Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 37 steyputjöld að sjónlínum og byrgja sýn til hafs og fjalla. Og í stað þess að borgaryfirvöld tækju kósinn á strandlengju iðandi af lífi og með einu og öðru sem minnti á fyrri tíma hefur allt verið burtkústað í anda menningarbyltingarinnar í Kína, og upp risið kuldaleg háhýsi, bensínstöð, verksmiðju- og fyr- irferðamiklar skrifstofubyggingar. En þótt sumar hinar síðastnefndu kunni að vera prýðilegur arkitektúr sést þar ekkert kvikt utan bíla- þvögu, auðn og tóm eftir að skyggja tekur, hér um innfluttan óskapnað að ræða sem hvarvetna i útlandinu er jafnað við mein í borg- arlíkömum. Það hefur löngu farið sam-an, þá í forgrunni er ekkijarðtengdur þroski metn-aður og mannrækt, að auðsöfnun hætti til að bera í far- teski sínu vísi að andlegri fátækt. Hvað á maður svo sem að halda sé litið til kreppuáranna, að þrátt fyr- ir fátæktina risu Háskólinn og Gamli-Garður, Sundhöllin við Bar- ónsstíg, Þjóðleikhúsið, ásamt fjölda steinhúsa sem eru ekki einasta borgarprýði heldur einhver þau sterkbyggðustu og endingarbestu í borgarlandinu. En strax eftir heimsstyrjöldina síðari þegar Ís- land var óforvarandis orðið eitt rík- asta land í Evrópu fór þessum vinnubrögðum hrakandi, vinnusið- ferði annað, auk þess að á fáum ár- um hvarf auðurinn út í veður og vind, honum að stórum hluta skipt út fyrir hismi og hjóm. Og nú þeg- ar við státum af að vera ein ríkasta þjóð í heimi virðist tilfinningin fyrir varanlegum verðmætum, grunnein- ingum hverrar metnaðarfullrar þjóðarheildar, ámóta (van) þroskaður. Viðhald Þjóðleikhússins, einu af stórvirkjum kreppuáranna, þesslegt að til samanburðar er ein- ungis mögulegt að vísa til menning- arsnauðra kotríkja, einræðis- og þriðjaheimslanda. Til viðbótar hafa ómetanleg menningarverðmæti far- ið í súginn fyrir handvömm og ná- nasarsemi hins opinbera, sé eitt- hvað til sýnis er húsnæðið yfir hlutina í skötulíki sbr. Nátt- úrugripasafnið, og Listasafn Ís- lands í dvergslíki og ófært um að sinna hlutverki sínu um rismikla og gagnsæja miðlun íslenskrar mynd- listar. Þrátt fyrir merkilega gott upplag og afburða góða frammistöðu ís- lenskra myndlistarmanna á er- lendri grund lungann af síðustu öld, er minnimáttarkenndin ennþá viðvarandi. Fátt ef nokkuð gert til að viðhalda ímynd þeirra sem gerðu garðinn frægan þannig að svo er komið að þeir eru flestum gleymdir ytra. En ekki gleymist að lyfta undir erlenda listamenn og gera veg þeirra sem mestan og hefur stundum einna helst svip af því að viðkomandi séu í þjónustu áróðursmeistara þeirra ytra. Metn- aðarleysi fjölmiðla á viðgangi sjón- mennta átakanlegt, sem kom glögglega fram við ráðningu nýs safnstjóra við Listasafn Íslands. Staðan auglýst með lítilli klausu sem jafnvel fór framhjá mér, ólæknandi blaðafíklinum, og enginn fjölmiðill sá sér skylt að rekja garnirnar úr umsækjendunum, var líkt sem um harla grunnfærðan við- burð væri að ræða. Hefur þó ómælt vægi að upplýsa hvatir um- sækjenda og væntingar til embætt- isins og sýn þeirra til framtíðar safnsins, sem er sjálfsögð og lýð- ræðisleg þjónusta við almenning. Það með lokað fyrir að hann fengi sett sig inn í málin og myndað sér eigin skoðanir um kandídatana, sem sumir voru alls óþekktir, jafn- vel af innvígðum. Flestir