Morgunblaðið - 28.01.2007, Síða 21

Morgunblaðið - 28.01.2007, Síða 21
Earth, og kvikmyndir, en megin- markmiðið var alltaf að styrkja starf og kenningar Vísindakirkj- unnar. 24. janúar 1986 varð L. Ron Hubbard hallur af heimi. Þrískiptur maður í leit að fullkomnun Fyrsta vísindakirkjan var stofn- uð 1954 í Los Angeles, þar sem höfuðstöðvarnar eru, og næstu árin óx hreyfingunni fiskur um hrygg bæði vestan hafs og austan. Nafnið Scientologi er sótt í latínu; scio sem þýðir að vita, og grísku; logos sem þýðir nám. Takmark Vísinda- kirkjunnar er samkvæmt henni sjálfri heimur án geðveiki, afbrota og styrjalda, þar sem einstaklingur nær að blómstra og býr við frelsi til að kanna og komast á æðri stig. Kenningar Vísindakirkjunnar ganga út á endurholdgun og full- komnun. Samkvæmt þeim er mað- urinn þrískiptur; ódauðleg andleg vera; sem nefnist „þetan,“ og býr yfir rökrænni vitund og undirvit- und, hugur og líkami. Það er und- irvitundin, sem verður fyrir þeim áföllum og áreitum sem maðurinn upplifir. Þau skilja eftir sig ör; „engröm,“ sem eru rót alls vanda, sem maðurinn á við að stríða, og um leið örlagavaldar hans. Þessum örum þarf að eyða til þess að mað- urinn verði betri einstaklingur, nái jafnvægi og geti sótt fram til þess að verða fullkomin þetan, sem get- ur hafið sig yfir efni og orku, tíma og rúm. Að sögn notar Vísindakirkjan sérstakan rafsegulviðnámsmæli; E- mæli, til að kortleggja ástand við- komandi og síðan samtöl, sálkönn- un og sálfræði til engrameyðingar. Eftir því sem fólk kemst áfram í þróunarferlinu fær það meiri upp- lýsingar um starf og heimsmynd Vísindakirkjunnar, sem reynt er að halda sem mest leyndum fyrir þá sem utan kirkjunnar standa. Af frásögnum fyrrverandi safnaðar- meðlima hafa menn þó dregið sínar ályktanir. Fyrsta skrefið er, að mönnum býðst að koma inn af göt- unni og þreyta sérstakt persónu- leikapróf. Starfsmenn kirkjunnar aðstoða fólk við að lesa úr próf- unum og vekja þá athygli á nei- kvæðum þáttum í fari þess sem megi bæta úr með því að gerast meðlimur í Vísindakirkjunni. Síðan er boðið upp á námskeið og fram- haldsnámskeið, sem sögð eru kosta sitt og vel það, en eiga að leiða ein- staklinginn til betra og fullkomn- ara lífs. Geimsagan og Vedaritin Þegar kemur að heimsmynd Vís- indakirkjunnar, er hún sögð draga dám af heimi vísindaskáldsagna Hubbard, bæði hvað varðar fram- tíðina og ekki síður fortíðina; allt aftur til þess að geimveran Xenu hrakti fyrir 75 milljónum ára billj- ónir vera til jarðarinnar og sprengdi þær í loft upp. Fyrir þetta þjáumst við enn, því „sálir“ þessara vera ganga aftur á meðal okkar og valda okkur engrömum. Þau má hins vegar losa okkur við með hreinsunarferli Vísindakirkj- unnar. Þegar hér er komið sögu er einstaklingurinn laus undan álög- um Xena og hefur til þess gengið í gegnum sjö stig Vísindakirkjunnar. Um áttunda stigið er minnst vitað, enda þangaðkomnir þöglir sem gröfin um kirkjuna og kenningar hennar. Gagnrýnendur Vísindakirkjunn- ar hafa lýst sem fjarstæðu því sem þeir kalla sambræðing Hubbards úr geimsögum og útúrsnúningi á Vedaritunum indversku. Samtals- og sálfræðimeðferð Vísindakirkj- unnar er sögð lítt til þess fallin að hreinsa líkama og sál svo viðkom- andi verði betri einstaklingur og öðlist fullkomið frelsi, heldur sé hún óvandaður og hættulegur heilaþvottur, sem ræni menn per- sónuleika sínum. Þá þykir mönnum hreyfingin bera snöggtum meiri keim af bísniss en trú og hefur starfsemi hennar sætt andstöðu af þeim sökum. Fyrr í þessum mánuði opnaði Vísindakirkjan nýja miðstöð í Berl- ín og urðu af því tilefni talsverðar umræður í Þýzkalandi um Vísinda- kirkjuna, sem voru tíundaðar víða, m.a. hér á landi. Gagnrýnendur töl- uðu um úlf í sauðargæru og sögðu starf Vísindakirkjunnar snúast fyrst og fremst um völd og pen- inga. Talsmennirnir svöruðu því til, að allt slíkt tal væri hreinar of- sóknir. Reyndar hefur tilvist Vísinda- kirkjunnar og framganga oft vakið deilur og ekki ósjaldan hefur kom- ið til málaferla vegna þeirra. Þótt hitinn yrði talsverður í Berlín á dögunum jafnaðist hann ekki á við það þegar réttarhöld fóru fram í Marseille í Frakklandi yfir sjö háttsettum meðlimum Vís- indakirkjunnar 1999. Þeir voru ákærðir fyrir fjársvik; að krefjast gjalds fyrir andlega hreinsun, of- beldi og skottulækningar, sem fól- ust í meðferðum til að kveða niður veikindi og óæskilegar tilfinningar. Mál þetta vakti mikla athygli og umræður í Frakklandi og endaði með sektar-, bóta- og fangelsis- dómum Fjöldi þeirra sem aðhyllast kenningar Vísindakirkjunnar er mjög á reiki. Talsmenn kirkjunnar segja þá vera á níundu milljón í á fjórða þúsund söfnuðum í rösklega 150 löndum. Margir bera brigður á þessar tölur og segja meðlimi Vís- indakirkjunnar verða talda í ein- hverjum tugum þúsunda, hundr- uðum þúsunda í hæsta lagi en fráleitt í milljónum. Í Vísindakirkj- unni er predikað og farið með bæn- ir, sem eru eins konar innri mátt- argjörð. Kirkjustarfinu tilheyra útgáfa og hjálparstarf ýmiss konar. Ekki er vitað til þess að Vís- indakirkjan hafi skotið rótum hér á landi. Kirkjan Nýjar höfuðstöðvar Vísindakirkjunnar í Berlín urðu tilefni umræðna um það, hvort hún byggist á trú eða bísniss. Kirkjumeðlimirnir trúa heitt, en gagnrýnendur segja bygginguna ótvírætt undirstrika það síðarnefnda. TENGLAR .............................................. www.deiglan.com/ www.google.com/ www.kirkjan.net/ www.mbl.is/ www.scientology.org/ www.visindavefur.hi.is/ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 21

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.