Morgunblaðið - 07.02.2007, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorsteinn ArnarAndrésson bif-
reiðastjóri fæddist á
Saurum í Hraun-
hreppi 2. maí 1933.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir í
Grafarvogi 1. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Andrés Guðmunds-
son frá Ferjubakka,
bóndi á Saurum, f.
26.júní 1900, d. 16.
apríl 1985, og Lilja
Finnsdóttir frá Arn-
bjargarlæk, húsfreyja á Saurum, f.
17. september 1905, d. 19. mars
1998. Systkini Þorsteins eru Guð-
mundur Ragnar, f. 29. mars 1926,
d. 14. janúar 1984, Hervald, f. 26.
mars 1927, d. 7. mars 2002, Óskar,
f. 26. apríl 1928, d. 21. janúar 2003,
Unnur, f. 1. maí 1929, Guðrún, f.
12. júní 1930, d. 29. ágúst 1983,
Drengur (andvana fæddur), f.
1931, Guðbjörg Stefanía, f. 24. jan-
úar 1941, Ragnhildur, f. 7. sept-
ember 1947, Bragi, f. 4. apríl 1949.
hennar Íris Amal Masaid, f. 18.
febrúar 2003. 3) Alda starfs-
mannastjóri, f. 30. apríl 1965, maki
Vignir Pétursson framkvæmda-
stjóri, f. 13. maí 1964. Börn þeirra
eru: a) Íris Dögg, f. 26. ágúst 1988,
maki Logi Jóhannesson, f. 28. maí
1985. Sonur þeirra er Alexander
Ívar, f. 18. maí 2005. b) Andri
Heimir, f. 5. ágúst 1992. Einnig
ólst upp hjá þeim að hluta til
fyrstu æviárin Friðrik Hrafn Páls-
son, f. 16. febrúar 1989.
Þorsteinn flutti til Reykjavíkur
árið 1956, starfaði m.a. við bygg-
ingarvinnu og hjá Landssímanum
en fljótlega fór hann að vinna sem
bifreiðastjóri og starfaði við það
út starfsævina. Hann vann lengst
af hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur í
rúm 12 ár og síðan hjá Eimskip við
vöruflutninga í 25 ár er hann lét af
störfum sökum veikinda. Lengst
af bjuggu Þorsteinn og Friðbjörg í
Melgerði í Kópavogi en fluttu í
Mosfellsbæ árið 1993.
Þorsteinn verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Hinn 5. nóvember
1960 kvæntist Þor-
steinn Friðbjörgu
Óskarsdóttur leið-
beinanda, f. í Reykja-
vík 7. september
1941. Foreldrar
hennar voru Ingi-
björn Óskar Guð-
mundsson, trésmiður
í Kópavogi, f. 7. maí
1901, d. 13. júlí 1991,
og k.h. Jófríður
Magnúsdóttir hús-
freyja, f. 10. júlí 1902,
d. 18. febrúar 1993.
Börn Þorsteins og Friðbjargar
eru: 1) Lilja hjúkrunarfræðingur,
f. 5. febrúar 1960, maki Á. Snorri
Árnason vélfræðingur, f. 25. júní
1959. Dóttir þeirra er Hulda, f. 17.
maí 1988. 2) Kristín skrif-
stofustjóri, f. 22. júní 1961, maki
Aðalsteinn Leví Pálmason bifvéla-
virki, f. 11. mars 1959. Börn þeirra
eru a) Arnar Leví, f. 25. apríl 1982,
maki Lilja Vilborg Hafsteins-
dóttir, f. 18. október 1981. b) Guð-
rún Lára, f. 21. júlí 1984. Dóttir
Nú ert þú búinn að kveðja og kom-
inn til lands frelsis og kærleika.
Frelsið er þér kærkomið, náttúru-
barninu sem þú varst allt þitt líf.
Lausnin frá þeim harða förunaut Alz-
heimer, sem fylgdi þér og okkur síð-
ustu 15 árin. Okkar samleið er þó búin
að vera mun lengri eða 48 ár. Sit ég nú
hér og rifja upp líf okkar sem hefur
skipst á með skini og skúrum en aldr-
ei var lognmolla yfir þessum árum.
