Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 38

Morgunblaðið - 28.01.2007, Page 38
38 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ 100 ÁRA JAFNRÉTTISBARÁTTA Kvenréttindafélag Íslands fagn-aði í gær, laugardag, 100 áraafmæli. Að öðrum frumkvöðl- um, sem stóðu að stofnun þess, ólöst- uðum átti Bríet Bjarnhéðinsdóttir þar stærstan hlut að máli. Í fyrirlestri, sem Bríet hélt árið 1887 og markaði þá mikil tímamót, sagði hún: „En konurnar eru frá fæðingunni ákvarðaðar til sinna vissu starfa, sem kölluð hafa verið kvennaverk, hvort sem þeim mundu láta þau vel eða illa. Drengirnir hafa átt að verða menn, sem gætu orðið færir um að ryðja sér sjálfir braut til gæfu og gengis. En stúlkurnar hafa átt að verða konur, sem hefðu sinn takmarkaða verka- hring í búri og eldhúsi. Það er að segja: verur, sem stæðu skör lægra í öllu til- liti, sem ekki hefðu annað takmark í lífinu en að snúast í kringum karl- mennina og gjöra þeim lífið sem þægi- legast, og sem ættu að gefa sig með lífi og sál einungis að þessu ætlunarverki. Þær ættu að eiga góða daga, ef feður þeirra og eiginmenn leyfðu, en hefðu þó engan rétt til að fá sama uppeldi og lifa sama lífi og bræðurnir. Þær þyrftu ekki og ættu ekki að hugsa um annað en búið og börnin, það væri hið eina, sem þeim kæmi við.“ Á fyrstu árum Kvenréttindafélags- ins fengu konur miklu áorkað í jafn- réttisbaráttunni. Baráttan fyrir kven- frelsi fór í raun saman við baráttu þjóðarinnar fyrir frelsi sínu og sjálf- stæði. Á þessum árum, þegar Ísland hafði nýlega fengið heimastjórn, voru samþykkt lög, sem þá voru einsdæmi í heiminum og fólu í sér fyrirvaralaust jafnrétti kvenna og karla til menntun- ar og allra opinberra embætta. Sama ár, 1911, samþykkti Alþingi lög um kosningarétt kvenna en hann hlaut ekki staðfestingu konungs fyrr en fjór- um árum síðar. Stór skref voru þannig stigin í upp- hafi, ekki sízt að tilstuðlan Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, sem tókst að gera bandalag við fyrsta íslenzka ráð- herrann, Hannes Hafstein. Næstu ára- tugina hvarf formlegt misrétti kvenna og karla. Þótt lagaleg staða kynjanna sé nú jöfn, blasir það við alls staðar í sam- félagi okkar að langt er í land að ná fullu jafnrétti. Vissulega er staða kvenna í dag allt önnur en hún var árið 1907. Konur sækja sér í dag frekar háskólamennt- un en karlar. Atvinnuþátttaka kvenna er óvíða meiri en á Íslandi. Í alþjóð- legum samanburði standa íslenzkar konur alla jafna vel. Ennþá búum við þó við þann raun- veruleika, að örfáar konur eru í æðstu stjórnunarstöðum samfélagsins, sem veita mest áhrif á þróun þess. Þetta á alveg sérstaklega við í atvinnulífinu, en líka í stjórnsýslunni og á Alþingi og í sveitarstjórnum. Konur hafa lægri laun en karlar og eru oft í stöðu hins undirokaða; fórnarlömb heimilisof- beldis og kynferðisofbeldis. Frumkvöðlarnir, sem stofnuðu Kvenréttindafélag Íslands árið 1907 sáu alveg áreiðanlega fyrir sér að kon- ur og karlar myndu hafa sömu áhrif og völd í samfélaginu, eiga jafnan þátt í mótun þess og þróun. Vafalaust áttuðu þær sig á að það tæki tíma. En eru hundrað ár ekki of langur tími? Margar konur eru í dag í þeirri stöðu að „ryðja sér sjálfar braut til gæfu og gengis.