listasögu- fræðingar því miður ósýnilegir á opinberum vettvangi sem ber ekki vitni um tiltakanlegan metnað né áhuga á viðgangi íslenskrar mynd- listar, hvað þá miðlun heimslist- arinnar til hins lítt upplýsta fjölda … Þá hafa neyðarlegar deilur erf- ingja Kjarvals við borgina vakið at- hygli myndlistarmanna, ekki ör- grannt um að þeim þyki kynlega að málum staðið og hyggja mín og annarra að hér beri að fara samn- ingaleiðina. Málið viðkvæmt og mikilvægt að finna viðunnandi lausn. Undarleg staða er kominupp varðandi hin svo-nefndu listalán KBbanka, sem átti að vera þriggja ára tilraunaverkefni. Veit ekki betur en menn séu sammála um að tilraunin hafi gengið upp með miklum bravúr, öllum aðilum til ávinnings, en nú er mörgum spurn hvers konar tilraun þetta hafi verið úr því bankinn hefur dregið sig í hlé. Væri fróðlegt að vita ástæðuna og fá greinargóð svör. Nú eru kosningar til Alþingis í nánd en framar venju setur enginn flokkanna listir og menningarmál sérstaklega á oddinn eins og að hér sé um léttvæga afgangsstærð að ræða. Svo er nú alls ekki raunin annars staðar á Norðurlöndum, hvað þá meðal stórþjóðanna, hér þó einmitt málaflokkur sem hollt væri að sinna og draga þá dám af þeim í útlandinu, helst þeim 100 ef ekki 10 bestu, eða verðum við áfram og um alla framtíð þjóð sjálfumgleði fyr- irhyggjuleysis, fótanuddtækja og flugelda? Og loks ekki úr vegi að líta rétt aðeins til þess, að sá hálfi millj- arður sem skotið var upp í loftið á tveim klukkustundum nú um ára- mótin hefði trúlega dugað til að reisa geymsluhúsnæði undir marg- vísleg menningarverðmæti á hrak- hólum. Umfangsmikið rými sem héldi eldi og brennisteini … D A N S A Ð U ! S TA TT U Ú TI ÍH O R N I Hallur Guðjónsson, Cand. Psych. Sálfræðingur Tímapantanir í síma 822 7208 eða á hallur@hallur.is Sálfræðiþjónusta Skúlatúni 6, 105 Reykjavík Veitum ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga og pör vegna margvíslegra erfiðleika s.s. þunglyndis, kvíða, streitu, depurðar og kynlífsvandamála. Veitum einnig áfallahjálp skv. ICISF ( International criticl incident stress foundation) Cecilia Steinsen Hallur Guðjónsson Cecilia Steinsen, Cand. Psych. Sálfræðingur. Tímapantanir í síma 866 4943 eða á cecilia@salarlif.is MINNEAPOLIS – ST. PAUL ORLANDO BOSTON HALIFAX GLASGOW LONDON STOKKHÓLMUR HELSINKI KAUPMANNAHÖFN OSLÓ BERLÍN FRANKFURT MÜNCHEN MÍLANÓ AMSTERDAM BARCELONA MANCHESTER PARÍS NEW YORK BALTIMORE – WASHINGTON REYKJAVÍK ÍSLAND BERGEN GAUTABORG STYRKIR VERÐA VEITTIR TIL BARNA Á ALDRINUM 6-16 ÁRA Ferðasjóður Vildarbarna er sameiginlegt átak Icelandair og viðskiptavina félagsins til að gera langveikum börnum og fjölskyldum þeirra, og börnum sem búa við sérstakar aðstæður vegna veikinda, kleift að ferðast. Ferðasjóður Vildarbarna hefur gert yfir 100 börnum og fjölskyldum þeirra kleift að fara í ógleymanlega og uppbyggjandi fjölskylduferð. Landsbankinn annast fjárhald sjóðsins. Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir. Umsóknarfresturinn er til 1. mars 2007. Úthlutað verður úr sjóðnum sumardaginn fyrsta 19. apríl 2007. + Umsóknareyðublöð eru á www.vildarborn.is UMSÓKNIR UM FERÐASTYRKI VILDARBARNA ICELANDAIR ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 58 99 0 1 /0 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.