Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 34
tónlist
34 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir nokkrum árum ræddiég við nemendur mínaum nýjasta rekkjunaut-inn. Ég kvaðst hafa notið
samvistanna við hann af þvílíkri
áfergju að minnstu hefði munað að
húsið brynni ofan af mér í jólafrí-
inu. Stæk reykjarsvæla hefði
bundið enda á ánægjustund í rúm-
inu og logandi glampar inni í
þvottahúsi valdið því að ég hringdi
í ofboði í manninn minn í margra
kílómetra fjarlægð og tilkynnti að
kviknað væri í.
Unga fólkinu þótti þetta góð
saga, ekki síst þegar ég sagði því
frá viðbrögðum eiginmannsins,
sem skipaði mér með þjósti að
skvetta á eldinn og kallaði mig síð-
an góðkunningja slökkviliðsins.
Skömmu áður hafði ég nefnilega
kallað út slökkviliðið vegna leka úr
brostinni leiðslu og einkenn-
isklæddir menn könnuðust greini-
lega við ringlaða konu á náttkjól,
sem rokið hafði upp frá ynd-
islegum rekkjunaut til að hafa
símasamband við eiginmanninn og
koma í veg fyrir stórbruna. En
þegar ég sagði krökkunum ná-
kvæm deili á rekkjunautnum létu
þeir sér fátt um finnast og fannst
hann varla hæfa bráðlifandi konu.
Þetta var sem sé Jónas Hall-
grímsson í frábærum búningi Páls
Valssonar en bók hans kom út árið
1999.
Þegar ég kvaddi þennan nem-
endahóp um vorið minntist fulltrúi
hans á rekkjunautinn í ágætri
ræðu og sagði tíma til kominn að
ég fengi mér annan hressari. Svo
var mér afhent bók eftir rithöfund
af yngri kynslóðinni í von um að
hann færi enn betur í rúmi. Eftir
nokkrar tilraunir gafst ég upp á
honum og allmargar bækur hafa
síðan goldið óþolinmæði minnar,
kröfuhörku og samanburðarins við
Jónas og Pál. Um þessi jól fengu
þeir skæðan keppinaut þar sem fer
tvíeykið Matthías Jochumsson og
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir. En
Matthías er miklu þyngri og pláss-
frekari í rúmi og oft gengur mér
illa að hagræða okkur þannig að
stundirnar veiti mér slíka ánægju
sem Jónas þótt vissulega takist
honum stundum að fá mig til að
gleyma stund og stað.
Í þessu skammdegi hef ég haft
mikla gleði af enn öðrum rekkju-
naut og hann hefur fylgt mér út á
land og jafnvel til útlanda. Það er
ljóðskáldið Hannes Pétursson með
nýjustu bókinni sinni. Eiginlega
fer hann best í rúmi af þeim þrem-
ur enda létt í honum pundið þótt
hann gangi stundum nærri mér til-
finningalega. En út frá eftirfarandi
hendingum er ljúft að sofna í tæru
algleymi:
Á heiðskírum nóttum
virtist hljóðlega fetað
af stjörnu á stjörnu-
okkur heyrðist einhver stikla
himingeiminn eins og læk.
Góðir rekkjunautar
HUGSAÐ UPPHÁTT
Guðrún Egilson
Þ
ó að hún sé löngu kom-
in í hóp vinsælustu og
virtustu tónlistar-
manna Bandaríkjanna,
komin með á annan
tug Grammy-verðlauna, er Norah
Jones ekki orðin þrítug. Móðir
hennar var hjúkrunarkona með
mikinn áhuga á tónlist, en faðir
hennar er sítarleikarinn kunni
Ravi Shankar. Shankar kom lítið
við sögu í uppvexti Jones og þegar
hún var sextán ára gömul breytti
hún nafni sínu úr Geethali Norah
Jones Shankar í Norah Jones.
Að því er Jones segir sjálf hafði
faðir hennar engin áhrif á hana
hvað tónlist varðar og hún segist í
raun ekki hafa kynnt sér tónlist
hans fyrr en á síðustu árum. Hún
fékk tónlistaráhugann frá móður
sinni og lærði sem barn að meta
Billie Holiday og Ray Charles, að-
allega Charles, en einnig Hank
Williams, Willie Nelson og fleiri
sveitatónlistarmenn. Fimm ára
gömul fór hún að syngja í kirkju-
kór og sjö ára byrjaði hún að læra
á píanó og stundaði það nám af
miklu kappi.
Óskólaður söngvari
Norah Jones hefur enga sér-
staka skólun í söng, en segist í
spjalli hafa lært söng með því að
hlusta á aðra syngja, aðallega Bil-
lie Holiday, „en svo átti móðir mín
allar plötur sem Ray Charles gaf
út og ég hlustaði mikið á hann“,
segir hún. Sem píanóleikari nýtur
Jones virðingar og hefur sýnt og
sannað að hún er afbragðs
djasspíanisti, þótt ekki sé mikið
um hreinan djass á plötum henn-
ar. Hún hefur þó vakið mesta at-
hygli fyrir söng sinn og má nefna
að hún hlaut tvenn Down Beat-
skólaverðlaun fyrir djasssöng og
lagasmíðar aðeins sautján ára
gömul og önnur slík ári síðar.
Norah Jones ólst upp í Dallas
og nam þar píanóleik og djass-
fræði. Að námi loknu fór hún í
stutta ferð til New York og kunni
svo vel við sig þar, meðal annars
vegna þess að þar hitti hún kær-
asta sinn og helsta samstarfs-
mann, bassaleikarann Lee Alex-
ander. Á næstu mánuðum hafði
hún síðan í sig og á með því að
spila á klúbbum, ýmist ein eða
með lítilli hljómsveit, og söng inn
á plötur. Í október 2000 tók hún
síðan upp prufur af nokkrum lög-
um eftir sjálfa sig og aðra og
sendi til fyrirtækja í von um að fá
plötusamning. Upptökurnar bár-
ust Blue Note-útgáfunni, sem er
eitt þekktasta fyrirtæki heims á
sviði djassútgáfu, og þar á bæ
voru menn fljótir að átta sig –
buðu samning snimmhendis.
Vorið 2001 byrjaði Jones síðan
að taka upp fyrstu plötuna með
dyggri aðstoð Alexanders. Lögin
voru úr ýmsum áttum, sjálf átti
hún þrjú lög á skífunni, Alexander
fjögur og ýmsir sömdu restina, ein
sjö lög. Fjölmargir djassarar
koma við sögu á skífunni og Arif
Mardin, sem var goðsagnakenndur
fyrir vinnu sína með djass-
listamönnum, hafði yfirumsjón
með upptökunum. Þrátt fyrir það
var tónlistin ekki hreinn djass,
frekar djasskryddað popp, en líka
áhrif úr kántrí- og sálartónlist, og
þegar útgáfustjóri Blue Note
heyrði útkomuna var hann ekki
viss um að Blue Note væri rétta
merkið, hann vildi gefa plötuna út
merkta undirmerki Blue Note.
Jones léði ekki máls á því og á
endanum var platan gefin út sem
Blue Note-plata.
Hætti að vera svöl
Fyrsta plata Norah Jones,
Come Away With Me, kom svo út
í febrúar 2002 og fór rólega af
stað. Hún segist hafa verið ánægð
með viðtökurnar framan af og út-
gefandinn hafi líka verið sáttur.
„Þegar ég fór að fást við tónlist,
að spila opinberlega, vildi ég bara
að fólki þætti það svalt sem ég
væri að gera, en þegar eitthvað
verður vinsælt þá er það ekki
lengur svalt. Fyrstu mánuðina eft-
ir að platan kom út kom oft fyrir
að ég hitti fólk sem fannst platan
frábær og mér fannst eins og ég
væri ógeðslega svöl,“ segir hún og
hlær við, „en þegar platan varð
vinsæl hætti ég allt í einu að vera
svöl.“
Come Away With Me spurðist
vel út, svo vel að salan jókst hröð-
um skrefum og haustið 2001 voru
menn hjá Blue Note farnir að átta
sig á því að þeir væru með eitt-
hvað sérstakt í höndunum. Til er
sú saga að vinsældir fyrstu plöt-
unnar hafi gengið svo langt að
Norah hafi beðið útgáfu sína um
að hætta að selja hana, henni hafi
þótt nóg komið. Hún hlær þegar
þetta er rifjað upp og segir að í
sögunni sé sannleiksbroddur.
