Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 76
LAUGARDAGUR 14. APRÍL 104. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Vill að eftirlaunum ráða-
manna verði breytt
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, sagði við
setningu landsfundar flokksins að
lög um eftirlaun ráðamanna og
ákvörðun um stuðning Íslands við
innrásina í Írak væru „eins og fleinn
í holdi þjóðarinnar“. Hún hyggst
beita sér fyrir því að lögunum verði
breytt. » Forsíða og miðopna
Vinstri græn í sókn
Vinstri græn, Framsóknarflokk-
urinn og Frjálslyndi flokkurinn
bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri
könnun Capacent Gallup. » 4
Telur markmiðið óljóst
Norskur fjármálasérfræðingur
telur að Kaupþing hafi stigið feilspor
með því að greina ekki á opinskárri
hátt frá því að hverju bankinn
stefndi kæmist hann í ráðandi stöðu
í tryggingafélaginu Storebrand. »18
Átta taldir af eftir sjóslys
Talið er að átta menn hafi farist
þegar norskum dráttarbáti hvolfdi
nálægt olíuborpalli vestan við Hjalt-
landseyjar í fyrradag. »22
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Dásamlega Júróvisjón
Staksteinar: Framsókn sækir á
Forystugreinar: Árvakur og Blaðið
| Tilvera Samfylkingar
UMRÆÐAN»
Óþægilega spurningin
Samgöngur í sátt við náttúruna
Sögulegar sættir um síðir?
Tannheilsa íslenskra barna
Lesbók: Kvæðalag Jónasar
Börn: Lífsgæðakapphlaupið
meira á Íslandi
Enski: Eigum heima í írvalsdeild
LESBÓK | BÖRN | ENSKI»
3
+6"&
. "*
+
7
""#" 5
" 0
0 0 0 0 0 0 0 0
0
- 8 5 &
0
0
0 0 0 0 0
9:;;<=>
&?@=;>A7&BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA&8"8=EA<
A:=&8"8=EA<
&FA&8"8=EA<
&/>&&A#"G=<A8>
H<B<A&8?"H@A
&9=
@/=<
7@A7>&/*&>?<;<
Heitast 13 °C | Kaldast 5 °C
Suðvestan 10–18 m/s
en allt að 23 m/s norð-
vestanlands. Lægir
heldur síðdegis. »10
Söngkeppni fram-
haldsskólanna fer
fram í kvöld og gæti
þar verðandi söng-
stjarna stigið sín
fyrstu skref. »65
TÓNLIST»
Nemendur
keppa í söng
FEGURл
Fanney Lára fegurst
fljóða Reykjavíkur. »64
Stúdentaleikhúsið
frumsýnir í dag
verkið Examinasjón
í kartöflugeymsl-
unum í Ártúns-
brekku. »64
LEIKLIST»
Hinn full-
komni rass
AF LISTUM»
Grátandi drengir og
flökkusögur. »70
FÓLK»
Ævi Önnu Nicole Smith
á hvíta tjaldið. »65
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Stakk nýfædda dóttur sína
2. Nýtt par í Hollywood
3. Fanney Lára valin ungfrú Rvík
4. Læsti dóttur sína inni í ísskáp
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HVER Íslendingur fór um það bil
fimm sinnum í kvikmyndahús að
meðaltali á síðasta ári samkvæmt
upplýsingum frá SMÁÍS, Samtökum
myndrétthafa á Íslandi. Alls voru
bíóferðirnar um 1,5 milljónir sem er
8,7% aukning frá árinu áður.
Forsvarsmenn kvikmyndahús-
anna segja þessa aukningu ekki
koma á óvart þrátt fyrir áhyggjur er-
lendra kvikmyndafyrirtækja af nið-
urhali á kvikmyndum á Netinu.