Finn ég í hjarta mínu mikið þakklæti
fyrir þá göngu því þú varst minn mikli
kennari á leið minni og leit „Hver ég
væri“ og hjálpaðir mér og ekki hvað
síst þessi 15 ár í veikindum þínum, til
að velja „Hver ég vildi vera“. Ég væri
ekki að segja sannleikann ef ég við-
urkenndi ekki að sú ganga reyndi
stundum á allar mínar tilfinningar og
þrek en við áttum þrátt fyrir það ótrú-
lega margar djúpar gleðistundir sam-
an. Við ein og einnig með fjölskyldu
okkar. Sit ég því hér á þessum tíma-
mótum með þakklæti í hjarta og huga
fyrir þá lífsgöngu sem við áttum sam-
an. Ég finn fyrir djúpu þakklæti fyrir
þá reynslu sem þú færðir inn í líf mitt
og upplifi ég mig margfalt ríkari að
leiðarlokum. Þú skilur eftir endalaus-
ar minningar í hugum okkar fjöl-
skyldu þinnar.
Hin langþráða hvíld þín er orðin að
veruleika og þó alltaf fylgi því sökn-
uður þegar kvatt er, finnum við fjöl-
skylda þín fyrir miklu þakklæti bæði
fyrir að hvíldin er komin og einnig all-
ar þær minningar sem við eigum um
þig. Þessa dagana þegar við erum
saman að rifja upp hin ýmsu prakk-
arastrik þín í gegnum árin. Þú varð-
veittir svo vel barnið í þér og varst allt
þitt líf til í að gantast og ekki var það
verra að láta okkur hrökkva svolítið
við, sem skapaði oft mikinn hlátur.
Fyrstu árin þín á Eir var ekki djúpt á
grínaranum í þér. Oft þegar ég kom
að heimsækja þig varst þú með
starfsfólkið í kring um þig og varst að
segja þeim einhverjar sögur af
skemmtilegum uppákomum úr lífi
þínu og naust þess að láta þau hlægja.
Þrátt fyrir að sjúkdómurinn væri bú-
in að leika þig illa varðveittir þú allan
tímann léttleikann sem þú bjóst yfir
og ekki eru margir dagar frá því þú
gast hlegið með okkur. Þó ekki séu
margir dagar frá því þú kvaddir okk-
ur vorum við að ræða það, fjölskyld-
an, hvað okkur fyndist erfiðleikarnir
langt að baki. Reyndar eru mjög
mörg ár síðan ég hætti að tala um erf-
iðleika heldur reyndi alltaf að líta á
það sem tækifæri í leit minni að sjálfri
mér. Hvernig eigum við að finna hina
raunverulegu Ég, ef við fáum ekki
áskoranir í lífinu að takast á við og
uppgötva hvað í okkur býr. Ég get
fullyrt að við öll upplifum okkur ríkari
eftir þá reynslu sem þú færðir inn í líf
okkar.
Þó léttleikinn væri svo sterkur í
persónuleika þínum varst þú líka
sterkur í skoðunum þínum og lést
engan snúa þér eftir að þú hafðir tek-
ið einhverja ákvörðun. Þessi styrkur í
persónuleika þínum kom vel í ljós
þegar einhver áföll eða erfiðleikar
steðjuðu að. Þú varst þá ætíð eins og
klettur í hafinu og mátti ganga að þér
vísum þó þú værir ekki margorður á
slíkum stundum, en nærvera þín var
sterk. Stundum segi ég í gríni og al-
vöru að ég væri ekki sú þolinmóða
kona sem ég held réttilega að ég sé í
dag hefði ég ekki haft þig sem minn
besta kennara.
Nú sit ég hér eldsnemma að
morgni dags áður en erill dagsins
byrjar og finn eingöngu hjarta mitt
fullt af þakklæti. Þó mörgum tárum
hafi verið úthellt í gegn um árin þegar
þú varst smátt og smátt að hverfa
sem sú sterka persóna sem þú varst
en sjúkdómurinn tók alltaf meiri og
meiri toll af og einnig þau tár sem
féllu við viðskilnaðinn, er þó núna
þakklætið efst í huga og hjarta. Það
er ekki síst sú samheldni fjölskyld-
unnar sem kemur fram við slíkar að-
stæður og eru allir fjölskyldumeðlim-
ir að leggja eitthvað af mörkum til
kveðjustundarinnar þinnar sem verð-
ur í dag. Er öll þín fjölskylda sem einn
maður í þeirri viðleitni sinni. Er mitt
þakklæti því af mörgum rótum
sprottið. Er ég mjög rík kona af því
sem mikilvægast er í lífinu.
Elsku Steini minn, ég vil þakka þér
fyrir gönguna sem við gengum saman
og legg þig nú í Guðs hendur og veit
ég í hjarta mínu að þar bíður þín góð
ganga.
Ég er óskin,
aleiga hins snauða,
bænin heilaga,
hjartarauða,
umvafin fegurð
og ást í lífi og dauða.
