Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 44
44 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf
til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2,
110 Reykjavík
Bréf til blaðsins | mbl.is
UMHVERFISVERND í Hafn-
arfirði hefur nokkuð verið til um-
fjöllunar undanfarið vegna vænt-
anlegrar stækkunar álvers Alcan
við Straumsvík og virðist sem ein-
hverjir setji sig á móti stækkun
vegna umhverfisáhrifa stækkunar-
innar. Þótt þau rök haldi varla er
ástæða til að fagna því að fólk sé
farið að velta þessum hlutum fyrir
sér. En, Hafnfirðingar: lítum okkur
nær, árum saman hefur undirrit-
aður barist fyrir því að auka vægi
umhverfisverndar við hvers kyns
framkvæmdir eða aðgerðir sem
upphugsaðar hafa verið en nánast
staðið einn í þeirri baráttu. Vissu-
lega hefur ákveðinn árangur náðst,
svo sem með stækkun friðlands við
Ástjörn, en áhuga- og kjarkleysi
bæjaryfirvalda við að halda settar
reglur þar mun rýra gildi friðunar-
innar til muna. Hvaleyrarlón heldur
enn, en þar hefur áhugaleysi einnig
haft áhrif sem uppfyllingar og
íbúðabyggingar innan „þynning-
armarka“ bera glöggt merki um.
Svo virðist sem eftirlit efnistök-
unáma sé komið í ágætt horf eftir
áralanga óreglu og er þakkarvert,
hins vegar er hvergi að finna neitt
um skógrækt. Hvar má planta
trjám og hvar skal mólendi fá að
halda sér?
Að lokum skal nefnt hér að bæj-
aryfirvöld virðast ætla að taka þátt
í herferð gegn sílamáfum með ná-
grannasveitarfélögunum, sem er
einhver vitlausasta aðgerð sem
upphugsuð hefur verið, ekki bara
óþörf heldur og rasismi af verstu
gerð.
Varðandi stækkun álversins við
Straumsvík virðast menn þó hafa
fleiri sjónarmið til hliðsjónar þegar
lagst er gegn stækkun, og ráði þar
fremur hvort viðkomandi eigi eitt-
hvað undir hagsveiflunni eða sé
áskrifandi að afkomu sinni. Þess
vegna hefði verið eðlilegast að yf-
irvöld afgreiddu þetta mál sem
önnur sem þeim ber að afgreiða.
Einnig virðist framkoma Alcan við
starfsmenn sína til margra ára
vega nokkuð til andstöðu við fyr-
irtækið og síðan er nokkuð um að
fólk sé á móti þeim stóra og sterka
og noti hvert tækifæri sem gefst til
að klekkja á slíkum.
Sem ég hef nefnt er nóg af mál-
um að sinna fyrir áhugafólk um
umhverfismál í Hafnarfirði og vant-
ar uppá að þrýstingur á yfirvöld sé
nægur, áhugaleysi umhverf-
isnefndar fyrir náttúruvernd vegur
þar mikið.
Að framsögðu vil að Lúðvík og
Rannveig haldi stöðum sínum frem-
ur en leita á ný mið, og ætla ég því
að segja „já“ við stækkun en „nei“
við andvaraleysi stjórnvalda gagn-
vart náttúruspjöllum.
ÓLAFUR TORFASON
áhugamaður um umhverfismál,
Álfholti 34b, Hafnarfirði.
Umhverf-
isvernd
í Hafnar-
firði
Frá Ólafi Árna Torfasyni:
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Fréttir á SMS
Kæru Seltirningar
Við hjá DP FASTEIGNUM höfum verið beðin um að finna rað-, par-
eða einbýlishús fyrir ákveðinn kaupanda á Seltjarnarnesi. Húsið þarf
að hafa að lágmarki 6 svefnherbergi. Um er að ræða
rúman afhendingartíma og/eða möguleika á skipti á
minni eign á Seltjarnarnesi.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ólafur Finnbogason sölumaður í síma 822 2307
eða á skrifstofu DP FASTEIGNA í síma 561 7765.
