Olmert og Pe- retz myndu einnig neyðast til að láta af störfum. Skoðanakannair gefa til kynna að meirihluti Ísraela telji að Olmert beri að segja af sér og í einni könnun sem Geocartographia-stofn- unin birti daginn eftir afsögn herr- áðsforingjans sögðust 70% þátttak- enda þeirrar hyggju að varnarmálaráðherrann ætti að gera slíkt hið sama. Margir telja að reynsluleysi þessara tveggja ráða- manna á vettvangi hernaðar og ör- yggismála hafi reynst þjóðinni og heraflanum dýrkeypt í sumar. „Ísr- ael líkist ekki öðrum löndum. Við sætum stöðugu umsátri og tilveru ríkisins er jafnan ógnað. Af þessum sökum getum við ekki leyft okkur að lúta vonlausri pólitískri forystu með sama hætti og t.a.m. þjóðir Vestur- landa geta gert,“ sagði Yossi Klein Halevi, þekktur fræðimaður við Sha- lem-rannsóknarmiðstöðina, sem er hugveita í Jerúsalem. Nefnd hefur verið skipuð til að rannsaka alla þætti herfararinnar gegn Hizbollah og er búist við að hún skili niðurstöðum sínum í marsmán- uði. Þeir Olmert og Peretz hafa vísað á bug kröfum um afsögn. Afskipti af einkavæðingu? En raunir Olmerts forsætisráð- herra eru ekki þar með upp taldar. Forsætisráðherrann naut að vísu stuðnings og velvildar er hann tók við embætti í maí í fyrra í kjölfar al- varlegra veikinda Ariels Sharons en ásakanir um spillingu hafa löngum loðað við hann. Nú er unnið að rann- sókn á því hvort Olmert hafi sem fjármálaráðherra árið 2005 haft af- skipti af einkavæðingu næststærsta banka Ísraels, Leumi-bankans. Lög- regla kannar hvort Olmert hafi reynt að koma tveimur kaupsýslumönnum, sem hann var í vinfengi við, til að- stoðar í því skyni að tryggja þeim bankann. Bankinn var raunar seldur öðrum, bandarískum fjárfestinga- banka, en frumrannsókn á aðkomu Olmerts gefur, að því er fram kemur í tilkynningu frá ísraelska dóms- málaráðuneytinu, tilefni til að fram fari rannsókn á því hvort Olmert hafi gerst sekur um refsivert athæfi. Ol- mert hefur áður verið sakaður um spillingu og rannsókn farið fram án þess að til ákæru hafi komið. Emb- ættismenn í dómsmálaráðuneyti Ísr- aels geta tæpast kvartað undan verkefnaskorti. Veruleg óvissa ríkir því um fram- tíð Ehuds Olmerts á forsætisráð- herrastóli. Hann styðst að vísu við prýðilegan þingmeirihluta, 78 af 120 þingmönnum Knesset styðja stjórn hans, en að margra mati getur brugðið til beggja vona. Kadima- flokkur þeirra Sharons og Olmerts var í raun stofnaður um þá grund- vallarkennisetningu þess fyrrnefnda að Ísraelar geti markað landamæri sín einhliða með tilheyrandi einhliða brottflutningi landtökumanna af Vesturbakkanum. Þessari öryggis- stefnu í krafti einhliða aðgerða í stað friðarsamninga var framfylgt í Líb- anon og á Gaza-svæðinu. Aðgerðir þessar urðu í báðum tilfellum til þess að styrkja stöðu róttækra andstæð- inga Ísraelsríkis. Stuðningur við þetta stefnumál er nú hruninn. Verulega erfið réttarhöld sýnast vofa yfir Katsav forseta og staða hans er hrikaleg. Óvissa ríkir á stjórnmálasviðinu; dómsmálaráð- herrann hefur sagt af sér, forsætis- ráðherrann stendur höllum fæti og er rúinn trausti og vinsældum líkt og varnarmálaráðherrann. Framganga þeirra sætir gagnrýni og frammi- staða þeirra á miklum hættutíma rannsókn. Eitthvað mun þurfa und- an að láta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.