Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLANDSMÓTIÐ í 5 & 5 dönsum, með frjálsri aðferð, fór fram í Laugardalshöll helgina 31. mars til 1. apríl. Rúmlega 130 pör voru skráð til leiks að þessu sinni. Móta- nefnd Dansíþróttasambands Íslands ber hitann og þung- ann af skipulagningu flestra móta hér á landi og fór mótið vel fram í flesta staði. Keppn- isstjórar voru þeir Stefán Guðleifsson og Haukur Ei- ríksson. Keppni hófst að venju með keppni í flokkum sem dansa með grunnaðferð, sem gleðja ávallt augað. Þar er efniviður í framtíð- arafreksfólkið okkar. Þegar nokkrir flokkar höfðu lokið keppni var setningarathöfnin á dagskrá. Ég verð að við- urkenna að innmarsinn í setn- ingarathöfninni var rislítil og ómerkilegur og langt í frá að vera eins hátíðlegur og hann hefur verið í áranna rás. Í kjölfar fánabera héldu tveir og tveir einstaklingar á skilt- um með nöfnum dansíþrótta- félaganna sem tóku þátt í mótinu. Gott og vel ef þessir „spjaldaberar“ hefðu verið í dansklæðnaði, en því var ald- eilis ekki fyrir að fara, heldur voru þeir bara „einhvern veg- inn“ klæddir. Svona gera menn ekki. Það er betra að sleppa innmarsinum en hafa hann svona, að mínu mati. Að hinum svokallaða innmarsi loknum flutti Björn Ingi Hrafnsson gott setn- ingarávarp og hvatti kepp- endur til dáða í þessari fal- legu íþróttagrein. Hápunktur frjálsu paranna Íslandsmeistaramótið í 5&5 dönsum er yfirleitt há- punktur frjálsu paranna á Ís- landi og er yfirleitt það mót þar sem pörin dansa hvað best að mínu mati. Pörin keppa annars vegar í suður- amerískum dönsum (latin) og hins vegar í sígildum sam- kvæmisdönsum (standard). Keppt var í fjórum aldurs- flokkum og þar með átta greinum, þar sem keppt er í tveimur greinum í hverjum aldursflokki. Í flokknum Unglingar IF, voru einungis 3 pör skráð til leiks. Það er í sjálfu sér mjög eðlilegt, þar sem enn eru mörg pör sem keppa í þessum aldursflokki í K-riðlum með grunnaðferð. Það er þó alltaf gaman að fylgjast með þess- um pörum, þar sem þau eru að stíga sín fyrstu skref í dansi með frjálsri aðferð og var það engin undantekning þetta árið. Íslandsmeistarar í þessum flokki í suður- amerískum dönsum voru þau Þorkell og Malín Agla. Þau hafa verið í mikilli framför í vetur og áttu sigurinn skilinn. Þau nýta fætur mun betur núna en þau hafa gert og eins eru þau að styrkjast mjög í efri hluta líkamans og lín- urnar þeirra að verða miklu hreinni. Skammt á hæla þeirra í öðru sæti urðu Pétur Geir og Lena Ruth en þau áttu ekki sinn besta dag en þar eru svo sannarlega á ferð- inni ákaflega efnilegir dans- arar. Valentín og Tinna kepptu í þessu flokki í fyrsta sinn og stóðu sig ákaflega vel og verður gaman að fylgjast með framförum þeirra í fram- tíðinni. Í sígildu samkvæm- isdönsunum urðu Þorkell og Malín Agla einnig Íslands- meistarar. Ég tel að það hafi ekki verið nein spurning um það, þau voru áberandi best á gólfinu. Þau nýttu gólfið vel og dönsuðu ákaflega fallega. Pétur Geir og Lena Ruth höfnuðu í öðru sæti eftir vel dansaða úrslitaumferð. Þau eru samt sterkari í suður- amerísku dönsunum að því er ég tel, en sýndu samt sem áð- ur góða takta á gólfinu í sí- gildu dönsunum. Hörð keppni hjá ungling- unum