“ En ennþá höfum við þó ekki losnað við þann hugsunarhátt, að konur eigi að hugsa um bú og börn. Ennþá bera konur meginábyrgðina heima við, jafnvel þótt þær vinni líka fulla vinnu á vinnumarkaðnum. Karlar hafa ekki axlað sína ábyrgð á þeim vettvangi, þótt konur hafi tekizt á hendur ný verkefni utan heimilisins. Sennilega liggur meginveikleiki jafnréttisbaráttunnar undanfarin 100 ár í því, að karlar hafa ekki litið á hana sem sína baráttu. Það er hins vegar að breytast. Og það er lykillinn að því að ljúka því starfi, sem stofnendur Kven- réttindafélags Íslands hófu, að bæði kyn taki höndum saman um að ná raunverulegu jafnrétti. Í slenzka bankaævintýrið heldur áfram. Það varð ljóst í gær, föstudag, þegar af- komutölur Landsbanka Íslands voru kynntar í London og í ljós kom, að hagnaður bankans á síðasta ári var langt umfram það, sem búizt hafði verið við, eða um 40 milljarðar króna. Þegar horft er að auki til blómlegrar starfsemi Kaupþings banka og Glitnis fer tæpast á milli mála, að fjármálastarfsemi er orðin veigamikill þáttur í þjóðarbúskap okkar Íslendinga og þar að auki alþjóðleg. Fyrir nokkrum áratugum voru til bjartsýnis- menn á Íslandi, sem héldu því fram, að þetta gæti gerzt, en fáir hlustuðu á þá. Nú er þetta orðin óumdeild staðreynd. Það fer heldur ekki á milli mála, að hér er um að ræða beinan árangur af einkavæðingu rík- isbankanna. Hún hefur augljóslega leyst úr læð- ingi þá krafta, sem ekki var hægt að sjá fyrir þegar þær ákvarðanir voru teknar. Gífurlegur uppgangur bankanna hefur vakið þá spurningu meðal almennings, hvort ríkisbank- arnir hafi verið seldir á of lágu verði. En á móti má spyrja: hver gat séð fyrir þann ótrúlega upp- gang, sem síðan hefur orðið hjá bönkunum? Sjálfstraust bankanna beið nokkurn hnekki snemma á síðasta ári, þegar álitsgerðir greining- ardeilda erlendra fjármálafyrirtækja streymdu að úr öllum áttum með neikvæðum umsögnum. En tæpast fer lengur á milli mála, að bankarnir hafa unnið vel úr þeim vandamálum, þeir hafa lært af reynslunni og sennilega hefur sú ágjöf orðið þeim til góðs, þegar horft er fram á veg. Íslenzku bankarnir eru orðnir alþjóðlegir í þeim skilningi, að starfsemi þeirra nær nú til margra landa og margra heimsálfa. Það hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir nokkrum áratug- um. En með því er tryggt, að þótt bakslag komi í þann efnahagslega uppgang, sem hér hefur ríkt, þarf það ekki að koma niður á starfsemi bank- anna, svo nokkru nemi. Þegar nokkuð skýr mynd var að birtast af vel- gengni bankanna höfðu margir áhyggjur af því, að þeir yrðu eins konar kjarni í blokkarmyndun í íslenzku viðskiptalífi og fyrirtækin fylgihnettir þeirra. Smátt og smátt hefur það gerzt, að fjár- málafyrirtækjum hefur fjölgað, og þótt marg- vísleg tengsl séu á milli þeirra gerir þessi fjölgun það að verkum, að sviðið hefur stækkað og þar eru fleiri leikendur á ferð en fyrir nokkrum miss- erum. Þetta er jákvæð þróun alveg með sama hætti og það er jákvætt, að stórum og öflugum fyrirtækjum hefur fjölgað þannig að völd og áhrif í viðskiptalífinu eru ekki á jafn fárra höndum og fyrir nokkrum misserum. Hið sama