Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 27
tryggir að Hafnfirðingar geta treyst
því að umhverfismálin verði í eins
góðu lagi og nokkur kostur er. Auð-
vitað vonast ég til þess að sam-
komulagið styrki stöðu okkar gagn-
vart afstöðu bæjarbúa til muna.
– Nú er kosningabarátta fram-
undan og óhætt er að segja að við-
brögðin við gjöf sem Alcan sendi inn
á hvert heimili í Hafnarfirði hafi verið
blendin. Hvernig horfir kosninga-
baráttan við þér?
„Kosningarnar framundan eru fyr-
irtækinu gríðarlega mikilvægar og
við förum ekki í felur með það. Það er
nauðsynlegt að upplýsingar um
stækkunina komist á framfæri og við
ráðgerum að kynna okkar málstað
rækilega fyrir bæjarbúum á næstu
vikum og mánuðum. DVD diskurinn
með stórglæsilegum tónleikum
Björgvins Halldórssonar og Sinfón-
íuhljómsveitarinnar sem við sendum
Hafnfirðingum vakti mikil viðbrögð
og við fengum þakkir frá mörgum í
bænum, bæði með tölvupósti og sím-
tölum. Við bjuggumst hins vegar við
því að andstæðingar stækkunarinnar
myndu gangrýna framtakið og því
komu þessi viðbrögð ekki á óvart.
Staðreyndin er samt sem betur fer sú
að flestir voru ánægðir með send-
inguna, enda hún hugsuð sem endir á
vel heppnuðu afmælisári en á því höf-
um við gert ýmislegt til að minnast 40
ára afmælis álversins.“
– Áttu marga diska á lager sem
skilað hefur verið?
„Nei, því aðeins ríflega 30 diskum
hefur verið skilað af þeim hátt í átta
þúsund sem fóru í dreifingu og hafa
þeir allir farið aftur út til heimila sem
hringdu í okkur og höfðu einhverra
hluta vegna ekki fengið disk sendan
heim.“
– Áramótakveðja starfsmanna var
jafnframt gagnrýnd. Var sú gagnrýni
sanngjörn?
„Nei, alls ekki, en hún sýnir hvað
málið er viðkvæmt. Starfsmenn ál-
versins í Straumsvík hafa sent lands-
mönnum jóla- og áramótakveðjur ár-
um saman en í ljósi umræðunnar um
stækkun vakti auglýsingin óvenju
mikla athygli að þessu sinni. Ég verð
samt að viðurkenna að það kom mér
á óvart að gerð auglýsingarinnar
skyldi verða sérstakt fréttaefni enda
hún í sjálfu sér ekki frábrugðin því
sem stærstu fyrirtæki landsins gera
yfir hátíðarnar. Annað merki um
hvað málið er viðkvæmt er gagnrýnin
sem kom fram á kostun okkar á um-
ræðuþættinum Kryddsíld á gaml-
ársdag. Enginn hafði gert at-
hugasemdir við að þannig var málum
líka háttað árinu áður og því þáðum
við boð sjónvarpsstöðvarinnar um að
endurtaka leikinn.“
– Hvaða skoðun hefur þú á hug-
myndum um byggingu fleiri álvera
hér á landi?
„Án þess að ég vilji á þessu stigi
mála blanda mér inn í umræðuna um
hugsanlega byggingu álvera annars
staðar á landinu er nauðsynlegt að
benda á þann augljósa kost sem felst
í því að auka framleiðslugetu þar sem
álver er þegar starfandi samanborið
við að byggja upp á nýjum stað. Í því
ljósi er skynsamlegt að hlúa að þeim
fyrirtækjum sem þegar eru starfandi
hér og tryggja að þau hafi forsendur
til þess að blómstra. Rekstur álvers
er mjög flókinn, sérhæfður og vanda-
samur. Meginástæða þess hvað okk-
ur hér í Straumsvík hefur vegnað vel
er hvað við höfum gott starfsfólk en
það tekur langan tíma að byggja upp
þekkingu, reynslu og færni þeirra
sem starfa í álveri.“
– Telur þú að sú mikla umræða
sem átt hefur sér stað undanfarin
misseri um virkjanir og stóriðju hafi
skipt máli fyrir álverið í Straumsvík?
