Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 20

Morgunblaðið - 07.02.2007, Page 20
heilsa 20 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Það er ótrúlega algengt aðfólk með sykursýki fari útaf sporinu með stjórn sínaá blóðsykrinum og þá sér- staklega unglingar. Þá þarf fólk að- stoð við að koma sér aftur á rétt ról, því þegar blóðsykurstjórnun hjá sykursjúkum er ekki í lagi, þá líður fólki ekki vel. Þá er líka mikil hætta á að fylgikvillar komi fram, bæði í stóræðakerfinu og smáæðakerfinu, sem og taugakvillar,“ segir Linda Hrönn Eggertsdóttir sem á síðasta ári opnaði Hjúkrunarfræðiráðgjöf- ina Bris sem ætluð er sykursjúkum. Linda Hrönn er hjúkrunarfræð- ingur með klíníska sérþekkingu á sykursýki og vann í tvö ár á göngu- deild sykursjúkra á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Áður hafði Linda starfað á heilsugæslunni Sólvangi Hafnarfirði í 6 ár og var þar með móttöku fyrir sykursjúka. Auk þess hefur hún reynt á eigin skinni hvað það er að vera sykursjúk, því í rúm- lega þrjátíu ár hefur hún lifað með þessum sjúkdómi og er á insúlín- dælumeðferð. Fyrir vikið hefur hún skilning á því hvernig það er að lifa með langvinnan sjúkdóm. Afneitun og reiði algeng „Ég stofnaði þessa ráðgjöf fyrst og fremst vegna þess að ég fann að þörfin var mikil. Ég tek á móti syk- ursjúkum á öllum aldri, börnum og fullorðnum og bæði þeim sem eru með tegund 1 sykursýki og tegund 2 sykursýki. Ég tek líka á móti þeim sem eru með skert sykurþol, sem er oft undanfari sykursýki. Þeir sem eru nýgreindir með sykursýki fara í gegnum ákveðið sorgarferli en því fylgir reiði, afneitun og depurð. Þeg- ar viðkomandi hefur náð að vinna sig í gegnum sorgarferlið nær hann lokastiginu sem er þá að sætta sig við staðreyndir. Sykursjúkir geta farið oftar en einu sinni í gegnum þetta ferli á lífsleiðinni. Þeir sem eru sykursjúkir eiga líka á hættu að verða þunglyndir og þess vegna er mjög áríðandi að þeir hugsi vel um sjálfa sig, stundi hreyfingu daglega og að mataræðið sé í lagi. Ég reyni að hjálpa fólki með að ná betri tök- um á lífi sínu og sykursýkinni. Ég kenni líka fólki hvernig á að bregð- ast við ákveðnum aðstæðum, eins og skyndilegri hækkun blóðsykurs, sem getur til dæmis gerst ef insúl- índælan hjá fólki dettur úr sam- bandi.“ Ekki með skeiðklukku á lofti Linda Hrönn segir það vera mjög einstaklingsbundið hvað og hvernig eitthvað hefur áhrif á blóðsykurinn. „Þess vegna legg ég áherslu á að hafa mína ráðgjöf einstaklingsmið- aða og ég legg mikla áherslu á að gefa mér góðan tíma og fara vel í saumana með hverjum og einum. Ég er ekki með skeiðklukkuna á lofti. Ég tek hverjum og einum eins og hann er og ég vil að fólki líði vel hjá mér. Það kemur hingað í rólegheit- um og við spjöllum saman og finnum leiðir til að bæta málin. Það er heil- mikið átak að gera lífsstílsbreyt- ingar og ég fylgi fólki eftir meðan á þeirri vinnu stendur. Það dugar ekki að henda bæklingum í fólk og segja: Þetta máttu borða en ekki þetta.“ Missti sjálf alla stjórn Hún segir eftirspurnina eftir ráð- gjöf vera mikla og marga sækja þjónustu hennar. „Hingað getur hver sem er komið, án allra skilyrða. Ég greini ekki sykursýki hjá fólki, það gera læknarnir, en ég get aftur á móti mælt blóðsykur hjá fólki og fylgst með hvar það stendur og ég stilli insúlínskammta þess í sam- hengi við það.