RAÐ- PAR- EÐA EINBÝLI ÓSKAST
Dögg Pálsdóttir hrl. lögg. fast.sali ● Þýri Steingrímsdóttir lögg. fast.sali
Andri Sigurðsson sölustjói ● Ólafur Finnbogas sölumaður
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
BIRKIGRUND - GLÆSILEGT
Glæsilegt tvílyft 310 fm einbýli við Birki-
grund í Kópavogi ásamt tvöföldum alvöru
bílskúr. Eignin skiptist m.a. í tvær for-
stofur, hol, íbúðarherbergi, baðherbergi,
sólskála, stofu, borðstofu, þrjú herbergi
og tvö baðherbergi á efri hæðinni.
Vönduð eign sem mikið hefur verið lagt í.
Eignin stendur á skjólsælum stað Foss-
vogsmegin í Kópavoginum. Vönduð eign
á eftirsóttum stað. Sérlega stór bílskúr. V.
59,7 m. 6195
DVERGHAMRAR - SÉRINNGANGUR
Snyrtileg 3ja herbergja neðri sérhæð með
sérverönd og sérinngangi. Íbúðin skiptist
í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnher-
bergi, baðherbergi og geymslu/þvotta-
hús. Gróinn garður og húsið er snyrtilegt.
Þak og þakkantur var málað sumarið
2006. V. 23,3 m. 6404
NAUSTAHLEIN - ENDARAÐHÚS VIÐ DAS
Fallegt og rúmgott endaraðhús fyrir eldri
borgara rétt við DAS í Hafnarfirði. Húsið
skiptist í forstofu, þvottaherbergi og
geymslu, baðherbergi, stórt svefnher-
bergi, stórar stofur, borðkrók, sólstofu og
eldhús. Eignin er sérlega rúmgóð með
snyrtilegri lóð í fallegri götu. V. 26,3 m.
6405
SUÐURHVAMMUR - 3JA MEÐ BÍLSKÚR
Mjög falleg 3ja herbergja íbúð í fjölbýlis-
húsi við Suðurhvamm í Hafnarfirði. Sam-
eiginlegur inngangur. Íbúðin skiptist
þannig: Stór stofa, tvö herbergi, eldhús,
baðherbergi, hol og forstofa. Sérgeymsla
fylgir í kjallara. Þvottahús innan íbúðar.
Góður bílskúr fylgir íbúðinni, V. 23,5 m.
4807
LAUFENGI - LÍTIÐ FJÖLBÝLI
3ja herbergja falleg og björt 80 fm íbúð á
2. hæð í 3ja hæða blokk. Íbúðin er með
glugga til suðurs, vesturs og norðurs. Hún
skiptist í n.k. forstofu, hol, sérgeymslu, tvö
svefnherbergi, stofu og rúmgott baðh.
sem er með lögn fyrir þvottavél og þurrk-
ara. V. 17,9 m. 6407
ÁSHOLT - MIÐBÆR
Mjög fallegt 130 fm tvílyft raðhús auk
stæðis í bílageymslu í mjög eftirsóttu húsi
með sérlega fallegum garði. Eignin skipt-
ist m.a. í forstofu, snyrtingu, hol, eldhús,
stofu/borðstofu, sjónvarpshol, þrjú her-
bergi og baðherbergi. V. 37,5 m. 6077
BÓLSTAÐARHLÍÐ - HÆÐ OG RIS ÁSAMT BÍLSK.
Einstaklega vel staðsett og rúmgóð eign
sem telst vera efri hæð og ris, u.þ.b. 160
fm ásamt bílskúr. Hæðin skiptist í þrjár
stofur, hol, tvö svefnherbergi, baðher-
bergi og eldhús. Í risi eru þrjú stór her-
bergi, eitt lítið herbergi, snyrting og
geymsla. Í kjallara er lítil geymsla og gott
sameiginlegt þvottaherbergi. V. 42,5 m.
