Morgunblaðið - 28.01.2007, Side 66
66 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Landsbókasafn Íslands –háskólabókasafn og Nor-rænn vettvangur bóka-varðafélaga standa, í sam-
starfi við Upplýsingu – Félag
bókasafns- og upplýsingafræða og
bókasafns- og upplýsingafræðiskor
Háskóla Íslands, fyrir ráðstefnunni
Cataloguing 2007.
Ráðstefnan verður haldin á
Grand hóteli í Reykjavík dagana 1.
og 2. febrúar.
Hildur Gunnlaugsdóttir er for-
maður undirbúningsnefndar: „Nú
stendur yfir endurskoðun á alþjóð-
legum reglum um skráningu gagna í
bókasafnskerfi, en þær viðamiklu
breytingar sem unnið hefur verið að
undanfarin ár taka gildi 2009,“ segir
Hildur. „Íslensk bókasöfn þurfa að
fylgja þessari þróun enda fer miðl-
un upplýsinga milli landa vaxandi
og gagnasöfn tengjast í auknum
mæli yfir landamæri, en til að fylgj-
ast með þeim breytingum sem eru á
döfinni höfum við fengið hingað til
lands valda sérfræðinga á þessu
sviði.“
Þær breytingar sem Hildur minn-
ist á miða einkum að því að bjóða
upp á notendavænna leitarumhverfi
og auðvelda yfirsýn: „Segja má að
horfið sé frá spjaldskrársjónarhorni
og gögnum sé frekar smalað saman
frá þrívíðu sjónarhorni,“ segir Hild-
ur. „Fólk er orðið vant auðveldum
leitum á netinu, og er verið að leita í
svipað leitarumhverfi, sem gefur á
auðveldan og auðskiljanlegan hátt
yfirlit yfir þau hugverk sem leitað
er að. Tæknin leyfir mjög fjöl-
breytta leitarmöguleika, en aðal-
umræðuefni ráðstefnunnar eru þær
aðferðir sem notaðar eru við að skrá
inn í bókasafnskerfi þau gögn sem
eru til reiðu, enda kemur gott leit-
arkerfi að litlu gagni ef grunn-
upplýsingarnar eru í ólagi.“
Ráðstefnan hefur vakið mikinn
áhuga bókasafns- og upplýsinga-
fræðinga víða um heim: „Við eigum
von á talsvert á þriðja hundrað þátt-
takenda frá um 30 löndum, en hart-
nær tveir þriðju ráðstefnugesta
koma erlendis frá,“ segir Hildur. „Á
ráðstefnunni er viðfangsefnið rætt
frá fræðilegu, tæknilegu og mann-
legu sjónarhorni. Aðalfyrirlesari
ráðstefnunnar er dr. Barbara B. Til-
lett, forstöðumaður þeirrar deildar
bandaríska þingbókasafnsins sem
ber ábyrgð á stefnumótun í gagna-
skráningu og framsetningu hjálp-
argagna, en hún mun gefa heild-
arsýn á framtíðarsýn skráningar og
leitarheimta.“
Meðal annarra fyrirlesara má
nefna fulltrúa frá þjóðbókasöfnum
Þýskalands, Danmerkur og Bret-
lands. „Framlag Íslands er erindi
Sigrúnar Hauksdóttur, forstöðu-
manns Kerfisþjónustu Landskerfis
bókasafna, sem mun kynna fyr-
irkomulag gagnaskráningar bóka-
safna á Íslandi,“ segir Hildur. „Sér-
staða okkar og einn helsti styrkleiki
er að bókasöfn landsins, bæði al-
menningsbókasöfn sem og skóla- og
sérfræðisöfn, eru öll skráð í sama
gagnagrunninn, Gegni, sem að-
gengilegur er á vefnum á slóðinni
www.gegnir.is.“
Ráðstefnan Cataloguing 2007 fer
fram á ensku. Nánari upplýsingar
um dagskrá og skráningu má finna
á slóðinni www.congress.is/
cataloguing2007.
