Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SIGURGEIR Svavarsson, sem varð Íslands- meistari í 15 km skíðagöngu á Landsmótinu á Akureyri í gær þarf ekki að kvarta undan því að talan þrettán sé hon- um óhagstæð; hvað þá föstudagurinn þrettándi sem sumir mega varla heyra á minnst. Föstudagurinn þrettándi var í gær og þá sigraði Sigurgeir sem fyrr segir í 15 km göngunni – þrettán árum eftir að hann varð Íslandsmeistari síðast. Og Sigur- geir, sem ber sannarlega nafn með rentu, benti blaðamanni á að þetta væri ekki eini eftirminnilegi þrettándinn í lífi hans: „Fyrir níu árum eignaðist ég strák föstudaginn þrettánda; það var að vísu í mars, en það er mik- ill happadrengur,“ sagði Sig- urgeir við Morgunblaðið eftir sig- urinn í gær. | Íþróttir Heppinn á óhappa- daginn Sigurgeir Svavarsson MAÐURINN, sem fannst látinn í Vopnafirði í fyrradag og talið er að hafi fallið útbyrðis úr báti sínum, hét Guðmundur Ragnarsson. Hann var 64 ára, fæddur 20.9. 1942. Guð- mundur var til heimilis í Hafn- arbyggð 23 á Vopnafirði og lætur eftir sig eiginkonu og fjóra upp- komna syni. Lést í Vopnafirði GUNNAR Bragi Sveinsson, varafor- seti sveitarstjórnar Skagafjarðar, segir að það verði væntanlega á verksviði nýrrar sveitarstjórnar Skagafjarðar, sem kosin verður eftir þrjú ár, að taka ákvörðun um hvort Skatastaðavirkjun og Villinganes- virkjun verða settar inn á aðalskipu- lag sveitarfélagsins. Áform um virkjun við Skatastaði og Villinganes hafa verið umdeild heima í héraði. Sveitarstjórnin er núna að vinna að aðalskipulagi sveit- arfélagsins. Fyrir fundi sveitar- stjórnar á fimmtudag lá tillaga frá fulltrúum VG og Sjálfstæðisflokks, þess efnis til að flýta fyrir samþykkt aðalskipulags fyrir Skagafjörð verði horfið frá þeirri ætlan að hafa Vill- inganesvirkjun inni á tillögu að að- alskipulagi fyrir sveitarfélagið og að skipulagi á svæðum sem tengjast hugmyndum um virkjun við Skata- staði verði frestað. Fulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar sem mynda meirihluta í sveitarstjórn lögðu fram breyting- artillögu þess efnis að skipulagningu þeirra svæða, sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganes- virkjanir, verði frestað og var sú til- laga samþykkt með átta atkvæðum fulltrúa Framsóknarflokks, Sam- fylkingar og Sjálfstæðisflokks, en Bjarni Jónsson, fulltrúi VG, sat hjá. „Það er ekki í spilunum í dag að það sé grundvöllur fyrir því að hægt sé að nýta þessa orku hér heima. Okkur fannst þetta því skynsamleg- asta leiðin, að vera ekkert að gefa einhverju undir fótinn sem er ekki á dagskránni.“ Gunnar Bragi segir að það sé heimild fyrir því í lögum að fresta því að skipuleggja einstök svæði inni á aðalskipulagi. Sveitarstjórnin ætli að nýta sér það og fresta því að skipu- leggja svæði sem hafa verið fyrir- huguð undir virkjanir. Gunnar Bragi sagði að orkufyrir- tækin hefðu sýnt því áhuga að rann- saka þessa virkjunarkosti. Nú væri hins vegar verið að skoða útfærslur sem fælu í sér mun minni áhrif á náttúru og ferðaþjónustu. Grund- vallaratriðið sé þó að ef farið verði út í að virkja verði orkan notuð til að efla atvinnu í héraði. Minnihlutinn vildi Villinganes- virkjun