6397
HOLTSGATA - VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ
Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 2.
hæð, íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðher-
bergi, svefnherbergi og stofu. Góð íbúð á
góðum stað í vesturbæ Reykjavíkur. V.
14,9 m. 6403
VEGHÚS - STÓR ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR
Mjög falleg og björt 6-7 herbergja íbúð á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum bíl-
skúr. Íbúðin skiptist í forstofu, baðher-
bergi, 5 svefnherbergi, eldhús og 2 stof-
ur. V. 32,9 m. 6412
HVERFISGATA - ÚTSÝNI
3ja-4ra herb. 72 fm íbúð á 5. hæð sem
mikið hefur verið endurnýjuð. Íbúðin
skiptist í hol, hjónaherbergi, stofu, barna-
herbergi og stórt eldhús með stórum
borðkrók. V. 18,9 m. 6400
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Opið hús í dag
Þorragata 7, 2. hæð
Sýnum í dag mjög bjarta og
rúmgóða 3ja herbergja 102 fm íbúð
á 2. hæð ásamt 6,5 fm geymslu.
Íbúðinni fylgja tvö merkt bílastæði í
opnu bílskýli ásamt útigeymslu rétt
við bílastæðin. Húsið er byggt fyrir
63 ára og eldri (undantekningar hafa
þó verið gerðar). Íbúðin skiptist í
anddyri, baðherbergi, gott svefnher-
bergi, eldhús, plássmiklar stofur og
innaf aðalstofu er sjónvarpsstofa
sem getur nýst sem herbergi. Þvottahús innan íbúðar. Ca 14 fm
suðursvalir með útsýni yfir Skerjafjörðinn og víðar. Parket á flestum
gólfum. Húsvörður sér um daglegan rekstur hússins. Hlutdeild í aukaíbúð
fylgir þessari íbúð sem er í sameiginlegri eigu allra íbúa hússins.
Verð 41,4 millj. Íbúðin er til afhendingar strax.
Ólafur B Blöndal frá fasteign.is gsm 6 900 811 og Agnar Johnson
sýna íbúðina í dag á milli kl. 13 og 15. Bjalla merkt 202
Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 15:00 - 17:00
Mjög björt og mikið endurnýjuð 130 fm. sérhæð á sjávarlóð með frábæru út-
sýni ásamt 27 fm. bílskúr, samtals 157 fm. Komið inn í sameiginlegan inn-
gang með rishæðinni en einnig er sérinngangur á austuhlið hússins, linolineum
dúkur á forstofum og fatahengi. Hol er með Merbou parketi á gólfi, eins parket
á allri íbúðinni. Eldhúsið er með parketi á gólfi og nýrri fallegri innréttingu og
tækjum, borðkrókur við glugga. Stofan og borðstofan eru með parketi á gólfi,
glæsilegt útsýni, útgengt á suðursvalir og þaðan er stigi niður í garðinn sem er
stór og liggur að sjónum. Möguleiki er að gera eitt svefnherbergi á kostnað
borðstofunnar. Herbergjagangur er með parketi á gólfi. Baðherbergið er með
nýlegum fallegum flísum á gólfi og mósaík flísum á veggjum, nýleg vaskinn-
rétting með stórum spegli, stór steyptur sturtubotn og fallegur hringlaga
gluggi. Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum. Af
herbergjagangi er stigi niður í kjallara þar sem er eitt svefnherbergi og einnig
þvottaaðstaða undir inngangströppum, vaskur og þvottaraðstaða. Bílskúrinn
er á tveimur hæðum og er efri hæðin bílskúr en neðri hæðin er herbergi
(geymsla) sem hægt væri að nýta á ýmsan hátt, ekki hiti og vatn. Ásett verð
36,4 millj.
Valþór 896-6606 sölumaður frá Kletti fasteignasölu
tekur á móti gestum.
Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.
ÞINGHÓLSBRAUT 55 - 200 KÓP.