Ég var
og ég er.
Kynslóð kemur
og kynslóð fer.
Ungir og gamlir
unna mér.
Ég er óskin,
ákallið hljóða,
bæn hins veika
og vegamóða:
friður á jörðu
og frelsi allra þjóða.
(Gestur Guðfinnsson.)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Þín
eiginkona.
Elsku pabbi.
Nú ertu orðinn engill hjá Guði eins
og litla prinsessan okkar sagði þegar
við sögðum henni að þú værir mikið
veikur: „Hann langafi minn ætlar að
verða fallegur engill hjá Guði.“ Nú líð-
ur þér vel og heilinn er ekki að
hrekkja þig eins og þú sagðir oft þeg-
ar við vorum að spjalla saman meðan
þú varst enn heima.
Við fengum dýrmætan tíma með
þér, elsku pabbi, og mikið hefur þú
kennt okkur í gegnum árin, ekki síst
eftir að þú veiktist. Eitt af því sem
ekki var til í þinni orðabók var „ég get
þetta ekki“ og er það eitt af því sem
þú hefur skilað til afkomenda þinna.
Það er bara að reyna og reyna þangað
til það tekst. Á þessum tímamótum
renna fyrir hugskotssjónum okkar
minningar um þig, elsku pabbi. Við
drógum fram gamlar myndir og voru
rifjuð upp öll ferðalögin hvort sem var
á hestum eða vélfákum. Mikið var
brallað og mikið hlegið og aldrei voru
prakkarastrikin langt undan. Þú sást
til þess að við systurnar þekktum öll
bæjarnöfn og örnefni á leiðinni frá
Reykjavík að bænum Saurum þegar
við vorum að fara í sveitina til ömmu
og afa og bjóst til leik svo þetta festist
í minninu. Þú hafðir unun af að segja
sögur og syngja og ekki síst fyrir
ungu kynslóðina sem hlustaði með
andakt og hökuna niðri á bringu því
þú lifðir þig svo inn í textann sem þú
varst að syngja, t.d. þegar „Kiddi á
Ósi“ var sunginn þá mátti sjá tár
renna niður kinnarnar á þeim litlu.
Góð eftirherma varstu, hvort heldur
sem þú hermdir eftir fólkinu í sveit-
inni eða dýrunum, svo unun var að
hlusta á.
Við kveðjum þig með þökk í hjarta
fyrir samveruna.
Elsku mamma, systur og fjölskyld-
ur megi Guð passa og styrkja okkur í
sorginni.
Kristín.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(Valdimar Briem)
Með þessum orðum langar mig að
kveðja pabba. þetta á vel við nú þegar
hann fær hvíldina eftir löng og erfið
veikindi. Hann var mikilmenni í mín-
um huga, svo sterkur kall, harður í
horn að taka, svakalegur stríðnispúki
en óendanlega mjúkur og blíður líka.
Allt þetta hefur komið upp í hugann
nú síðustu daga þegar við höfum setið
saman fjölskyldan, skoðað myndir og
rifjað upp pabbasögur og hlegið sam-
an þrátt fyrir sorgina sem í hjartanu
býr. Við erum búin að vita lengi í hvað
stefndi, fara í gegnum mörg sorgar-
stig, en samt átt alltaf gleðina með
þér líka. Oft hefur verið gert grín að
því í gegnum tíðina að þú hafir gefist
upp við að reyna að eignast strák þeg-
ar ég fæddist, þriðja stelpan þín, og
alið mig upp eins og strák, en líka var
ég litla prinsessan þín og skvettan þín
eins og þú kallaðir mig oft. Þú gerðir
mig að snillingi í sjómanni, æfðir mig í
hnúa og krumlu, við tókumst á og
slógumst mikið, kútveltumst um gólf-
in mömmu oft til skelfingar. Ætlarðu
að ganga frá henni, var oft viðkvæðið
hjá henni en við hlógum bara að
þessu. En mjúkar hliðar áttir þú svo
sannarlega líka, ekkert var betra en
að skríða í pabba holu þegar þú lást á
bekknum í eldhúsinu. Alltaf sást þú
um að gefa okkur að borða þegar við
vorum litlar, þá sátum við á lærinu á
þér því engan barnastól þurfti á okk-
ar heimili, hvorki fyrir okkur systurn-
ar né barnabörnin. Jólabaðið sem þú
útbjóst handa mér, það var leyniupp-
skrift að svakalega góðu freyðibaði
sem þú vildir aldrei segja frá. En að-
allega varstu nú stríðnispúki, elsku
pabbi, alltaf tilbúinn í hrekk af ein-
hverju tagi. Lást í felum heima þegar
við komum heim og stökkst svo fram
með öskrum og látum, renndir vöru-
bílnum hljóðlega að okkur þegar við
vorum að labba heim úr skólanum,
lagðist svo á loftflautuna þannig að
undir iljarnar á okkur sást. Ég sá við
stríðninni í þér þegar við Vignir byrj-
uðum saman, þú stóðst í stofuglugg-
anum bara til að reyna að ergja mig
en ekki datt þér í hug að ég myndi
draga hann inn svona fyrsta daginn
og kynna hann formlega fyrir þér, –
þú áttir ekkert mótsvar við því. Þú
varst ótrúlegur barnakall sem gast
líka séð ótrúlega fljótt á konum þegar
þær voru ófrískar, það voru fáar sem
gátu falið það fyrir þér en það tókst
mér þegar ég var með laumufarþeg-
ann eins og þú kallaðir það stundum.
