Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Rósu Björk Brynjólfsdóttur rosabjork@mbl.is MONA Sahlin er þriggja barna móðir sem hefur séð tímana tvenna í sænskum stjórnmálum. Hún hóf af- skipti af pólitík aðeins 16 ára gömul og var lengi vel talin ein helsta von- arstjarna sænska jafnaðarmanna. En hún hefur verið afar umdeild og marg- ir töldu að dagar hennar í pólitík væru taldir fyrir tólf árum síðan þegar hún þurfti að segja af sér varaforsæt- isráðherraembætti vegna fjármála- hneykslis. Hún var á þeim tíma talin helsti arftaki Ingvar Carlssonar, sem var formaður jafnaðarmanna í Svíþjóð og forsætisráðherra. En í stað hennar settist Göran Person í formanns-og forsætisráðherrastólinn. Þrátt fyrir skipbrotið lagði Mona Sahlin ekki árar í bát og fyrir tæpum mánuði var hún kosin formaður sænskra jafn- aðarmannaflokksins og varð þar með fyrsta konan til að veita flokknum for- ystu í 118 ára sögu hans. Hún segist engan áhuga hafa á að vera leiðtogi sem hafi hundrað prósent stuðning flokkssystkina sinna, bara réttan stuðning. Heiðursgestir landsfundar Á landsfundi Samfylkingarinnar, sem settur var í gær, voru þær stöllur Helle Thorning-Smith, formaður jafn- aðarmannaflokksins í Danmörku og Mona Sahlin, formaður sænska sósíal- demókrata, heiðursgestir. Ásamt Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur mynda þær einstakt norrænt tríó kvenna sem leiða jafnaðarmannaflokkana. Sahlin segir í samtali við Morgunblaðið það hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir hana að vera hluti af þessu þríeyki, bæði persónulega og sem leiðtogi stjórnmálaflokks. „Þar sem við erum svo fáar konur sem leiðum jafnaðarmannaflokka er nauðsynlegt að við stöndum saman.“ - En nú eruð þið allar í stjórnarand- stöðu, má segja að það sé dæmigert fyrir stöðu kvenna að þær nái síður að stýra þeim flokkum sem halda um stjórnartaumana? „Ég myndi frekar segja að það sýni traust á konur að kjósa þær til þess að velta stjórnarflokkum úr sessi,“ svarar Mona og hlær. - Er þá munur á kvenkyns- og karl- kynsleiðtogum í pólitík? „Að sjálfsögðu. Konur og menn eru ólík og fyrir utan það hafa karlar haft aðgang að valdinu mun lengur en kon- ur. Bara að hafa þrjár konur sem leiða þessa jafnaðarmanna flokka í lönd- unum þremur er stór sigur fyrir kon- ur. “ - Þú hefur átt langan stjórnmálaferil þar sem hefur gustað um þig, hefðir þú ekki átt að vera í þessari stöðu sem þú ert í nú fyrir 12 árum síðan? „Ég fæ þessa spurningu oft, en ég hugsa ekki þannig. Hlutir gerast og við verðum að læra af þeim. Það koma lægðir og hæðir í lífinu og ef þú ferð í gegnum lífið án áfalla þá ertu ekki sér- staklega vel undirbúin fyrir ábyrgð- arfulla stöðu. Ég varð ekki formaður fyrir 12 árum síðan, það gerðist núna og ég er bara mjög stolt yfir því að vera fyrsta konan til að vera kosinn formaður flokksins akkúrat núna.“ Eins og margir vita hafa opinskáar lýsingar fyrrverandi forsætisráð- herrans, Göran Persons, á mönnum og málefnum í sænskum fjölmiðlum eftir að hann lét af starfi sínu, vakið gríð- arlega athygli. Í lýsingum sínum hefur meðal annars komið fram að Person hefði frekar kosið Margot Wallström, sem á sæti í framkvæmdastjórn ESB, sem eftirmann sinn í stað Monu Sa- hlin. Sahlin er spurð um hvernig sam- bandi þeirra Persons sé háttað eftir opinberanir hans. „Samband okkar Görans er mjög fínt og Margot Wallström er minn besti vinur og ef hún hefði ákveðið að bjóða sig fram til formanns, hefði ég stutt hana til hins ýtrasta. En það gerðist ekki og bæði hafa stutt mig mikið og hjálpað mér. Göran hefur verið hreinskilinn um margt ...“ - Of hreinskilinn ? „Nei, í rauninni er þetta hans mál. Venjulega opna leiðtogar sig ekki fyrr en kannski 30 árum eftir að þeir láta af embætti. Þá eru margir búnir að gleyma þeim málum og persónum sem um ræðir. Þess vegna er það í raun mjög heillandi fyrir marga að heyra hann tala af svo mikilli hreinskilni um mál sem allir verða kannski búinn að gleyma eftir einhvern tíma. Það að stjórnmálaleiðtogi tali opinskátt um hluti og fólk sem er enn svo nálægt okkur í tíma er glænýtt fyrir Svía og það er líka nýtt í sænskum stjórn- málum.“ - Margar skoðanakannir fyrir for- mannskjörið ykkar í síðasta mánuði sýndu að bæði kjósendur og flokks- félagar þínir vildu frekar Margot Wallström sem formann sósíal- demókrata eftir brotthvarf Persons. Hefur þú reynt að lægja einhverjar óánægjuöldur innan flokksins eftir að þú tókst við sem formaður ? „Veistu, ég er ekki þannig leiðtogi að vilja hundrað prósent stuðning við mig, því ég veit að lífið er ekki þannig. Ég vildi vita að ég hefði nægan stuðn- ing til að sinna þessu erfiða starfi og sá stuðningur hefur aukist eftir kjörið. Ég lít síður en svo á Margot sem óvin minn, hún er flokknum afar mik- ilvægur liðsmaður.“ - Ríkisstjórn Svíþjóðar er nú skipuð hægri- og miðjuflokkum, í fyrsta sinn í langan tíma. Hvað ætlið þið jafn- aðarmenn að leggja áherslu á til að koma þessari ríkisstjórn frá völdum ? „Ríkisstjórnarflokkar Svíþjóðar halda úti mjög ósanngjarnri stefnu, þeir gera fátæka enn fátækari, þeir lækka skatta á þá ríku, þeir níðast á atvinnulausum. Ég held í hreinskilni að Svíum líki ekki þessi stefna en Svíar voru líka orðnir þreyttir á okkur og vildu eitthvað nýtt. Þeir fengu það og það kemur í ljós að þeim líkar það ekki. Ég vil sýna þeim að við erum ekki þreytt og að okkur þyrstir ennþá í að breyta Svíþjóð í réttari átt.“ - Það er oft talað um að erfiðara sé fyrir konur að fóta sig innan stjórn- málanna og margir telja að þær fái mun ósanngjarnari gagnrýni en karl- ar, ertu með einhver ráð handa ungum konum sem eru að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum? „Hvað höfum við marga klukku- tíma?“ svarar Mona og hlær. „Konur verða að standa saman, þær verða að skilja að stjórnmál eru mjög erfið og geta verið ljót. Konur ættu ekki að treysta neinu nema þeirra eigin til- finningum og alls ekki að líkja eftir körlum. Það er aldrei vænlegt til ár- angurs. Konur eiga að vera áfram kon- ur og muna að stjórnmál snúast um að breyta framtíðinni til hins betra,“ - Þannig að þú nýtur þess ennþá að lifa og hrærast í hringiðu stjórnmál- anna, þrátt fyrir allt ? „Algjörlega.“ Stjórnmálakonur sem líkja eftir körlum tapa Morgunblaðið/Árni Sæberg Leiðtogi Mona Sahlin var gestur landsfundar Samfylkingar í Egilshöll. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fallist á kröfu föður um að hann fái dóttur sína afhenta til Frakklands, þar sem hann býr, hafi móðirin ekki fært hana þangað innan þriggja vikna. Málavextir eru þeir að foreldrarn- ir voru í óvígðri sambúð í Frakklandi sem lauk árið 2005. Árið áður eign- uðust þau dóttur. Í aðfarabeiðni kom fram að stúlkan hefði búið hjá for- eldrunum til skiptis eftir sambúðar- slit. Dómstóll í París kvað upp þann dóm 8. janúar sl., að lögheimili stúlk- unnar skyldi vera hjá föðurnum og að móðirin skyldi njóta umgengnis- réttar við stúlkuna en að óheimilt væri að fara með barnið úr landi nema með samþykki beggja forsjár- aðila. Í dómi segir að varnaraðili máls- ins, þ.e. móðirin, hafi numið stúlkuna á brott frá Frakklandi og flutt með sér til Íslands. Að mati dómsins kváðu frönsk lög skýrt á um sameig- inlegan forsjárrétt. Þá þættu fram- lögð gögn ekki benda til þess, að al- varleg hætta væri á að afhending barnsins myndi skaða stúlkuna and- lega eða líkamlega eða koma henni á annan hátt í óbærilega stöðu með af- hendingu til föður síns. Þá segir í dómi að stúlkan sé ung að árum og verði ekki annað ráðið en að fram til þess tíma, sem móðir hennar flutti hana með sér til Íslands, hafi hún verið í góðum tengslum við báða for- eldra sína. Þá þættu engin efni til að hafna beiðni föðurins á þeim grund- velli að afhending stúlkunnar væri ekki í samræmi við grundvallarregl- ur hér á landi um verndun mannrétt- inda. Sigríður Hjaltested héraðsdómari kvað upp úrskurðinn. Fær dóttur sína af- henta til Frakklands ÞRJÚ slys urðu með skömmu milli- bili á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag. Sextán ára piltur fingurbrotnaði í Kópavogi á fimmtudagsmorgun. Pilturinn og félagi hans, sem er ári eldri, voru að fikta með sprengiefni þegar óhappið varð, að sögn lög- reglu. Sá slasaði datt þegar hann var að kasta frá sér heimatilbúinni sprengju og við það fingurbrotnaði hann. Í fórum piltanna voru fleiri heimatilbúnar sprengjur sem lög- reglan lagði hald á. Í hádeginu í gær datt kona við Krísuvíkurkirkju. Konan, sem er hér á ferðalagi ásamt fjölskyldu sinni, var flutt á slysadeild en hún mun hafa fótbrotnað. Síðdegis slasaðist síðan karl- maður á þrítugsaldri við vinnu sína í Sundahöfn. Hann klemmdist á milli tveggja vörulyftara en ekki er vitað frekar um meiðsli hans. Slysabylgja Í KÖNNUN sem Blaðið birti í gær mælast vinstri grænir með mun minna fylgi en flokkurinn hefur fengið í könnunum að undanförnu. VG fær 15,5% fylgi í könnunni og mælist með minna fylgi en Samfylk- ingin. Samkvæmt könnuninni fær Sjálf- stæðisflokkurinn 45% fylgi, Sam- fylking 19%, VG 15,5%, Framsókn- arflokkur 9%, Frjálslyndi flokkurinn 9%, og Íslandshreyf- ingin 2,4%. Skoðanakönnun Blaðsins var símakönnun sem gerð var 11. apríl. Úrtakið var 800 manns. 54,7% tóku afstöðu, 36,7% sögðust vera óákveðin og 8,6% ætluðu að skila auðu. VG mælist með 15,5% fylgi ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.