Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 59 Hljóðfæri Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. www.hljodfaeri.is R. Sigurðsson. Hljóðfæri, bassar, gítar, fiðlur, við- gerðir www.hljodfaeri.is - 699 71 31 Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar 5691100 VENSELIN Topalov hefur náð að hrifsa til sín efsta sætið á Corus- mótinu í Hollandi en úrslitin þar munu ráðast um helgina. Teimour Radjabov sem skaust á toppinn með frábærri frammistöðu í fimm fyrstu umferðunum hefur aðeins gefið eftir, tapaði með hvítu fyrir Armenanum Aronian í sjöundu umferð en hefur gert jafntefli í öðrum skákum. Topa- lov lagði Ponomarion í sjöundu um- ferð, Anand í áttundu umferð og Van Wely í tíundu. Hann hefur greinilega náð að hrista af sér ólundina eftir ein- vígið í Elista sl. haust, hefur vinnings forskot á Radjabov og mætir erki- fjanda sínum Kramnik í næstsíðustu umferð og hefur hvítt. Á dögunum lagði Topalov fram áskorun á hendur Kramnik um annað heimsmeistara- einvígi en samkvæmt nýjum reglum FIDE á hver sá skákmaður sem er með 2.700 Elo-stig eða meira rétt á að skora á ríkjandi heimsmeistara. Kasparov gagnrýndi Kramnik harð- lega í nýjasta hefti af New in chess og benti m.a. á tækifærissinnaða fram- komu við ýmis tækifæri. Líklegt þótti að Kramnik myndi sniðganga átta manna heimsmeistaramót FIDE næsta haust en hann hefur nú flestum á óvart tilkynnt þátttöku sína. Svo einkennilega vill til að Topalov hefur ekki þátttökurétt á því móti en getur verið með árið 2008. Staðan að loknum tíu umferðum var þessi: 1. Topalov 7½ v. 2. Radjabov 6½ v. 3. Aronian, Anand, Kramnik og Svid- ler allir með 6 vinninga. 7.–8. Ponom- ariov og Karjakin 5 v. hvor. 9. Nav- ara, 4½ v. 10.–11. Motylev og Tiviakov 4 v. hvor. 12. Van Wely, 3½ v. 13.–14. Carlsen og Shirov 3 v. hvor. Mótið í Wijk aan Zee virðist sýna og sanna að Topalov stendur feti framar öðrum skákmönnum. Sigur- vilji hans er geysilegur og keppnis- harkan meiri en hjá kollegum hans. Bestu skákir hans eru líklega geysi- lega skemmtilega tefldar og standast jafnvel samanburð við sumt af því besta sem Kasparov var að gera. Lít- um á sigur Topalovs yfir norska undrabarninu Magnúsi Carlssyni í tí- undu umferð: Venselin Toplov – Magnus Carlsen Nimzoindversk-vörn Topalov bregður frá alfaraleiðum með 8. dxc5. Skiptamunsfórn hans í byrjuninni hefur sést áður en það má heita eitt aðaleinkenni Topalovs um þessar mundir hversu gjarn hann er að láta skiptamun af hendi í byrjun tafls fyrir óljósar bætur. Magnus bregst við með því að fórna manni til baka en hefði betur valið 16. … Bd7 í stað 16. … Be6. Varnarleikir Topa- lovs eru hárnákvæmir og þegar hann hefur komið skipulagi á liðsafla sinn gefst Magnus upp án þess að berjast frekar. Staðan var tæknilega töpuð. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4 5. cxd5 exd5 6. Bg5 0-0 7. e3 c5 8. dxc5 Rbd7 9. Hc1 Da5 10. a3 Bxc3+ 11. Hxc3 Re4 Sjá stöðumynd 1 12. b4 Rxc3 13. Da1 Da4 14. Dxc3 a5 15. b5 Rxc5 16. Dxc5 Be6 17. Dc1 Hfc8 18. Da1 Dc2 19. Be2 Dc1+ 20. Dxc1 Hxc1+ 21. Bd1 Ha1 22. a4 Hc8 23. Rd4 Hc4 24. 