Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UMRÆÐA um staðsetningu happ-
drættisvéla eða spilakassa eins og þeir
eru venjulega kallaðir hefur verið fyr-
irferðarmikil upp á síðkastið og sýnist
sitt hverjum. Málið er viðkvæmt bæði
vegna þess að mann-
úðarstarf af ýmsum
toga er fjármagnað með
tekjum af spilakössum
og líka vegna þess að
með lagasetningu árið
2005 var kveðið á um að
einungis þeim sem náð
hafa 18 ára aldri er
heimilt að spila pen-
ingaspil. Reyndar gildir
þetta aldurstakmark
ekki um öll peningaspil.
Eldri lög og reglugerðir
sem settar hafa verið
t.d. um flokkahapp-
drætti fela ekki í sér að viðkomandi
þurfi að vera orðinn 18 ára til að mega
spila. Enn önnur ástæða þess að málið
er eldfimt er að niðurstöður rann-
sókna gefa vísbendingar um að sá
hópur sem stundar það að spila viku-
lega og daglega virðist fara stækk-
andi. Telja má að þeir sem spila pen-
ingaspil daglega eða oft á dag tilheyri
þeim hópi sem misst hefur tökin á
þessu atferli og hefur ánetjast pen-
ingaspilum.
Í þessari umræðu hefur athygli
manna beinst helst að spilakössum
fremur en öðrum tegundum af pen-
ingaspilum ekki síst vegna þess að
þeim hefur fjölgað mikið á síðustu
tveimur árum. Ekki er hægt að full-
yrða að ein tegund peningaspila sé
skaðlegri en önnur. Hitt er annað að
spilakassar laða spilendur sérstaklega
að vegna þess áreitis sem þeir fram-
kalla. Ánetjunaráhrif spilakassanna
eru því talin vera meiri en t.a.m. ánetj-
unaráhrif skafmiða eða lottós. Annar
vettvangur peningaspila er Netið.
Flest ungmenni nú til dags hafa að-
gang að Netinu. Ekki er gott að henda
reiður á hve stór hópur ungmenna
hefur ánetjast peningaspilum á Net-
inu s.s. netpóker. Flest-
ar rannsóknir sýna að
drengir eru í miklum
meirihluta þeirra sem
spila peningaspil. Vís-
bendingar eru einnig
um að tengsl séu á milli
spilafíknar og þeirra
sem hafa verið greindir
með ofvirkni og athygl-
isbrest.
Á meðan ýmsar aðrar
þjóðir eru að berjast
gegn því að pen-
ingaspilamennska auk-
ist virðist sem þessi iðja
fari ört vaxandi hér á Íslandi. Norð-
menn hafa t.d. gengið svo langt að
banna spilakassa frá og með 1. júlí
2007. Eins og málum er háttað hér á
landi er um að ræða löglega starfsemi,
iðju sem veltir gríðarlegu fé. Æskilegt
er að almenningur sé ávallt upplýstur
um skiptingu á gróða þessara fyr-
irtækja á hverjum tíma.
Þar sem þessi iðja virðist eins og
sakir standa vera komin til að vera er
mikilvægt að hugmyndafræðin að
baki peningaspilamennsku á Íslandi
sé fullkomlega ábyrg. Til að svo megi
vera þarf a.m.k. þrennt að koma til.
1. Samræming laga og reglugerða
sem kveða á um að aldurstakmark til
að spila peningaspil sé 18 ára.
2. Að spilasalir séu í lokuðu rými og
að þangað leggi leið sína einungis þeir
sem náð hafa 18 ára aldri.
3. Að spilakössum sé valinn staður
fjarri íbúðarhverfum og öðrum fjöl-
skyldukjörnum.
Það er vissulega hverjum full-
orðnum einstaklingi í sjálfsvald sett
hvort hann spilar peningaspil, hvort
sem það eru spilakassar eða einhver
önnur tegund peningaspila. Gera má
ráð fyrir því að ákveðinn hópur stundi
þessa iðju með ábyrgum hætti sér til
gamans endrum og eins. Pen-
ingaspilamennska er hins vegar ekki
og getur aldrei orðið fjölskyldu-
skemmtun.
Hver á að fjármagna meðferð-
arúrræði fyrir spilafíkla?
Eins og önnur upplýst vestræn
samfélög höfum við samfélagslega
ábyrgð gagnvart spilafíklum eins og
öðrum þeim sem af einhverjum orsök-
um missa tökin í lífinu.
