Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KEFLAVÍK/ AKUREYRITHE GOOD SHEPERD kl. 6 - 9 - 10:30 B.i. 12 áraBECAUSE I SAID SO kl. 6 - 8:15 - 10:30 LEYFÐ MISS POTTER kl. 5:40 - 8 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8:15 - 10:30 B.i. 7 ára 300 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára THE GOOD GERMAN kl. 5:30 B.i. 16 ára ÓSÖGÐ SAGA ÖFLUGUSTU LEYNIÞJÓNUSTU FYRR OG SÍÐAR C.I.A ÚRVALSLIÐ LEIKARA Í MAGNAÐRI KVIKMYND UNDIR TRYGGRI LEIKSTJÓRN ROBERT DE NIRO Börn sjá meira en fullorðnir gera sér grein fyrir! SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ MEET THE ROBINSONS kl. 2 - 6 LEYFÐ CHAOS kl. 8 B.i. 16 ára SMOKING ACES kl. 10:10 B.i. 16 ára ÚTI ER ÆVINTÝRI kl. 2 - 4 LEYFÐ THE MESSENGERS kl. 8 - 10 B.i. 16 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ MEET THE ROBINSONS m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8 - 10 B.i. 7 ára THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 6 LEYFÐ á allar sýningar merktar með appelsínugulu 5. til og með 9. apríl Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍKSPARBÍÓ 450kr BECAUSE I SAID SO BESTA MAMMA Í HEIMI GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI Diane Keaton Mandy Moore SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI Háspenna, lífshætta frá Pang Bræðrum. STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is ÓLÍKT kvikmyndaaðsókn beggja vegna Atlantsála jókst aðsókn í kvik- myndahús hér á landi árið 2006, að því er fram kemur á fréttavefnum Land & synir, sem er málgagn ís- lensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar. Alls voru bíógestir í fyrra um 1,5 milljónir, sem er 8,7% aukning frá árinu 2005 samkvæmt tölum frá SMÁÍS, Samtökum mynd- rétthafa á Íslandi. Mesta aðsókn á árinu fékk ís- lenska myndin Mýrin, en 81.580 manns sáu myndina í bíó. Þá var hún langtekjuhæsta myndin, sem skýrist að hluta til af því að dýrara er á ís- lenskar kvikmyndir en erlendar. Í öðru sæti hafnaði Pirates of the Ca- ribbean 2 sem var mest sótta myndin bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Mikil bíóþjóð „Mýrin hefur haft mikil áhrif á þessa aukningu, enda var hún hrylli- lega sterk á síðasta ári,“ segir Aron Víglundsson, markaðsstjóri hjá Myndformi/Laugarásbíói, og bætir við að góð aðstaða í íslenskum kvik- myndahúsum hafi einnig sitt að segja. „Ég held að við séum líka með hæsta meðaltalið í bíóaðsókn í heim- inum, einhvers staðar á milli fimm og sex bíóferðir á mann held ég. Þannig að við erum mikil bíóþjóð,“ segir Ar- on sem er bjartsýnn á áframhaldandi aukningu. „Ég hugsa að árið í ár verði enn stærra því mönnum fannst nú úrvalið í fyrra ekkert sérstakt fyrirfram. Í ár eru hins vegar alls- vakalegar myndir að koma, til dæmis Spiderman 3, Pirates of the Carib- bean 3, The Bourne Ultimatum, Transformers og fleiri.