Morgunblaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDLIST
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Damien Peyret
Opið virka daga frá kl. 12-19 og um helg-
ar frá kl. 13-17 . Sýningu lýkur 26. maí.
Aðgangur ókeypis.
Í LJÓSMYNDASAFNI Reykjavíkur
sýnir franski listamaðurinn Damien
Peyret myndröð sem hann kallar
Sund og gufa. Myndirnar sýna fólk á
öllum aldri í laugunum, ýmist á sundi
eða í slökun. Eru myndirnar teknar á
Sx-70 Polaroid vél, stækkaðar upp og
eins og venjan er með polaroid mynd-
ir, þá liggur einhver húðslikja yfir
myndunum sem fletur þær út en
dregur um leið fram einn ráðandi lit,
sem í þessu tilfelli er blár.
Í þessu gufukennda polaroid-
umhverfi skapast einkennileg dul-
ræna og maður er ekki viss um hver
af fyrirsætunum sé lífs eða liðin, fólk
eða huldufólk. Hvarflaði að mér að
þessi dularfulla polaroidvél hefði
skyggnast yfir í aðrar víddir og sýndi
sjötta skilningarvitið í mynd. Þótti
mér huggun að sjá hve mikil ró liggur
yfir hulduheimi sundlauganna.
Í stuttmynd sem Peyret sýnir sam-
hliða ljósmyndunum er greint frá ís-
lenskum ungmennum á fylleríi í
leigubíl og endar gamanið í þessum
dularfullu laugum. Tökuvélin er ekki
gædd þessum ófresku eiginleikum
polaroidvélarinnar og notar listamað-
urinn hana frekar til að poppa sýn-
inguna upp með tilheyrandi hrökk-
klippingum og popptíví stemmningu.
Ljósmyndirnar sjá svo um að leiða
ímyndunaraflið lengra.
Jón B.K. Ransu
Hulduheimar
sundlauganna
Í sundi „Í þessu gufukennda pol-
aroid umhverfinu skapast ein-
kennileg dulræna og maður er ekki
viss um hver af fyrirsætunum sé lífs
eða liðin, fólk eða huldufólk.“
MYNDLIST
ANIMA gallerí, Lækjargötu 2b,
IÐU-húsi, 2. hæð.
Bjarni Sigurbjörnsson. Málverk
Sýningin stendur til 15. apríl. Opið alla
daga kl. 10–22. Aðgangur ókeypis.
HIN RISASTÓRU málverk
Bjarna Sigurbjörnssonar eru gerð
þannig að þunnri málningu er hellt
í grunnan plexíglerkassa eftir
kúnstarinnar reglum. Liturinn er
misþunnur og látinn leka í ýmsar
áttir, stundum eru það eingöngu
tónar í einum lit eins og bláum eða
rauðum en stundum leika margir
litir hlutverk í einu verki.
Það sem er heillandi við verkin
er mismunandi gegnsæið í litunum,
efnahvörf sem verða þegar vatni
og olíu er blandað saman og
skuggaspil sem myndast á veggn-
um fyrir aftan málverkin. Þar sem
Bjarni lætur litinn gjarnan flæða
frá miðju út á jaðrana þá minna
málverkin oft á landslag sem tekin
hefur verið mynd af úr lofti. Það
er ekki frá því að manni finnist
maður kannist við einhver eldfjöll,
jökla, streymandi eða storkið
hraun eða ár sem kvíslast í allar
áttir á öræfasöndum.
Verkin eru ákaflega litrík og
fara vel í húsnæði IÐU-hússins
þar sem ANIMA galleríið hefur
komið sér fyrir í. Verk af þessu
tagi eru hvalreki fyrir fólk sem les
heilu skáldsögurnar í landslagi eða
erótískar myndir á kvistóttum
krossviði.
Þóra Þórisdóttir
Sköpunarferlið
„Það er ekki frá því að manni finn-
ist maður kannist við einhver eld-
fjöll, jökla, streymandi eða storkið
hraun eða ár sem kvíslast í allar
áttir á öræfasöndum.“
TÓNLEIKAR
Litlar freistingar
Píanótónleikar: Þórarinn Stefánsson á pí-
anó
Á vegum Tónlistarfélags Akureyrar,
Ketilhúsinu á Akureyri föstudaginn 6.
apríl sl. kl. 12.15.
Á dagskrá: Næturljóð op. 55 í f eftir
Chopin og Sónata í C KV 330 eftir Moz-
art.
ÉG er mjög ánægður með að Tón-
listarfélagið á Akureyri skuli bjóða
upp á tónleikaröð í föstudagshádegi
og búa þannig til nýjan valkost í að
neyta tónlistar og njóta um leið
ágætra rétta.
Nú var tónlistarrétturinn borinn
fram af Þórarni Stefánssyni píanó-
leikara. Þórarinn hefur verið mjög
atkvæðamikill í tónlistarlífi við
Eyjafjörð og mikilvirkur sem tón-
leikahaldari í Laugarborg, jafn-
framt því að leika á mörgum tón-
leikum og kenna
á píanó. Þessir
tónleikar fóru
mjög vel af stað
og túlkaði Þór-
arinn Næturljóð
Chopins af
næmi og innsæi.
Dró fallegar lín-
ur í hendingum
og kröftugum
andstæðum í
styrkleika. Ef til vill hefði mátt
draga úr pedalnotkun. Mozart varð
honum eins og svo mörgum viss
hindrun, en eins og flestir vita eru
verk Mozarts svo tær að minnsta
gára á yfirborði vatnsins getur
gruggað. Þannig hefði Þórarinn
sloppið ef hann hefði sleppt því að
leika utanað. Ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar að hljóðfæraleik-
arar eigi ekki að hika við að hafa
nótur ef það þjónar vandaðri flutn-
ingi og öfugt. Eftir að hafa ruglast í
utanbókarleik í byrjun náði Þór-
arinn í nóturnar og við það varð
leikur hans öruggur og túlkun oft
sannfærandi. Þórarinn leikur með
syngjandi og músíkölskum tón, en
þyrfti stundum að gefa sér betri
tíma.
