Morgunblaðið - 14.04.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 23
ERLENT
Bagdad. AP. | Fulltrúar á íraska þjóð-
þinginu héldu í gær sérstaka minn-
ingarathöfn um þá sem biðu bana í
sprengjutilræði á kaffistofu þingsins
í fyrradag. Margir þingmenn voru
fjarverandi vegna takmarkana sem
gilda um ferðir bifreiða í Bagdad á
föstudögum, en þær voru settar á til
að fyrirbyggja sprengjuárásir á
óbreytta borgara sem á föstudögum
flykkjast í moskur. Hófst þingfund-
urinn einni og hálfri klukkustund
síðar en áætlað var vegna öryggis-
ráðstafana og dræmrar mætingar.
Sprengjutilræðið í fyrradag var
talsvert áfall, enda kemur íraska
þingið saman inni á græna svæðinu í
miðborg Bagdad; en þar sér Banda-
ríkjaher um öryggisviðbúnað og er
hann umtalsverður. Velta menn fyrir
sér hvernig ódæðismanninum tókst
að komast alla leið inn í kaffistofu
þingsins.
Talið hafði verið að átta hefðu fall-
ið í tilræðinu, en í gær sögðu Banda-
ríkjamenn að aðeins einn hefði týnt
lífi. Virðist hafa verið um þingmann-
inn Mohammed Awad að ræða en
Mahmoud al-Mashhadani þingfor-
seti minntist hans sérstaklega við
upphaf fundarins í gær. Þingheimur
fordæmdi árásina og al-Mashhadani
sagði neyðarfund þings skilaboð til
hryðjuverkamannanna um að þeim
yrði ekki leyft að stöðva pólitíska
framþróun í Írak.
Segja hryðjuverkamenn
ekki fá að hafa betur
Reuters
Árás Öngþveiti ríkti í íraska þinginu í fyrradag þegar sprengjan sprakk.
Moskvu. AP. |
Rússneski auðjöf-
urinn Borís Bere-
zovskí hvetur til
þess að valdi
verði beitt til að
steypa Vladímír
Pútín Rússlands-
forseta af stóli.
Hann segir tals-
verðan stuðning
við þær hugmyndir sínar meðal póli-
tískra frammámanna í Rússlandi.
„Við þurfum að beita valdi til að
skipta út þessari stjórn,“ sagði Bere-
zovskí í viðtali sem birtist á vefsíðu
The Guardian. Öðruvísi verði ekki
komið á stjórn í Rússlandi sem
standist stjórnarskrá landsins. Og
Berezovskí sagðist hafa veitt fjár-
magni til aðila innan Rússlands sem
vinna að því að ná völdum í landinu.
Berezovskí var áður innsti koppur
í búri í Kreml en lenti upp á kant við
Pútín og flúði til Bretlands, þar sem
honum var veitt pólitískt hæli. Hann
segir Pútín fara fyrir alræðisstjórn.
Rússnesk stjórnvöld brugðust
ókvæða við yfirlýsingum Berezovsk-
ís og ítrekuðu óskir sínar um að
bresk stjórnvöld framseldu hann til
Rússlands. Augljóst væri að hann
hefði gerst brotlegur við skilmála
hælisleyfisins, sem Bretar veittu
honum á sínum tíma, með því að æsa
til uppreisnar í Rússlandi.
Berezovskí hefur áður látið svipuð
ummæli falla en orð hans nú koma í
aðdraganda þingkosninga í Rúss-
landi og í mars á næsta ári eiga síðan
að fara fram forsetakosningar.
Vill vopnaða
byltingu
Borís Berezovskí
París. AFP. | Spænsku læknarnir og
hjúkrunarfræðingarnir sem reglu-
lega bjarga lífum annars fólks í
vinnunni breytast umsvifalaust í
stórhættulega ökumenn er þau setj-
ast undir stýri bíla sinna.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
nýrrar Evrópukönnunar en þar
kemur fram að Spánverjar eru
gjarnastir allra Evrópuþjóða á að
aka undir áhrifum áfengis, en rekja
má 30–50% dauðaslysa á Spáni til
þess að ökumaður hafi verið ölvaður.
Sambærilegar tölur í Evrópu rokka
frá því að vera 40% á Írlandi og niður
í 14% í Bretlandi og Þýskalandi.
Sérstaka athygli vekur hins vegar
í niðurstöðunum að hlutfallið er
hærra meðal spænsks heilbrigðis-
starfsfólks en annarra íbúa Spánar.
Læknar og hjúkrunarfræðingar eru
þannig tuttugu prósent líklegri til að
aka bíl sínum eftir að hafa neytt
áfengis en nokkur annar hópur há-
skólamenntaðs fólks.
Karlkyns hjúkrunarfræðingar
teljast sérstaklega hættulegir, næst-
um helmingur allra sem tóku þátt í
könnuninni sögðust einhvern tímann
hafa ekið bíl eftir að hafa neytt
áfengis. Karlar eru næstum tvöfalt
líklegri en konur til aka ölvaðir.
Aka ölvuð
eftir að hafa
bjargað fólki
♦♦♦