Morgunblaðið - 15.05.2007, Side 21
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 21
daginn eftir keppnina.
Þannig heyrði Víkverji
af heilli fjölskyldu í Ár-
ósum sem hamaðist á
dönskum farsímum sín-
um við að kjósa framlag
Íslands. Engin af þeim
atkvæðum munu hafa
skilað sér. Þá vitum við
af hverju Eiríkur fór
ekki áfram, þar var
engin austantjalds-
mafía á ferð heldur
danski Síminn!
x x x
Víkverji getur tekiðundir orð margra
um að kosningabar-
áttan hafi verið leiðinleg. Ekki fyrr
en á miðri kosninganótt fóru for-
menn stjórnmálaflokkanna að slá á
léttari strengi í kosningavökum sjón-
varpsstöðvanna. Enn hýrnaði á þeim
brúnin kvöldið eftir er þeir mættu í
umræður í sjónvarpssal, kviðlingar
tóku að fjúka og Ómar Ragnarsson
hélt uppi stuðinu. Hann fékk meira
að segja Jón Sigurðsson til að syngja
með sér, en Víkverja fannst hinn nýi
formaður framsóknarmanna heldur
alvörugefinn og fræðimannslegur í
kosningabaráttunni. Enda hafði öldr-
uð móðir Víkverja það á orði eftir
þáttinn, en hún hefur nú oftast kross-
að við íhaldið, að hún hefði nú senni-
legast kosið framsókn ef hún hefði
séð Jón syngja fyrr!
Já, það skilar ekki mörgum at-
kvæðum að syngja í sjónvarpi daginn
eftir kosningar...
Nú getur þjóðin far-ið að hugsa um
eitthvað annað þegar
kosningar og Evr-
óvisjón eru að baki.
Víkverji tók þátt í báð-
um þessum kosningum
og kaus að sjálfsögðu
rétt, líkt og hann gerir
alltaf. Reyndar gat
Víkverji eins og aðrir
Íslendingar ekki kosið
Eirík rauða í und-
ankeppninni og eyddi
símtali á hina íðilfögru
norsku söngmær sem
skipti reglulega um
ham á sviðinu. Það
dugði ekki til, hvorki
hún né Eiríkur komust í lokakeppn-
inni fyrir æstum og nýfrjálsum aust-
antjaldsþjóðum sem hamast líkt og
kálfar á vori í þessari keppni, nýlega
sloppnar undan oki kommúnismans.
Á úrslitakvöldinu reyndist Vík-
verji hafa kosið rétt. Hann kaus
serbnesku söngkonuna í karlmanns-
fötunum, ekki bara vegna söngkrafta
hennar og listfenginnar lagasmíði,
heldur ekki síður vegna hinna seið-
andi og sykursætu bakraddasöng-
kvenna.
Sama kvöld var upplýst að Eiríkur
hefði aðeins verið 14 stigum frá því
að komast áfram í úrslitin og það
gladdi Víkverja. Hins vegar hefur
hann eina skýringu á því af hverju
stigin voru ekki fleiri. Vitað er um
marga Íslendinga í Danmörku sem
náðu ekki sms-atkvæðum sínum í
gegn, fengu þau mörg hver til baka
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Bloggarinn Már Högnason orti er
hann heyrði tíðindin af Tony Blair:
Eftir tíu ára völd
endalokin sér í.
Skála tvö í tei í kvöld
Tony Blair og Cherie.
Hallmundur Kristinsson hafði
áhyggjur af kosningaþátttöku
landsmanna eftir að Eiríkur
Hauksson féll úr keppni:
Eurosigur á sér lætur standa
þótt Eika megi sannarlega hrósa,
en heima situr hnípin þjóð í vanda
og hefur varla rænu á að kjósa.
En góðu heilli þá rættist úr
kosningadeginum og Hálfdan
Ármann Björnsson komst í
hátíðarskap:
Ég bláum klæddist buxunum og bjóst
að kjósa
í rauðum bol, svo rós ég festi
í röndina á grænu vesti.
Kristbjörg F. Steingrímsdóttir
orti eftir að hún skilaði atkvæðinu:
Nú er krossinn kominn á blaðið
í kassann var plaggið sett.
Ekki sést fyrr en upp er staðið
hvort ákvörðunin var rétt.
Lofaði mörgu í leiksins hita
landsins forystusveit
hitt er alveg eftir að vita
hvort efnd verða þessi heit.
Davíð Hjálmar Haraldsson var
ekki í neinum vafa um sitt val:
Ég ætíð hef vanist þeim ágæta sið
– af auðhyggju þjáist ég vægri
en naumast þó nægri –
að styðja þig, íhald, að leggja þér lið,
hér langar mig enn til að merkja þig við
og krossinn því hef lengst til hægri.
VÍSNAHORNIÐ
Af Blair og kosningum
pebl@mbl.is
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður
Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn