Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 47 Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Í einkasölu vandað 262 fm einbýli á góðum stað í Hafnarfirði, m/auka íbúð og innb. bílskúr. Efri hæð: Forstofa m/flísum á gólfi. Rúmgott svefnh. ásamt 3 góðum herb. Baðh. m/baðkari, flísalagt í hólf og gólf, eldri innrétting en til er ný innrétting sem ekki er uppsett. Verönd m/heitum potti. Rúmg. stofa/borðstofa m/fallegum arni, halogenlýsing í stofu. Gott eldhús m/vandaðri hvítri Alno innréttingu, granitborðplata, gaseldavél, góður borðkrókur. Á efri hæð er plankaparket á gólfum frá Agli Árnasyni. Neðri hæð: ágætis stigi til neðri hæðar. Gott herb. m/parket á gólfi, gangur m/ágætis vinnuaðst. Rúmg. þvottahús flísalagt. Innangengt í góðan bílskúr m/hurðaopnara. Íbúð neðri hæð: Góður inng. Opið rými, stofa og eldhús m/vandaðri innréttingu. Rúmgott svefnh. Snyrtilegt baðh. m/sturtu. Í dag er opið á milli íbúða. Sélega vandað einbýli/tvíbýli, m/möguleikum á góðum leigutekjum. Góð staðs. og fallegt útsýni. V. 58,5 millj. Þórhallur og Ingileif bjóða ykkur velkomin. Kelduhvammur 10 Hf. - 2 samþykktar íbúðir Opið hús í dag milli kl. 15.00 -16.00 • Laugarnes og Teigahverfi - 100–130 fm helst með bílskúr. • Grafarvogur / Grafarholt - 70–90 fm. Í nýlegu húsi. • Heimar - 80-90 fm í fjölbýli. • Hlíðar / Hvassaleiti - 100-120 fm í fjölbýli. • Háaleitishverfi - 100 fm. Okkur vantar eignir fyrir viðskiptavini okkar á eftirtöldum stöðum: TIL LEIGU - EYJARSLÓÐ Tveggja hæða verslunar-, iðnaðar- og skrifstofu- húsnæði við Eyjarslóð í Reykjavík, samtals 596 ferm. Húsnæðið skiptist þannig: Neðri hæð: 302 ferm. Verslun, tvær skrifstofur og lagerhúsnæði með stórum innkeyrsludyrum, mikil lofthæð. Efri hæð: 294 ferm. Móttaka, skrifstofur, opið rými og kaffistofa. Möguleiki að leigja hvora hæð fyrir sig. Fallegt sjávarútsýni. FLÉTTUVELLIR Glæsilegt, einlyft einbýlishús með tvöföldum bíl- skúr, samtals 214,5 fm. Fjögur svefnherbergi, stór stofa, mikil lofthæð. Húsinu verður skilað fullbúnu að utan, sléttpússað og harðviðarklætt að hluta, lóð verður grófjöfnuð. Gluggar og hurð- ir verða hvítmálaðar og hvítmálaðar hurðir fyrir bílskúrsdyrum. Að innan verður húsinu skilað til- búnu undir tréverk, innveggir eru hlaðnir og múr- aðir, nema burðarveggir sem eru steyptir og múraðir, loftaplata er steypt, lofthæð er 2,9 metrar, gert er ráð fyrir innbyggðri halógenlýs- ingu í stærstum hluta hússins. Loft og veggir verða spartlaðir og grunnaðir eina umferð, til- búnir undir málningu. Þak er einangrað að utan og fullfrágengið. Garður snýr á móti suðri. Fal- lega hannað, vandað og vel staðsett hús. FLÓKAGATA Fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi við Flókagötu í Reykjavík. Þar af er eitt 22 fm herbergi í kjallara er með aðgangi að salerni, sem hentað getur til útleigu. Sameiginlegt þvottahús og sér geymsla. Suðursvalir. Gróinn garður snýr í mót suðri. Verð 23,9 millj. MARKARFLÖT - GARÐABÆ LAUST við kaupsaming. Einbýlishús á frábærum stað, neðan götu, á Flötunum í