0-0 f6 25. Bf4 Bf7 26. h4 Indverjinn Anand átti slæman kafla um miðbik mótsins en komst aftur á beinu brautina með því að vinna Ponomariov og Van Wely. Fyr- ir þá sem muna eftir skákum „eitraða peðsins “ frá einvíginu ’72 er þessi skák athyglisverð. Fischer mætti 12. e5 nokkrum sinnum á ferlinum og hafði jafnan sigur. En mikið vatn hef- ur runnið til sjávar síðan og nýjasti snúningurinn er einmitt leikurinn 12. e5 sem var afskrifaður fyrir um 40 ár- um! Anand vann Motyelv með hvítu í 2. umferð og þessi skák fylgir þeirri viðureign fram í 20. leik eða þar til Wan Wely leikur 20. … Rc6 í stað 20. … Hd8 sem Anand valdi. Það getur verið að leikur Van Wely sé betri, a.m.k. fékk hann teflanlega stöðu, en hann tapaði skákinni og Anand náði þar með að slá tvær flugur í einu höggi. 9. umferð: Wisvanathan Anand – Van Wely Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Dd2 Dxb2 9. Hb1 Da3 10. e5 h6 11. Bh4 dxe5 12. fxe5 Rfd7 13. Re4 Dxa2 14. Hd1 Dd5 15. De3 Dxe5 16. Be2 Bc5 17. Bg3 Bxd4 18. Hxd4 Da5+ 19. Hd2 0-0 20. Bd6 Sjá stöðumynd 2 21. … Rc6 21. Bxf8 Rxf8 22. 0-0 Bd7 23. Rd6 Re5 24. Rxb7 Dc7 25. Rd6 f6 26. c4 Bc6 27. Ha1 Rfd7 28. Dd4 a5 29. Rb5 Db6 30. Dxb6 Rxb6 31. Hd6 Rbd7 32. Rd4 Be4 33. Rxe6 a4 34. Rc7 Ha5 35. Ha6 Hxa6 36. Rxa6 Bc6 37. c5 Bb7 38. Hc1 Rc6 39. Rc7 Rd4 40. Bc4+ Kf8 41. Hd1 svartur gafst upp. Sigurbjörn Björnsson efstur fyr- ir síðustu umferð á Skákþingi Reykjavíkur Þegar ein umferð var eftir á Skák- þingi Reykjavíkur 2007 var Sigur- björn Björnsson einn efstur með 7 vinninga af átta mögulegum. Ýmis óvænt úrslit hafa einkennt mótið, Þannig hefur eini stórmeistarinn, Henrik Danielssen, átt erfitt upp- dráttar en hefur sótt í sig veðrið og gat komist upp við hliðina á Sigur- birni með sigri í innbyrðis viðureign í skák þeirra í gærkvöldi. Þá vekur gott gengi Sævars Bjarnasonar nokkra athygli en dálítill tröppugang- ur hefur verið á frammistöðu hans undanfarið. Sigurbjörn Björnsson á alveg áreiðanlega mikið inni á skáksv- iðinu. Hann hefur beittan stíl en skortir nokkuð á öryggi. Virðist hann standa jafnfætis flestum þeim ungu skákmönnum sem hafa teflt í landsliði Íslands á Ólympíumótum undanfarið. Fyrir lokaumferðina var staðan þessi: 1. Sigurbjörn Björnsson 7 v. 2. Sævar Bjarnason 6½ v. 3.–5. Bragi Þorfinnsson, Henrik Danielsen og Guðmundur Kjartansson allir með 6 vinn- inga. 6.–7. Kristján Eðvarðsson og Omar Salama 5½ v. hvor. 8.–15. Þorvarður Ólafsson, Ingvar Þór Jó- hannesson, Sverrir Örn Björnsson, Guðni Stefán Pétursson, Björn Jónsson, Júlíus Friðjónsson, Jóhann Ragnarsson og Harald- ur Baldursson allir með 5 vinninga. Í lokaumferðinni átti Guðmundur Kjartansson að tefla með hvítu við Braga Þorfinnsson og Omar Salama var með hvítt á Sævar Bjarnason. Topalov efstur í Wijk aan Zee Skák Sigurbjörn leiðir Skákþing Reykjavíkur Skákþing Reykjavíkur 7.–26. janúar Corus-mótið 12.–28. janúar Helgi Ólafsson. Heimsmeistari aftur? Topalov ( t.v.) með liði sínu, umboðsmanninum Silv- io Danailov and þjálfaranum Ivan Cheparinov helol@simnet.is Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is STJÓRN Náttúrulækningafélags Reykjavíkur hefur veitti Eymundi Magnússyni og fyrirtæki hans, Móður Jörð, viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í ræktun matvæla í sátt við umhverfið, vöruþróun og kynningu með framsýn manneld- ismarkmið að leiðarljósi. Náttúrulækningafélagið hefur áður veitt m.a. Yggdrasil, Grænum kosti, Brauðhúsi Grímsbæjar og Ástu Einarsdóttur grasalækni slíka viðurkenningu. Eymundur, sem stundar lífræna ræktun á búi sínu í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, þykir hafa sýnt í starfi og verki að alúð og metnaður er lagður við framleiðsluferlið allt frá ræktun til manneldis. Hjá fyr- irtæki hans Móður Jörð hafa líf- rænar aðferðir verið notaðar um langt árabil og var býlið í hópi þeirra sem fyrst