Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BJÖRGUNARMENN hættu í gær leit að fimm mönnum sem saknað er eftir að dráttarbáti hvolfdi ná- lægt olíuborpalli vestan við Hjalt- landseyjar í fyrradag. Björg- unarmennirnir sögðust vera úrkula vonar um að mennirnir fimm fynd- ust á lífi. Lík þriggja manna fund- ust og er því talið að átta menn hafi farist í slysinu. Af fimmtán mönnum sem voru í bátnum voru fjórtán Norðmenn og einn Dani. Fimmtán ára piltur og faðir hans eru á meðal þeirra sem saknað er. Sjö menn í áhöfninni voru fluttir á sjúkrahús eftir slysið sem varð um 75 sjómílum vestan við Hjalt- landseyjar. Ekki er enn vitað hvers vegna bátnum hvolfdi. Báturinn var tæplega árs gamall, um 75 metra langur og 2.500 tonn. Flestir starfsmenn olíuborpallsins voru fluttir af honum vegna hættu á að báturinn skemmdi hann, að sögn norskra fjölmiðla. Talið að átta menn hafi farist í norska bátnum sem hvolfdi AP Bjargaðist Norðmaður sem komst lífs af fer úr sjúkrabíl á Hjaltlandi. NORSKA ríkisstjórnin kvaðst í gær ætla að setja strang- ari siðareglur um fjárfestingar olíusjóðs Norðmanna og fyrsta skrefið yrði að banna kaup á skuldabréfum frá Myanmar (sem hét áður Búrma). Kristin Halvorsen, fjár- málaráðherra Noregs, sagði að einnig væri gert ráð fyr- ir því að bannað yrði að kaupa skuldabréf frá löndum sem sæta refsiaðgerðum af hálfu Sameinuðu þjóðanna eða öðrum refsingum sem norsk stjórnvöld styðja. Olíusjóðurinn nemur nú sem svarar 21.000 milljörðum ísl. króna og gert er ráð fyrir að hann nemi andvirði tæpra 58.000 milljarða króna eftir tíu ár. Halvorsen sagði að sjóðurinn veitti Norðmönnum mikil völd og þeir hygðust nýta þau til að stuðla að betri heimi á tímum alþjóðavæðingar. Sjóðurinn á hlutabréf í um 3.400 fyrirtækjum víða um heim og honum hefur þegar verið bannað að fjárfesta í „sérlega ómannúðlegum“ fyr- irtækjum á sviði vopnaframleiðslu eða fyrirtækjum sem gerast sek um stórfelld mannréttindabrot, spillingu eða mengun. Norska olíusjóðnum settar strangari siðareglur Kristin Halvorsen SVISSLENDINGUR, sem var náð- aður eftir að hafa verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir móðgun við konung Taílands, kom til Sviss í gær eftir að taílensk yfirvöld vís- uðu honum úr landi. Oliver Jufer, 57 ára Svisslend- ingur, hafði játað sig sekan um brot á lögum, sem banna hvers konar móðgun við konunginn, með því að úða málningu á myndir af Bhumi- bol Adulyadej konungi í ölæði í borginni Chiang Mai 5. desember. Svissneska utanríkisráðuneytið fagnaði því að Svisslendingurinn var leystur úr haldi og sagði að Micheline Calmy-Rey, forseti Sviss, hefði þakkað konunginum fyrir að náða Jufer. Reuters Sleppt Svisslendingurinn Rudolf Jufer á leið úr fangelsi í Taílandi. Náðun fanga fagnað í Sviss LÖGREGLAN í Brasilíu kvaðst í gær hafa leyst upp hóp leigumorðingja sem grunaðir eru um að hafa myrt um þúsund manns á fimm árum. Að minnsta kosti 20 manns hafa verið handteknir vegna rannsóknar málsins, þeirra á meðal lögreglumenn, kaupsýslumenn og leigumorðingjar. Dauðasveitir, oft skipaðar fyrrverandi eða starfandi lögreglumönnum, hafa lengi verið vandamál í Brasilíu og kaupmenn hafa stundum beitt þeim gegn götubörnum. Lögreglan segir að glæpahópurinn, sem hún kallar „Morð hf.“, hafi framið um fjögur morð að meðaltali á viku fyrir sem svarar 33.000– 170.000 krónum hvert. Mörg fórnarlambanna voru myrt vegna skulda við okurlánara en önnur í hefndarskyni vegna ýmissa deilumála, meðal annars milli karlmanna um konur. Leigumorðingjar grunaðir um þúsund morð í Brasilíu DANSKA lögreglan notaði þyrlur, kafara og leitarhunda í tveggja vikna leit að 82 ára gamalli konu sem fannst að lokum undir rúminu sínu, að sögn danskra fjölmiðla í gær. „Við höfðum farið nokkrum sinn- um inn í húsið hennar og töldum að við hefðum leitað þar nógu vel. Þannig að stolt okkar er svolítið sært,“ sagði talsmaður lögregl- unnar í Gentofte. Konan hafði fyr- irfarið sér. Leitaði langt yfir skammt UPPREISNARHREYFING í Mið- Afríkulýðveldinu, UFDR, undirrit- aði í gær friðarsamning við stjórn landsins. Samkvæmt samningnum fá liðsmenn uppreisnarhreyfing- arinnar sakaruppgjöf. Samið um frið FIDEL Castro, leiðtogi Kúbu, hefur að miklu leyti tekið við völdum að nýju eftir að hafa „náð sér nær al- veg“ átta mánuðum eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð, að sögn Hugo Chavez, forseta Venesúela. Castro við völd? HÓPUR þjóðdansara frá Punjab-ríki á Norður- Indlandi sýnir hefðbundinn