Morgunblaðið - 07.02.2007, Síða 28

Morgunblaðið - 07.02.2007, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar FriðrikÓlafsson smiður fæddist í Hafn- arfirði 12. maí 1965. Hann lést á heimili sínu 29. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Guðlaug Hanna Friðjóns- dóttir, f. 12. janúar 1937, og Ólafur Ingimundarsson, f. 5. janúar 1933, d. 27. maí 2003. Systk- ini Gunnars eru Hulda Ólafsdóttir Scoles, f. 14. febrúar 1955, Anna Ólafsdóttir, f. 17. júní 1956, Guð- rún Ólafsdóttir, f. 21. september 1958, og Friðjón Ólafsson, f. 13. maí 1961. Gunnar ólst upp í Hafnarfirði og bjó þar lengstum. Hann lagði gjörva hönd á margt, starfaði meðal annars hjá Byko um nokk- urra ára skeið sem og hjá Ísal. Þá starfaði hann sem kranamaður hjá SH verktökum um hríð en seinni ár vann hann einkum við smíðar og leik- myndasmíðar ásamt bróður sínum Frið- jóni hjá fyrirtækinu Meistaraverk sem meðal annars hefur annast gerð leik- myndar Latabæjar. Jafnframt starfaði Gunnar sem dyra- vörður á kránni Grand Rokk. Þá tók hann virkan þátt í ýmsum félagsstörfum svo sem hjá skákfélaginu Hróknum og íþróttafélaginu ÍH. Árið 1998 greindist Gunnar með MS-sjúkdóm og hjartasjúk- dóm við lok síðasta árs. Gunnar verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku bróðir, núna ertu farinn frá okkur. Söknuðurinn er svo sár að það verður fátt um orð. Þú ert umvafinn kærleika Guðs. Getur það verið? Getur verið að ég, eins og mér líður núna, sé umvafinn kærleika Guðs, umhyggju og blessun hans? Já, ég trúi því að það sé rétt. Guði þykir vissulega vænt um börnin sín. (Gunnar Hamnøy) Guð geymi þig elsku bróðir. Hulda systir. Árið 2007 byrjar ekki vel. Harmafregn. Kær vinur minn er fallinn frá langt um aldur fram. Áfall. Sannkallað áfall því Gunnar Ólafsson var afbragðs maður. Hann var smiður góður og greiðvikinn þannig að ekki fór hjá því að fólk leitaði til hans með eitt og annað sem aflaga fór eða upp þurfti að byggja. Leitaði til hans ekki ein- ungis vegna þess hversu bóngóður hann var og handlaginn heldur ekki síður sökum þess að Gunnar var öðrum mönnum skemmtilegri. Reyndar einn af fyndnari sonum Hafnarfjarðar, frábær félagsskapur og hvers manns hugljúfi. Ávallt með spaugsyrði á vör og varla nokkur sá svo forpokaður að Gunnar gæti ekki spjallað við hann. Gjarnan eftir að hafa slegið þann hinn sama út af laginu með einhverri athugasemd sem gat verið fullkomlega óviðeig- andi. Og þannig brotið ísinn, því ávallt fylgdi smitandi skellihlátur. Hann fór ekki í manngreinarálit og var vinsæll. Undir spaugseminni bjó svo leiftrandi frjór og skarpur hugur. Enda er það heimskra manna hátt- ur að rugla saman því að séu menn húmorískir að upplagi fylgi grunn- hyggni með í kaupunum. Því er öf- ugt farið. Gunnar velti sannarlega fyrir sér flóknum tilvistarspurning- um og gefandi að ræða við hann á þeim nótum. Þó Gunnar hafi verið ýmsum góð- um gáfum gæddur var líf hans eng- inn dans á rósum. Hann átti við sína demóna að stríða. Fyrir nokkrum árum greindist Gunnar með MS sjúkdóm og olli þeim sem hann var kær nokkrum áhyggjum með því að fara alls ekki nógu vel með sig til að mæta því. Vildi lítt sinna því að draga úr vinnu þó sjúkdómurinn drægi úr honum