Gríðarlega hörð keppni var í flokknum Unglingar II F. Þar bitust tvö pör um sig- urinn. Það fór svo að Alex Freyr og Ragna Björk sigr- uðu í sígildu samkvæmisdöns- unum. Þau sýndu frábæra takta á gólfinu og áttu sig- urinn svo sannarlega skilinn að mínum dómi. Dansstaðan þeirra er góð og þau hafa mikla yfirferð yfir gólfið og dansinn þeirra er afskaplega áferðarfallegur. Þau hafa tek- ið miklum framförum að und- anförnu, sérstaklega í því hvernig þau nota fæturna, það er líka það mikilvægasta í þessu öllu. Þetta skilar sér í betra haldi og yfirvegaðri dansstöðu og því að þau klára allar línur miklu betur. Í öðru sæti urðu Sigurður Már og Sara Rós. Þau dönsuðu líka frábærlega vel í sígildu döns- unum og voru mjög fáguð í því sem þau gerðu. Þau eru á réttri leið með fótavinnuna sína og dansstaðan þeirra því mun betri en áður. Ég hefði viljað sjá þau klára allar línur betur, sérstaklega í enskum valsi og „Slow-foxtrott.“ Þau hljóta að hafa verið mjög örugg í sínu sæti, ég tel að enginn hafi getað ógnað þess- um tveimur pörum í þessum hópi, yfirburðir þeirra voru slíkir um helgina. Þegar ég horfði á kynningarumferðina í suður-amerísku dönsunum var ég ekki viss hvort Sig- urður Már og Sara Rós eða Alex Freyr og Ragna Björk myndu vinna. Mér fannst pör- in nokkuð jöfn og spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Þegar pörin dönsuðu svo til úrslita fannst mér eng- in spurning hvort parið myndi sigra. Sigurður Már og Sara Rós komu gríðarlega öflug til leiks, krafturinn og dansgleðin var allsráðandi hjá þeim í úrslitaumferðinni. All- ar línur, fætur og líkams- taktur var með því besta sem ég hef séð til þeirra og þau voru að mínu mati öruggir sigurvegarar. Alex Freyr og Ragna Björk eru frábærir dansarar, um það getur eng- inn efast, en úrslitaumferðin sýndi ekki hvað í þeim býr, þau eiga meira inni en þetta. Línurnar þeirra voru ekki nógu hreinar, fótavinnan ekki eins og hún á að sér að vera. Ég upplifði úrslitaumferðina hjá þeim svolítið eins og það væri eitthvað að, það var ekki allt sett á fullan kraft. En engu að síður frábærir dans- arar sem alltaf er gaman að horfa á! Miklar framfarir Það var ekki síður hörð keppni í flokki Ungmenna. Í „karakterinn.“ Þau hafa eitt- hvað við sig sem dregur aug- að að þeim. Á stundum hefði ég viljað sjá meiri áherslu á fætur og vinnslu í gegnum gólfið, en snerpan og dans- gleðin hjá þeim er ótrúleg. Í öðru sæti voru Björn Ingi og Hanna Rún. Þau eru ekki síðri í suður-amerísku döns- unum en hinum sígildu en áttu kannski ekki alveg sinn dag. Fótavinnan þeirra er hins vegar mjög góð og vinna þau vel í gegnum gólfið. Lín- urnar þeirra eru einnig mjög hreinar og sterkar. Frábær dans í alla staði Í flokki fullorðinna sáust glæsileg tilþrif að vanda. Í sí- gildum samkvæmisdönsum snérist taflið við og Björn Ingi og Hanna Rún fóru með öruggan sigur af hólmi, að mínu mati. Það var allt annað að sjá til þeirra; krafturinn, öryggið og fágunin í dans- inum þeirra var til fyr- irmyndar. Þau hafa svo sann- arlega bitið í skjaldarrendur og ákveðið að sýna hvað í þeim býr. Frábær dans í alla staði! Í öðru sæti urðu Jón Eyþór og Helga Soffía. Þau dönsuðu þessa umferð ekki eins vel og í flokki