bhangra-dans við setning- arathöfn hátíðar í indversku borginni Jammu í gær. Yfirvöld í Jammu og Kasmír skipulögðu hátíðina sem á að standa í þrjá daga og hófst með mikilli viðhöfn í gær. AP Þjóðdans á hátíð í Jammu Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HART er nú sótt að Paul Wolfowitz, yfirmanni Alþjóðabankans, fyrir að hafa hyglað ástkonu sinni, Shaha Ali Riza óeðlilega og þrýst er á hann að segja af sér. Riza starfaði hjá bank- anum og að skipun Wolfowitz fékk hún árlegar launahækkanir er námu um 200 þúsund dollurum, 14 millj- ónum króna, skömmu áður en hún skipti um vettvang og hóf störf í ut- anríkisráðuneytinu bandaríska. Allir 24 framkvæmdastjórar lánadeilda bankans undirrituðu í gær yfirlýs- ingu þar sem þeir vísuðu eindregið á bug skýringum yfirmannsins. Haldinn var tilfinningaþrunginn fundur með Wolfowitz og starfs- mönnum bankans á fimmtudag. „Ég gerði mistök og harma það mjög,“ sagði Wolfowitz fyrir fundinn. Hann flutti þar óundirbúið ávarp en við- staddir munu hafa búist við að hann segði þar af sér, að því er segir í blaðinu Financial Times. Það gerði hann ekki en sagði að deilan hefði verið afar „sársaukafull“. Hann hefði hyglað Riza til þess að koma í veg fyrir að hún færi í mál við bankann ef hún yrði neydd til að hætta með vís- un til þess að samkvæmt reglum bankans mega starfsmenn ekki starfa undir neinum sem þeir eiga í ástarsambandi við. Bað Wolfowitz um að sér yrði sýndur skilningur, hann hefði átt við „erfiðan, persónulegum vanda“ að stríða þegar hann hóf störf og var að reyna að læra hvernig hlutirnir gengju fyrir sig á nýjum slóðum. Al- ison Cave, formaður starfsmanna- félagsins, fagnaði afsökunarbeiðn- inni en sagði að Wolfowitz nyti ekki trausts starfsmanna. Hann yrði að gera það sem rétt og viðeigandi væri í stöðunni og segja af sér. Einn af þekktustu haukunum Wolfowitz er þekktur sem einn af forystumönnum svonefndra ný- íhaldsmanna (e. neocons), haukur í utanríkismálum og eindreginn stuðningsmaður Ísraels. Hann var á sínum tíma aðstoðarvarnarmálaráð- herra í stjórn George W. Bush Bandaríkjafor- seta og einn af helstu hvata- mönnum þess að ráðist yrði inn í Írak og Saddam Hussein steypt. Ráðning hans sem yfirmanns Alþjóðabankans 2005 var afar um- deild, m.a. vegna deilnanna um Íraksstríðið. Ekki hefur síður staðið styr um þá stefnu hans í bankanum að berjast gegn spillingu í þróunar- löndum. Wolfowitz hefur bent á að til lítils sé að lána fé til fátækra landa ef spilltir stjórnmálamenn stingi því undan. Shaha Ali Riza var ráðin til Al- þjóðabankans 1997. Hún er fædd í Líbýu (sumar heimildir segja Túnis) en alin upp í Sádi-Arabíu og lauk há- skólanámi við London School of Economics og Oxford. Hún er búsett í Bandaríkjunum en er breskur rík- isborgari, múslími en einnig ákafur femínisti. Hún er fráskilin og hefur barist ákaft fyrir lýðræði, kvenfrelsi og mannréttindum í arabalöndunum. Riza er um 10 árum yngri en Wolfowitz sem er 64 ára, kvæntur og á þrjú börn. Samband þeirra, araba- konunnar og bandaríska gyðingsins, var framan af vel varðveitt leyndar- mál í Washington enda forðuðust þau að láta mikið á því bera. Wolfo- witz og eiginkona hans, Clare Selgin, hafa ekki búið saman frá 2001 eftir að hann var sakaður um að hafa átt í ástarsambandi við starfsmann Scho- ol of Advanced International Studies en þar var hann kennari um sjö ára skeið. Riza vann m.a. með íröskum útlög- um í Bandaríkjunum fyrir innrásina 2003 og barðist fyrir því að einræði Saddam Husseins yrði hnekkt. Í vef- ritinu arab news er fullyrt að Wolfo- witz hafi lengi verið svo blindaður af ást til Riza að hann hafi, er hann var ráðherra, látið skoðanir hennar hafa mikil áhrif á sig þegar hann mat kosti og galla þess að ráðast á Írak. Þau hafi verið sameinuð í þeirri hug- sjón að koma á lýðræði í Miðaust- urlöndum. Talið er að vegna sam- bandsins við Wolfowitz hafi Riza verið einhver áhrifamesti múslíminn í Washington er hann var ráðherra. „Kvennafarið er að koma honum í koll,“ sagði ónefndur heimildarmað- ur í Washington fréttamönnum fyrir tveimur árum. „Paul var haukur í ut- anríkismálum löngu áður en hann hitti Riza en það er ekki gott fyrir ímyndina að vera sakaður um að vera leiksoppur ástkonu sinnar.“ „Ég gerði mistök og harma það mjög“ AP Í vörn Paul Wolfowitz á blaðamannafundi í Washington. Fast hefur verið lagt að honum að segja af sér fyrir að hafa hyglað ástkonu sinni. Shaha Ali Riza
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.