Upplýsingafræði | Ráðstefnan Cataloguing
2007 verður haldin í Reykjavík 1. og 2. febrúar
Framtíð gagna-
skráningar
Hildur Gunn-
laugsdóttir fædd-
ist á Akureyri
1947 en ólst upp í
Norður-
Þingeyjarsýslu.
Hún lauk kenn-
araprófi 1968 frá
Kennaraskól-
anum og BA-
prófi í bókasafns- og upplýs-
ingafræði frá Háskóla Íslands 1995.
Hildur starfaði við prófarkalestur
um langt skeið. Hún hefur starfað
hjá Landsbókasafni Íslands – há-
skólabókasafni frá árinu 1994 og er
nú gæðastjóri skráningar. Hildur
er gift Páli Steinþórssyni skrif-
stofumanni og eiga þau tvö börn og
þrjú barnabörn.
Litli Svalur
© DUPUIS
ÞAÐ ER RÉTT!
HEFÐIR ÞÚ
EKKI GERT
ÞAÐ...
...ÞÁ HEFÐUM VIÐ SÉÐ
EFTIR ÞVÍ ALLA ÆVI
SAMT SEM
ÁÐUR... VAR ÞETTA MJÖG
HÆTTULEGT
JÁ! ÉG MAN EFTIR ÞVÍ.
ÖLL LÆTIN Í KJÖLFARIÐ...
HAHAHA!
MÉR ER
ENNÞÁ ILLT!
EN ÞETTA VAR SAMT
BRÁÐSKEMMTILEGT
NÍNU FANNST
ÞAÐ LÍKA
ÞÚ HÆKKAÐIR TÖLUVERT Í
ÁLITI HJÁ HENNI EFTIR
ÞETTA, GAMLI RÆFILL.
HÚN VAR NÚ ANSI
SÆT STELPA
ÞENNAN DAG TÓK
ÉG RÉTTA
ÁKVÖRÐUN
PÚFF!
YKKAR VEGNA ÞÁ VONA ÉG AÐ ENGINN
TAKI ÞAÐ AÐ SÉR AÐ GERA MIG AÐ FÍFLI
ELLI-
HEIMILI
2049
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ HEFUR EINHVER SKILIÐ
TUSKU-TÍGRISDÝRIÐ SITT
EFTIR Á GRASINU...
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
HUNDUR HAFI VERIÐ AÐ
NAGA ÞAÐ...
EKKERT SEM TEBOÐ MEÐ
DÚKKUM OG ÖÐRUM
TUSKUDÝRUM GETUR
EKKI LÆKNAÐ
Kalvin & Hobbes
HOBBES! HOBBES!
HVAR ERTU?!
KALVIN, VILTU KOMA Í
TEBOÐ TIL MÍN?
NEI! ÉG ER AÐ LEITA
AÐ BESTA VINI MÍNUM
SEM VAR RÆNT
AF BRJÁLUÐUM,
SLEFANDI HUNDI
MÉR FINNST KALVIN HAFA
VERIÐ MJÖG DÓNALEGUR...
HVAÐ MEÐ ÞIG HERRA
TÍGRISDÝR? VILL EINHVER
MEIRA TE?
Kalvin & Hobbes
KANNSKI AÐ ÉG ÆTTI AÐ
SEGJA SOLLU AÐ HAFA
AUGUN OPIN FYRIR HOBBES
SOLLA ÉG... ÞÚ HEFUR FUNDIÐ
HOBBES... TAKK FYRIR,
TAKK FYRIR... TAKKTAKK
TAKKTAKKTAKKTAKKTAKK
TAKKTAKKTAKKTAKK
ROSALEGA VAR KALVIN
MIKILL HERRAMAÐUR...
HVER TÓK ALLAR
SMÁKÖKURNAR MÍNAR?!
LEIKKONAN Sara Ramirez, til vinstri, stillir sér hér upp með skemmti-
kraftinum Troy Woodcroft þegar hún mætti á sýningu á myndinni Priscilla
Queen of the Desert í Los Angeles á dögunum.
Margir mættu uppáklæddir á sýninguna, sem var haldin til að fagna því
að leikverk byggt á myndinni hefur nú verið sett upp í Ástralíu.
Reuters
Eyðimerkurdrottningin