Ung- menna. Þau virtust svolítið þyngri og þreyttari en eru engu að síður ákaflega góðir og efnilegir dansarar. Ég tel að sigur Gunnars Hrafns og Melisu Ortiz, í suður- amerísku dönsunum í flokki fullorðinna hafi ekki komið neinum á óvart. Þau eru mun þroskaðri dansarar en mót- herjar þeirra og hafa náð að dansa sig mjög vel saman. Þau eru með kröftugar og skemmtilegar lotur og vinna vel úr því sem þau hafa. Þau keppa fyrir Íslands hönd þrátt fyrir að vera búsett í Þýskalandi þar sem þau stunda dansíþróttina af mikl- um móð. Aðalsteinn og Rakel unnu til silfurverðlauna eftir mjög harða keppni við Björn og Hönnu sem unnu til brons- verðlauna. Í flokki Senior var einungis eitt par skráð til leiks þau Eggert Claessen og Sigrún Kjartansdóttir. Ég sakna þess að sjá ekki fleiri pör á gólfinu eins og verið hefur undanfarin ár og hvet hér með Seniorana okkar til að dusta rykið af dansskónum og láta sjá sig á gólfinu sem allra fyrst. Þeim sem vilja sjá nánari úrslit, er bent á heimasíðu DSÍ, danssport.is , þar sem öll úrslit helgarinnar eru tí- unduð, einnig keppni í dansi með grunnaðferð, sem fram fór samhliða Íslandsmeist- aramótinu. Þetta Íslandsmeistaramót í 5&5 dönsum með frjálsri að- ferð, var mjög skemmtilegt fyrir augað og gekk vel í flesta staði, þó svo vissulega komi upp smávægilegir hnökrar við og við. Pörin dönsuðu vel og virtust vera vel undirbúin fyrir mótið. Það sem ég er þó sérstaklega ánægður með, er að nú var því þannig fyrir komið að dómararnir fengu að horfa á pörin í einni kynning- arumferð áður en þeir dæmdu pörin í sæti. Þetta er mikið framfaraskref, því margir dómarar hafa kvartað undan því að þurfa að setja pör í sæti í fyrsta skiptið sem þeir sæju þau. Takk fyrir þetta. Dómarar keppninnar voru fimm og komu víða að, frá Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Bretlandi og Lettlandi. sígildu samkvæmisdönsunum var hart barist um gull- verðlaunasætið. Eftir harða og tvísýna baráttu sigruðu Jón Eyþór og Helga Soffía. Þeim hefur farið mikið fram síðustu 2 ár og gera margt gríðarlega vel. Enski valsinn og „Slow-foxtrottinn“ eru þeirra sterkustu dansar ásamt vínarvalsinum. Þau eru mjúk og nota fætur mjög vel og eins nýta þau tónlistina vel. Það vantar kannski svo- lítið meiri snerpu í bæði tangó og „quickstep“ hjá þeim. Í öðru sæti voru Björn Ingi og Hanna Rún. Þau náðu ekki al- veg að sýna sitt besta í hópi Ungmenna en eru engu að síður frábærir dansarar. Þau eru ákaflega mjúk og nýta bæði gólf og fætur eins og best verður á kosið. Eins finnst mér alltaf unun að horfa á tangóinn þeirra, hann er bæði vel dansaður og flott lota. Í suður-amerísku döns- unum fóru Aðalsteinn og Rakel með sigur af hólmi. Þau eru mjög sterkir dans- arar, að ég tali nú ekki um Glæsileg tilþrif í Höllinni DANS Íslandsmeistaramótið í 5 & 5 Laugardalshöll 31. mars til 1. apríl. Guðmundur Guðmundsson og Jóna Rán Pétursdóttir í Ungmenni K. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Eggert Claesen og Sigrún Kjartansdóttir, senior F. Gunnar Hrafn Gunnarsson og Milisa Ortiz Gomez, fullorðnir F. Alex Freyr Gunnarsson og Ragna Björk Bernburg, unglingar II F. Jóhann Gunnar Arnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.