hlutu alþjóðlega viðurkenningu Vottunarstofunnar Túns á framleiðsluna í ágústmánuði 1996. Náttúrulækningafélagið segir starfsemi Móður Jarðar einkennast af því að þar sé að öllu leyti beitt líf- rænum aðferðum, öll fram- leiðsluferli séu vottuð lífræn sam- kvæmt alþjóðlegum stöðlum, snyrtimennsku, góðu skipulagi og tillitssemi við vistkerfi og náttúru, vaxandi fullvinnslu heimafenginna hráefna með stöðugri vöruþróun og nýsköpun og virku kynningarstarfi meðal neytenda. Hafi Eymundur unnið ötullega að því að þróa nýjar afurðir og kynna neytendum kosti hráefna úr ís- lenskum matjurtum. Meðal þess merkasta sem hann hafi lagt af mörkum í þeim efnum sé lífræn ræktun og úrvinnsla á byggi, eink- um til manneldis. Gríðarlegt starf liggi að baki í vöruþróun og kynn- ingu á bygginu – sem Eymundur nefni stundum hrísgrjón norðurs- ins. Hann hafi þróað úr því brauð og ýmsa tilbúna rétti, kennt al- menningi að nota byggið og gefið út sérstaka uppskriftabók. Eymundur í Vallanesi heiðraður fyrir lífræna ræktun Morgunblaið/RAX Viðurkenning F.v. Brynja Gunnarsdóttir, Eymundur Magnússon, Ingi Þór Jónsson, Bjarni Þórarinsson, Ásthildur Einarsdóttir og Auður Guðmunds- dóttir við athöfn sem efnt var til á Egilsstöðum síðastliðinn fimmtudag. Garðfuglaskoðun um helgina FUGLAVERND stendur fyrir garð- fuglaskoðun nú um helgina, sem er einn af árvissum viðburðum sem fé- lagið stendur fyrir. Markmið garðfuglaskoðunar er að fá sem flesta til þess að skoða fugla í görðum sínum og vekja áhuga á fuglaskoðun og hversu auðvelt það er að stunda hana. Fá fólk til þess að fóðra fugla, vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Ennfremur er markmiðið að afla upplýsinga um fugla í görðum landsmanna, hvaða tegundir eru til staðar og í hve miklu magni. Nán- ari upplýsingar um garðfugla- skoðun; leiðbeiningar og eyðublað er að finna á vef Fuglaverndar http://www.fuglavernd.is/. Þar má líka finna upplýsingar um fóðrun fugla að vetrarlagi, http:// www.fuglavernd.is/html/ vetrarfodrun.html. Fyrirlestur um konur í raunveruleika FYRSTI hádegisfyrirlestur Rann- sóknastofu í vinnuvernd á þessu ári verður mánudaginn 29. janúar kl. 12:00–13.00 í Háskóla Íslands, Lög- bergi, stofu 103. Þá mun Herdís Sveinsdóttir, prófessor í hjúkr- unarfræði, halda fyrirlestur sem hún nefnir: Af konum í íslenskum raunveruleika: Heilsufar og vinnu- aðstæður hjúkrunarfræðinga, kennara og flugfreyja. Herdís er prófessor í hjúkr- unarfræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknin sem hún kynnir er hluti af stærri rannsókn sem hefur það markmið að kanna líkamlega, andlega og félagslega líðan hjúkr- unarfræðinga, flugfreyja og grunn- skólakennara og tengsl við vinnuá- lag og starfsaðstæður. Ennfremur að varpa ljósi á hvort mismunur er á líðan og heilsufari þessara þriggja hópa. Sjá nánar um dagskrá hádeg- isfyrirlestra Rannsóknastofu í vinnuvernd á heimasíðunni www.riv.hi.is Kynnir námskeið GUÐJÓN Bergmann heldur ókeyp- is kynningarfyrirlestur þriðjudag- inn 30. janúar um námskeið sitt Þú ert það sem þú hugsar á Grand Hót- el Reykjavík. Rúmlega 180 manns hafa sótt námskeiðið á síðustu mánuðum. Á námskeiðinu kennir Guðjón m.a. aðferðir til að takast á við streitu, efla sjálfstraust og jákvæðni og koma lífinu í betra jafnvægi. Kynn- ingin tekur u.þ.b. klukkustund og hefst kl. 20:00. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bergmann, gudjon@gbergmann.is, 690-1818
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.