“ Aðspurður segir Aron niðurhal á kvikmyndum ekki hafa mjög mikil áhrif á íslensk kvikmyndahús. „Það hefur náttúrlega alltaf ein- hver áhrif en ég held að fólk fari í bíó til þess að fara í bíó. Það er upplifun að fara í bíó, en það eru þessir „nör- dar“ sem keppast við að hlaða niður myndum og horfa á þær í tölvunni heima hjá sér. Ég man til dæmis að þegar við vorum að sýna Lord of the Rings var keppst við að ná í fyrsta eintakið á Netinu, en ég held að eng- inn þeirra sem náði í hana þannig hafi bara horft á hana í tölvunni heima hjá sér,“ segir Aron. Aukin þægindi „Ein stærsta íslenska mynd allra tíma er stærsta ástæðan fyrir þess- ari aukningu, en einnig að það kom ný James Bond-mynd í fyrsta skipti í fjögur ár,“ segir Guðmundur Breið- fjörð, markaðsstjóri kvikmynda- deildar Senu. „Bíóin eru líka að bæta sig í þjónustu, það er verið að gera upp kvikmyndahúsin þannig að það er meira bil milli sæta, aukin þæg- indi og fleira í þeim dúr. Samkeppnin er gífurleg og það hefur áhrif.“ Guðmundur segir að kvikmynda- húsin láti ekki nýja afþreyingarmiðla slá sig út af laginu, til dæmis nýjar leikjatölvur. „Í gamla daga átti fyrst sjónvarpið og svo myndbandstækið að drepa bíóið. En Íslendingar eru mikil bíóþjóð og menn vilja sjá nýj- ustu stórmyndirnar á stóru tjaldi. Svo er í auknum mæli verið að heimsfrumsýna myndir hér á landi og bara á þessu ári eru heims- frumsýndar hér á landi myndir á borð við Spiderman 3, Pirates of the Caribbean 3 og Die Hard 4,“ segir Guðmundur, sem býst við enn frek- ari aukningu í ár. „Ég hef sjaldan eða aldrei séð eins flotta dagskrá og í ár.“ Guðmundur segir að niðurhal kvikmynda hafi áhrif á aðsókn að þeim kvikmyndum sem sýndar eru mun seinna hér á landi en í Banda- ríkjunum, en ekki á aðsókn að þeim myndum sem frumsýndar eru hér á landi á svipuðum tíma og þar. Berjast gegn niðurhali Þorvaldur Árnason, forstöðumað- ur kvikmyndadeildar hjá Sambíó- unum, tekur í sama streng og segir að Mýrin hafi gert útslagið varðandi aukna aðsókn. „Aðsóknin hefur hins vegar breyst þannig að stóru mynd- irnar eru orðnar stærri en áður, en jafnframt er orðið erfiðara að gefa út þær minni. Við erum til dæmis farnir að sjá fleiri og fleiri myndir sem við eigum erfitt með að ná 1.000 manns á,“ segir Þorvaldur. „Það er mikil hefð fyrir því á Ís- landi að fara í bíó. Þróunin er samt ekkert ósvipuð og í öðrum löndum en auðvitað sveiflast þetta milli landa eftir árum og það er ekki alltaf fylgni á milli,“ segir Þorvaldur um muninn á aðsókninni hér og í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þá segir hann niðurhal mynda ekki hafa mikil áhrif á aðsóknina. „Við reynum að berjast gegn því með því að vera með myndir á sama degi og í Ameríku, koma með stóru myndirnar strax svo menn hali þeim ekki niður á meðan.“ Þorvaldur er bjartsýnn á góða að- sókn í ár og nefnir í því sambandi myndir á borð við Shrek 3 og nýju myndina um galdrastrákinn Harry Potter. Ein og hálf milljón bíógesta í fyrra Aðsókn að íslenskum kvikmyndahúsum jókst um 8,7% árið 2006 og gæti aukist enn frekar árið 2007 +   #  !  )&&0 <PE! #</$2 75GE$Q.M5J3G '37 $ " F7R + * ) ' B   + /0  1  !)23")4  55)  4  6 ) 7  8 4) 98):) * ! /  9; 5 ) 4" 8 )<  = ;) 6)! 4    5      5  5  5  5 # ,,# #, # # #  ## # #, # ,#  # #  # #, #,# , #, # =%',=& 0,'1&0 ,%',1) ,)'/=. ,)'/&* /='=/= )1'.*. )*'1%& )1'&., )0'=)0 - 53 /$R  = "A &M ReutersKyntákn Johnny Depp sem Jack Sparrow í Pirates of the Caribbean 2, næstvinsælustu mynd seinasta árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.