Það kom alltaf sérstakur glampi í
augun á þér þegar börn voru annars
vegar og hélst sá glampi alla tíð og
alltaf var sérstakt samband á milli þín
og barnabarnanna þrátt fyrir veikind-
in þín og var alveg dásamlegur tími
sem við áttum saman uppi í Húsafelli,
þvílík gæfa að kaupa þessa bústaði
saman og fá þessi ár með þér þar
elsku pabbi og hvað það gaf krökk-
unum mínum mikið að fá að vera með
þér þar. En nú kveð ég þig elsku
pabbi í þeirri vissu að þér líði miklu
betur, getur hlaupið um tún og móa.
Hvíl í friði og guð geymi þig. Þín dótt-
ir
Alda.
Elsku afi minn.
Nú er komið að kveðjustund. Þótt
ég viti að þér líði betur núna og sért
laus frá þeirri hömlun sem þessi sjúk-
dómur er er það samt sárt að þurfa að
kveðja. Síðustu ár hafa verið þér og
öllum í kringum þig mjög erfið en all-
ar góðu minningarnar sem þú hefur
gefið okkur hafa hjálpað mikið.
Mikið er ég þakklát fyrir að hafa
átt þig sem afa og að dóttir mín fékk
að kynnast þér áður en sjúkdómurinn
hertók þig að fullu.
Ég man ennþá öll lögin sem þú
söngst fyrir mig sem krakka og lögin
sem við hlustuðum á í bílnum. Þau
munu alltaf minna mig á þig, afi minn.
Ég veit að þú ert nú í góðum hönd-
um og ábyggilega syngjandi og trall-
andi. Þú munt alltaf eiga mjög sér-
stakan stað í hjarta mínu.
Takk fyrir allar góðu stundirnar,
elsku afi minn.
Guðrún.
Í dag kveðjum við Steina frænda
sem svo lengi átti heima í Kópavog-
inum, rétt hjá kirkjunni þar sem var
svo gott að koma til hans og Fífí.
Steini var alltaf hress og kátur þegar
maður hitti hann. Hann var mikið fyr-
ir að fíflast við okkur systkinin þegar
hann kom í heimsókn. Ég man meira
að segja að mér fannst hann algert
hrekkjusvín þegar ég var lítil, hann
var alltaf að stríða okkur en einhvern
veginn sóttum við samt í hann aftur
og aftur. Sennilega af því að fíflagang-
urinn endaði yfirleitt með því að mað-
ur hvíldi í fangi hans og fann þá hlýju
sem streymdi frá Steina frænda. Þeg-
ar ég varð eldri hélt þessi góðlátlega
stríðni áfram þegar maður hitti
prakkarann hann Steina. Annars var
Steini hvers manns hugljúfi og gaman
að ræða við hann um heima og geima
enda var grínið aldrei langt undan og
þannig er minning mín um þig Steini
minn.
Okkar innilegustu samúðarkveðjur
til ykkar mæðgna og fjölskyldna.
Hvíl þú nú loks í friði, elsku bróðir,
mágur og frændi. Raggý, Bói og af-
komendur.
Björk Ölversdóttir.
Elsku afi, það sem ég man eftir þér
áður en þú veiktist er ekki mikið en
samt verðugt. Ég man alltaf þegar þú
varst að raka þig, þá rakaðir þú mig í
leiðinni.
