Morgunblaðið - 14.04.2007, Page 35
stór meirihluti kynferðisofbeldismanna
þekkja barnið eða tengjast fjölskyldu þess.
www.blattafram.isþögnin er versti óvinurinn
Kynferðisofbeldismönnum er treyst af fjölskyldunni og barninu. Þeir
eru í aðstöðu til að “lokka” börnmeð ástúð og athygli þannig að börnin
eiga erfitt með að greina þá athygli semmisnotkun. Þeir verja miklum
óáreittum tíma með barninu og gefa því gjafir og peninga að
tilefnislausu ... Kynferðisofbeldismenn eru flestir mjög viðkunnalegir.
Kynferðislegt ofbeldi á börnum er glæpur. Kynntu þér hvernig þú getur
leitað eftir aðstoð á www.blattafram.is. Ef velferð barns er í húfi
hringdu þá í síma 112.
Rjúfum þögnina!
erum ekki með efri skápa,“ segir
María, sem lét Kjartan að mestu leyti
ráða hönnun alls hússins og vali á inn-
réttingum og tækjum „…með mínu
samþykki þó að sjálfsögðu“, segir
hún og brosir. Allt timburverk í eld-
húsinu er frá Fagus í Þorlákshöfn og
steinplatan á eldhúsbekknum er frá
S. Helgasyni.
Ekki eins mikið
rok og á Seltjarnarnesi
Parketið á gólfinu er gegnheilir
niðurlímdir plankar. Gluggarnir í
húsinu er óvenju glæsilegir, ná niður í
gólf í borðstofunni og franskir ramm-
ar eru í efsta hluta þeirra. „Ég er ekki
með neinar gardínur og mér finnst
það alveg yndislegt,“ segir María.
„Það truflar mig ekkert þó að fólk
sem gengur fram hjá horfi hérna
inn,“ bætir hún við glettin.
María og Kjartan bjuggu áður fyrr
vestur á Seltjarnarnesi og flutning-
arnir voru þess vegna heilmikil breyt-
ing á þeirra högum. „Það er ekki eins
mikið rok hérna og úti á Nesi,“ segir
María um staðsetninguna. Frá hús-
inu er stuttur gangur niður að vatn-
inu og útivistarsvæði eru þarna allt
um kring.
Veggurinn góði Stefán Bogi á hugmyndina að veggnum og
hann teiknaði líka svarta skenkinn sem stendur uppi við hann.
Á pallinum Börnin una sér sæl og glöð við að leika sér á pall-
inum þar sem komið hefur verið fyrir rólum og rennibraut.
Fyrir dömuna „Það er svo margt sætt hægt að finna til að gera
stelpuherbergið fallegt,“ segir María um rúmgott herbergið.
sia@mbl.is
Skúlptúr María heldur mikið upp á
kertastjakann frá Georg Jensen.
Píanóhornið María leikur á píanó,
en hún lærði í nokkur ár þegar hún
var yngri og spilar fyrir fjölskyld-
una við sérstök tilefni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 35