„Þegar ég heyrði að selst hefðu
af plötunni milljón eintök fór ég til
Blue Note og spurði hvort ekki
væri hægt að draga aðeins úr aug-
lýsingum, við værum þegar búin
að selja mun meira en við bjugg-
umst við – þetta væri eiginlega
orðið gott,“ segir hún og bætir við
að þessari uppástungu hafi ekki
verið vel tekið. „Ég fékk eiginlega
ógeð á sjálfri mér, andlitið á mér
var úti um allt, lögin voru alls
staðar og allir höfðu skoðun á því
sem ég var að gera. Sjálf vissi ég
varla hvað ég vildi, platan var til-
raun og ég var ekki viss um hvort
hún hefði heppnast nógu vel.“
Tíu milljónir í viðbót, takk
Jones segir það hafa verið sitt
lán að hún samdi við Blue Note,
því þar fékk hún að vera í friði
framan af, „en þegar platan fór
yfir milljón eintök tóku menn við
sér hjá móðurfyrirtækinu, EMI,
og vildu selja tíu milljónir í viðbót.
Þá byrjaði sölumennskan fyrir al-
vöru og þó að ég skilji það ósköp
vel, Blue Note er nú einu sinni
plötufyrirtæki, þá hafði það vit-
anlega ákveðin óþægindi í för með
sér“.
Japanski rithöfundurinn Haruki
Murakami lét þau orð falla eitt
sinn að hann hefði verið sáttur við
hlutskipti sitt sem rithöfundur,
seldi nóg af bókum sínum til að
hafa í sig og á, allt þar til hann
sendi frá sér metsölubók – áður
fannst honum sem raunverulegir
aðdáendur sínir væru að kaupa
bækur hans, en þegar hann varð
svo vinsæll velti hann því fyrir sér
hvort þeir sem keyptu hefðu í
raun áhuga á verkunum eða hvort
hann væri bara kominn í tísku.
Jones segir að álíka hafi hvarfl-
að að sér, en ekki megi gleyma því
að hún hafði aldrei kynnst því
hvernig það væri að lifa af tónlist,
hafi aldrei notið vinsælda – „ég
fór beint úr því að vera sveltandi
tónlistarmaður í að verða heims-
þekkt. Ég upplifði það þó alltaf
eins og fólk hefði fallið fyrir tón-
listinni, enda fór platan þannig af
stað, sótti smám saman í sig veðr-
ið þangað til allt fór úr böndunum.
Mér finnst það góð tilfinning að
fólk kunni að meta tónlistina en
vitanlega er fullt af fólki sem
keypti plötuna vegna þess að hún
var í tísku. Vonandi fór það síðan
að hlusta og líkaði það sem það
heyrði.“
Þegar upp var staðið seldust af
Come Away With Me átján milljón
eintök og Jones fékk að auki fimm
Stjarna Norah Jones fór hraðferð upp stjörnuhimininn.
Gefin fyrir
innblástur
Bandaríska söngkonan Norah Jones komst á allra
varir með fyrstu plötu sinni sem varð gríðarvinsæl um
heim allan. Árni Matthíasson ræddi við söngkonuna
sem sagði honum að hún hefði eiginlega fengið nóg af
vinsældunum á sínum tíma, en þriðja breiðskífa henn-
ar kom út í vikunni.
„Ég hlakka mjög til að
geta farið að spila fyrir
fólk og mig langar til að
spila sem víðast, helst
á stöðum sem ég hef
ekki komið til áður, til
að mynda á Íslandi, ég
myndi gjarnan vilja
spila þar.“