“ Linda Hrönn segir að áríðandi sé fyrir sykursjúka að hafa sem flest í lífi sínu í jafnvægi. „Allt álag og öll streita hækkar blóðsykur hjá sykur- sjúkum. Þeir mega eiginlega ekki verða reiðir. Þetta getur verið mjög erfitt fyrir til dæmis unglinga með sykursýki sem eru í bullandi upp- reisn og mótþróa. Unglingum hættir sérstaklega til að missa tökin á syk- urstjórninni. Ég missti sjálf alla stjórn þegar ég var unglingur. Ung- lingar með sykursýki fara gjarnan í afneitun, enda eiga þeir alveg nóg með að finna sjálfa sig, þó þeir þurfi ekki líka að takast á við langvinnan sjúkdóm. Unglingar eru líka oft ósáttir við sýnileika sjúkdómsins sem felst í insúlíndælunni. En þó er dælan miklu skárri kostur en það að þurfa að sprauta sig nokkrum sinn- um á dag. Dælan er á stærð við síma sem hægt er að hafa í vasanum eða hengja á buxnastrenginn og hún er tengd með snúru undir húðina.“ 5.000 sykursjúkir á Íslandi „Mér sjálfri fannst tilkoma dæl- unnar rosalegur léttir, en ég þurfti að sprauta mig sex sinnum á dag. Núna þarf ég aðeins að skipta um nál og insúlínhylki í dælunni á þriggja daga fresti. Dælan gefur mér hraðvirkt insúlín í smá skömmt- um á 5 mínútna fresti, rétt eins og eðlilegur briskirtill gerir hjá heil- brigðu fólki.“ Linda Hrönn segir sykursýki al- varlegan og mjög flókinn sjúkdóm sem geti haft hræðilegar afleiðingar ef fólk sinnir sjálfu sér ekki eins og því ber. „En ef það gerir það þá er hægt að lifa þokkalega eðlilegu lífi, þó það sé kannski aldrei auðvelt. Sykursýki hefur áhrif á lífið og lífið hefur áhrif á sykursýkina.“ Á Íslandi eru um 5.000 manns með sykursýki, en sykursýki greinist í fólki á öllum aldri. Yngsta barnið sem er í ráðgjöf hjá Lindu Hrönn er þriggja ára. Aðstandendur sykur- sjúkra skipta miklu máli í lífi þeirra, sérstaklega hjá börnum. Linda Hrönn segir sykursjúka ekki vera sjúklinga. „Ég á mér draum um að sjá eitt stórt batterí ut- an við spítalastarfsemina, þar sem væri teymi lækna, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga, næringarfræð- inga og fleiri aðila. Kannski er stofan mín fyrsta skrefið í þá áttina.“ Bætt líðan með betri blóðsykri Morgunblaðið/G.Rúnar Ráðgjöf Linda Hrönn mundar pennann til að mæla blóðsykur hjá einum þeirra sem leitað hafa til hennar. www.bris.is Tegund 2 sykursýki leggst fyrst og fremst á fullorðna sem hafa oft sterka ættarsögu um sykursýki. Sjúkdómsmyndin er þannig að virkni insúlínsins er ekki eðlileg hjá þessum einstaklingum. Frumur lík- amans verða ónæmar fyrir því in- súlíni sem brisið framleiðir sem er ekki fullgert og þar af leiðandi nýt- ist það mjög illa. Flestir þessara einstaklinga eru auk þess með truflun á efnaskiptum blóðfitu og með háan blóðþrýsting. Þetta lík- amsástand hefur fengið samheitið efnaskiptavilla á íslensku. Með- ferðin felst í lyfjagjöf í töfluformi. Lyfin hafa mismunandi áhrif til blóðsykurlækkunar, en oft er einn- ig þörf fyrir blóðfitu- og blóðþrýst- ingslækkandi lyf. Með tímanum þurfa oftast einstaklingar með teg- und 2 sykursýki einnig að fá insúl- ín, þar sem brisið þreytist á því að framleiða of mikið insúlínmagn. Tegund 2 sykursýki Tegund 1 sykursýki leggst aðallega á ungt fólk (<35 ára) sem er ekki með sterka ættarsögu um sykur- sýki. Sjúkdómurinn stafar af því að ónæmiskerfið ræðst á betafrum- urnar og eyðileggur þær. Þar af leiðandi flokkast þessi sjúkdómur undir sjálfsofnæmissjúkdóma. Af- leiðingin af eyðileggingu beta- frumnanna verður insúlínskortur og með tímanum hættir insúl- ínframleiðslan alveg. Fundist hafa gen í frumum einstaklinga sem fá tegund 1 sykusýki sem gera þá næmari fyrir því að fá sjúkdóminn, sem talið er að brjótist síðan út ef viðkomandi fær t.d. veirusýkingu sem kveikir á ónæmiskerfi lík- amans. Lyfjameðferðin felst í því að gefið er insúlín í fitulag húðar. Tegund 1 sykursýki Sumir skammast sín fyrir að gráta. Þeir ættu að snar-hætta því. Bæði er afskaplega heilbrigt að gráta –rétt eins og að hlæja – og svo ku það víst vera gott stjórnunartæki, sem eru góðar fréttir fyrir suma(r). Norska Aftonbladet fjallaði nýlega um þetta fyrirbrigði, tárin sem renna