út af aðalskipulagi Bjarni Jónsson, oddviti VG, segist ekki vera sáttur við afgreiðslu sveit- arstjórnar. Meirihlutinn hafi í haust lagt fram tillögu um að Villinganes- virkjun færi inn á skipulagið. Þetta hafi kallað á hörð viðbrögð í hér- aðinu. Síðan hafi meirihlutinn verið á flótta í málinu. Tillaga Sjálfstæðis- flokks og VG hafi verið tillaga til sáttar í málinu. Bjarni segist hafa viljað koma Villinganesvirkjun út af skipulaginu, en meirihlutinn hafi ekki verið tilbúinn til þess. Þess vegna hafi hann setið hjá. Ný sveitarstjórn mun fjalla um virkjanirnar FYRIRTÆKIÐ sem varð til við sameiningu á rekstri Olíufélags- ins, Bílanausts og fleiri fyr- irtækja hefur hlotið nafnið N1. Markmiðið með sameiningunni er sagt vera að efla þjónustuna á öllum sviðum. Þjónusta N1 mun verða í boði á um 115 stöðum um landið allt. Áhersla lögð á metnað Hermann Guðmundsson, for- stjóri N1, segir að með nafninu N1 sé lögð áhersla á metnað fyr- irtækisins til að vera í forystu hvað varðar góða þjónustu. „Við erum ekki lengur olíufé- lag, heldur alhliða verslunar- og þjónustufyrirtæki,“ segir Her- mann. Þeir sem eiga safnkort Essó og hafa safnað punktum munu áfram geta notað kort sín hjá N1. Merki félagsins er hannað af auglýsingastofunni Fíton. Form þess á að endurspegla kraft, lip- urð og áræði. Essó og Bílanaust verða N1 Morgunblaðið/ÞÖK Breytingar Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, kynnti nýja nafnið í Hafnarhúsinu í gær. ÍSLENSK danspör stóðu sig mjög vel í hinni árlegu Blackpool- danskeppni sem lauk í gærkvöldi. Andri Fannar Pétursson og Helga Kristín Ingólfsdóttir lentu í 4. sæti af 114 pörum í cha cha cha í flokki 6 til 12 ára barna í fyrrakvöld og Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg komust í 12 para undanúrslit í standarddönsum í ald- ursflokknum 12 til 15 ára. 236 pör tóku þátt í standarddöns- unum, þ.e. vals, tangó, foxtrot og quickstep og voru Alex Freyr og Ragna Björg í hópi þeirra bestu. 269 pör kepptu í suðuramerískum dönsum og þar komust þau í 48 para úrslit. „Þetta er frábær árang- ur hjá íslensku pörunum, því hér keppa sterkustu pör heims,“ segir Kara Arngrímsdóttir danskennari sem var í Blackpool í Englandi með íslenska danshópnum. 29 íslensk danspör tóku þátt í tveimur aldursflokkum í keppninni. „Þetta er stærsta, sterkasta og fjöl- mennasta dansmót sem haldið er fyrir börn og unglinga í heim- inum,“ segir Kara. Íslenskir dansarar í fremstu röð Verðlaunahafar Helga Kristín Ingólfsdóttir og Andri Fannar Pétursson lentu í 4. sæti í cha cha cha í flokki barna 6–12 ára í Backpool-danskeppninni. Sveifla Í eldri flokknum kepptu 236 pör í stand- arddönsum og komust þau Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg í 12 para undanúrslit. LÖGREGLAN í Borgarnesi sendi björgunarsveit til móts við fjóra er- lenda ferðamenn sem voru á göngu á Langjökli seint í gærkvöldi. Mað- ur sem átti að sækja mennina í skál- ann Jaka við jökulröndina ofan við Húsafell bað um aðstoð þar sem hann sat fastur og komst ekki til að sækja þá. Ekkert amaði að mönn- unum. Sóttu ferða- menn að Langjökli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.