„Það dylst engum að neikvæð um-
ræða um virkjanir og stóriðju hefur
magnast í landinu með tilkomu Kára-
hnjúkavirkjunar og byggingar álvers
í Reyðarfirði. Mér finnst sjálfri þessi
umræða einkennast um of af upp-
hrópunum og hún sé ekki alltaf á fag-
legum nótum. Menn setjast ekki nið-
ur í sjónvarpssal og ræða þessi mál á
faglegum forsendum, velta fyrir sér
kostum og göllum. Meiru skiptir hver
hefur hæst og skrifar smellnustu
greinina, hvort sem hún á við einhver
rök að styðjast eða ekki. Þó að bent
sé á rangfærslurnar og fólk gangist
jafnvel við mistökunum hefur það
ekki endilega fyrir því að leiðrétta
þær. Mönnum virðist leyfast að full-
yrða nánast hvað sem er og hafa uppi
alls konar dylgjur án þess að þekkja
mikið til mála. Fyrir bragðið eru ým-
iss konar missagnir áberandi sem oft
reynist nær ógerlegt að leiðrétta.
Þetta á við um umræðuna um stækk-
un álversins hér í Straumsvík eins og
svo margt annað í okkar iðnaði.
Sjálfri finnst mér fullyrðinga- og
upphrópunarumræður vera á skjön
við það sem búast hefði mátt við í vel
upplýstu þjóðfélagi eins og okkar, en
þær skjóta alltaf upp kollinum öðru
hverju.“
Lífið utan vinnunnar
– Hvernig er líf þitt utan vinnunn-
ar?
„Ég passa vel að verja sem mest-
um tíma með fjölskyldunni. Hún er
það sem skiptir mestu máli í lífinu.
Við erum mjög samrýmd og það er
stór hluti af áhugamálum mínum að
vera með dætrunum og fylgjast með
því sem þær eru að gera. Ég hef líka
mikinn áhuga á handavinnu og finnst
gott að setjast niður og sauma eða
prjóna. Mér finnst spennandi að búa
eitthvað til og reyni að passa að hafa
alltaf með mér handavinnu þegar ég
er að fara eitthvað. Reyndar keypti
ég mér saumavél fyrir fyrstu launin
sem ég fékk þegar ég byrjaði að
vinna til sjós. Ég hafði þá miklu meiri
tekjur en ég hafði haft og gat leyft
mér þetta þannig að handa-
vinnuáhuginn hefur lengi fylgt mér.
Ég nýt þess líka að ferðast, bæði inn-
an lands og utan. Þegar ég ræð sjálf
för hef ég mest gaman af óskipulögð-
um ferðum og að geta farið um í ró-
legheitum. Mér finnst sérstaklega
gaman að ferðast um Ísland enda
þekki ég landið vel eftir að hafa farið
víða um með pabba og finnst vænt
um íslenska náttúru.“
– Ertu hrædd um að álver hafi
slæm áhrif á landið?
„Mér finnst mikilvægt og legg
metnað minn í að standa þannig að
rekstri þessarar verksmiðju að um-
hverfið beri sem minnstan skaða af.
Umhverfisvakningin sem hér hefur
orðið gerir líka þær kröfur til okkar
að við vöndum til verka og reynum að
standa sem allra best að málum.
Starfsfólk okkar er mjög meðvitað
um mikilvægi umhverfisverndar og
við erum stöðugt með það í huga að
gera betur í þeim efnum. Ég tel
meint umhverfisáhrif álvera stórlega
ýkt í umræðunni. Það er mikilvægt
að við nýtum með skynsamlegum
hætti þá orku sem hér er að finna þó
að við verðum auðvitað að gæta þess
að fara ekki offari í þeim efnum. Við
verðum að nýta á sem bestan og hag-
kvæmastan hátt þau gæði sem landið
býr yfir þannig að við getum átt hér
gott líf og búið í þessu landi. Ég legg
áherslu á að við verðum að beita
skynsemi og jafnvægi og við megum
ekki fara fram með neinu offorsi.“
– Hvernig sérðu framtíð dætra
þinna fyrir þér miðað við stöðu
kvenna í þjóðfélaginu í dag?