gerðist á öðrum sviðum viðskiptalífs- ins undir lok síðustu aldar og var þá um það fjallað hér á þessum vettvangi. Útrás íslenzku fyrirtækjanna, sem Ragnar Kjartansson, þá stjórnarformaður Hafskips, gerði fyrst að umtalsefni á skipulegan hátt fyrir aldarfjórðungi eða svo er orðin að veruleika ekki bara af hálfu stórra íslenzkra fyrirtækja heldur fjölgar stöðugt þeim millistóru fyrirtækjum, sem leita fyrir sér á erlendum vettvangi með býsna góðum árangri. Áður var það verkefni ríkisstjórnar og Alþingis að leita leiða til að skjóta fleiri stoðum undir af- komu þjóðarbúsins, sem fyrst var gert með samningum um byggingu álversins í Straumsvík. Nú hefur einkareksturinn tekið við þessu hlut- verki og hver tekur í sínu horni ákvarðanir, sem í raun þýða að afkoma þjóðarbúskapar okkar hvílir á fleiri stoðum en áður. Það er liðin tíð að verð- lækkun á frystum fiski á Bandaríkjamarkaði geti valdið kreppu á Íslandi eins og gerðist upp úr miðjum Viðreisnaráratugnum. Allt er þetta jákvæð þróun, þótt vaxtarverk- irnir hafi stundum verið miklir og raunar ekki við öðru að búast. Á síðasta ári opnuðust augu manna fyrir því, að íslenzku bankarnir höfðu fjármagnað sig að um- talsverðu leyti með lánum, sem tekin voru á al- þjóðamörkuðum til stutts tíma, og þurfti þá ekki lengur að spyrja hvaðan peningarnir komu en það var helzta spurning erlendra fjölmiðlamanna, sem hingað komu. En nú hefur það gerzt að Landsbankinn hefur náð ótrúlegum árangri í uppbyggingu innlána í Bretlandi. Raunar fer ekki á milli mála, að sú þróun hefur komið forráðamönnum bankans sjálfs mjög á óvart. Aukning á innlánum bankans á árinu 2006 varð yfir 100% og kom fyrst og fremst fram á þremur síðustu mánuðum ársins í Bretlandi. Þar streymdu 100 milljarðar inn á inn- lánsreikninga í bankanum á svo stuttum tíma. Það er merkileg þróun sem jafnframt veldur því að bankinn er ekki jafn háður lántökum á alþjóð- legum fjármálamörkuðum og áður. Það hlýtur að vera áhugavert rannsóknarefni fyrir markaðs- menn að finna út úr því hver er rótin að þessum mikla árangri í innlánum. Krónur og evrur F yrir nokkru var skýrt frá því, að fjárfestingarbankinn Straumur- Burðarás mundi framvegis gera reikninga sína upp í evrum og í kjölfarið fór af stað orðasveimur um, að Kaupþing banki mundi gera slíkt hið sama. Í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur, sem birtist á forsíðu Morgunblaðs- ins í dag, laugardag, er fjallað um álitamálin í þessu sambandi. Í þeim miklu umræðum, sem fram fóru fyrir ári um íslenzku bankana og stöðu þeirra, kom fram, að þeir fengju betra lánshæfismat en ella og þar með betri kjör á alþjóðlegum lánamörk- uðum vegna þess, að greiningardeildir erlendu fjármálafyrirtækjanna gengju út frá því sem vísu, að íslenzka ríkið mundi koma þeim til hjálpar ef á bjátaði. Og raunar ástæða til að ætla, að það hafi komið til alvarlegrar umræðu sl. vor, þegar verst lét. Fulltrúar íslenzka ríkisins hafa aldrei sagt það beinum orðum við fulltrúa greiningardeilda er- lendu fjármálafyrirtækjanna að slík aðstoð yrði veitt ef á þyrfti að halda. Hins vegar hafa þeir tal- að á þann veg, að skilja mátti að það yrði gert. Ef íslenzku bankarnir færðu