suðurhlíðum Garðabæjar. Efri hæð: Forstofa og forstofuher- bergi. Stofa er stór og björt, parketlögð. Borð- stofa og sólstofa, flísalögð. Eldhús er flísalagt, falleg innrétting. Í svefnherbergjaálmu eru 3 her- bergi auk baðherbergis með baðkari og sturtu- klefa. Neðri hæð hefur nýlega verið standsett, þar eru þrjú svefnherbergi, öll parketlögð. Bíl- skúr er tvöfaldur. Timburlögð sólverönd. Glæsi- legur og vel gróinn garður. Lóðin er 1.200 fm. Verð 59,5 millj. MIÐTÚN - 105 REYKJAVÍK Falleg, mikið endurnýjuð, tveggja herbergja kjall- araíbúð í litlu fjölbýlishúsi í rólegu hverfi. Verð 16,9 milljónir. NAUSTABRYGGJA - SJÁVARÚT- SÝNI Fallega 86,6 fm þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í litlu fjölbýlishúsi í Bryggjuhverfinu, með frábæru sjávarútsýni, tvennar svalir og bílskýli. Íbúðin er parketlögð fyrir utan baðherbergi og þvottahús. Stofa er parketlögð, útgengi út á litlar svalir, sjávarútsýni. Svefnherbergin eru rúmgóð, gólf parketlögð. Stórar hellulagðar suðursvalir. Eldhús er rúmgott, opið inn í stofuna, sér þvotta- hús. Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, sturtu- klefi. Stæði í bílageymslu, sérgeymsla og sam- eiginleg hjóla- og vagnageymsla. Áhugaverð, frábærlega staðsett íbúð með glæsilegu sjávar- útsýni. Verð 25,4 millj. MÚLABYGGÐ - SUMARHÚS Sumarhús í Múlabyggð (við Grímstaðamúla) í Borgarfirði, u.þ.b. 20 mín. akstur frá Borgarnesi. Aðalhúsið er 64 fm að grunnfleti auk 12,4 fm svefnlofts samtals 76,4 fm, eldhús, stofa og tvö rúmgóð svefnherbergi. Við húsið stendur u.þ.b. 14 fm gestahús (svefnherbergi og baðherbergi). Einnig fylgir með í kaupunum annað samskonar gestahús, óuppsett. Húsin standa í sumarhúsa- byggð, sunnan undir Grímstaðamúla. SKEIÐARÁS FJÁRFESTNGARTÆKIFÆRI. Iðnaðar- og skrif- stofuhús 1.063 fm, á 2.987 fm lóð, með vannýtt- um byggingarrétti. Nýtt deiliskipulag er á um- ræðustigi hjá skipulagsnefnd Garðabæjar. Í næsta nágrenni er mikil uppbygging íbúðarhús- næðis (Sjáland). Upplýsingar á skrifstofu Húsa- nausts eða í síma 530 7200. UNUBAKKI - ÞORLÁKSHÖFN Vel staðsett, steinsteypt atvinnuhús í Þorláks- höfn, sem nýta má til margvíslegrar atvinnustarf- semi. Húsið er skv. skráningu FMR. 1.591,5 fm, auk millilofts (206,5 fm), eða 1.798 fm samtals. Það er einangrað og klætt utan með stálklæðn- ingu. Lóðin, sem er fullfrágengin og malbikuð er 6.361 fm, byggingarréttur er á lóðinni fyrir um 990 fm viðbyggingu. Húsið skiptist í tvo sali auk millilofts, sem hýsir skrifstofur og kaffistofu starfsmanna. Einnig er mjög góð aðstaða fyrir starfsmenn á neðri hæðinni. Frystigeymsla (216 fm), lausfrystir og vélasalur með tveim frystivél- um geta fylgt með í sölunni. Góð, vel staðsett eign, með mikla möguleika til margskonar at- vinnustarfsemi. Ásgeir E. Gunnarsson löggiltur fasteignasali Páll Kolka löggiltur fasteignasali Skúli Sigurðarson löggiltur fasteignasali Andrés Kolbeinsson löggiltur fasteignasali BORGARTÚNI 29 105 REYKJAVÍK SÍMI 530 7200 FAX 530 7207 HUSANAUST.IS husanaust.is Það er vandasamt verk að ráða