Jón Hlöðver Áskelsson
Chopin og
Mozart í
Ketilhúsinu
Þórarinn
Stefánsson
TÓNLIST
Háskólabíó
Sinfóníutónleikar. Verk eftir Mendels-
sohn, Berlioz og Schumann. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands lék undir stjórn Vla-
dimirs Ashkenazy. Einleikari: Gülsin
Onay. Fimmtudagur 12. apríl.
EINHVERN tímann í kringum
árið 1975 var tekið stórkostlega
skemmtilegt útvarpsviðtal við Al-
freð heitinn Flóka myndlist-
armann. Í myndum Flóka tókust
gjarnan á öfl ljóss og myrkurs og
ekki var alltaf á hreinu hvor sigr-
aði. Það var því viðeigandi að á
meðan rætt var við Flóka mátti
heyra Draumórasinfóníuna eftir
Hector Berlioz í bakgrunni. Hún
fjallar um mann sem er svo hel-
tekinn af vonlausri ást til konu
nokkurrar að hann reynir að
stytta sér aldur með ópíumi.
Skammturinn dugir þó ekki til
annars en að skapa martröð um
nornamessu, og það er hin ægileg-
asta samkoma.
Þetta frábæra verk var á dag-
skrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands
á fimmtudagskvöldið. Vladimir
Ashkenazy stjórnaði hljómsveit-
inni af dæmigerðu öryggi og inn-
lifun, enda lætur honum einkar að
túlka djöfulgang, hvort heldur
sem er á píanóið eða í gegnum
hljómsveit. Fæstir hafa túlkað
hinar öfgakenndu etýður Franz
Liszt með viðlíka tilþrifum, og
sami andi sveif yfir vötnunum á
tónleikum Sinfóníunnar. Útkoman
var með því magnaðasta sem ég
hef heyrt lengi, enda æpti fólk af
hrifningu. Hljómsveitin spilaði líka
af tæknilegum yfirburðum; tré-
blásararnir voru t.d. frábærir og
hvorki meira né minna en fjórir
hörpuleikarar voru nánast búnir
að toga mig upp til himna. Ægi-
legur undirheimablástur frá
tveimur túbuleikurum togaði þó í
hinn endann og það hlýtur að vera
einhver mesti gauragangur sem
heyrst hefur á Sinfóníutónleikum
frá upphafi! Samt voru öll fínlegu
blæbrigðin einnig til staðar í mús-
íkinni. Það er einfaldlega ekki
hægt að biðja um meira.
Melúsína hin fagra eftir Mend-
elssohn var líka frábærlega flutt,
en því miður var ekki sama uppi á
teningnum í píanókonsert Schu-
manns, þar sem hin tyrkneska
Gülsin Onay var í einleiks-
hlutverkinu. Onay spilaði vissu-
lega afar fagmannlega; allar nótur
voru á sínum stað, hendingar fal-
lega mótaðar og samspilið við
hljómsveitina yfirleitt nákvæmt.
Það dugði bara engan veginn til.
Hvar voru tilfinningarnar sem ein-
kenna tónlist Schumanns? Spila-
mennskan var fyrirsjáanleg og lit-
laus, Onay tók aldrei áhættu og
var útkoman andlaus og leiðinleg.
Óneitanlega var Berlioz skemmti-
legri. Jónas Sen
Ópíumvíma
á Sinfón-
íutónleikum
Morgunblaðið/Ásdís
Stjórnandinn Vladimír Ashkenazy
Miðasala í síma 4 600 200 I www.leikfelag.is
ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI!
Uppsetning LA og Leiklistardeildar LHÍ
Sýnt í Rýminu Rýmið er samstarfsverkefni LA og
Einróma lof! Tryggðu þér miða í tíma!
Fös. 20. apríl kl. 21.30 Örfá sæti laus
Lau. 21. apríl kl. 19 UPPSELT
Lau. 21. apríl kl. 21.30 Aukasýning
Fös. 27. apríl kl. 19 Örfá sæti laus
Lau. 28. apríl kl. 19 Laus sæti
Fim. 3. maí kl. 20 Í sölu núna
Fös. 4. maí kl. 19 Í sölu núna
Fös. 13. apríl kl. 19 UPPSELT
Fös. 13. apríl kl. 21.30 UPPSELT
Lau. 14. apríl kl. 19 UPPSELT
Lau. 14. apríl kl. 21.30 Örfá sæti laus
Fim. 19. apríl kl. 20 UPPSELT
Fös. 20. apríl kl. 19 UPPSELT
Næstu sýningar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sýningum lýkur í maí
„Óvenjuleg og áhrifamikil sýning... sem hefur mikið að segja” ÞT, Mbl
„Forvitnileg og manneskjuleg sýning sem skilur mikið eftir sig... skondin og hrífandi
sýning með frábærri músík...” KHH, Fréttablaðið
„Mjög ánægjuleg upplifun... hvergi dauður punktur... ég mæli eindregið með
þessari heillandi sýningu“ HÁ, RÚV
„Tekst vel að skapa hlýlega og innilega stemningu... einfaldlega æðisleg” ÞES, Víðsjá, RÚV
„Ástúðlegt og lokkandi, hættulegt og spennandi” IS, Kistan
„loksins, loksins! …tímamótaleikhús” HH, Dagur.net