Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 43 STAKSTEINAR Morgunblaðs- ins 12. apríl fjalla, að mér finnst með skætingi, um hógværa grein eftir mig í Morgunblaðinu 11. apríl um Reykjavíkurbréf. Staksteinar biðja um skýringar á grein minni, sem þeir kalla furðuskrif. Áður en ég svara skætingi Stak- steina vil ég taka fram að Morg- unblaðið á þakkir skildar fyrir þá þjón- ustu við lýðræðið að vera öllum opið. Mogginn er miðja umræðunnar í land- inu. „Morgunblaðið er málþing þjóðarinnar“ var eitt sinn fyrirsögn á grein. Morg- unblaðið er helsti far- vegur lýðræð- isumræðu í landinu. Þetta er sérstaklega þakkarvert þegar haft er í huga að Mogginn er rammpólitískur. Pólitík sína birtir hann í Staksteinum, leiðara og Reykjavíkurbréfi og stundum má lesa hana úr fréttavali blaðsins. Ekki benda á mig Staksteinar nánast frábiðja sér ábyrgð Moggans á innihaldi Reykjavíkurbréfsins og skjóta sér bak við grein eftir Gylfa Arn- björnsson. Í Staksteinum segir: „Það eru þrjár hugsanlegar skýringar á þessari furðulegu grein Birgis Dýrfjörð. Í fyrsta lagi er hugs- anlegt að hann hafi ekki tekið eftir tilvitnunarmerkjum. Sé svo er hon- um fyrirgefið. Í öðru lagi er hugs- anlegt að hann hafi verið að gera að gamni sínu og það er líka hægt að fyrirgefa. En í þriðja lagi má spyrja hvort hann er að ráðast á Gylfa Arnbjörnsson með þeim sér- kennilega hætti sem á dögum kalda stríðsins var kennd við Albaníu.“ Auðvitað vefst ekki fyrir neinum að höfundur Reykjavíkurbréfsins er að skrifa um efnahagsþensluna í þjóðfélaginu og sækir rök fyrir þeim skrifum að hluta til í grein Gylfa Arnbjörnssonar og að hluta til í eigin ályktanir. Frá eigin brjósti Mogginn segir m.a. frá eigin brjósti: Þegar ákvarðanir höfðu verið teknar um stórvirkjun og stóriðju á Austur- landi „var öllum ljóst, að þær aðgerðir gætu leitt til nýrrar þenslu í efnahagsmálum, sem gæti raskað hinum efnahagslega stöðugleika og aukið verðbólguna á ný. Það gerðist“. Já, „það gerðist“ segir Mogginn og skammar svo mig fyrir að misskilja sig ekki. Eftir gæsalappaðan kafla úr grein Gylfa um verðtryggðar skuldir heimilanna segir Morg- unblaðið frá eigin brjósti: „Þarna setur Gylfi Arnbjörnsson fram heildartölur um áhrif þenslunnar á undanförnum árum, sem hver og einn landsmaður og þá ekki síst yngra fólk hefur fundið á eigin buddu.“ Hver og einn hefur fundið á eigin buddu segir Mogginn og skammar svo mig fyrir að skilja sig! Og enn segir Morgunblaðið frá eigin brjósti: „að sá viðbótarkostn- aður, sem Gylfi Arnbjörnsson færir rök fyrir að hafi leitt af mikilli efnahagsþenslu undanfarinna ára, sé sá kostnaður, sem þjóðfélagið hafi þurft að axa til þess að standa undir uppbyggingu Austurlands.“ Hér heldur Mogginn því fram sjálfur og hjálparlaust að efna- hagsþensla undanfarinna ára, sé sá kostnaður, sem þjóðfélagið hafi þurft að axla til að standa undir uppbyggingu Austurlands. Svo skjóta Staksteinar sér bak við Gylfa Arnbjörnsson þegar ég and- mælti þessari fullyrðingu Morg- unblaðsins. Hvað eiga svona furðu- skrif eiginlega að þýða? Furðuskrif í Staksteinum Birgir Dýrfjörð svarar skrifum Staksteina Birgir Dýrfjörð » Já, „það gerðist“segir Mogginn og skammar svo mig fyrir að misskilja sig ekki. Höfundur er rafvirki og áskrifandi Morgunblaðsins. Glæsileg 