börn og unglinga í vinnu og taka þar með á sig þá ábyrgð að leiða þá fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Við sjáum það að hvarvetna í stórmörkuðum og á skyndibitastöðum vinna unglingar allt frá 13 ára aldri og jafnvel yngri. Á flokksþingi Framsóknarflokksins var ályktað um málefni barna og unglinga. Þar var m.a. tekið á því nauðsynlega máli að tryggja og standa vörð um réttindi barna og ung- linga á vinnumarkaði. Einnig var sérstaklega tekið fram að foreldrar eða forráðamenn vinnandi unglinga undir 18 ára aldri verði með sannanlegum hætti að samþykkja formlega ráðningarsamninga. Það á alls ekki að vera hægt að ráða ungling yngri en 18 ára í vinnu, setja hann á launaskrá án þess að foreldri sam- þykki ráðninguna og jafnvel án þeirra vitundar. Í ráðningarsamn- ingi þarf að koma fram vinnutilhögun og launakjör. Barn eða ung- lingur sem ekki hefur náð sjálfræðisaldri ætti alls ekki einn og sér að geta ráðið sig til starfa og skuldbundið sig til að leggja af mörk- um ákveðið vinnuframlag. Foreldrar bera hér mikla ábyrgð og gegna lykilhlutverki í að fylgja barni sínu eftir út á vinnumarkaðinn. Vert er að taka fram að ýmsar gagnlegar upplýsingar um vinnu barna og unglinga er að finna á heimasíðu Umboðsmanns barna. Það er mín skoðun að hér verði að koma til gott samstarf aðila vinnu- markaðarins. Vinnuveitendur verða að taka vel á móti börnum og unglingum á vinnustað og sjá til þess að umsamin réttindi á vinnu- markaði séu virt. Einnig þarf að fræða börn og unglinga um að at- vinnuþátttöku fylgja bæði réttindi og skyldur. Í elstu bekkjum grunnskóla á að koma til fræðsla í lífsleikni en í námskrá stendur að nemendur eigi að þekkja íslenskan vinnumarkað og réttindi sín og skyldur sem launþegar. Ábyrgðin er eftir sem áður fyrst og fremst á heimavelli og hjá þeim sem ráða börnin og unglingana í vinnu. Stétt- arfélög leika einnig stórt hlutverk, hér er um að ræða fjölmennan hóp sem þarf sérstaklega á góðum upplýsingum og stuðningi að halda. Hér á landi eru í gildi reglur sem taka á vinnu barna og ung- linga. Við styðjumst við tilskipun frá Evrópusambandinu en þar er m.a. kveðið á um lengd vinnutíma og á hvaða tíma sólarhrings þessir starfsmenn mega vinna. Hér á landi gildir sú regla að börn og ung- lingar 15 ára og yngri í grunnskóla mega á starfstíma skóla aðeins vinna 2 klst. á dag eða 12 klst. á viku. Þessir krakkar mega alls ekki vinna eftir kl. 20 á kvöldin. Ég hef í gegnum starf mitt fylgst með unglingum á mörgum og ólíkum vinnustöðum. Því veit ég að hér er í mörg horn að líta og nauðsynlegt að standa betur að málum, vinnu- staðir kalla eftir vinnuframlagi ungmenna og því er það skylda okk- ar sem komum að uppeldi barna og unglinga að sjá til þess að farið sé í hvívetna að settum reglum. Því fagna ég áherslum Framsókn- arflokksins og tel hér um mjög nauðsynlegt mál að ræða sem við verðum sameinast um að vinna. Börn og unglingar á vinnumarkaði Eftir Fannýju Gunnarsdóttur Höfundur skipar 6. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.