Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 25
12,5% 8,4%
Sjóður 9**
– peningamarkaðsbréf
Sjóður 11*
– fyrirtækjabréf
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
8
1
9
9
Ein fárra kvenna „Tiltölulega fáar konur sækja sér menntun í fögum sem stóriðjan styðst við
og þekkja hana ekki nógu vel. “
Feðgin Rannveig ásamt föður sínum, Sigurjóni Rist vatnamælingamanni, í Jökulsá eystri í
Skagafirði, en frá unga aldri ferðaðist hún mikið með honum.
þeirra tæplega 500 starfsmanna sem
hér vinna.“
– Hvernig stjórnandi ertu?
„Því er erfitt að svara, enda ein-
staklingsbundið hvað fólki finnst um
það. Í meginatriðum legg ég upp úr
því að unnið sé í hópum í fyrirtækinu
og að hér sé í raun mjög flatt skipu-
lag. Ég tel að þetta fyrirkomulag
henti fyrirtækinu vel, ekki síst þegar
mikið er að gera. Verksmiðjan er í
gangi allan sólarhringinn allt árið.
Þess vegna skiptir miklu máli að
starfsmenn geti gripið inn í við
ákvarðanatöku. Hér skapast oft
þannig aðstæður að hinn almenni
starfsmaður þarf að taka mikilvægar
ákvarðanir og því höfum við lagt ríka
áherslu á að auka þekkingu og
menntun starfsmanna, meðal annars
með Stóriðjuskólanum. Þar miðar
nám að því að starfsmenn allir og
vinnuhópar séu færir um að taka
ákvarðanir sjálfir og það gerist í mun
meira mæli nú en áður var. Ég held
að óhætt sé að fullyrða að starfsmenn
hér hafi rýmri heimildir og meiri völd
til þess að taka ákvarðanir en þekkist
hjá álverum annarsstaðar. Þetta hef-
ur gefist vel auk þess sem störfin
verða meira spennandi og starfs-
ánægja fólks meiri.“
– Hvernig heldur þú að standi á því
að svona fáar konur gegna stjórn-
unarstörfum í samfélaginu?
„Ástæðurnar eru trúlega margar.
Konur eiga almennt erfitt uppdráttar
að komast í slíkar stöður og búa við
aðrar hefðir en karlar í okkar þjóð-
félagi. Mér sýnist að oft á tíðum séu
gerðar meiri kröfur til kvenna en
karla og þær séu harðar dæmdar af
verkum sínum en þeir.“
– Hefurðu fundið fyrir því sjálf?
„Ég er ekki frá því að mér finnist
viðhorf til kvenna í stjórnunarstöðum
oft vera óbilgjörn. Ýmislegt sem þyk-
ir styrkur hjá karlstjórnanda þykir
frekja og yfirgangur hjá konu í
stjórnunarstöðu og líklegra að konur
séu kallaðar ýmsum nöfnum. Því má
samt ekki gleyma að konur hafa
lengst af síður en karlar menntað sig
til þess að stýra fyrirtækjum og hafa
kannski ekki verið eins tilbúnar og
þeir til að mæta þeim kröfum sem
stundum eru gerðar til stjórnenda.
En á þessu hefur orðið mikil breyting
og nú skortir hvorki menntun né vilja
hjá stórum og afar öflugum hópi
kvenna. Eins getur verið að konur
vilji síður en karlar vinna langan
vinnudag en að mínu mati þarf lengd
vinnudagsins alls ekki að vera í jöfnu
hlutfalli við gæði stjórnunarinnar.
Oft verður löng viðvera á vinnustað
stíll eða stæll frekar en þörf eða
nauðsyn. Svo er líka staðreynd að
konur setja frekar en karlmenn börn
og heimili í forgang og á það alls ekki
bara við um Ísland. Konurnar sem ég
kynntist og voru í stjórnunarstöðum
hjá AluSuisse, fyrrverandi eiganda
álversins, voru til dæmis flestar ein-
hleypar og hættu þegar þær giftu
sig.“
– Hefurðu sjálf orðið fyrir óbil-
gjörnum viðhorfum í tengslum við
störf þín fyrir Alcan?
„Ég hef verið lengi í þessu starfi og
hef séð og heyrt ýmislegt á þeim
tíma. En maður venst þessu og tekur
málum öðruvísi en í fyrstu. Sem bet-
ur fer hefur líka margt breyst. Ég sé
til dæmis að staða kvenna sem koma
hér til starfa á svipuðum forsendum
og ég gerði á sínum tíma er öll önnur
en var og þeim er öðruvísi og miklu
betur tekið. Þegar ég byrjaði að
vinna í álverinu voru karlarnir óvanir
því að vinna með konum en eftir því
sem árin hafa liðið og konunum fjölg-
að hefur þetta breyst. Nú leggja þeir
oft til að konur taki forystu í ýmsum
málum sem þeim hefði ekki komið í
hug áður fyrr. Það er vissulega af
hinu góða. Annars tel ég jafnrétt-
ismál hér á landi langt frá því að vera
í góðu lagi. Það er til dæmis ekki í
lagi að engin kona skuli gegna stöðu
bankastjóra og hvað konur eiga erfitt
uppdráttar í stjórnmálum. Mér finnst
það algerlega óásættanlegt að ég tali
nú ekki um launamun kynjanna sem
ekkert getur réttlætt.“
Rannveig segir mikilvægt að
stjórnandi sé venjuleg manneskja
sem lifi venjulegu lífi og takist á við
mál sem aðrir eru að kljást við. „Ég
held að erfitt sé að skilja málefni
venjulegs fólks ef maður lifir sjálfur
ekki venjulegu lífi og það á jafnt við
um bæði kynin. Mér virðist samt
samfélagsgerðin valda því að konur
þurfi frekar á stuðningi maka að
»Ég sé til dæmis að staða kvenna sem koma hér til starfa á
svipuðum forsendum og ég gerði á sínum tíma er öll önnur en
var og þeim er öðruvísi og miklu betur tekið.
Tækniþróunarsjóður
kynningarfundur í Húsi atvinnulífsins 30. janúar
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður boðar til opins
kynningarfundar í Húsi atvinnulífsins
þriðjudaginn 30. janúar kl. 8.30–10.00.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum
en umsóknarfrestur í sjóðinn er til 15. febrúar
Dagskrá
Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður Samtaka iðnaðarins, er fundarstjóri.
Sveinn Þorgrímsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, gerir grein fyrir hlutverki sjóðsins.
Snæbjörn Kristjánsson og Oddur Már Gunnarsson, starfsmenn Rannís, fjalla um umsóknar- og
matsferli sjóðsins.
Tvö verkefni kynnt sem hlutu stuðning haustið 2006:
• Svefngreiningartæki fyrir börn, Kolbrún E. Ottósdóttir, Nox Medical ehf.
• Hröð skref í spelkusmíði, Örn Ólafsson, STS - Styrkur og stoð hf.
Boðið verður upp á morgunverð á fundinum.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr. 4/2003 um
opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins. Sjóðurinn fjármagnar
nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Umsækjendur geta verið
fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.