Eitt skipti þegar við vorum í Húsa-
felli þá átti hann afi fótbolta sem hann
gaf mér og hann fór út með mér í fót-
bolta og elti mig út um allt og við
skemmtum okkur báðir, held ég, jafn
mikið. Honum fannst alltaf gaman að
segja sögur og þær voru margar, ef
ekki allar, mjög skemmtilegar og
komu manni til að hlæja.
Alltaf þegar við vorum í göngu-
túrum sagði hann mér svo mikið af
sögum og það voru góðar stundir hjá
okkur.
Bless elsku afi, nú getur þú hlaupið
á eftir hestum frjáls og hlegið hátt.
Þinn
Andri Heimir.
Í hugum okkar er það framandi til-
finning að finna fyrir létti þegar vinir
kveðja. Þannig var því þó farið þegar
lát Steina fréttist, því síðustu árin
voru þungbær og efast ég ekki um að
hann eigi betri vist framundan.
Þegar ég kynntist tengdafjölskyldu
minni var þar margt vaskra karla og
kvenna. Einum kynntist ég fljótt. Sá
var brosmildur, góðlegur, snar í snún-
ingum og fljótur til ef einhvers staðar
þurfti aðstoðar við. Þannig var Steini.
Eins og aðrir af kynslóð Steina ólst
hann upp við að hesturinn var þarf-
asti þjónninn. Líkt og hjá mörgum
frænda hans varð hesturinn í huga
hans annað og meira en bara vinnu-
dýr. Ekki gáfust mörg tækifæri til að
sinna þessu áhugamáli á þeim árum
sem fjölskyldan var að koma sér fyrir
og dæturnar ein af annarri að komast
á legg.
Skömmu eftir að ég kynntist Steina
keypti hann jarpan prýðisgóðan hest
sem eigandinn var stoltur af og átti
eftir að njóta vel í nokkur ár. Ég á
skýra mynd í huga mér af Steina og
Ingólfi föðurbróður hans þar sem þeir
stigu á bak görpum sínum á björtum
vetrardegi. Hugðust þeir taka sér
góðan reiðtúr upp í Heiðmörk. Þeir
voru stoltir og gleðin skein af þeim.
Þegar gaman var hjá Steina geislaði
hann allur. Meðreiðarsveinninn, Ing-
ólfur Guðmundsson, var kunnur
hestamaður og helsta fyrirmynd
Steina í faginu, því ósjaldan vitnaði
hann í hvernig Ingólfur gerði hlutina.
Steini var einstaklega hjálpsamur
og greiðvikinn og þess nutu mörg
skyldmenni. Hann var fljótur að
bregðast við og þá gátu bílarnir fund-
ið fyrir því ef snögglega þurfti að
bregða sér af bæ til að rétta hjálp-
arhönd. Gilti þá einu hvort það var
rauða Bjallan, bláa Nóvan eða annar
vélfákur. Þeir þurftu allir að búa við
það að eigandanum gat legið á.
Með árunum fjölgaði hestunum hjá
Steina og fyrr en varði var hann búinn
að festa kaup á myndarlegu hesthúsi í
Víðidalnum. Þá áttu fleiri fjölskyldu-
meðlimir þess kost að taka þátt í
sportinu með húsbóndanum. Eftir-
minnileg er vel heppnuð hestaferð
Steina og Friðbjargar í Gnúpverja-
hrepp.
Sjálfsagt hefur Steini fengist við
járningar á Saurum með föður sínum
og bræðrum. Þá iðju iðkaði hann tölu-
vert eftir að hann fór að stunda hesta-
mennsku og eiga margir honum góð
handarverk að þakka og þeirra á
meðal er undirritaður.
Steini var nokkuð fastheldinn og lét
ekki tískusveiflur hafa mikil áhrif á
hestmennsku sína, reið gjarnan út
með tvo eða þrjá til reiðar og ævin-
lega með svipu annað hvort í hendi
eða ofan í stígvélinu. Margar góðar
stundir áttum við Steini saman tengd-
ar hestum. Á haustin var farið til þess
að ná í hey til vetrarfóðrunar. Eitt
haustið sást að breyting var orðin á
aksturslagi og meira hik í allri fram-
göngu. Greina mátti einkenni sjúk-
dómsins sem átti eftir að marka djúp
spor í meira en áratug. Að leiðarlok-
um þökkum við góðum dreng sam-
fylgdina. Fjölmargar minningar
tengdar Þorsteini Andréssyni frá
Saurum munu lifa um ókomin ár.
Friðbjörgu og fjölskyldunni er vottuð
innileg samúð.
Jón Bjarnason.
Þorsteinn Arnar Andrésson
Fleiri minningargreinar um Þor-
stein Andrésson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Íris Dögg.