Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 23
Annar Breti, John Galliano, náði
því í vikunni að vera búinn að sitja
áratug í listrænum stjórastól hjá
Christian Dior. Sýning hans var að
venju dramatísk og undir miklum
japönskum áhrifum. Hönnuðurinn
fór nýverið til Japan ásamt fylgd-
arliði en hann fær iðulega inn-
blástur úr ferðum á framandi slóðir.
Hátískusýninga hans er jafnan beð-
ið með mikilli eftirvæntingu.
Madama Butterfly
Allt í Dior-sýningunni var undir
áhrifum frá „sambandi Pinkerton
við Cio-Cio San, Madama But-
terfly“ að því er fram kemur í sam-
tali hönnuðarins við Style.com. Í
umsögn segir jafnframt að Galliano
hafi sannað enn á ný að hann búi
fyrir „einstökum hæfileika til að
framkalla fegurð, viðkvæmni, sögu-
þráð, og tilfinningu í tískusýningu“.
Mikil litagleði einkenndi íburð-
armikinn fatnað sýningarinnar,
einnig meðferð efnis að hætti ori-
gami-listar og fallegur útsaumur.
Tónlistin úr óperunni Madama
Butterfly eftir Puccini hljómaði
undir sýningunni, sem margir
gagnrýnendur hafa lýst sem þeirri
fallegustu sem Galliano hefur gert
fyrir Dior. Galliano sagðist hafa
notað allt það sem hann hafi gert
fyrir tískuhúsið á síðustu tíu árum í
sýningunni, auk innblásturs frá
Christian Dior sjálfum. Hugað er
að öllum smáatriðum, í leikmynd-
inni voru japanskar trjágreinar og
risaútgáfa af tískuverslunarstól Di-
or.
Höfuðfatnaður var einnig glæsi-
legur en hattasmiðurinn Stephen
Jones var ábyrgur fyrir þeim. Einn-
ig tókst vel til með förðun sem var í
höndum Pat McGrath, sem þykir
vera einstaklega fær með förð-
unarburstann.
Fyrirsætur með geislabauga
Trúfastir aðáendur Jean Paul
Gaultier flykktust á sýningu hans,
sem var með trúarlegu ívafi. Inn-
blásturinn var frá annarri Madonnu
en poppdrottningunni, sem hönn-
uðurinn hefur svo oft gert sviðsbún-
inga fyrir. Hver einasta fyrirsæta
bar geislabaug með einhverjum
hætti. Gaultier er þekktur fyrir að
fara óhefðbundnar leiðir og snúa
ýmsu á hvolf en í þetta skiptið var
honum ekkert guðlast í huga heldur
hafði hann íkoníska fegurð að leið-
arljósi. Reykelsisilmur að hætti
kaþólsku kirkjunnar var í loftinu.
Enginn helgislepja einkenndi þó
fötin, hann þorir ennþá að stríða.
Sýningin var krydduð með hinu
óvænta, til dæmis var nunnulegur
kjóll með reimuðu korseletti að aft-
an og svo var drottning gotneska
glamúrsins, Dita Von Teese, fyrr-
verandi frú Marilyn Manson, ein
fyrirsætnanna.
ingarun@mbl.is
Dior Höfuðföt sýningarinnar voru hönnuð af
hattasmiðnum hæfileikaríka Stephen Jones.
Reuters
Gaultier Áhrifin í sýningunni voru frá
annarri Madonnu en söngkonunni.Dior Samband Pin-
kerton og Cio-Cio
San, Madama But-
terfly, var áhrifa-
valdur. » Gaultier er þekkturfyrir að fara óhefð-
bundnar leiðir og snúa
ýmsu á hvolf en í þetta
skiptið var honum ekkert
guðlast í huga heldur
hafði hann íkoníska feg-
urð að leiðarljósi.
Gaultier Dita Von
Teese, fyrrverandi frú
Marilyn Manson, og nú-
verandi drottning got-
nesks glamúrs.
Dior Galliano var meðal annars undir áhrif-
um frá japanska listforminu origami.
tíska
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 23
Markáætlun um erfðafræði
í þágu heilbrigðis og örtækni
Umsóknarfrestur til 26. mars 2007
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Rannsóknamiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum í markáætlun um
rannsóknir á sviði erfðafræði í þágu heilbrigðis og á sviði örtækni.
Markáætlunin var samþykkt á fundi Vísinda- og tækniráðs 17. desember 2004. Hún er skipu-
lögð í tveimur lotum og nær fyrri lotan til tveggja fyrstu áranna. Seinni lotan, sem nú fer í hönd,
nær til þriggja síðustu áranna. Á fyrstu tveimur árum áætlunarinnar, sem hófst í lok ársins
2005, hefur verið varið um 190 m.kr. í rannsóknastyrki. Í seinni lotu áætlunarinnar (2007/8-
2009/10) verða veittir styrkir til þriggja ára verkefna og hver styrkur verður allt að 15 milljónir
króna á ári. Næstu þrjú árin mun Vísinda- og tækniráð tryggja nauðsynlega fjármuni til áætlun-
arinnar sem áætlað er að verði allt að 450 milljónir króna, með fyrirvara um fjárveitingar
Alþingis.
Markmið
Tilgangur áætlunarinnar er að efla þverfaglegt samstarf hér á landi og auka styrk okkar á ofan-
töldum sviðum á alþjóðavísu. Reynt verður að hámarka nýtingu tækjabúnaðar og aðferðafræði
sem fyrir er í landinu á þessum sviðum og styrkja rannsóknir og rannsóknahópa sem þegar
hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Lögð er áhersla á grunnrannsóknir sem og hagnýt
verkefni í nánu samstarfi fyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla til uppbyggingar íslensks
atvinnulífs. Einnig er lögð áhersla á að tengja hin tvö svið markáætlunarinnar, annað hvort
með verkefnum sem ganga þvert á bæði sviðin eða með tengslum á milli rannsóknaverkefna.
Form styrkja
Rannsóknastyrkir áætlunar geta numið frá fjórðungi til helmings af heildarkostnaði verkefnis og
í sérstökum tilvikum allt að tveimur þriðju hlutum heildarkostnaðar. Styrkirnir verða verkefnis-
styrkir hliðstæðir styrkjum sem veittir eru úr öðrum opinberum samkeppnissjóðum.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
Sérstök umsóknareyðublöð gilda fyrir áætlunina, sameiginleg fyrir bæði svið hennar. Þau er
hægt að nálgast ásamt frekari leiðbeiningum um áætlunina á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar
Íslands - Rannís. Umsóknum og öllum fylgiskjölum skal skila á ensku. Umsóknir verða metnar
faglega í sérstöku fagráði að fengnum umsögnum innlendra og/eða erlendra sérfræðinga.
Umsóknarfrestur er til 26. mars næstkomandi.