reikningsskil sín yfir í evrur má spyrja, hvort slík vísbending yrði áfram til staðar. Telja má nokkuð víst, að svo yrði ekki, og alls ekki ef bankarnir allir eða einhver þeirra tækju ákvörðun um að flytja sig af landi brott eins og raddir hafa heyrzt um að gæti gerzt. Af þeim sökum gæti lánshæfismat þess banka, sem færði sig yfir í evrur, lækkað og þar með lánakjör hans á alþjóðlegum fjármálamörkuðum Laugardagur 27. janúar Reykjavíkur Skóli Skuggamyndir úr Flensborgarskóla í Hafna 30. janúar 1977: „Þar að auki er reynslan auðvitað sú, að einokun, hvort sem hún er hjá samvinnufyrirtæki, einkafyr- irtæki eða ríkisfyrirtæki, er öllum til bölvunar. Svo til al- ger einokun samvinnuhreyf- ingarinnar á gærum hefur t.d. á síðustu mánuðum leitt til harðra deilna og yfirvofandi hættu á lokun einkafyrirtækis á Sauðárkróki. Sú deila virð- ist nú að nokkru leyst en sýnir þó hver hætta er fólgin í ein- okun af þessu tagi. Stuðnings- menn einkaframtaks hljóta einnig að gera sér grein fyrir því, að einstök einkafyrirtæki í landinu eru komin í þá stöðu á sínu starfssviði að frjálsri samkeppni getur stafað hætta af. Það er fyllsta ástæða til þess fyrir stuðningsmenn einkaframtaks og frjálsrar samkeppni að huga vel að sín- um málum. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur jafnan verið og mun verða helzta brjóstvörn hins frjálsa framtaks í land- inu. Það er nauðsynlegt fyrir forystusveit Sjálfstæð- isflokksins og ráðherra að huga vel að þessum grund- vallarþætti í samfélagi okk- ar.“ . . . . . . . . . . 25. janúar 1987: „Samtíminn krefst þess af stjórn- málaflokkum, að þeir byggi mjög á foringjum sínum í kosningaslag. Flokks- formaður án öflugra sam- starfsmanna og bar- áttusveitar má sín hins vegar lítils, þegar að því kemur að fást við hin daglegu viðfangs- efni stjórnmálamanna. Þótt nauðsynlegt sé að hafa sterk- an foringja, er hitt jafn vara- samt fyrir stjórnmálaflokk að eiga ekkert annað en sterkan foringja. Jón Baldvin Hanni- balsson áttaði sig á hættulegri stöðu sinni að þessu leyti og kallaði með aðstoð Gylfa Þ. Gíslasonar á Jón Sigurðsson, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, í efsta sæti listans í Reykja- vík. Þar með sameinuðust þeir ættbogar, sem hafa sett svip sinn á Alþýðuflokkinn og klofning innan hans í hálfa öld. Er opinskátt rætt um Jón Sigurðsson sem arftaka Jóns Baldvins á formannsstóli í flokknum. Jón Sigurðsson segist að vísu ekki sjálfkjör- inn til neins eftir að hann var sjálfkjörinn í prófkjöri Al- þýðuflokksins.“ . . . . . . . . . . 26. janúar 1997: „Ef miðað er við ummæli, sem Morg- unblaðið hafði í gær eftir Halldóri Björnssyni, for- manni Dagsbrúnar, er erfitt að festa hendur á því, sem um er að ræða. Í frásögn af sam- tali við formann Dagsbrúnar segir m.a.: „Aðspurður hvað felist í kröfum Dagsbrúnar um aðlögun taxta að greidd- um launum, sagði Halldór Björnsson, formaður Dags- brúnar að þar væru menn að tala um að skoða þá leið, að taka ýmsar sporslur inn í kaupið. „Það getur allt komið til greina í því sambandi nema vaktaálag eða vakta- skiptagjöld. Það er vonlaust að það gæti gengið,“ sagði hann.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.