þrótt. Og hafði að auki ekki eirð í sér til að safna kröftum heima við þegar vinnudegi lauk. Gunnar taldi þá réttara að fara út á meðal fólks og blanda geði. Hann var sá sem hann var: Gleði- maður og vildi lifa lífi sínu lifandi. Á sinn hátt. Félagslyndur og hafði reyndar allt það sem prýða má þann sem tekur sig vel út glaður á góðri stundu: Gamansemi, góða söngrödd og létta fætur á dansgólfi. Ef til vill má hanga á því haldreipi huggunar að þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm var hann vel virkur meðal vina sinna og fjölskyldu allt þar til yfir lauk og hjartað brast. En Gunnar átti undir það síðasta við hjartakvilla að stríða og beið að- gerðar til að fá bót þeirra meina sinna. Ekki átti fyrir honum að liggja að vera bundinn við sjúkra- rúm sem hefði átt sérlega illa við mannblendinn mann sem hann. Gunnars er sárt saknað. Blessuð sé minning þess góða drengs. Lífið er sannarlega fátæklegra án hans. Ég vil nota þetta tækifæri og senda fjölskyldu hans samúðarkveðjur á þessari erfiðu stund. Jakob Bjarnar Grétarsson Elsku Gunni minn, þegar þetta er skrifað eru liðnir 5 dagar síðan þú fórst frá okkur og vonir mínar um að vakna upp af vondum draumi fara hverfandi en í staðinn hellist þessi erfiða og óraunverulega stað- reynd yfir mig. Gunni frændi er dá- inn. Þessi yndislegi maður sem átti allt það besta skilið. Ég sakna þín svo mikið og það er svo tómlegt við matarborðið hjá ömmu án þín. Þeg- ar afi dó fyrir 3½ ári fékkst þú sæt- ið hans við matarborðið en nú er sætið autt. Það vantar svo hláturinn og hlýjuna, og þú gerðir allt fyrir alla. Langamma Hulda sagði mér frá því um daginn að þú hefðir bjargað lífi hennar, hvað hún hefði verið heppin að þú hefðir verið hjá henni. Þú varst besti vinur hennar, „hann kom alltaf reglulega til þess að athuga hvort það væri ekki allt í lagi með mig“. Svo þegar þú hittir okkur sagðirðu okkur frá því hvað langamma væri nú alltaf hress og skemmtileg og fyndin þrátt fyrir háan aldur. En svo sagði langamma við mig, „hann kemur víst ekki á morgun“, það var svo sárt fyrir hana og okkur öll að sjá þig fara. Hvernig verða jólin án Gunna frænda? Ég get bara ekki hugsað til þess. Ekki getum við spilað Trivial án þess að þú vinnir okkur, það var bara árleg hefð. Það var ótrúlegt hvað þú varst fróður og með þetta myndavélarminni, ef maður spurði þig hvernig þú vissir hitt og þetta var svarið alltaf „æ, ég las þetta bara einhvers staðar“. Ég var alltaf að segja þér að skrá þig í Meist- arann á Stöð 2 en þú vildir ekkert með svoleiðis hafa, því þú varst líka svo hógvær. Ég veit að ef þú hefðir skráð þig þá hefðirðu sko farið alla leið, enda sagði ég alltaf við þig „Gunni, þegar ég fer í viltu vinna milljón þá verður þú símtalið mitt“, hver annar. Þegar Sunna systir fór á spít- alann varstu svo góður við hana, komst mörgum sinnum í heimsókn og oftast bara einn, oftar en ekki með nammi og Simpsons-þætti og svo sastu hjá henni og spjallaðir eða horfðir með henni á sjónvarpið. Alltaf svo hjartahlýr. Ég og Gunnar Friðrik Ólafsson Elsku pabbi minn, í dag hefðir þú orðið sex- tugur. Ég sé fyrir mér daginn – eins og hann hefði orðið. Myndlistarsýning, opið hús þar sem öllum er boðið, rétt