„Framtíðin er í þeirra eigin hönd-
um og það er mikilvægt að þær ráði
för og velji sjálfar þá leið sem þær
kjósa að fara í lífinu. Þeir voru ekki
margir sem höfðu trú á þeirri leið
sem ég sjálf valdi á sínum tíma,
nema kannski pabbi sem taldi nám í
vélsmíði ekkert fráleitt. Einhverjir
gárungar veðjuðu líka um að ég ent-
ist ekki í núverandi starfi nema í
þrjá mánuði en árin eru samt orðin
tíu! Ég held því að fólk geti ekki séð
fyrir hvað verður en eins og aðrir
foreldrar reyni ég að opna augu
dætra minna fyrir þeim mögu-
leikum sem þær eiga og kenna þeim
það sem ég get. Að öðru leyti verða
þær að fá að stýra sinni skútu á
þann hátt sem þær sjálfar kjósa. Ég
held hins vegar að það hljóti að
koma að því að staða kvenna batni
og þær muna þá vonandi njóta góðs
af því.“
– Nú hafa ýmsar mælingar sýnt að
konur eru frekar andvígar stóriðju
en karlar. Hvers vegna heldurðu að
það sé?
„Ég held að ein ástæðan sé sú
staðreynd að almennt sjá þær ekki
fyrir sér að greinin bjóði upp á störf
fyrir konur. Tiltölulega fáar konur
sækja sér menntun í fögum sem stór-
iðjan styðst við og því held ég að þær
þekki hana ekki nógu vel. Annars er
erfitt að segja til um það hverjir eru
hlynntir og hverjir andvígir í þessum
efnum því það er ekki endilega rödd
meirihlutans sem heyrist hæst í hinni
opinberu umræðu. Það breytir ekki
þeirri staðreynd að þessi misserin er
mikil umhverfisvakning í þjóðfélag-
inu og málin eru skoðuð með öðrum
hætti en áður. Sú vakning hefur ekki
síður náð til okkar sem störfum í
stóriðjunni en annarra.“
17,4% 19,2%
Sjóður 6*
– aðallistinn
Sjóður 10**
– úrval innlendra hlutabréfa
INNLENDIR HLUTABRÉFASJÓÐIR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
8
1
9
9
Nafnávöxtun árið 2006 skv. www.sjodir.is.
*Verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfa- og fjárfestingasjóði.
**Fjárfestingasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfa- og fjárfestingasjóði.
10 daga ferð
– frábært tilboð!
Sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Kúbuveisla 22. febrúar - 4. mars
frá aðeins kr. 79.990
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábær tilboð í ferð til Kúbu 22. febrúar. Í boði er gist-
ing á vinsælum gististöðum á Varaderoströndinni eða í Havanaborg. Kúba er ævintýri sem lætur engan ósnortinn. Þú kynnist
stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar og þjóð sem er einstök í mörgu tilliti.
Fjölbreyttir gistivalkostir í boði á frábæru verði.
Þú velur hvort þú vilt dvelja í Varadero eða Havana í 10 nætur eða
Havana í 5 nætur og Varadero í 5 nætur.
Fjölbreyttir
valkostir í boði!
Þú sparar
10.000-40.000 kr.
á mann
Kúba
Fyrst kemur
- fyrst fær!
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu í gær til Heimsferða,
Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
10 daga Kúbuveisla
Morgunblaðsáskrifenda
Verðdæmi og valkostir:
Áskr. verð Alm. verð Þú sparar
Varadero 10 nætur - m/morgunverði
Hotel Villa Tortuga **+ 79.990 89.990 -10.000
Varadero 10 nætur - m/allt innifalið
Hotel Villa Tortuga **+ 94.990 112.890 -17.900
Gran Caribe Barlovento ***+ 99.990 120.490 -20.500
Havana 10 nætur - m/morgunverði
Hotel Occidental Miramar **** 89.990 103.490 -13.500
Havana 5 nætur m/morgunverði og Varadero 5 nætur m/allt innifalið
Occidental **** / Villa Tortuga **+ 89.990 109.990 -20.000
Occidental **** / Barlovento ***+ 94.990 116.490 -21.500
Occidental / Barcelo Solymar ****+ 104.990 144.990 -40.000
Allt verð er miðað við
gistingu í tvíbýli.
Innifalið í verði er flug, skattar, gisting (fæði skv. því sem valið er) og fararstjórn.
Sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7