4ra-5 herb. 145 fm endaíbúð á jarðhæð með gluggum í þrjár áttir í þessu eftirsótta lyftuhúsi auk sér stæðis í bílgeymslu og sér geymslu í kj. Íbúðin skiptist í forstofu með fataherb. innaf, hol, stórar og bjartar samliggjandi stofur með útgangi á verönd til suðurs og vesturs, húsbóndaherbergi innaf stofum, rúmgott eldhús með góðri borðaðstöðu, 2 herbergi og baðherbergi sem er nýlega endurnýjað að hluta. Útgangur á verönd úr hjónaherbergi. Hlutdeild í mikilli sam- eign m.a. sundlaug, gufubaði og líkamsræktarsal. Verðtilboð Íbúðin verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 14-16. Bjalla nr. 314. Innsti stigagangur. Verið velkomin. Efstaleiti 14 „Breiðablik“ Glæsileg 4ra - 5 herb. endaíbúð Opið hús í dag frá kl. 14-16 FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Gríptu tækifærið! Fullt af nýrri vöru Frábær tilboð laugard. og sunnu d. Fjölbreytt úrval Feng-Shui vörum • Vasar • Diskar • Lampar • Pottar • Myndir o.m.fl . UNDANFARIÐ hefur verið mikil umræða um versnandi tannheilsu ís- lenskra barna. Samkvæmt nið- urstöðum landsrann- sóknar á tannheilsu barna (Munnís) hefur tíðni tannskemmda aukist, sérstaklega hjá efnaminni fjölskyldum. Dregið hefur verið úr greiðsluþátttöku al- mannatrygginga í kostnaði vegna tann- lækninga barna og virðist það bitna mest á þeim sem hafa lágar tekjur. Sykurneysla Íslend- inga er með því mesta sem þekkist, gott að- gengi er að gosi og sæ- tindum og umræddar vörur hafa aldrei verið ódýrari! Fjölgun tann- skemmda er óhjá- kvæmileg við þessar aðstæður. Ef við viljum snúa þessari þróun við er nauðsynlegt að auka greiðsluþátttöku hins opinbera og breyta verðskrá Trygg- ingastofnunar veru- lega. Það er staðreynd að endurgreiðsla sem var 100% hefur minnkað ár frá ári og er nú að raun- gildi um 50% og í sumum tilvikum engin. Ef barn brýtur t.d. fyllingu eða skemmd myndast við fyllingu sem er innan við 3 ára gömul, er viðgerð- arkostnaður alfarið hjá foreldrum. Bent skal á í þessu samhengi að stærri fyllingar brotna frekar en þær smærri og hætta á frekari tann- skemmdum er oft meiri ef barn er með margar fyllingar í munni. Sem sagt, umrædd „regla“ bitnar mest á þeim börnum sem eru í hvað mestri áhættu að fá tannskemmdir. Hægt er að taka fleiri dæmi þar sem gjaldskrá eða höft á endurgreiðslu er á skjön við nauðsynlega meðferð tannlæknis. „Kerfið“ er orðið svo flókið að nær ógjörn- ingur getur verið að áætla raunkostnað al- mennings í sumum til- vikum. Átak þarf í þessum málaflokki og mikilvægt að breytingar verði gerðar á næstunni. Tannheilbrigðismál hafa ekki verið í forgangi í nær áratug og fyrstu viðbrögð heilbrigð- isráðherra gefa því mið- ur lítið tilefni til bjart- sýni. Ég vil skora á heil- brigðisráðherra að gera almenningi grein fyrir þeim úrbótum sem hún hyggst beita sér fyrir. Það er ekki nóg að benda foreldrum á að bursta tennur barna sinna. Raun- verulegur vilji til úrbóta verður að vera fyrir hendi svo sporna megi við þessari válegu þróun. Tannheilsa íslenskra barna Þórður Birgisson skrifar um auknar tannskemmdir Þórður Birgisson » SykurneyslaÍslendinga er með því mesta sem þekkist. Gott aðgengi er að gosi og sætind- um og umrædd- ar vörur hafa aldrei verið ódýrari. Höfundur er tannlæknir. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.