Segja þeir að miklu máli skipti að
fjölmargar stórmyndir séu frum-
sýndar hér á landi á svipuðum tíma
og í Bandaríkjunum, auk þess sem
öll aðstaða í íslenskum kvikmynda-
húsum sé til fyrirmyndar.
Vinsælli en Johnny Depp
Þá segja þeir að íslenska kvik-
myndin Mýrin hafi skipt sköpum á
síðasta ári, en hana sáu 81.850
manns og fékk hún besta aðsókn
allra kvikmynda sem sýndar voru í
íslenskum kvikmyndahúsum á síð-
asta ári. Í öðru sæti var bandaríska
stórmyndin Pirates of the Caribbean
2, en hana sáu rúmlega 65.000
manns. Hún var hins vegar mest
sótta myndin bæði í Bandaríkjunum
og Bretlandi.
Bjartsýnir á frekari aukningu
Talsmenn kvikmyndahúsanna eru
bjartsýnir á frekari aukningu í ár og
telja þeir dagskrána enn glæsilegri
en í fyrra. Því til rökstuðnings nefna
þeir nokkrar þeirra stórmynda sem
frumsýndar verða á þessu ári, svo
sem Spiderman 3, Pirates of the
Caribbean 3, Die Hard 4, Harry
Potter and the Order of the Phoenix
og Shrek 3.
Mýrin skipti sköpum
Hver Íslendingur fór um það bil fimm sinnum í kvikmyndahús á síðasta ári
sem er 8,7% aukning milli ára Mýrin var mest sótta mynd ársins 2006
Segull Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu í vinsælustu mynd síðasta árs.
Í HNOTSKURN
» Bíóferðir á Íslandi voruum 1,5 milljónir á síðasta
ári.
» Flestir sáu Mýrina, eða81.850 manns, og námu
tekjur af myndinni rúmum 88
milljónum króna.
» Talsmenn kvikmyndahús-anna segja miklu skipta að
kvikmyndir séu frumsýndar
hér á sama tíma og í Banda-
ríkjunum.
Ein og hálf milljón | 72
JÓNAS Hall-
grímsson skrifaði
frægan ritdóm í
Fjölni árið 1837
þar sem hann er
sagður hafa geng-
ið af rímnakveð-
skap Íslendinga
dauðum. En nú er
komið í ljós að
Jónas sjálfur
kvað rímur sem
ungur maður. Hann átti meira að
segja sitt eigið kvæðalag, svokallað
Eyfirðingalag.
Kvæðalag Jónasar er varðveitt í
þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteins-
sonar en það var Páll Melsteð, fyrr-
verandi alþingismaður og skólabróð-
ir Jónasar, sem kvað kvæðalagið
fyrir Bjarna.
Gunnsteinn Ólafsson tónlistar-
maður segir að afstaða Jónasar til
rímna sé merkileg í ljósi þessa.
„En þetta álit Jónasar stafaði ekki
af hroka menntamannsins gagnvart
menningu alþýðunnar; þetta var
uppgjör kvæðamanns við fortíð sína
og tónlistaruppeldi í æsku,“ segir
Gunnsteinn. | Lesbók
Jónas átti
sitt eigið
kvæðalag
Jónas
Hallgrímsson
PEYSUFATADAGUR nemenda á
3. ári í Kvennaskólanum var
haldinn hátíðlegur í gær. Nem-
endur voru uppteknir allan dag-
inn við að skemmta sér og meðal
annars var setið morgunverð-
arboð framsóknarkvenna í Ými
við Skógarhlíð.
Þó að veðrið væri ekki upp á
það besta lét ungviðið það ekki á
sig fá og dansaði óvarið fyrir
rigningunni af hjartans lyst.
Áhorfendur höfðu þó varann á og
skörtuðu glæsilegum regnhlífum
eins og þessi unga snót sem hafði
þó kannski heldur meiri áhuga á
ljósmyndara Morgunblaðsins en
dönsurunum sjálfum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Dansað í rigningunni