niður kinnarnar, og áhrif þeirra á líðan fólks og samskipti. Niðurstöðurnar voru ánægjulegar en mishvetjandi. Þannig er heilbrigður grátur hluti af ósjálfráðum við- brögðum líkamans. Þegar manneskja upplifir eitthvað sorglegt, verður fyrir missi eða finnur fyrir vanlíðan eru viðbrögð líkamans nánast sjálfvirk og lúta ekki vilja- styrknum. Sviti sprettur fram, blóðþrýstingur hækkar, augasteinarnir stækka og framleiðsla tárakirtlanna eykst. Stundum grátum við eins og bestíur og getum ekki hætt en líður á eftir eins og við höfum verið hvítskúruð að innan – okkur er létt. Þegar gráturinn hefur síðan hljóðnað byrj- ar heilinn að skrá, greina og leita lausna á því hvernig ráða megi fram úr vandanum eða sorginni sem kallaði fram tár- in. En það er ekki bara lífsreynsla sem fær tárin til þess að renna. Vonbrigði yfir að ná ekki settu marki geta gert það líka sem og reiði vegna óréttlætis. Jon Monsen, professor í sálfræði, segir í viðtali við Aft- enposten að gráturinn sé nauðsynlegur fyrir okkur til þess að þroskast sem manneskjur. „Grátur getur verið ólíkrar gerðar. Við stjórnum ekki hinum náttúrulega en hinum geta flestir stjórnað og gera það þá markvisst. Þeir stjórna og fá sitt fram með tárunum og það er ekki heil- brigt. Svo eru til manneskjur sem aldrei gráta. Þær hafa lært að útiloka sorgina, en oftast fylgja aðrar tilfinningar þá líka með. Oftast eru slíkir einstaklingar sér ekki nægi- lega meðvitandi um tillfinningar sínar og í ófullnægjandi samskiptum við aðra.“ Blaðið hefur þá eftir þróunarsálfræðingnum Leif Edw- ard Ottesen Kennair að konur gráti almennt fimm sinnum oftar en menn og að meðaltali einu sinni í viku samkvæmt rannsókn nokkurri. Konur grípa einnig oftar til táranna sem stjórntækis þegar þær vilja ná fram sínu frekar en að sýna reiði. Það telur Ottesen Kennair reyndar geta verið klókindi, þær viti sem er að það þýðir lítið að berja í borðið hjá forstjóranum finnist þeim þær órétti beittar á vinnu- stað. „Gráturinn er öflugri til þess að tjá óánægju sína og konur nota hann til þess að miðla reiði sinni. Hann er tákn um að viðkomandi þarfnist hjálpar og stuðnings.“ Gráttu – það er heilbrigt Reuters Grátur Þegar manneskja upplifir eitthvað sorglegt, verður fyrir missi eða finnur fyrir vanlíðan eru við- brögð líkamans nánast sjálfvirk. NÚ getur tedrykkjufólk heldur betur glaðst við þau vísindalegu tíðindi að allt bendi til þess að tedrykkja vinni gegn streitu. Frá þessu er sagt á vef- miðli The New York Times. Þó svo að slökun og tedrykkja hafi farið saman í árhundruð hafa vísindalegar rannsóknir ekki fyrr verið gerðar til að ganga úr skugga um þetta samhengi. Rannsóknir hafa hingað til aðallega verið gerðar á dýrum en nýjustu rannsóknir á fólki benda til að eitthvert sannleikskorn sé í þessu. Í rannsókninni kom í ljós að fullorðnir karlmenn sem drukku svart te fjórum sinnum á dag í sex vikur, voru hvorki meira né minna stressaðir en þeir sem drukku koffeinblöndu. En það voru merki um að hinir fyrrnefndu væru fljótari að róa sig niður eftir stressáreitið. Þeir sem tóku þátt í rannsókninni voru settir í stressandi aðstöðu og á meðan var blóðþrýstingur þeirra mældur, hormónastarfsemi og aðrir streituþætt- ir. Hópurinn sem drakk teið hafði mælanlega minna af cortisol stresshorm- óni í blóði sínu klukkustund síðar. Fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á dýrum benda að einhverju leyti til róandi áhrifa í tei, en þó eru sannanir enn af skornum skammti. En fyrrnefnd rannsókn á fólki hefur, þó í litlum mæli sé, bent í þá átt að tedrykkja dragi úr streitu. Reuters Tedrykkja Þessar japönsku konur læra að drekka te að breskum sið. Te gegn streitu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.