eins og þegar þú varðst fertugur fyrir austan á Vopnafirði. Aðalmaðurinn. Eða þegar þú varðst fimmtugur og kirkjukórinn kom og söng fyrir þig í morgunsárið – opið hús í Tungusíð- unni. Alltaf stór dagur, afmælisdag- urin þinn. Í dag værir þú kominn á fullt í lífinu að nýju, eftir mikla dýfu. Búinn að mála fyrir Stóra daginn. Helgi Jósefsson Vápni ✝ Helgi JósefssonVápni fæddist í Reykjavík 7. febr- úar 1947. Hann lést 3. desember 2005 og var útför hans gerð frá Laugarnes- kirkju 15. desem- ber. Setja tilkynningu í blöðin. Opið hús verður í … En þetta er það sem ég sé fyrir mér. Raunveruleikinn er annar. Aðalmaðurinn er farinn en verður ávallt í hjarta okkar. Svo oft hef ég fengið að heyra á undangengnu ári: Já var Helgi pabbi þinn, hann var góður maður og/eða hann reyndist mér/okkur alltaf svo vel. Svo sann- arlega er það rétt, elsku pabbi minn, reyndist öllum svo vel, trúr þínum vinum og kunningj- um. Eða bara öllum þeim sem leituðu til þín. En nú leitum við þín í bæninni, því nú ertu, eins og Snæfríður Dögg segir; afi sem er hjá Guði. Til hamingju með daginn, elsku pabbi minn. Ég elska þig og sakna sárt. Þín Sonja Dröfn. Lokað Múlaradíó ehf. verður lokað fimmtudaginn 8. febrúar vegna útfarar SVEINU B. KARLSDÓTTUR. Múlaradíó ehf. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar BIRNU ÞÓRUNNAR AÐALSTEINSDÓTTUR, Sigtúni, Borgarfirði eystra. Árni Björgvin Sveinsson, Árni Bergþór Kjartansson, Petra Jóhanna Vignisdóttir, Þröstur Fannar Árnason, Hólmfríður Jóhanna Lúðvíksdóttir, Ragnhildur Sveina Árnadóttir og barnabörn. SÓLSTEINAR  Gæði  Góð þjónusta  Gott verð  Mikið úrval i j i i l Kársnesbraut 98, 200 Kópavogi – s: 564 4566 www.solsteinar.is – sol@solsteinar.is 15-50% afsláttur ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ARNAR ANDRÉSSON, Bröttuhlíð 8, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 7. febrúar, kl. 13.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en bent er á minn- ingarsjóð FAAS, Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga. Friðbjörg Óskarsdóttir, Lilja Þorsteinsdóttir, Snorri Árnason, Kristín Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Leví Pálmason, Alda Þorsteinsdóttir, Vignir Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vináttu vegna andláts BERTRAM HENRY MÖLLER, Tunguvegi 24, Reykjavík. Guðríður Erla Halldórsdóttir, Hákon Gunnar Möller, Linda Möller, Guðrun Möller, Ólafur Árnason, Sóley Halla Möller, Hjörtur Bergstað, Einar Kári Möller og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HÁMUNDUR VALDIMARSSON fv. aðalvarðstjóri lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 9. febrúar kl. 13.00. Gunnar Björn Gunnarsson, Sigríður Birna Björnsdóttir, Valdimar Ragnar Gunnarsson, Sjöfn Bjarghildur Eysteinsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Birgir Bjarnason, Jóna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför bróður okkar, mágs og frænda, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, Logafold 113, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Sigurðar Arnarsonar, prests í London, fyrir mikla og góða aðstoð. Tómas Guðmundsson, Sigurbjörg Ásta Magnúsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.