Meðferðarstöðvar kosta fé. Ég tel
að það sé bæði rökrétt og réttlæt-
anlegt að tekið verði gjald af rekstr-
araðilum peningaspila, fyrirtækjunum
Háspennu og Íslandsspilum, sem not-
að verði í fræðilegar rannsókir á þess-
um málaflokki og til að reka meðferð-
arprógramm fyrir þá sem haldnir eru
spilafíkn. Slíkt fordæmi fyrirfinnst nú
þegar í nágrannalöndunum.
Íslandsspil og Háspenna standi
straum af meðferð spilafíkla
Kolbrún Baldursdóttir fjallar
um spilafíkn og meðferð-
arúrræði
»Eins og önnur upp-lýst vestræn sam-
félög höfum við sam-
félagslega ábyrgð
gagnvart spilafíklum
eins og öðrum þeim sem
af einhverjum orsökum
missa tökin í lífinu.
Kolbrún Baldursdóttir
Höfundur er sálfræðingur.
Formúla-1 | Fótbolti | Golf | Handbolti | Körfubolti | Úrslitaþjónustan | Fréttir vikunar | SMS þjónusta
Áfram Ísland!
Fréttirnar • Úrslitin • Næstu leikir • Riðlarnir • Staðan
Fylgstu með HM á mbl.is!
Allt sem þú vilt vita um HM í handbolta í Þýskalandi er á mbl.is.
Blaðamenn á staðnum flytja þér fréttir af keppninni jafnóðum
og þær gerast ásamt viðtölum við landsliðsmenn og þjálfara.
Fylgstu með á mbl.is og styddu strákana.
Íþróttir
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Sími 533 4040
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl.,
OPIÐ HÚS í dag, sunnud., kl. 15-17
SKELJAGRANDI 6 - 107 REYKJAVÍK
Sérhæð í litlu fjölbýlis-
húsi ásamt stæði í bíla-
geymsluhúsi. Mjög rúm-
góð íbúð á efri hæð til
vinstri. Stærð 106,8 fm.
Einnig geymsla í kjallara
17,0 fm og stæði í bíla-
geymslu 30,9 fm. Eignin
er alls 154,7 fm auk
mikillar sameignar.
Sérinngangur. Gott ástand, mikið endurnýjuð eign.
Verð 29,0 millj.
Kristín tekur á móti áhugasömum í dag milli kl. 15 - 17.
lögg. fasteignasali
Kristinn Valur Wiium sölum., s. 896 6913 - Ólafur Guðmundsson sölustjóri, s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Hraunhamar fasteignasala kynnir
glæsilega, vel skipulagða 104,7 fm
íbúð á frábærum útsýnisstað í 4ra
íbúða húsi við Kríuás 3 í Áslands-
hverfi í Hafnarfirði. Íbúðin er með
sérinngangi og er smekklega innrétt-
uð með vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Eignin skiptist í forstofu,
gang, eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, barnaherbergi, hjónaherbergi,
baðherbergi og þvottahús/geymslu. Parket og flísar. Gólfhiti á baði og í for-
stofu. Fallegur afgirtur sólpallur. Glæsileg eign. Verð 27,4 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, sími 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kríuás - Hf.
Hraunhamar fasteignasala kynnir
mjög glæsilega 96 fm 3ja herb. íbúð
með sérinngangi, vel staðsett í Laxa-
lind í Kópavogi. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, stofu, borðstofu, tvö
herbergi, þvottahús, eldhús, bað-
herbergi og geymslu. Fallegar inn-
réttingar og gólfefni eru parket og
flísar. Góð afgirt verönd. Verð 25,9 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, sími 896-0058.
Laxalind - Kóp. - Laus strax
Hraunhamar fasteignasala kynnir
mjög fallega, rúmgóða 115 fm íbúð
á 1. hæð (jarðhæð) auk 20,5 fm bíl-
skýlis í góðu klasahúsi, vel staðsett
á frábærum útsýnisstað við Sjávar-
grund í Garðabæ. Eignin er með sér
inngangi og skiptist í forstofu, hol,
eldhús, stofu, setustofu, baðher-
bergi, tvö barnaherbergi og hjónaherbergi. Í kjallara er sjónvarpshol, þvotta-
hús, geymsla og bílageymsla. Fallegar innréttingar og gólfefni. Glæsilegt út-
sýni. Frábær staðsetning. Verð 28,8 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, sími 896 0058.
Sjávargrund - Hf.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn