Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir HEIMSFRUMSÝNING Vinkona hennar er myrt ogekki er allt sem sýnist Magnaður spennutryllir með súperstjörnunum Halle Berry og Bruce Willis ásamt Giovanni Ribisi Hve langt myndir þú ganga? Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Perfect Stranger kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára Hot Fuzz kl. 10 B.i. 16 ára Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 4 og 6 School For Scoundrels kl. 8 TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára Perfect Stranger kl. 3, 5.30, 8, og 10.30 B.i. 16 ára Perfect Stranger LÚXUS kl. 3, 5.30, 8, og 10.30 Mr. Bean’s Holiday kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 og 4 Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára TMNT kl. 2, 4, 6 og 8 B.i. 7 ára School for Scoundrels kl. 10 FRÁ DANNY BOYLE LEIKSTJÓRA 28 DAYS LATER OG TRAINSPOTTING KEMUR SPENNUTRYLLIR ÁRSINS! “Besta sci-fi mynd síðustu tíu ára.” D.Ö.J. Kvikmyndir.com eee “Sólskin er vel þess virði að sjá.” H.J. MVL eeee “Magnþrunginn spennutryllir og sjónarspil sem gefur ekkert eftir” - V.J.V. Topp5.is SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI? Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur í flottustu ævintýrastórmynd ársins ANNAR ÞESSARA TVEGGJA HEFUR HEILA... ...Á STÆRÐ VIÐ HNETU! Frábær gamanmynd frá leikstjóra Old School með Billy Bob Thornton og Jon Heder úr Napoleon Dynamite. Of góður? Of heiðarlegur? Of mikill nörd? eee Ó.H.T. Rás2 Grátandi barn er ávallt mynd-efni sem er víst til aðhræra í og snerta áhorf- andann á einhvern hátt. Það er allavega erfitt að standa al- gjörlega á sama gagnvart þannig senu en slíkt er myndefnið í einni af vinsælustu málverkaseríu heims sem gengur yfirleitt undir nafninu „Grátandi drengir“. Eftirprentanir af málverkunum voru framleiddar í gífurlega magni í Bretlandi á ní- unda áratugnum og hafa þau í kjölfarið ratað inn á heimili um víða veröld – ekki síst hér á landi. Málverkin sem um ræðir eru til í nokkrum útfærslum og öll sýna þau sorgmædd og grátbólgin börn og þrátt fyrir að þær séu kallaðar „Grátandi drengir“ eru nokkrar myndirnar af stúlkubörnum. Skapari verkanna er spænskur að uppruna og er þekktastur undir nafninu Bragolin en hann hefur einnig gengið undir nöfnunum Franchot Seville og Bruno Ama- dio. Líkt og myndirnar af grátandi börnunum er málarinn sveipaður goðsagnakenndum blæ en litlar heimildir virðast vera til um hann. Ber þó flestum saman um að hann sé frá Sevilla á Spáni.    Tárvotu börnin hafa orðið sér-lega vinsæl á meðal unnenda „kitsch“-listar, þ.e.a.s. fjölda- framleiddrar og yfirleitt smekk- lausrar listar. Döpur augu barnanna eru máluð á þann hátt að þau verða nánast yfirgengilega brjóstumkennanleg. Það mætti kalla það eins konar tilfinn- ingalega gjörnýtingu á myndefn- inu og veldur því að myndirnar verða að vissu leyti óþægilegar og jafnvel smekklausar. Þó eru aðrir þeirrar skoðunar að myndirnar séu fyrst og fremst prýðilegasta augnayndi en eins og fyrr segir hafa þær ekki síst fund- ið sér heimkynni á íslenskum heimilum. Og að sama skapi hafa ófáir Íslendingar velt vöngum yfir þessum myndum og þá sérstkalega hvað það sé sem grætir börnin. Þannig vangaveltur hafa orðið efni í alls konar mýtur og flökku- sögur, hérlendis og erlendis, og tengjast margar þeirra dul- arfullum húsbrunum og umkomu- lausum munaðarleysingjum. Myndirnar urðu fyrst vinsælar snemma á níunda áratugnum í Bretlandi þar sem þær prýddu nánast annað hvert heimili. Fóru þá fljótlega á kreik ýmsar sögur varðandi myndirnar og tárvotu börnin. Þann 4. september árið 1985 gerðist nokkuð sem átti eftir auka enn á goðsögnina um börnin og dulmagn myndanna en þá birtist grein í breska slúðurblaðinu The Sun um slökkviliðsmann sem hafði tekið þátt í að slökkva elda í nokkrum húsum. Sagðist hann ítrekað hafa fundið í þessum hús- um algjörlega ólöskuð málverk af grátandi börnum en allt annað hafði orðið eldinum að bráð. Sagði slökkviliðsmaðurinn jafnframt að enginn slökkviliðsmaður gerðist svo djarfur að hengja upp slíka mynd á sínu heimili af ótta við eldsvoða.    Í kjölfarið birtust nokkrar grein-ar á næstu mánuðum í The Sun og öðrum breskum slúðurblöðum um húsbruna þar sem íbúar höfðu átt eftirprentun úr umræddri mál- verkaseríu. Í sjálfu sér var ekkert óeðlilegt við þessa húsbruna. Þeir eru í fyrsta lagi nokkuð tíðir í Bretlandi og eins og áður sagði prýddu eftirprentanirnar nánast annað hvert breskt heimili. Engu að síður hafði fréttin um „bölvun grátandi drengjanna“ mikil áhrif og í nóvember á sama ári stóð The Sun fyrir bálköstum víða um land- ið þar sem átti að eyða mynd- unum. Nornaveiðin hafði þó öfug áhrif og jók enn á vinsældir verkanna og áhrifamagn þeirra. Og ennþá eru þessar myndir með útbreidd- ustu eftirprentunum í heimi. Hví græturðu, barn? AF LISTUM Þormóður Dagsson »Myndirnar urðufyrst vinsælar snemma á níunda ára- tugnum í Bretlandi þar sem þær prýddu nánast annað hvert heimili. Fóru þá fljótlega á kreik ýmsar sögur varðandi myndirnar og tárvotu börnin. Goðsagnakennt Líkt og myndirnar af grátandi börnunum er málarinn sveipaður goðsagnakenndum blæ en litlar heimildir virðast vera til um hann. Ber þó flestum saman um að hann sé frá Sevilla á Spáni. thorri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.